03.09.04
Þá hefur Pétur Kristjánsson stimplað
sig út. Ekki bjóst maður nú við því
að hann væri á útleið, enda jafn klassískur
og Keith Richards og maður bjóst við álíka
úthaldi – Pétur væri eiginlega of mikill rokkari til
að deyja, fannst manni. En þessi ömurlegi dauði kemur
alltaf jafn mikið á óvart, helvítið á
honum. Sá Pétur síðast inn um glugga þar
sem hann var með útsölumarkað á Suðurlandsbraut.
Maður sá vel þarna inn þegar maður var á
rauðu ljósi komandi úr World Class, maður þekkti
hann úr fjarlægð á makkanum. Var alltaf að
spá í kíkja á karlinn en það er víst
of seint núna.
---
Pétur var einhver mesti rokkari sem ég veit um. Það
var ómögulegt að sjá hann í öðru
hlutverki. Hann var alltaf helvíti viðræðugóður
og krassandi sögurnar ultu fram af vörum hans eins og konfekt.
Hann var í essinu sínu og það heltist yfir mann
rokkið sjálft að hlusta á hann. Hann var líka
svo minnugur, sagði mér að hann myndi nánast öll
böll sem hann hefði spilað á. Einhversstaðar í
bakheilanum var ég með þá hugmynd að það
þyrfti nú að gera um hann ævisögu, var jafnvel
sjálfur að spá í slíkt. Líklega
of seint núna. Hann var alltaf að spá í að
gera anthology disk um sjálfan sig, byrja diskinn á einhverju
nýju og fara svo söguna aftur á bak og enda á
fyrsta laginu sem kom með honum, frábæru lagi, Vitskert
veröld, sem Einar Vilberg samdi fyrir hann. Ég er viss um að
nú er lag fyrir útgefendur og sá diskur kemur einn
daginn.
---
Pétur kallinn verður fyrirferðarmikill í útvarpsþættinum
Doktor Doktor á morgun. Poppheilinn Stein Skaptason mætir
í þáttinn og við förum yfir feril meistarans.
Þá kemur líka Henrik úr Singapore Sling og fær
að velja óskalög.
---
Pétur lýsti því yfir að Wild Thing yrði
spilað í jarðaförinni sinni. Auðvitað. Rokkið
lifir!
31.08.04
Blonde Redhead koma 19. sept. Spila í Austurbæ með
Slowblow og Skúla Sverris og það eru svona 600 miðar
í boði. Hægt er að kaupa í 12tónum eða
hér.
---
Sá
2 myndir, önnur æðisleg, hin alltílagi.
29.08.04
Eftir 2 Svínasúpuþætti er ég ekki
frá því að þetta sé mun skemmtilegra
en síðast. Sérstaklega er Pétur að koma sterkur
inn. Bestu brandararnir eru með honum, sbr. hápunktur þáttanna
só far, "Mjög sexí rotta". Ég mætti Audda
á göngunum í Norðurljósum í gær
og spurði hver hefði samið þann skets. Viti menn, það
var Pétur sjálfur.
---
Ekki þverfótað fyrir frægu fólki í
dag: Björk með barnavagninn á Ægissíðunni,
Vigdís á jepplingnum sínum á leiðinni út
í Skerjafjörð (að heimsækja Davíð?),
Hannes Hólmsteinn í Ikea, bæjarstjóri Kópavogs
(pabbi Sjóns) eitthvað að vesenast á japönskum
degi í Salnum og svo vorum við næstum búin að
keyra niður Júlíu Stæles þar sem hún
hljóp eins og eldibrandur yfir Hringbraut gengt Þjóðmynjasafninu.
Hún var í rauðfjórublárri peysu og með
digital videókameru og ein á ferð. Hef ekki hugmynd um
hvað hún var að flækjast þarna, kannski var
hún að skoða háskólann af því
hún nennir ekki þessu leiklistarbulli og ætlar á
Íslenskunámskeið. Ég íhugaði að
hringja í Mikael Torfason og láta hann senda papparass á
hana, en hætti við af eintómri góðmennsku og
tillitsemi við Júlíu. Stelpugreyið hlýtur
að mega vera í friði annað slagið.
---
Húrra! John Waters er mættur með nýja
mynd. Vonandi er hún betri en sú síðasta,
sem var drasl.
28.08.04
Ég finn lykt af góðæri. Endurfjármögnun,
vinur minn, er lausnarorðið. Ég skulda x á 3 stöðum,
en tek X á einum stað, borga upp xin þrjú og á
afgang til að eyða í dýrlega eyðslu. Kannski
fell ég fyrir öllum auglýsingunum og kaupi fartölvu.
Þetta mun kosta helling í stimpilgjöld (og helvítis
aumingjarnir láta mann borga aukalega fyrir að borga upp lán)
og ég mun skulda fyrir Xið mitt næstu 40 árin og
borga 4500kall á hverja milljón á mánuði.
Nja. Kannski maður bíði bara þar til verðtryggingin
dettur af líka. Eða heldur bara áfram að borga af
þessum þrem x-um. Nei andskotans þá fæ ég
engan afgang. Offramboða af peningum, hamast þeir við að
tauta núna, og hvar er minn hlutur? Ég finn góðærislyktina
nálgast. Kannski maður skreppi í Bílar og list
eða fái sér appelsínukreistu eftir finnskan innanhúsarkitekt
á 22 þúsund. Húrra fyrir góðærinu!
---
Góðæri eða ekki góðæri, Topp5
er á sínum stað:
The 5678's - 19th Nervous breakdown: Japönsku Quintinfíkjurnar
rokka stíft á Stónsábreiðu.
Björk - Where is the Line: Bara eitt af mörgum súperlögum
Medúllu.
Prodigy - Action radar: Á leiðinni enn einu sinni.
Nýja platan fær víðast hörmungardóma,
en þetta er nú alveg ókei.
Ceebrolistics
- aie i Try: Eitt af elstu rappböndum Finna.
Boyce & Hart - Jumping Jack Flash: Lagahöfundar og
popparar og undursamleg Stónsábreiða.
---
Geng nú berfættur út í eitt samkv. læknisráði.
Kenndi mér meins í þeim hluta fótsins er jarki
kallast (annað slagið nístandi sársauki, eins og
væri verið að berja með sleggju á löppina)
en hef ekki fundið fyrir þessu síðan berfætta
tímabilið hófst. Læknavísindin eru frábær.
---
Er hitabylgjan hætt? Það verða viðbrigði
að ganga í einhverju öðru en T-bol.
---
Hef týnt úrinu mínu sem er ekki gaman. Hvar er
úrið mitt? Kannski fæ ég afgang af Xinu til að
kaupa mér nýtt í Kolaportinu á þúsund
kall.
---
Heilræði dagsins: Ekki eignast börn ef þér
finnst leiðinlegt að stíga berfættur í Cherrioshringi.
27.08.04
Valgeir, sem var í Unun en hefur verið að vinna mikið
með Björk undanfarið, hringdi í mig áður
en ég fór í bústaðinn og vildi fá
mig til að "leika" í Spæk Jóns videóinu
hennar Bjarkar. Vidjóið ku ganga út á að fólk
situr á Sirkus og geiflar sig og grettir í takt við hljóðin
í laginu. Þetta var auðvitað frábært
tækifæri til að komast á þröskuld frægðarinnar
(hver veit hvar þetta hefði endað...?), en því
miður, fjölskyldan gekk fyrir og búið að leigja
rándýran bústað og allt. Ég hef hins vegar
verið að hlusta á Medúllu, nýju Bjarkar plötuna
sem kemur út á mánudaginn, og er ekki frá því
að þetta sé dúndur plata. Allt gert með röddum
(sumum reyndar það ífiktuðum að þær
hljóma ekkert eins og raddir) og bara einfaldlega besta plata Bj
í langan tíma, því ég var ekkert svo
hrifinn af Selmusongs eða Vespertine. Fullt af grúví
stöffi, Where is the Line, Mouth's Cradle t.d. hoppandi ágæt,
og Who is it er svo poppað að það gæti næstum
því verið Sykurmolalag. Eigi veit ég í hvaða
áttir
Björk getur þróast eftir þetta. Kannski kemst hún
að því að það sé ekki lengur frumlegt
að vera frumlegur og gerir hallærislegustu plötu í
heimi. Kannski samvinnuverkefni með Geirmundi og Gylfa Ægissyni.
Hvað veit maður?
---
Er nú næsta þaulkunnugur Selfossi eftir sumarbústaðahangs
í Vaðnesi síðustu daga. Fullt af bláberjum
og heitu vatni í potti. Næs. Nóatún á
Selfossi er langbesta Nóatúnið, veitingahúsið
Hafið bláa klikkaði ekki heldur, en Ingólfsfjall
er ljótt. Alveg væri mér sama þó það
yrði allt notað í vegabætur.
---
Dæmalaust æðislegi útvarpsþátturinn
DR DR er á morgun á Skonrokki frá 12, en ekki til
3 eins og vanalega heldur til 2 út af einhverjum bjánaleik
sem þarf að lýsa. Þátturinn verður með
Stóns-ábreiðu-ívafi að þessu sinni og
ég verð með Hjört Blöndal á línunni
frá Danmörku. Hjörtur lét nokkuð að sér
kveða í íslensku rokki á 8. áratugnum,
var t.d. með HB stúdíóið og gaf út
plötur, en flutti til Danmerkur fyrir löngu. Hann hefur verið
ægilega duglegur í mússikkinni síðustu misseri
og dælir út ágætis plötum sumum í
retró 80s synta fíling. Frekari uppl um Hjört fást
hér.
21.08.04
topp5 takk fyrir:
Blonde Redhead - Doll is mine: Blonde Redhead eru að koma
aftur, þökk sé Grími vini mínum. BRed eru
góð, rokkuðu alveg í tómlegri Höll fyrir
alllöngu í boði Kidda Kanínu, en verða eflaust
enn betri í Austurbæ. Þau eru mætt með nýja
plötu – Misery is a Butterfly – og lag af henni er fyrsta Topp5 lag
dagsins.
Two Lone Swordsmen - Sex Beat: Gamalt Gun Club lag í
fínni útgáfu Andrew Weatherall og Tenniswood. Besta
lagið á ágætri plötu – From the Double Gone
Chapel – fyrsta platan þeirra í 4 ár.
Joe Jackson - Got the Time: Nýbylgjupopparinn góðkunni.
Man að ég las það fyrir löngu að hann tæki
bara neðanjarðarlestina heim eftir gigg í London og það
fannst mér nokkuð kúl. Þetta lag er af annarri
plötunni hans, Look Sharp! (1979).
Singapore Sling - Nightlife: Af nýju plötunni, Lífið
er að drepa mitt rokk og ról, sem er margfalt betri en sú
fyrri. Sullandi góðar suddamelódíur eins og heyra
má af þessu sýnishorni.
