Hólmavík, XXX
Greinilega nýleg laug, stór og flott með nokkrum ágætum pottum. Fínn kostur á leið til og frá Ísafirði.
Hrafnagil, Eyjafirði XXX
Alveg fín laug í nágrenni Jólagarðsins. Laugin kristaltær og rennibraut barnvæn.
Ólafsfjörður, XXX
Fín út á landi laug. Metnaðarfull rennibraut, laugin gruggug.
Sundhöllin Ísafirði, XXX
Það var búið að tala um
að þetta væri andstyggilega köld laug, en það voru svo bara ýkjur.
Flott lúkkandi fortís laug með mjög góðu sána og ágætum potti.
Bolungarvík, XXXX
Laugin sjálf og pottarnir er nú svo sem ekkert spes en saunað og afslöppunaraðstaðan þar er himnesk.
Breiðholt, XXXX
Síðasta laugin
á Rvk-svæðinu sem ég átti eftir. Lúkkar
mjög vel, smá austantjalds-eitís-fílingur í
henni. Allt virkar vel nema rennibrautirnar sem voru fullar af snjó!
Pottar og laugar og sturtur allt unaðslegt. Fullt hús!
Seyðisfjörður, XXX
Allt inni, laug á
jarðhæð, 2 pottar og sauna í kjallara. Gamalt, orginal
og flott. Góður fílingur.
Sundlaugin Mývatnssveit, Reykjahlíð
XX
Sólid en plein.
Höttur, 1106 m XXX
Urð og grjót
upp langar brekkur. Síðan sneitt fyrir kletta upp á topp.
Fínt útsýni. Ágætis dæmi. Nokkuð
hefí harðsperrur v/ æfingarleysis.
Sundlaugin Stöðvarfirði
XXX
Ekkert fansí 2007
rugl hér, bara lítil og fín laug með potti og
kraftlausum sturtum (enda Austfirðingar með allt niðrum sig
heita vatnslega séð). Alúðlegt starfsfsfólk
sem lét manni finnast sem maður væri "heima hjá
sér".
Sundlaugin Sandgerði XXXX
Sundlaugin í Sandgerði
er ódýrasta sundlaug landsins, 200 kall oní, ókeypis
fyrir börn. Boðið er upp á eðal saunu, sækadelíska
vatnsrennibraut og marga potta. Traust laug sem fær fullt hús
vegna eðal verðlags!
Sundlaug Patreksfjarðar XX
Fín og ný
(2005) laug með engu veseni, bara 2 heitir pottar, laug og vaðlaug.
Það dregur úr upplifuninni að í sturtunni þarf
að ýta á takka til að fá vatn á 15
sekúndna millibili og vatnið er alltaf að skipta um hita,
svo það er ískalt og brennheitt til skiptis. Algjört
rugl. Og já, þarna er líka alvöru finnskt sauna
með græjum frá Tyvö.
Sundlaug Garðabæjar XXX
Reist fyrir góðæri
og því ekki góðærisleg. Þarna er reyndar
fáránlega stór gangur en sundlaugin sjálf er
næntís og fín. Stórir heitir pottar og fín
laug. Engin rennibraut svo maður er ekkert með hjartað í
buxunum út um krökkunum sínum.
Reykjanes í Ísafjarðardjúpi,
XXXX
Lufsan hafði löngum
sagt sögur af þessari laug og þá helst af þykkri
slýmottunni sem þakti alla veggi og gólf. Í
vor var hins vegar steypt yfir gömlu laugina sem var farin að
molna full mikið. Slýið er því farið en
laugin er engu að síður risa stór (50 m löng)
og gríðarlega þægilega heit svo þetta er á
köflum stærsti heiti pottur á Íslandi. Öreigaleg
aðstaðan og gríðarflott landslagið er svo til að
kóróna snilldina.
Þingeyri, XX
Nýleg sundlaug í
nýju íþróttamannvirki. Stór innilaug
og lítill pottur. Í kraftlítilli sturtunni stendur
á miða að maður eigi að spara heita vatnið.
Ég vissi ekki að heitt vatn væri af skornum skammti á
Íslandi, en kannski þá helst á Vestfjörðum.