The Verlaines - Icarus missed: Nýsjálenskt barrokk-háskólarokk
með miðaldamunkískum áhrifum. Þetta band og
The Chills standa upp úr nýsjálensku tónlistarlífi
á árunum 1985-1990!
---
Ég fór svo sem ekki með miklar væntingar á
Lú Rídd í gær. Hafði ekki hlustað á
heila plötu með honum síðan Blue Mask 1982 og finnst
nýja stöffið hans óspennandi, það sem
ég hafði heyrt. Vissi af mikilfengleika Velvet Underground,
Transformer og nokkurra 70s laga, en vissi líka að Lú
er enginn Paul McCartney, sem ku víst spila eintóm bítlalög
á tónleikum í dag. "Ég er ekkert human djúkbox,"
hafði Lú sagt í DV. En Guðmundur minn almáttugur
hvað þetta var leiðinlegt! Fimm fyrstu lögin voru einhver
hálftími hvert, einfaldar ballöður sem bandið
rúnkaði sér á fram og til baka í einhverri
nújork frídjassinnlifun og svo ýtti Lú á
takkann á fözzboxinu annað slagið og tók gítarsóló
eins og api með hamar. Flott sánd og það hefði
verið gaman að þessum sólóum í bragðmeiri
súpu, en ég var orðinn svo óþolinmóður
og leiður á að glápa á þetta drasl að
ég bað í hljóði um að Godzilla myndi rífa
þakið af Höllinni og éta mig. Vonir glæddust
þegar Venus in Furs kom, en nei, ömurlega hæg og kraftlaus
útgáfa og svo flogaveikt sellósóló sem
öllum fannst voða fínt og Eyþór Arnalds myndi
eflaust velta sér við í gröfinni af hamingju að
heyra (ef hann væri látinn). Sweet Jane í algjörlega
áhugalausri og flatri útgáfu næst og svo ennþá
meira rúnk og leiðindi og hálftíma lög með
10 mínútna gítarsólóum. Æ fokk.
Á leiðinni út sagði maður sem ég þekki
ekki neitt við mig: Hvenær ætlar hann að taka Walk
on the Wild Side svo maður komist heim? Samkv. mínum heimildum
tók hann það síðast í 2. uppklappi svo
manngreyið hefur þurft að pínast nokkuð lengi.
En hinn 62 ára Lú Rídd er/var mikill meistari þótt
þetta hafi verið drepleiðinlegir tónleikar og framtakið
stórfenglegt að fá hann hingað.
---
Ég er svo mikill durtur að það er ekki fyndið.
Set út á Lú Rídd-tónleikana sem fullt
af fólki fannst æðislegt (allavega kerlingarnar sem voru
að reykja hass við hliðina á mér) og er búinn
að vera með allt á hornum mér út af þessu
íþróttaprumpi sem nú flæðir yfir.
Ísland tapar hverjum leiknum af fætur öðrum í
handbolta og væluskjóðan Samúel Örn vælir
um dómaraskandal. Veit í sjálfu sér ekki hvort
sé betra að Ísland tapi eða vinni. Ef við vinnum
ætla allir að springa af þjóðarstolti en í
tapi verða menn sárir og kenna öllu öðru um en
lélegheitum liðsins. Og svo erða þessi helvítis
menningarnótt sem drykkjufólkið í R-listnum innleiddi.
Stærsta útihátíð ársins og hvergi
þverfótað fyrir fullu mannakjöti. Hef því
svarið þess dýran eyð að vera alltaf út
úr bænum á menningarnótt og alltaf í
bænum um Verslunarmannahelgar. Eina hópeflissamkuntan sem
ég tek þátt í ágúst er gay pride,
enda er þar einu sönnu gleðina að sjá. Hitt er
bara svívirðileg fyllirí.
---
Minni enn á Dr Dr
í dag. Megastuð með mega mússikk (m.a.s. Lou Reed!)
og Rögnvaldi gáfaða.
20.08.04
Skonrokk eins árs í dag - Til hamingju! Man þegar
við Sigurjón komum úr fríi fyrir rúmlega
ári og Kiddi Bigfoot tók okkur á teppið og sagðist
vilja stofna þessa stöð og færa Zombie þáttinn
þangað, líklega vegna þess að við værum
of gamlir og "djúpir" fyrir X-gelgjuna. Þetta 10-ára
rokkformat væri alveg að gera sig, sagði Kiddi, og sóknartækifærin
þarna fyrir útvarpssvið Norðurljósa. Ég
fór allur á flug og sá fyrir mér metnaðarfulla
og frábæra stöð, einskonar tímaritið Mojo
í útvarpsformi með kúl mússikk og engum
pleilistum heldur sjálfsstætt hugsandi dj-um og stuði.
Auðvitað voru þetta bölvaðir draumórar og
óraunhæfir í þessu dvergríki, því
blessaður meirihlutinn vill jú helst stöff sem hann hefur
heyrt amk 10 sinnum árum, eða það skildist mér
allavega á Kidda og hvað með það þótt
Rás 2 mældist alltaf með mesta hlustun, það
var bara vegna þess að fólk vildi heyra fréttirnar
hjá þeim, ekki vegna þess að lögin komu ekki
öll af 500 laga lista í tölvu. Bigfoot var því
fljótur að drepa hinar öfgafullu hugmyndir og varpaði
sprengju þegar hann stakk upp á að Hemmi Gunn yrði
með þátt á stöðinni. Hemmi var á
þessum tíma nýkominn heim og nokkuð nýjabrum
af honum. Hemmi Gunn og hin framúrstefnulega stöð var nú
ekki alveg að passa saman í hausnum á okkur Sigurjóni
og þá spurði Kiddi þessarar sígildu spurningar:
Hvað vitið þið hvað Hemmi Gunn er að hlusta á
heima hjá sér?
---
Jæja, svo tók við hlustunartörn á skrifstofu
Kidda þar sem næstum því öllum pönk
og alternative-slögurunum sem ég stakk upp á var hafnað
en sígildu stöffi eins og Creedence og lummum af safndisknum
Best Rock Songs in the World - Ever dælt inn. Allt í lagi
með það svo sem og ég játaði mig snemma
sigraðan.
---
Þar sem mér tókst ekki að gera draumastöðina
var mér nokkuð í nöp við Skonrokk til að
byrja með. Í dag hef ég tekið hana í sátt
og hlusta oftast á hana í bílnum enda nokkuð öruggt
að tónlistin fer ekki illa í mann og maður þarf
ekki að opna rúðuna til að gubba. Ef drasl eins og Knocking
on Heavens Door (leiðinlegasta lag í heimi hvort heldur með
Dylan og Guns n Roses) eða hármetall kemur þá skiptir
maður bara eitthvað annað rétt á meðan. Svo
eru Tvíhöfði á morgnanna (sígilt stuð)
og ef ég hefði meiri áhuga á íþróttum
myndi ég örugglega alltaf hlusta á meistara Valtý
Björn og Hansa B. Svo eru King Kong fínir á laugardögum
og þátturinn minn strax á eftir. Semsé, Skonrokk
er besta stöðin í dag! Síhress þótt
hún sé alltaf tíu árum á eftir.
---
Í hinum öfgagóða þætti mínum,
DR DR, á morgun á milli 12 og 15, verður dæmalaus
stórgleði. Þátturinn verður með skuggalegu
ívafi og sjálfur Rögnvaldur gáfaði Hvanndalsbróðir
kemur og verður með óskalög. Fokking brilljant eins
og æðstipresturinn myndi segja.
---
Hverjum er ekki sama þótt Siv hætti sem umhverfisráðherra?
Er hún sjálfkrafa ómissandi af því hún
er án tittlings? Ætti ekki frekar að líta til þess
að hún hefur verið ömurlegur ráðherra með
allskonar umhverfislið upp á móti sér og er þar
að auki það smekklaus að keyra um á risajeppa.
Því færri framsóknarmenn í ríkisstjórn
því betra.
---
Sá Fahrenheit
9/11 í gær. Mjög góð og mun betri en ég
bjóst við.
19.08.04
Lou Reed ku fara á kostum í viðtalinu við Svanhildi
sem sýnt verður í Kastljósi í kvöld.
Karlinum leist eðlilega nokkuð vel á Svanhildi og spurði
hvort hún væri með einhverjum. Hún sagðist
eiga partner. Hann spurði hvort það væri karl eða
kona. Að lokum fékk að hann símanúmerið
hjá henni. Spurning hvort viðtalið verði mikið klippt.
---
Kerhólakambur ber við himinn vestast á Esjunni. Þetta
helvíti blasir við víða í bænum og lokkar
og laðar. Gekk á draslið í gær. Líður
mun karlmannlegar í dag.
---
Unga framsóknarkerlingin Dagný er bæði konum
og sauðfé til skammar. Oj bara.
17.08.04.
Ríkissjónvarpið í öllu sínu veldi
í kvöld: Norsk heimildarmynd um bókasöfn fyrr og
nú. Ég hreinlega get ekki beðið.
---
...Og önnur heimildarmynd um Lú á Stöð
2 í gær. Nú veit maður hreinlega allt um karlinn.
---
McD tekur sig á eftir dissið í heimildarmyndinni
og er nú með salat og sjitt. Tékkaði á þessu
áðan og þetta er bara nokkuð ágætt. Full
dýrt kannski, 699 fyrir salatskál með grilluðum kjúklingi
með beikoni og ranch sósu.
---
Annars allur að koma til. Hjólaði heilan hring um Rvk
í dag: Ægissíða --> Grótta --> Ævintýraland
Hrafns Gunnlaugssonar (ímyndaði mér að Hrafn (og
jafnvel Davíð, sem væri í heimsókn) myndi
sjá mig og bjóða mér í kaffi, en því
miður...) --> Bryggjuhverfi --> Nýja Morgumblaðshöllin
upp á einhverjum hól, algjört draugapleis (ætl'etta
sé að fara á hausinn fyrst það tókst
ekki að beygja Fréttablaðið í duftið?) -->
Hringur um Rauðavatn --> Elliðaárdalur --> Fossvogur -->
Ægissíða. Ekki nema 26 km skv mínum mælingum
og 3 tíma stím með hléum. Á morgum: Moðerfokking
Kerhólakambur (Esja).
15.08.04
Það er heimildamynd á Skjá Einum í kvöld
um Lou Reed. Byrjar kl. 23:15.
---
Maður ætti kannski að fara að sjá þessa
Fahrenheit 9/11. Ekki það maður viti ekki að Bush og
félagar séu fávitar upp til hópa. Michael Moore
getur verið full mikil væluskjóða og tilfinningaklámhundur.
Verið einum of augljós, kannski til að ná til heimskra
kana. Jú andskotinn, maður fer á þetta helvíti.
Þær eru oftast fyndnar þessar myndir hans.
---
Samt helv. hræddur um að fávitaglottið Bush verði
áfram. Hvað er að þessum demókratahálfvitum
að tefla fram jafn blóðlitlum og ósjarmerandi gaurum
og þessum tveim? Þetta er milljónaþjóð
en ekkert finnst til að fronta baráttuna annað en svona
tuskukallar. Manni liði óneitanlega betur samt með þá
við kjötkatlana en þessa kristilegu fasista sem nú
eru.
---
Davíð Oddsson ætlar að vera áfram í
politík. Og mér sem var farið að hlakka til að
lesa fleiri bækur eftir hann. Djöfulsins. Skil ekki til hvers
hann ætlar að hanga í þessu djobbi áfram.
Ef ég væri búinn að tryggja mér kaup ævilangt
færi ég nú bara að skrifa og skoða heiminn
og eitthvað. Taka því rólega með allt sundurskorið
inní mér.
---
Dreymdi Megas í nótt. Ætli það sé
fyrir einhverju?
---
Hitabylgjan minning ein. Veðurfræðingar að annað
eins komi ekki fyrr en eftir 10 eða 100 ár. Ég er sáttur.
14.08.04
Það er enginn hörgull á Topp5 listum og hér
er sá nýjasti:
Spiderbait - Fucken Awesome: Nýjasti síngull þessarar
áströlsku pöppponkgrúbbbu
Shitmat - Run out of Ideas Babylon: Hugsanlegt gríngabba
af plötunni Killababylonkutz
The Mint Chicks - Octagon Octagon Octagon: Nýsjálenskt
indírokk
Southern Culture on the Skids - Soul City: Grín og gleði
frá Norður Karólínu
Lou Reed - Lady Day: Gamli hundur frá Berlín
13.08.04
Dagbjartur hitti Bubba í gær í góða
veðrinu en ég var því miður ekki með vélina.
Dagbjarti leist vel á Bubba og reif í hálsmenið
hans (hákarlatönn?). Ég var hins vegar með vélina
þegar Dagbjartur hitti Tvíhöfða í dag og eins
og sést fór vel á með þeim:
Doktor doktor á morgun kl. 12 verður með Lú Rídd
í hásæti og ég ætla að spila fullt
af stöffi með honum, Velvet, sóló og örlí
stöff. Þá mætir Jón Ólafsson (sexí/góði)
með óskalögin. Magnað helvíti.
---
Jæja fer þá ekki þessari helvítis hitabylgju
að ljúka? Þetta er orðið gott. Maður hangir
inni með brennt bak og úðar á sig aloa vera kremum,
eða hangir í skuggum eins og skrattakollur.
12.08.04
Ég, neytandinn, tók auðvitað þátt
í saltfiskátaki Hagkaupa og keypti einhvern æðislegan
saltfisk hjá þeim, að ég hélt. Þegar
allt var tilbúið, brauðið og grjónin, kom í
ljós að saltfiskurinn var viðbjóðslegra en flest,
og eiginlega eins og að éta kolsalt plast að ætla
að éta þetta. Helvítis ógeðinu var því
hent og ég segi skamm á Hagkaup og þeirra viðurstyggilega
saltfisk. Ég krefst bóta!
---
Hitabylgja. Ég er sólbrenndur á bakinu eftir poppað
labb á Helgafell í Hafnarfirði. Meira stuð takk.
---
Sá þessa G-Unit fávita í fréttunum
í gær. Dagbjarti verður bannað að hlusta á
rapp!
08.08.04
Sunnudagur = Nýr topp5 listi. Hlustið hér
í súperREALAUDIOgæðum. Náið í
RA-fón ef þið eruð ekki með hann hér.
The Hives - Dead Quote Olympics: Ný plata frá
litla skoffíni og hlunkunum. Útreiknað og sænskt
en skemmtilegt engu að síður.
Razorlight - Stumble & Fall: London og rokk. Engin bylting,
hjakk er gott.
Moondog - Viking I (K.I.M. mix): Heyrði hann Moondog fyrst
á mixdiski K.I.M. "Miyage" en hef kynnt mér hann aðeins
síðan. Sjálfmenntaður avant garde djass naivisti.
Fyrsta platan frá 1956 er þrælmögnuð en þetta
er af Moondog in Europe (1978). Lag sem minnir á gervi-hawaiimennsku
Martins Denny. Unaðslegt.
Mike Ladd - Black Orientalist: Rapparadjöfull frá
USA. Hressandi.
Byltan - Engin lúxus, engin orð: Er Byltan besta
nýja bandið í dag? Já ef þeir eiga fleiri
jafn góð lög og þetta. Sjá nánar á
www.rokk.is.
07.08.04
Hef verið að hamast við Popppunktsspilið og því
lítill tími í þetta hér. Það
þarf nebblega að senda spilið út í framleiðslu
til Kína sem fyrst. Kína er langt í burtu og það
styttist í jólin. Hið frábæra og glæsilega
borðspil ætti þó að ná til landsins í
tæki tíð í jólaösina, í lok
október eða svo. Miklu mun meira um það síðar.
---
Útvarpsþáttur snillinganna, Doktor doktor, er vitanlega
í dag kl. 12 á Skonrokki, útvarpsstöðinni
sem aldrei sefur. Nú verður þátturinn með hundslegu
ívafi og óskalagasjúklingurinn er Doddi litla, aka
Love Guru. Fokkíng brilljant.
---
Át
á nýrri búllu og fór í bíó.
Ætli mar láti svo ekki öllum illum látum í
Geipræd í dag, með rassinn útí loftið
á vörubíl með leðurhommunum
nei ég meina með leðurgrímu keyrandi leðurbarnavagn.
Gangan byrjar kl. 3 svo maður flýtir sér eftir þátt.
DV tók á þessu hommadæmi með risastórri
mynd af Jóhönnu Sigurðard framan á sér. Ha,
er hún lessa? Je minn. Eftirtektarvert að hvorki Valgerður
"Leðra" Sverrisdóttir né Siv "Mótortík"
Friðleifsdóttir komust á forsíðuna, hvað
þá heldur Guðni "Þrumuþarmur" Ágústsson
eða Hannes "Takírass" Árnason. Ég vil engu að
síður óska Framsóknarflokknum til hamingju með
daginn.
02.08.04
Kom fram í Garðakirkju og tók Orfeus og Evridís
fyrir Steina Sleggju og Sunnu. Presturinn var sá sem nú safnar
skeggi fyrir Friðrik Þór og stóð hann sig vel.
Þetta er í annað skipti sem ég tek gigg í
kirkju, í fyrra skiptið tók ég Ástfanga
fyrir Grím. Ég var því ekkert stressaður
í þetta skiptið. Svo var mikið stuðpartí
í Garðaheimilinu eða hvað sem þetta heitir. Ræddi
við prestinn sem staðfesti að lög um dreifingu ösku
væru komin í gegn og nú mætti henda öskunni
af manni hvar sem er. Skikinn
minn úr Fókus virðist því hafa gert gagn
og þetta það eina af viti sem Sólveig Pétursdóttir
gerði á ferlinum. Við Lufsan rokkuðum Æsandi fögur
tvisvar og svo var þetta hressandi brúðkaupsveisla til
2 þegar varð að róta öllu út. Þá
kom sér vel að vera edrú. Samt var ég eiginlega
þunnur fyrir Lufsuhönd í þær og Lilti Lufsinn
þar að auki hress kl. 7 og svona. Lá því
í gerviþynnku í gær með Aktu taktu borgara
og alles. Á leiðinni að kaupa það fæði
hlustaði ég á útvarpið sem var svo einhæft
að mér varð óglatt. Á öllum stöðvum
voru hálfvitar að segja hvað það væri gaman
á þessari og þessari útihátíðinni,
að þar væri að fara að stytta upp og eitthvað
drasl. Ég þakkaði mínu sæla að vera ekki
eins og hver annar hópeflismúgæsingarlemminginn í
tjaldi með mexíkóahatt. Eins og ég geri reyndar
um allar Verslunarmannahelgar því það er langt síðan
maður hefur hreyft sig eitthvað. Ætli Viðeyjarhátíðin
sé ekki bara síðasta skipulagða útihátíð
sem ég fór á! Og fyrir það hafði ég
aldrei farið á útihátíð svo ég
er alveg glataður í þessum efnum. Man þó
eftir útilegum sem ég fór í um Verslunarmannahelgi
þó það væru ekki beint skipulagðar útihátíðir
með hljómsveitum og trúðum.
Nokkrum sinnum á Þingvöllum, 1980-83. Hápunktar:
Svaf í sama tjaldi og stelpa sem var nýlega framan á
Séð og heyrt vegna skilnaðarmáls. Færði
mig ekki upp á skaftið þrátt fyrir líkleg
skilaboð þar að lútandi. / Stelpa sem síðar
átti eftir að verða lesbía og fótboltafrömuður
byrjaði á túr í miðju partíinu og gekk
um á nærbuxunum með blóðslóðina
á eftir sér. / Varð fullur á gini og fékk
verstu timburmenn ævi minnar í sólinni daginn eftir.
Hef ekki drukkið helvítis ginviðbjóð síðan.
/ Krakkar vildu ólmir á tónleika í Kjósinni
(frægir tónleikar Utangarðsmanna, Fræbbblanna o.fl.)
en enginn er á bíl og því ekkert farið.
Þjórsárdalur, 1981. Hápunktar: Smáskífan
Bjór með Fræbbblunum var nýkomin út og ég
búinn að takana upp á kasettu. Blastað úr
mínímalískum gettóblaster ásamt Joy
Division, The Cure, Wire, The Fall o.fl. Þeir sem runnu á
nýbylgjuhljóðin urðu snarlega vinir okkar, allir
aðrir (flestir) hálfvitar. Kynntumst þarna stórum
hópi nýbylgjusinnaðra Keflvíkinga, sem nokkrir
voru í hljómsveitinni Vébandið (síðar
Qjtzí Qjtzí Qjtzí) og svo man ég eftir Þóru
Kristínu fréttamanni genjandi allan tímann inn í
sumarbústað. Mjög þakklátt og gefandi að
kynnast fólki sem var á sömu nýbylgjulengd, sérstaklega
í hópi fábjána eins og vill safnast á
svona mót. Man líka eftir að hafa ælt framan í
mig liggjandi á bakinu og að einhver stelpa hafi legið á
kamarsgatinu og kíkt á mig meðan ég skeit. Þótti
það nokkur upphefð og gekk illa skeindur en vongóður
af vettvangi.
---
Hér er nokkuð stórfengleg
síða nenni fólk að lesa gagnrýni á
kvikmyndir og sitthvað annað, skrifað af íslensku súperbíómyndanördi.
30.07.04
Einhversstaðar út í heimi eru tölvur sem pumpa
endalaust til mín ruslpósti. Ég hef aldrei nýtt
mér þá þjónustu sem boðið er upp
á en áfram pumpast samt draslið til mín, dag eftir
dag, mánuð eftir mánuð. Ef ég myndi gera plötu
sem væri bara með lögum sem væru samin upp úr
subjectum úr ruslpósti sem ég hef fengið myndi
hún til dæmis vera svona:
Dr. Gunni - ÞETTA ER RUSL
1. Hey! I Have A Question For You
2. Upsize to a bigger tool
3. Ambition
4. Fulfill Your Fantasies
5. I missed you!
6. She sucked my dick just the way I told her. Then I fucked the shit
out of her box
7. Living with 73 but
8. Average Bitch Licking Girls Asloshe
9. Don't be the one to look back and say, I had the chance to invest,
but passed...
10. Reverence taught preyed offspring burned puzzle witness belongs
11. Sorry, one more thing
12. I sat and watched the cum drip down her face for 15 minutes while
I had something to eat
Hmmm...
---
Á morgun verður hinn eindæma einstaki og eitilharði
DOKTOR DOKTOR á sínum stað á dagskrá Skonrokks.
Þátturinn verður með sérstöku Jóna-ívafi
og Sunna og Sigga úr Brúðarbandinu sjá um óskalögin.
Magnað helvíti og andskoti.
---
Hey jú beibí hér er nýr topp 5 (Hlustið
yður til ánægju hér)
Ohio Express - Sausalito (Is the place to go): Ég keypti
nýlega safnplötuna Strawberry Bubblegum sem kynnir til sögunnar
dót sem meðlimir 10cc voru að dunda í Strawberry
stúdíóinu sínu áður en 10cc varð
til. Þetta er eitt af þeim lögum, hittari sem aldrei varð
með Ohio Express, sem er eitthvað besta gerviband sögunnar
(Yummy yummy yummy).
Wevie Stonder - Gypsy chimp: Af safn/mixplötu KIM, Miyage
(Tigersushi). Kreisí sjitt.
Lionel Vynil - Owner of a lovely butt: Einhver gaur með
tölvu setti þetta saman. Allavega betri not á tölvu
en að senda mér ruslpóst. Yes tottuðu og ég
ætla ekki einu sinni að þykjast vita hver þessi rappari
er.
The Kinks - Picture Book: Af Village Green Preservation Society
sem nú þykir týnt meistaraverk, enda nýkomið
út á sérmögnuðum cd.
Lali Puna - Micronomic: Ægilega gott indí!
---
Annars þykir mér þetta frábært veður.
Besta veðrið þegar maður þarf að vera inni
að vinna.
28.07.04 Mannlífslýsing fyrir framtíðina
#1
Pósthússtræti kl. 13:25: Raggi Bjarna borðar
pulsu. Páll Banine gengur til austurs og geispar. Leikarinn sem
leikur eingöngu fótboltamanninn Tóta gengur til norðurs.
Gulur station Trabant fretast áfram og hjólaunglingur prjónar.
Mávur gargar á ljósastaur.
---
Er að spá í að fá mér orkedíur.
Líst vel á myndina Goodbye Lenin.
27.07.04
Sé að Brimkló ætla að vera með "innihátíð"
á Broadway um Verslunarmannahelgina.Gott mál að Innipúkakonseptið
sé að dreifast um bæinn. Innipúkinn er annars konsept
sem meðlimir Dr. Gunna og Rúnks duttu niðrá 2002
og í ár er hátíðin haldin að vanda
næsta laugardag. Ég verð reyndar í brúðkaupi
á Álftanesi svo ég verð ekki á svæðinu,
en Rúnk verða þarna í formi Skakkamanage (nýja
bandið hans Svavars) og BenniHemmHemm (nýja bandið hans
Benna). Svo verður þarna hver silkihúfan upp af annarri:
Mammút, Drep, Brúðarbandið, Súkkat, Rass,
KGB, Talnapúki, Skytturnar, Trabant, Singapore Sling, Fræbbblarnir
og Ómar Ragnarsson. Dæmið byrjar kl. 16.00 og stendur
langt fram á nótt. Miðasala í 12 tónum
og miðar á 2200 kall þar en 3000 kr. við innganginn
(verði einhverjir eftir). Fyrstu 50 frá Thule. Dagskráin
verður ekki þannig að minni spámenn verði fyrst
heldur verður þetta dreifðara. Hugleikur er kynnir hátíðarinnar.
Risinn Jón Valgeir frændi Gríms stjórnar útkasti.
Magga Rósa býður upp á léttar veitingar
gegn vægu verði. Sem sé poppþétt stuð
í rokkréttu samhengi.
---
Sit hér annars með sveittan skalla að búa til
spurningar fyrir Popppunkts-spilið, sem kemur að öllu eðlilegu
út fyrir næstu jól.
26.07.04
Blómeyjarhópurinn gekk
á Vífilsfell í gær. Ég fór niður
á rassinum að vanda, enda vill rassinn oft verða fyrir valinu
þegar þarf að komast niður þverhnýpi.
Kannski maður ætti að taka útlendinga í sérstakar
rassaferðir upp á valinkunn fjöll og stofna í því
skyni fyrirtækið Rassferðir Ehf. Ég þurfti vitaskuld
að ná mér líkamlega eftir þetta og fór
í Thai nudd, sem gerir út frá Skólavörðustíg.
Verð að segja að vel tókst til og ég er endurnært
kjötflykki eftir á. Mæli með Thai nuddi fyrir þreytt
og stressað kjöt, ódýrt (3900 kr) og gott. Fékk
í kaupbæti frá nuddaranum ýmiskonar vangaveltur
um hvarf Sri Rahmawati.
---
Anna Kristjáns
hefur blandað sér í "deilur" mín og hljómsveitarinnar
Hot Damn, enda á hún hlut að máli. Anna sendi
mér email, sem í stendur m.a.:
Ég rakst óvart inn á dagbókarsíðuna
þína í morgun og sá þá að þú
hafðir reynt að leiðrétta staðhæfingar hljómsveitar
sem heitir "Hot Damn" varðandi fyrstu íslensku
manneskjuna sem gekkst undir kynskipti. Ég verð víst
að valda ykkur vonbrigðum með því að hvorug
okkar var fyrst.
Tveir Íslendingar gengust undir aðgerðir á
níunda áratugnum hvor í sína áttina.
Ætli ég hafi ekki verið númer þrjú
í röðinni, en ég fór í aðgerð
1995. Nokkrar manneskjur hafa
farið í gegnum aðgerð síðan ég
fór í mína aðgerð, en Díanna Ómel
mun væntanlega fara í aðgerð á hausti komanda
ef marka má DV. Ætli hún verði ekki einhversstaðar
á
milli tólf og tuttugu í röðinni. Loks þarf
svo ekki að metast um hver var númer hvað í einhverri
röð. Það að berjast fyrir því að
lifa í sátt við líkama sinn er ekki samkeppni
heldur mannréttindi.
Myndband Hot Damn má svo sjá hér.
24.07.04
Ég rakaði á mér hausinn en geri það
ekki aftur fyrr en offitustaðlinum er skákað. Ég
rakaði með Gillette Mach 3 svo ekkert var eftir. Á leiðinni
út úr World Class og að bílnum mætti ég
konu sem ég brosti til. Það kom á konugreyið
angistarsvipur eins og hún hefði séð einhvern hræðilegan
viðbjóð. Ég er ýmsu vanur og lét þetta
ekki á mig fá. Þegar ég kom að bílnum
sá ég í rúðunni (skyggðar rúður,
jú sí) að ég hafði rifið upp fæðingarblett
á hausnum svo blóðtaumarnir láku fram og niður
andlitið. Þá lagði ég saman tvo og tvo og létti
nokkuð.
---
Manni er kennd ýmis vitleysa í skóla sem maður
notar aldrei. Danska, diffrun, mengi og biblíukennsla svo eitthvað
sé nefnt. Aldrei kenndi nokkur manni að vefja handklæði
um sig miðan svo það tolli þar og maður geti sprangað
um með handklæðið um sig miðjan eins og fínn
maður í sturtuaðstöðu á fínum líkamsræktarstöðvum.
Nei það var aldrei boðið upp á Handklæðavafning
101. Það er auðvitað skömm að þessu.
---
Útvarpsþátturinn D
O k t O R d o K T o r er á dagskrá Skonrokks í
dag kl. 12. Sérlegur óskalagasjúklingur er Gísli
Magnússon úr Fimmtu herdeildinni og á kafla þáttarins
verður gefinn gaumur að múzzikk um ógnaratburðina
í Kampútseu eða beinlínis spiluð lög
með kampútseískum listamönnum. Sérlega æðislegur
þáttur að vanda og þú ert hreinlega örviti
ef þú missir af honum.
---
Talandi um örvita þá var okkur kennt í barnaskóla
að örviti væri það ógáfaðasta
af öllu ógáfuðu. Næst á undan örvitum
komu fávitar, svo hálfvitar og loks vitleysingar. Ég
man líka skýrt og greinilega eftir því þegar
Óli Kr. yfirkennari skýrði muninn á Mongóla
og mongólíta. Nú má ekki segja neitt af þessum
orðum, nema Mongólar eru líklega ennþá ókei.
23.07.04
Fór í bíó.
---
Hef staðið í bréfaskriftum við meðlimi
þjóðlagahljómsveitarinnar Hot Damn. Þeir
fullyrtu í fjöldameili að Díana Ómel, sem
leikur í myndbandi hjá þeim, sé fyrsti íslenski
kynskiptingurinn. Allir vita auðvitað að Anna Kristjáns
var fyrst og ég sendi þeim þetta bréf þar
að lútandi: "Hey - Hvað með Önnu Kristjáns!?"
Nú hefur Hot Damn svarað eftirfarandi: "Hey - Hvað með
Ómar Ragnarsson?"
---
Hinn vikulegi Topp5 er litaður sterkum fortíðarlitum
í dag enda öll lögin eitthvað sem ég hlustaði
mikið á í kringum 1981. Þetta er póst-pönk
hlaðborð, gjerrosovel:
The Fall - Middle Mass: Fall var nýbúin að
gefa út 10" EP plötuna Slates þegar þeir komu hingað
í fyrra skiptið 1981. Ég átti þá
plötu og finnst það enn besta Fall platan. Tónleikar
bandsins í Austurbæjarbíó voru svo algjör
snilld. Fyrir áhugasama má nefna að nýkomin er
út 2föld safnplata sem spannar allan ferilinn - "50.000 Fans
can't be wrong" heitir hún.
Cabaret Voltaire - Do the Mussolini (Headkick): Þetta
lag og "Nag nag nag" voru bestu lögin með þessu örlí
rafbandi. Önnur lög tengdi ég nú eiginlega ekki
við.
Patrik Fitzgerald - Irrelevant Battles: Þetta er fólkpönkari
sem ég átti 7" með. Þetta lag var hins vegar á
pönksafnplötu sem ég keypti ungur og á enn, "20
of a different kind". Mergjað lag!
Wire - Practice Make perfect: Fyrstu 3 LP plötur Wire eru
snilld sem maður lá yfir. Þetta er af annarri plötunni,
Chairs Missing.
The Feelies - The Boy with the Perpetual Nervousness: Band frá
New Jersey sem gaf út frábært albúm 1980, "Crazy
Rhythm". Aðrar plötur með þeim eru ekkert spes. Eitt
nördalegasta band sögunnar! (sjá mynd að ofan)
---
Ég er kannski bara gamall karl með götótta gallblöðru
en þetta stöff hljómar ennþá ferskt og hressandi
fyrir mér!
22.07.04
Glæsilegt! Nú er kominn rótarbjór í
Hagkaup af tegundinni Shasta (slóganið þeirra er "It hasta
be shasta!"). Þetta ku ekkert spes rótarbjór skv. einkunagjöfum
(hér og
hér)
á tveim rótarbjórasíðum. Sit hér
hafandi fjárfest í kassa (89kr dollan - ódýrt!)
og er nokkuð sammála þessum miðlungsdómum.
Þetta er ágætur rótarbjór og frábært
að Hagkaup skuli bjóða upp á þetta, en engin
snilld eins og sú sem maður hefur smakkað í BNA.
Rótarbjór á annars ekkert skilt við venjulegan
bjór, heldur er gosdrykkur sem er nær eingöngu fáanlegur
í Ameríku. Þar eru heilmargar lókal tegundir
til og eiginlega engin ein sem er aðal eins og í kókinu.
Það er ekkert auðvelt að verða sér út
um þennan drykk, ekki einu sinni í BNA. Helst að maður
fái þetta í úthverfum og á landsbyggðinni.
Ég eyddi t.d. einu sinni næstum því heilum degi
í að finna þetta í New York borg en endaði
með að rekast á nokkrar dósir á flugvellinum.
Maður stekkur því á rótarbjórinn
þegar Hagkaup flytur hann inn, en það virðist fyrirtækið
gera eins og í einhverju bríaríi og fyrir tilviljun.
Í fyrra var það "Best Yet" tegundin, sem er í svipuðum
gæðum og Shasta: Ódýrar "bónus"-tegundir
og í meðallagi eftir því. Ég er ekki að
kvarta en gaman væri ef Hagkaup gæti nú flutt inn nokkrar
dósir af eðalrótarbjór, t.d. af tegundinni Sioux
City, sem er það besta sem ég hef smakkað, en ég
hef nú reyndar ekki smakkað margar tegundir. Kannski bara svona
fimm og er því varla dómbær. Það er
reyndar furðulegast með rótarbjórinn að flestum
finnst bragðið alveg hörmung. Tannkrem og hóstamixtúra
er það sem flestir líkja bragðinu við og því
kannski engin furða að þetta fáist hvergi. En ég
er allavega sáttur.
20.07.04
Það sem ég man af túnfiski #1: Þegar
fyrsti salatbarinn í matvörubúð (Hagkaup líklega)
var opnaður var gömlum karli úr kjörbúð
á Eyrarbakka boðið að velja sér í box
í sjónvarpsþætti á Rúv. Karlinn
valdi aðallega túnfisk og fulltrúi búðarinnar
talaði um að þetta væri vel valið því
túnfiskur væri með því dýrasta í
borðinu. Mér dettur þetta alltaf í hug þegar
ég vel mér túnfisk í svona borði.
Það sem ég man af túnfiski #2: Ég
borðaði mikað af túnfisksamlokum á Barcelona
1984. Seinna las ég eitthvað um eitraðan túnfisk
sem drepið hafði fjölda manns og prísaði mig sælann.
Það sem ég man af túnfiski #3: Ég
borðaði gífurlega mikið af túnfiski þegar
ég dvaldi í Lyon veturinn 1986-87. Blankheit voru ægileg
enda engin kreditkort í dæminu. Á hverjum degi í
nokkra mánuði át ég eitt baggettbrauð með
dósa-túnfiski í olíu ofan á, en heilasteiktan
kjúkling með engu á sunnudögum. Þegar ég
þurfti að kaupa nýjustu Nick Cave plötuna fékk
ég engan kjúkling í 2 vikur.
Það sem ég man af túnfiski #4: Ég
smakkaði túnfisk í fyrsta skipti þegar ég
og Kristján Franklín leikari/klámkóngur unnum
við rotþróargröft hjá ríkri kerlingu
á Þingvöllum, líklega 1981. Kerlingin var með
túnfisksalat sem hún gaf örþreyttum verkamönnunum
ofaná Ritzkex í pásu. Mér fannst þetta
rosalega gott og hef ekki fengið betra túnfisksalat síðan.
19.07.04
Stórmerkileg helga búin. Tók þátt
í steggjun á Steina sleggju á laugardag og var bílstjóri
og þar af leiðandi bláedrú, sem varð frekar
ógnvekjandi þegar á leið. Sigraði dorgkeppni
á Hafnarfjarðarbryggju með 300gr marhnúti og sigraði
einnig pool-mót í Hafnarfjarðarbilla með sterkri
vörn. Fjörukráin er túristageðveiki og í
byrjun var steggjunarliðinu plantað innan um hina öldruðu
túrista. Okkar var fljótlega hent upp á 2. hæð
vegna óláta, sem var ágætt. Hin pólska
Dominique fékk að bera mat í hópinn, sem gerðist
dólgslegri með hverju glasinu. Fjörukráin er á
stalli með Eden í íslensku víkinga-kitschi og
þetta minnti mig rækilega á Lúáið
sem ég fór á á Hawaii. Semsagt gott stöff
ef maður er túristi en hálf bjánalegt ef maður
er íslenskur. Lambaleggirnir fóru misvel í mannskapinn
og steggurinn ældi í nokkrar fötur eftir að taka
"Blinda Feneyinginn" í einum sopa. Goldfinger var vitanlega næstur
á dagskrá, frumraun mín á þeim glæsilega
stað. Geiri sveimaði þarna um, en hvergi sást Gunnar
Birgisson. Hinir léttklæddu læknanemar svifu á
mann og buðu einkasjó sem steggurinn fékk einn. 5 mínútur
6000 kall og séns á píku í fésið,
líklega hægt að tosa fyrir 10.000 og séns á
sleik á 20.000, eitthvað meira á 30.000 og svo auðvitað
hægt að kaupa 6 lítra af kampavíni á 600.000.
Þær sem ég talaði við sögðust allar
vera finnskar en vissu svo ekkert um Finnland og gátu ekki einu
sinni talað finnsku sannfærandi. Það virðist því
vera einhver tíska hjá læknanemunum að segjast
vera frá Finnlandi. Geiri bíður upp á mikið
úrval og sífellt fjölgaði í hópnum.
Örugglega einar 30 mættar um miðnættið og þessir
20 sveittu og álkulegu karlpungar sem héngu þarna veifandi
500 köllum í læknanemaklofin höfðu varla undan
að neita prívatsýningu. Á leiðinni út
faðmaði steggurinn Geira og sagði klökkur að hann
ætti skilið að fá fálkaorðuna fyrir það
sem hann hefur gert fyrir íslenska menningu.
---
Göngukúbburinn Blómey hélt á Baulu
á sunnudaginn. Ég búinn að lesa um fjallið
í biblíunni, bókinni "Íslensk fjöll -
gönguleiðir á 151 tind", sem eftir þessa reynslu
ætti að heita "151 aðferðir til að drepa sig á
fjalli". Helvítis líparíthrúgan Baulan var
gefin upp sem 3 í erfiði (hægt að fara 6 mest) og
miðað við fyrri reynslu af þessum erfiðleikastaðli
sá maður fyrir sér viðráðanlegt labb.
Einnig stendur í bókinni: "Neðan til er hryggurinn nokkuð
laus en leiðin batnar er ofar dregur" og maður beit því
á jaxlinn hangandi í djöfulsins þverhnýpi
og lausahnullungum fyrstu nokkur hundruð metrana því maður
bjóst við sælu ofar. Svo batnaði nú bara leiðin
ekki rassgat, versnaði ef eitthvað var, og þegar 1/4 var
eftir á toppinn gafst ég auminginn upp og fór niður
með rassgatið á undan mér eins og Spiderman á
hvolfi. Hinir létu sig hafaða og sögðu útsýnið
gott en já já, það má alveg sjá það
í flugvél. Ég var orðinn vatnslaus og næstum
því trúaður á niðurleiðinni. Náði
þó loksins á jafnsléttu og svo í læk,
kominn með þurrkaskán á varirnar, talandi við
sjálfan mig, rauður eins og humar af sólskini og syngjandi
frumsamið lag um Jóhönnu Sigurðardóttir. Þá
var ekkert í stöðunni annað en að klæða
sig úr öllum fötunum og eiga unaðstund með mömmu
jörð. Það var bæði þáttlátt
og gefandi og nokkur uppbót á karlmennskunni eftir raggeitartilburðina
við tindinn. Niðurstaða: Aldrei aftur líparít-fjall,
og erfiðleikastaðlar bókarinnar teknir með fyrirvara.
Lagið um Jóhönnu Sigurðardóttir verður svo
hægt að heyra á plötunni "Opinberar persónur",
sem er næsta plata sem ég sendi frá mér.
16.07.04
Það verður nóg að gera í ágúst.
Fyrst Lú Rídd 20., síðan Djeims Brán 28.
Tveir meistarar á viku, vá. Heyrði í fréttunum
rétt í þessu að það hafi sést
fjallatittlingur. Get ekki að því gert að finnast
þetta frekar fyndin frétt. Ég hef ekki séð
á neinn fjallatittling en sá hins vegar tvo máttarstólpa
samfélagsins í gær (máttartittlinga). Fyrst
Jón Ásgeir Baugsson í ræktinni. Hann var í
ekkert svo æðislegum íþróttagalla og utan
við sig að vanda. Líklega að hugsa um eitthvað í
Excel-forritinu sínu á meðan hann massaði 20 kg í
bakpressu. Síðar um daginn sá ég sjálfan
Hannes Hólmstein, sem heilsaði. Alltaf glaðlegur að
sjá og nú að hlæja í síma. Líklega
að segja einhverjum hvað hann var sniðugur að svara vælandi
fýludurtinum Ólafi Hannibalssyni þarna með höfðingjasleikjur
eitthvað ha ha ha.
---
Hinn svívirðalega æðislegi útvarpsþáttur
d
o k t o r d o k t o r er á sínum stað á
dagskrá Skonrokks á morgun. Nú verða 2 tímar
lagðir undir sjálfsfróunarlög (kl. 12-14) en þá
mætir allsóviðkomandi fróuninni Óttar Felix
Hauksson, plötuútgefandi og bítill, með skilyrt
óskalög. Tæknilega fullkominn þáttur á
morgun sum sé. Svo ef veður gerast ekki válynd mun gönguklúbburinn
Blómey leggjast á fjall um helgina, hugsanlega Baulu eða
Hengil, en bæði heita flottum nöfnum. Kannski sér
maður fjallatittling.
15.07.04
Voðalegt kristilegt afturhald er saurmennið W Bush. Alveg er
mér sama þótt hommar og lessur gifti sig í kirkju,
ef blessað fólkið endilega vill taka þátt í
þannig rugli. En nú vill Wiðbjóður breyta stjórnarskránni
til að banna þetta, eflaust undir dynjandi lófataki stuðningsfólks.
Ég vildi geta lofað sjálfum mér að fara ekki
til USA fyrr en þessir hundar eru farnir frá, en er bara einum
of smeikur um að demóin klikki á úrslitastundu.
---
Þrennt sem ég þoli ekki:
#1 Þessir holræsatrukkar sem loka öllum götum
alla daga. Er endalaust hægt að dæla upp úr ræsunum
eða er Björn Bjarnason að koma fyrir einhverjum paranojunjósnabúnaði?
Það eru helvítis óþægindi að þessu.
#2 Verklokaseinagangi í gatnakerfinu. Bæjarvinnan byrjar
á framkvæmdum en klárar þær ekki fyrr en
seint og um síðir. Á meðan eru holur og torfærur
um alla borg. Hver man ekki eftir holunni í Lækjargötu
sem stórskaðaði bílinn manns mánuðum saman?
Svo var það geðveikin sem maður lenti í þegar
beygt var af Hringbraut við Þjóðarbókhlöðuna.
Klára draslið strákar, áður en byrjað
er á næsta verkefni.
#3 Misrétti í röðum stórverslana. Maður
er í röð og búinn að hanga þar mínútum
saman. Stelpan fór kannski að athuga verð á einhverju
og er búinn að vera að því í hálftíma,
eða það er gamalmenni að láta telja klinkið
sitt. Það er komin löng röð á eftir þér,
en þú ert næstur. Þá opnar kassinn við
hliðina á þeim sem þú ert búinn að
hanga við og í staðinn fyrir að þú, verandi
næstur, fáir afgreiðslu hrúgast á nýja
kassann allir þeir sem voru á eftir þér og fremstur
í flokki þar er sá sem er búinn að bíða
styst. Kassadaman lætur sig engu skipta réttlæti eða
kurteisi og byrjar bara að hamast á dósum frekasta viðskiptavinarins
en það sýður á þér á meðan
gamalmennið með klinkið man allt í einu eftir því
að það gleymdi að ná í 200 gr af kjötfarsi
sem afgreiðslustúlkan fer og sækir.
Vildi bara koma þessu frá.
---
Enginn friður fyrir Topp 5:
Serge Gainsbourg - Melody: Af plötunni Histoire de Melody
Nelson, sem er ástaróður meistarans til hinnar ungu Melody,
hver svo sem það var. Hressandi graðkallapopp.
The Regurgitator - Bong In My Eye: Eitt vinsælasta rokkband
Ástrala. Nýjasti smellurinn þeirra.
Ratatat - Seventeen years: Súri
gaurinn mælti með þessu. Gott stöff.
Howlin' Wolf - I ain't superstitious: Hlusta mest á Rás
1 í sumarbústað og þar var Dóri vinur að
kynna Howlin. Hef hingað til verið lítt spenntur fyrir blúsnum
en hann er svo sem okei í hófi. Þetta lag er allavega
frábært, þökk sé frumlegum rythmanum.
The Dresden dolls - Coin operated boy: Kabarett pönk. Kúl.
---
Sá engan aflitaðann hnakka á Selfossi, en vissulega
eru afbrigðilega margar hárgreiðslustofur þarna. Guðni
Ágústsson var hins vegar á vappinu og margar bjánalegar
búðir. Með gífurlegu hugmyndaflugi mætti ljúga
að sjálfum sér að Selfoss sé jafn kúl
og litlu þorpin sem ég væflaðist um einu sinni í
uppsveitum New York-fylkis. Eyrarbakki og Stokkseyri eru fín og
kósí pleis og hægt að flytja þau í
heilu lagi á Skólavörðustíg. Nú er
hægt að fá gott að éta á 3 stöðum
við strandlengjuna (Fjöruborðið, Rauða húsið,
Hafið bláa). Þorlákshöfn er þó
sem fyrr hárugur anall Íslands, flatneskjan yfirþyrmandi
og hvergi lífsmark að sjá. Litla hraun er eiginlega gleðilegri
staður að sjá en þetta þorp dauðans. Í
sínu fyrra lífi bjó eiginkona mín í
plássinu og segir að fyrstu dagana hafi bæjarbúar
komið út úr fylgsnum sínum á kvöldin,
rúntað framhjá þar sem hún bjó og
glápt inn um gluggana. Minnir á kvikmyndina 2000 Maniacs.
Hveragerði er síilmandi. Lúxushöll hvítahyskisins
á sínum stað en sundlaugin eðalfín.
14.07.04
Hef klárað Suðurlandsundirlendið. (Sjá sund
og veitingahús).
Fríi lokið í bili. Það besta við frí
er að koma út því. Ég er hugsanlega vinnualki.
10.07.04
Í dag átti útvarpsþátturinn DOKTOR
DOKTOR að vera með sjálfsfróunar-ívafi en
á síðustu stundu heyrði ég að klukkutíma
af þættinum ætti að fórna fyrir fótboltaútsendingu.
Hef því sjálfsfróunarívafið á
dagskrá næsta laugardag. Í staðinn verður þátturinn
með mömmu-ívafi og geta lesendur túlkað þessi
umskipti á sálfræðilegan hátt ef þér
vilja. Gestur þáttarins er Ólafur eða Stafrænn
Hákon eins og hann kallar sig. Hann mætir með óskalögin
um 13 en annars er þátturinn á dagskrá á
milli 12 og 14 (ekki 15 eins og vanalega) á Skonrokki FM90.9. Bí
ðer og bí skver eins og sagt er.
09.07.04
Topp 5 lætur ekki deigan síga á pissandi góðu
DÁNLÓDI HÉR:
Swell Maps - Read about Seymore: Ló-fæ eðalpönk
síðan amma var ung (1978)
The Fiery Furnaces - Tropical Ice-land: Nújork systkini,
rokka nokkuð drjúgt.
Thunderclap Newman - Accidents: Annað lag frá bandinu
sem sló í gegn með eðalsnilldinni "Something in the
air".
Loretta Lynn & Jack White - Portland Oregon: Gömul
kántríkerling og hvítt strik. Verður ekki betra.
This Heat - Paper hats: Ægi-framúrstefna frá
1981, passleg í dag.
---
Tók þátt í "gleddu vin" í Hjartslætti
Skjás eins í gær. Verður sýnt í næst
viku. Fundaði v/ PP-spilsins. Útlit fyrir að það
komist á koppinn fyrir jólin. Samt eru byrgjar uggandi v/
lélegs gengis Séð og heyrt-spilsins, sem rústaði
eiginlega borðspilaútgáfumarkaðnum. Fór í
bíó á rómantíska
gamanmynd. Hef ákveðið að dagskrárliðurinn
Sund heiti núna Sund
/ Fjöll...
08.07.04
Uh..... Já!
07.07.04
Gestir eru heldur betur með á nótunum þegar
kemur að íslenskum rúnklögum. Hér er listinn.
Íslensk rúnklög:
Hljómar - Sveitapiltsins draumur
Björgvin Gíslason - L.M.Ericson
The Funerals - Pathetic me
Lada Sport - Play With Your Playboy Playmate
Gylfi Ægisson - Sjúddírarírei
Sjálfsfróun - Sjálfsfróun
Rúnk - Rúnk
Sverrir Stormsker - Sjálfs er höndin hollust (og fleiri
lög)
Ýr - Togum í teit
Súkkat - Lafir það litla
Fræbbblarnir - Æskuminning - og - Masturbation Music
for the Future
---
Með viljann að vopni má svo sjá rúnkhugleiðingar
út úr fleiri lögum, t.d.
Sigurður Ólafsson - Litli vin
Hagavagninn
Lúdó og Stefán - Í bláberjalaut
(greinilegt hvað hann var að gera þar)
Vísnabókin - Stóð ég út í
tunglsljósi (þú meinar, stóð "mér")
Haukar - Fiskurinn hennar Stínu (og hvað var hún
að gera með þennan fisk?)
Krummi krúnkar úti
o.s.frv o.s.frv...
---
Ástæðan fyrir þessum rúnkpælingum
er auðvitað sú að næsti Doktor Doktor þáttur
verður með sjálfsfróunar-ívafi enda af nógu
að taka í þessum efnum og margir sem sungið hafa ónuninni
til dýrðar í gegnum tíðina.
---
Í gær prófaði ég loksins nýjan
veitingarstað.
Eftirrétturinn var úr Álfheimaísbúðinni
sem er nú alveg uppáhalds enda með þennan frábæra
Peanut butter smoothie-sjeik sem gerir mig óðann. Þrátt
fyrir þetta heldur heilsuátak Gunna litla áfram þótt
ekkert sjáist á mér, ekki frekar en á Gauja
litla. Nú gætu útlitslegar breytingar þó
farið að eiga sér stað enda hef ég einsett mér
að skerða ekki "hár" mitt uns ég er hættur
að vera óbís og orðinn bara óverveigt. Það
eru heilmörg aukakíló í þetta svo ég
get án samviskubits komið mér upp síðum hárkraga
sem ég greiði yfir skallann eða sem stendur út í
loftið í roki. Lufsan er sérstaklega ánægð
með þetta - not.
---
Keypti mér bókina 151 fjall í gær. Kostaði
4500 kall í nýja Iðu-búðinni í Topshophúsinu
en bara 3000 í Bóksölu Stúdenta, svo maður
veit hvar maður á að kaupa bækur. Glæsileg bók
og nauðsynleg fyrir undirbúning fjallaferða gönguklúbbsins
Blómeyjar. Ekki vill maður lenda aftur í rugli eins og
um síðustu helgi. Hér eftir verður undirbúningur
tipptopp.
06.07.04
Gamla Moggagreyið er orðið desperat og sendir mér
ókeypis blað í dag. Ekkert nema umfjöllun um leiðinlegustu
hljómsveit í heimi og myglaðar greinar eftir gamla íhaldsdurga
(geisp). Ég keypti reyndar laugardagsblaðið með nýju
poppuðu Lesbókinni og þar birtist enn ein örvæntingafulla
tilraunin, nú að hippa og kúla sig upp með því
að hleypa poppmenningu inn í gömlu hámenningarmarmarahöllina
(byltingakennt! Hvað segir Atli Heimir?). Alltaf eitthvað athyglisvert
í Lesbókinni en efnið oftast sett þannig upp að
maður missir móðinn á miðri leið, enda greinarnar
helmingi lengri en maður nennir og þunglamalega settar upp án
millifyrirsagna og efnisútdrátta. En alltaf gaman að
tékka á Lesbókinni svo sem, poppaðri jafn sem
ópoppaðri.
---
Ég vona nú að hægt verði að reka þessi
3 dagblöð áfram án þess að menn eyði
megninu af tíma og orku í að níða skóinn
af "andstæðingnum". Þetta er annars orðið þokkalega
þreytandi hjakk allt saman, fjölmiðla, forseta og forsætisráðherrahjakkið,
og ég segi fyrir mig að ég nenni ekki að taka þátt
í þessu rugli.
---
Hvað segja lesendur?
Hvaða íslensku lög fjalla um sjálfsfróun?
Eina sem ég man er Æskuminning með Fræbbblunum.
05.07.04
Í nótt hélt ég framhjá konunni minni.
Með Dorritti Mússajef. Og mig var að dreyma. Var staddur
á blaðamannafundi á Bessastöðum þar sem
Ólafur var að tilkynna að hann myndi ekki heldur skrifa
undir 10% lögin. Dorritt tældi mig til lags við sig á
afviknum stað á Bessastöðum, sem leit út eins
og miðaldakastali í draumnum. Þetta var allt hið undarlegasta
mál og Dorritt ekkert lík sjálfri sér, með
risastór brjóst og annað andlit. Ég vaknaði
reyndar með dúndrandi hausverk áður en framhald varð
á draumnum, en framhaldið var svona: Eftir ægilegt þóf
og kjaftæði kemur Davíð með ný 11% lög,
sem Ólafur samþykkir ekki heldur og ég á unaðsstund
með Dorritti á þeim blaðamannafundi líka. Eftir
enn meira röfl og rugl kemur Davíð með ný 12%
lög sem Ólafur samþykkir ekki heldur og ég ligg
aftur með Dorritti. Svona heldur draumurinn áfram lengi lengi
í hreinræktuðum farsastíl, en með erótískum
undirtóni. Algjört grín!
---
Gönguklúbburinn Blómey fór í sína
vonlausustu ferð hingað til í gær. Mikið skorti
upp á í undirbúningi og gönguleiðir mjög
á huldu. Var stefnan sett á Hafnarfjall en þar var
vonlaust gönguveður og því skrölt á Bifröst
og hraunhrúgan Grábrók (173 m.y.s.) sigruð án
átaka. Næst höfðu menn hug á að skrölta
á Baulu, en ferðin þurfti þó að vera
búin í tæka tíð fyrir hinn glataða úrslitaleik
í EM (sem grísku geitariðlarnir unnu leiðinlega).
Menn vissu þó ekkert hvar átti helst að ganga upp
á fjallið og eyddu drjúgum tíma í að
leita að upplýsingaskylti sem rauðþrútinn maður
á sendibíl merktum Osta og smjörsölunni fullyrti
að væri í nágrenninnu. Var ferðaklúbburinn
kominn langleiðina til Hvammstanga þegar snúið var
við. Þegar hér var komið við sögu höfðu
menn gefist upp á gönguhugmyndum og gönguklúbburinn
samþykkt að breyta sér í eyðibýlaskoðunarklúbb.
Við Skorradalsvatn var einhver kofi áður í eigu Þórðar
í Haga rannsakaður af mismiklum áhuga félagsmanna
en svo var ákveðið að tékka á Draghálsi,
íverubýli Sveinbjarnar Beinteinssonar, fv. alsherjargoða.
Við beygðum inn á slóðann sem átti að
liggja að húsinu og á undan okkur voru skörungslegar
konur á bílskrjóð að kveikja á kyndlum
við veginn. Æstust menn nokkuð við þessa sýn
og töldu víst að hér væri u.þ.b. að
fara fram swingers-hópmót, en eins og Fréttablaðið
greindi frá á laugardag er annar hver maður í
dag í swingers-félagi. Hvergi sáum við bæ
Sveinbjarnar. Við sáum reyndar bæ (Dragháls) en
sá félagsmaður sem taldi sig vita hvar Dragháls
væri neitaði með öllu að samþykkja að
þetta væri Dragháls, enda hafði hann komið þarna
fyrir 20 árum og allir staðhættir voru enn ljóslifandi
fyrir honum. Vorum við því komnir langleiðina til
Þingvalla á línuvegi áður en við snérum
við og keyðrum framhjá skeggjuðu fólki með
hrútshorn við varðeld á bakaleiðinni. Við
lögðum ekki saman 2 og 2 fyrr en við komum heim og sáum
í Fréttablaðinu að ásatrúarstuðfólkið
(swingershópurinn) var að fagna 80 afmæli Sveinbjarnar
á einhverjum hól við Dragháls og við hefðum
ef við vildum getað slegist í hópinn en þorðum
því ekki, enda ásatrúarfólk upp til hópa
ófrýnilegt og fórnir á trúlausum algengar
meðal þeirra. Jæja, ísinn í Ferstilku var
allavega allt í lagi.
02.07.04
Ég er að spá í að hætta að fylgjast
með íslenskum fréttum og snúa mér að
Barbados-fréttum
í staðinn. Láta sem ég búi ekki á
Íslandi heldur á Barbados,
en þar búa svipað margir og hér en veðrið
er líklega gæfulegra. Kannski að maður losni þá
við grínfréttir af Majonesdollum eða fáránlegu
og endalausu hringli með þjóðaratkvæðagreiðslur
og fjölmiðlalög (les: tjónkun við ólundina
í Davíð Oddssyni). Nei kannski ekki. Örugglega líka
majonesdolla á sveimi í Barbados og mér sýnist
forsetisráðherrann svipaður útlits og hér.
Kannski er hún ekki jafn kreisí og DO enda bara búinn
að sitja síðan 1999. Forsætisráðherrann
í Barbados, Mia Mottley, lítur annars svona út:
---
Í hinum stórfenglega útvarpsþætti
DOKTOR DOKTOR á morgun (milli 12-3 á Skonrokki fm90.9) verða
leikin æðisleg lög í 3 tíma. Þátturinn
er með Skinhead-ívafi og óskalagasjúklingurinn
Gunnar Bjarni úr Jet Black Joe mætir með óskalögin
sín. Fékk einmitt safndiskinn Svona er sumarið 2004 og
við fyrstu hlustun lítur þetta út fyrir að
vera algjört djönk fyrir utan nýja JBJ lagið. Annað
hvert lag er kóverlag af gömlu drasli og ég hélt
að Heiða vinkona mín væri komin með nýtt
lag, en þá er þetta bara einhver stelpa sem kallar sig
Heiða líka. Nú eru því til tvær Möggur
Stínur og tvær Heiður og frekar glatað hjá
þessum stelpum að reyna nú ekki að finna sér
ferskara listamannsnafn. Kalli Bjarna heitir þó allavega Kalli
Bjarna en ekki Bubbi Morthens.
30.06.04
Ókei ókei takk takk ég er búinn að
segja útlendingnum að þetta sé bara eitthvað
listaháskóladjókband og hann er voða sár
að geta ekki keypt plötu með þeim. En svona er þetta.
Sjálfur kynni ég til sögunnar Topp 5 vikunnar.
The Futureheads - Robot: Af fyrstu plötu nýrrar
breskrar sveitar. Minna á gamalt stöff eins og The Jam og XTC
og því svalir í minni bók.
Giorgio Moroder - From here to eternity: Gamli diskópungur
með titllag sólóplötu frá 1978. Hörku
diskóflykki ú é beibí.
Brian Eno - Cindy tells me: Af fyrstu sólóplötu
þessa viðkunnalega fríks. Gott stöff.
Boyce & Hart - I wonder what she's doing tonight: Lagahöfundar
(t.d. Monkees - I'm not your stepping stone) og dúett. Þetta
er eini smellurinn sem félagarnir áttu sem flytjendur.
Secret Machines - First Wave Intact: Fyrsta lagið á
"Now here is nowhere", plötu #2 frá þessu tríói
frá Texas. Massað orkurokk hei og besta lag plötunnar.
Sum lögin eru þó full U2-leg fyrir minn smekk.
---
Þennan skammt má dánlóda í ágætis
gæðum HÉR
(Real audio)...
---
Tékkaði á einhverjum speis-grín-teiknmyndaþætti
Tripping The Rift. Slappt. Svona svipað slappt og Futurama sem er slappt
þótt snillingurinn Groening sé viðloðandi.
Family Guy er líka ótrúlega slappt og hreinlega ótrúlega
léleg stæling á Simpsons. Svo það eina sem
er frábært er Simpsons og það sem er gott er South
Park, King of the Hills og TV í höfði, þegar Hugleikur
nennir að teikna þann þátt. Annars held ég
maður glápi bara á þennan leik núna, snú
fer hver að verða síðastur að þykjast hafa
gaman að íþróttum.
29.06.04
Keypti mér Mojo í
gær, sem ég tel besta mússikkblaðið í
dag. Hefur mikla yfirburði yfir Uncut (leiðinlega sjálfhverfir
og einum of uppteknir af alt-kántríi (sem er leiðinlegt)),
Nme (unglingablað) og Wire (þunglynt). Mojo er hressandi á
flestan hátt og ekki skemma safndiskarnir sem fylgja með fyrir.
Held ég gerist áskrifandi.
---
Útlendur maður sendi mér fyrirspurn:
I was in Iceland visiting family last year, and, on Icelandic
television, I fell in love with one group's music video. All I
remember about it is that the lead singer was a woman, the style
was
what I would classify as hard rock, and, in the video, the band
members wore futuristic/torn clothing, and there was a dog sleeping
in
the corner. This all took place in a white room. Do you have any
idea
what band or song this was?
Geta lesendur hjálpað þessum manni? Sjálfur
er ég alveg frostinn svona snemma dags. Svar sendist á póstkorti.
27.06.04
Úrslit forsetakosninganna verða túlkuð á
þennan hátt: Óli: þakklæti og stórsigur
/ Auður: bullandi óánægja með sitjandi forseta
/ Jólasveinninn: Virðing við mig / Tómatsósan:
Þetta er svindl. En ætli Baldur sé ekki sigurvegarinn,
svona svo alls réttlætis sé gætt. Það
vissi ekki hræða hver þetta var fyrir mánuði
síðan og að fá í kringum 10% lítandi
svona út er stórkostlegt. Það verður léttir
að losna við Wiumið af skjánum enda hefur mig aldrei
langað jafn mikið til að vera hærður en síðustu
daga þegar hann hefur verið sem fyrirferðarmestur í
sjónvarpinu. Nú, til að geta rifið í hár
mitt að sjálfssögðu.
---
Melabúðin klikkaði ekki á ostrunum og því
var stór stund í lífi mínu í gær
þegar 3 írskar ostrur lágu fyrir framan mig (149 kr
stk). Smakkaðist eins og brundur, ímynda ég mér,
og kom úr skel sem var ekki ósvipuð loðnum pung.
Undursamleg lífsreynsla!
26.06.04
Ég gerði eins og Ástþór sagði mér
að gera og fór á heimasíðu Rauða
krossins. Gveð minn góðurr, það er bara allt
í logandi steik í heiminum! Ég get því
ekki annað en kosið friðarpostulann enda er ég ekki
með steinhjarta. Ég sé það í starandi
geðveikissvip Ástþórs að hann einn getur auðveldlega
komið á varanlegum heimsfriði. Annars springur kjarnorkusprengja
"einhvers staðar í heiminum" áður en árið
2006 er úti. Hvílíkt grín og glens! En ætli
maður hunskist ekki í Hagaskólann og merki X við
forsetann, en það er þá eins gott að hann og
Dorritt bjóði mér og fjölskyldunni í mat.
Fyrst Trabant fengu heimboð ætti það ekki að vera
neitt mál fyrir karlgarminn svona á milli þess sem
hann grínast við erlend slekti.
25.06.04
Gerði þá hræðilegu uppgötvun að
ég hef aldrei étið ostrur en þó samið
heilt lag sem heitir Ostrur
sem fjallar reyndar um allt annað. Er að lesa bálkinn um
uppreisnina á Bounty. Þegar Bligh og hinir brottreknu komu
loks að ströndum Nýja Hollands eftir voðalegt volk
fundu þeir bara ostrur til að éta og lýsingarnir
af hinum svöngu að djöflast í ostrunum gerðu mig
uppvægann í sturta í mig ostrum. Fór því
í hina ágætu búð Fylgifiskar á Skólavörðustíg
en þeir áttu engar ostrur. Fékk hinsvegar ágætis
hádegisverð. Þar var mér bent á að Melabúðin
selur stundum innfluttar ostrur og því er nú næsta
skref í þessu ostru-veseni að tékka á þeim.
---
Fengum okkur annan Toyota á rekstrarleigu í gær
enda algjör vitleysa að eiga bíla sem gera ekkert nema
að eldast. Með þessu leigusystemi er maður alltaf á
nýjum bíl. Þetta system ætti að vera til
fyrir tölvur líka því fátt eldist jafn
hratt og tölvan manns. Nema kannski að það séu
framtíðarsýnirnar. Fátt eldist jafn hratt og framtíðarsýn
gærdagsins. Hvað t.d. með þá fullyrðingu
gærdagsins að "þekkingariðnaðurinn væri framtíðin..."?
Og voðalega lætur "sýndarveruleikinn" standa á
sér. Það gengur ekkert né rekur í að
opna sýndarhóruhús á netinu þar sem hægt
er að leggjast með hverju sem er með sýndarhjálm
á höfðinu og liminn í sérstakri digital-snertihulsu.
Hér hefur klámbransinn brugðist illilega í framþróunarhlutverki
sínu.
---
Á morgun er nýr Doktor doktor, útvarpsþátturinn
góðkunni á Skonrokki. Verð með gæfulegan
graut plús Orra í Slowblow sem mætir með urrandi
skilyrt óskalög. Sérstakt þema í þættinum
er "gyðinglegt ívaf" í því tilefni að
við kjósum okkur gyðingaforsetafrú á morgun.
---
Í nýrri Gallúppkönnun
er Popppunktur 4ði vinsælasti þátturinn á
S1um og vinsælasti íslenski þátturinn (í
uppsöfnuðu áhorfi). Hjúkkit maður...
24.06.04
Þegar ég vann í bankanum lærði ég
að meta peninga og sjá þá í réttu
ljósi: peningar eru skítugt drasl. Umkringdur þessum
illalyktandi pappír dag eftir dag lofaði ég sjálfum
mér að hafa aldrei áhyggjur af peningum. Í dag
líður mér mun betur ef ég er með allt niðrum
mig og þarf að nurla fyrir næsta Visa-reikningi, en þegar
allt er flæðandi í þessu drasl og ég þarf
að eyða tíma í að hugsa um hvernig ég
á að eyða þessu. Þar sem það er eðli
homo sapiens að láta sér líða illa þrátt
fyrir blekkinguna um hið gagnstæða virðist ég
því miður alltaf eiga of mikla peninga. Það
keyrði um þverbak þegar ég seldi bílinn minn
í vikunni eftir að hafa auglýst í Fbl. Fólkið
sem keypti kom með 1120.000 í 5000-köllum í umslagi.
Ég gerði það að gamni mínu að vigta
eina milljón og hún reyndist vera 180 grömm.
---
Fréttir af umsvifum ríku kallanna á Íslandi
eru í eðli sínu ekkert annað en fréttir af
dauðlegum köllum með bindi að bera illa lyktandi pappír
á milli húsa og því með öllu óspennandi.
Í síðasta góðæri var Eyþór
Arnalds fyrirmynd unga fólksins og búðin Bílar
og list sló í gegn. Nýjasta staða Nastaq og Dew
Jones var framarlega í öllum fréttatímum og ungt
fólk í dragt og með bindi kom reglulega í þætti
til að ráðleggja hvernig ætti að græða.
Ungi hannyrðabankastjórinn fullyrti að innan 3ja ára
yrði hér allt vaðandi í vellauðugu fólki.
Heiðvirt fólk tapaði sér og henti sparifénu
í Decode og er nema von að í þessu andrúmslofti
hafi ungu drengjunum ekki þótt það neitt skrítið
þótt reikningarnir þeirra væru alltaf fullur af
ókeypis peningum? Í gær fengu þeir 2 ár
hvor fyrir tæplega 25 kíló af skítugum pappír.
Bróðir annars þeirra fékk 4 og 1/2 ár fyrir
tæplega 47 kíló. Nú má segja að timburmennirnir
af síðasta góðæri séu loksins búnir
og eins og til að leggja áherslu á þá staðreynd
þá eru Eyþór og Móa skilin líka.
---
Strímaður
Topp5-listi á ný vegna vægðarlausrar gagnrýni:
Young
Marble Giants - Final day: Unaðslega
flott rolupopp frá Wales. Þetta er af smáskífu
frá 1980 en albúmið "Colossal Youth" ætti að
vera til á öllum menningarheimilum.
The
Urinals - I'm a bug: Kaliforníu
klaufahrápönk frá 1979. (Migið
um allan heim)
Felix
da Housecat - Rocket ride: Hressi
köttur hásar feitt
Dybbuk
- Pani I: Tékkneskt kvennapönk
– hljómsveitin heitir "Zuby Nehty" í dag. (vinna Tékkar
EM?)
Pretty
Things - Defecting Grey: Enskt sixtísband.
Gerði fyrstu "rokkóperuna" ("S.F.Sorrow", ári á
undan Tommy) en þetta lag er af smáskífu frá
1967.
22.06.04
Maður væri nú frekar sorglegur ef maður myndi
nenna að skrifa eitthvað merkilegt í svona veðri.
19.06.04
Hú é beibí. Þá er fyrsti Doktor Doktorinn
á dagskrá Skonrokks fm90.9 í dag kl. 12, strax á
eftir King Kong. 3 tímar af mér að spila plötur
og röfla. Mun spila fyrstu útgefnu lög ýmissa hljómsveita,
lög frá löndunum fjórum sem spila í EM í
dag og hitt og þetta sjitt. Bæði gamalt og nýtt.
Gestur þáttarins er stórmennið Michael Pollock
sem mætir með óskalög.
---
Ég man eftir plakati sem súrrealíska popphljómsveitin
Fan Houtens Kókó setti upp fyrir tónleika sína
1981, þar stóð "Never mind the Pollocks - Fan Houtens
Kókó í Djúpinu í kvöld"...
---
Stórfengleg forsetakosning eftir viku. Baldur er alltof feitur
og Ástþór alltof geðveikur svo þeir eiga
engan séns. Stórfurðulegir þessir öfga hægrimenn
sem segjast á móti fjölmiðlalögunum en ætla
samt að kjósa með þeim af því þeir
eru meira á móti forsetanum en lögunum. Sjálfur
hef ég verið á móti Ólafi og hans aristókratadrullu
og flottræfilshætti, baðandi sig í athygli glansblaða
og sleikjandi sér upp við fjármagnseigendur og rússneska
mafíósa, þessi gamli kommi, en ég er samt það
mikið á móti þessum lögum að ég
ætla ekki bara að kjósa á móti þeim
heldur líka að kjósa Ólaf forseta vorn svo hann
geti næstu fjögur árin úðað í sig
konfekti á okkar kosnað og lifað ljúfa lífinu.
Býst náttúrlega ennþá við að
hann bjóði mér í mat. Það er auðvitað
geðveikislegt og fáránlegt hvernig hann og Davíð
eru eins og tvær mygluklessur þegar þeir neyðast
til að hittast, sem æðstu menn þjóðarinnar,
og eiginlega gaman að þrúgandi spennunni á milli
þeirra. Einhvern tímann verður gerð æsileg hollívúdd
mynd um þetta sem byrjar á því að Davíð
tapar fyrir Ólafi í badminton 1968 og síðar um
kvöldið á skólaballi í MR undir dunandi bítmúsik
Roof Tops stingur Ólafur undan Davíð og glottir illkvittnislega
þegar hann og daman (Ásta R. Jóhannesdóttir?)
leiðast út.
---
www.ganga.is er húrrandi fínt
framtak fyrir þá sem vilja labba eitthvert.
16.06.04
Ég hef ekki fengið krónu fyrir að segja það
en Nike skór með einhverjum rúllandi loftpúða
í hæl eru frábærir skór! Ég spurði
karlinn í búðinni hvort þetta væri ekki allt
framleitt af smábörnum í 3ja heiminum en hann afhenti
mér bækling um þessi mál þar sem kom fram
að fólk undir 18 fær ekki vinnu hjá Nike. Leið
mér þá mun betur og svo eru þetta líka
svona æðislega þægilegir skór. Ég hef
heldur ekki fengið krónu fyrir að segja að Gillette
Mach 3 eru æðislegir rakhnífar. Mér er alveg hætt
að blæða við rakstur. Þess má svo geta að
hinn magnaði útvarpsþáttur Doktor doktor verður
í boði THULE BJÓRS sem er einn besti bjór sem
framleiddur hefur verið fyrr og síðar og það er
örugglega engin barnaþrælkun þar.
---
Eldra blogg hér: |