Líklega þess vegna er laugin alltof köld en potturinn
er hins vegar ekki nógu heitur.
Álftaneslaug, XXX
Fjölbreytt og nútímaleg
og flott laug, m.a. með sjávarföllum sem er svakalegt.
Á hálftíma fresti skoppar fólk eins og korktappar
í æstum gusugangi. Þó er greinilegt að kreppan
var skollin á þegar gengið var frá sturtunum. Þær
eru ömurlega kraftlausar (allar nema ein), ekki nógu heitar
og vatnið rennur örstutt úr þeim þó
maður ýti og ýti. Óþarflega mikið fúsk
á lokametrunum.
Laugar í Dölum, XX
Ég segi nú
bara um þessa laug eins og margar hér í byrjun sundlaugagagnrýninnar:
Þokkalegt, en alveg laust við að vera eftirminnilegt.
Reykjafjörður, nálægt
Bíldudal XXX
Enginn gætir þessarar
ágætu laugar. Hún er dáldið djúp
svo maður gæti auðveldlega drukknað fengi maður slag
eða væri fullur. Einhverjir voru fullir þarna skömmu
áður en ég kom. Hrá búningsaðstaðan
því ennþá hrárri en þyrfti að
vera og tvær hálfar bjórflöskur með stubbum
á bakkanum. Engu að síður fínt og frábært
útsýni. Laugin er einna þekktust fyrir að spila
nokkuð hlutverk í mynd heiðurslistamannsins Þráins
Bertelssonar Skammdegi, en þar fór Eggert Þorleifsson
á kostum í „alvarlegu“ hlutverki sem geðveikur maður
(„ekki snerta dúkkurnar mínar, ekki snerta dúkkurnar
mínar“). Laugin fær auka stjörnu með því
að ég ímynda mér að allt hafi verið ógeðslega
hreint og fínt.
Húnavellir, nálægt
Blönduósi XX
Þokkaleg skólalaug,
laug og pottar eru klædd með grænu plastgúmmíi.
Kraftlausar sturtur.
Hreppslaug, Skorradal XX
Ágæt sveitalaug
í flottu umhverfi.
Drápuhlíðarfjall,
527 m XXX
Ágætt klöngur
upp steinaflögur á tvo toppa með góðu útsýni.
Fínt!
Ásvallalaug, Hafnarfirði
XXX
Dýrasta sundlaug
á landinu er öll inni, enda alltaf skítarok þarna
á völlunum. Nokkuð ágætt bara, Dagbjarti fannst
allavega helvíti gaman í rennibrautinni.
Grettislaug, Reykhólum XX
Laugin aðeins of köld
og potturinn aðeins og heitur en að öðru leiti fínt.
Laugavegurinn, XXX
Gönguklúbburinn
Kattahryggir fór öfugan Laugaveg í júlí
2008, þ.e. frá Þórsmörk til Landmannalauga.
1. dagur: Rúta í
Húsadal, Þórsmörk. Gönguhópurinn Kattahryggir
byrja að klöngrast Laugaveginn, leið sem ofurmenni geta hlaupið
á nokkrum tímum en við ætlum að taka á
4 dögum, reyndar öfugt við það sem oftast er gengið,
sem er erfiðari leið. Meira upp í móti. Ýmsar
hindranir á leiðinni. Sú fyrsta er Þverá,
straumhörð grugguð jökulá sem þarf að
klofa. Mér var ekki um sel. Prófa tvisvar en sný við
í harðfylgi. Held að áin muni hrífa mig með
sér. Finnum loksins minnst hræðilega vaðstaðinn
og vöðum. Gott að vera búinn að þessu. Fólk
sem fer "rétta" leið þarf að enda á þessu.
Svo áfram gakk. Upp og niður. Nú byrjar að rigna.
Þetta var eini dagurinn sem rigndi á okkur. Sé eftir
að eiga ekki plastbuxur. Í gili eru skerí brýr.
Svo klifra upp kaðal á stórum steinum. Svo upp brekku
en þá fer fyrsti skálinn að blasa við, Emstrur.
Þar er fínt stuð. Landverðir í miklum fornaldarfíling
í víkingafötum og syngja þegar ísl. fáninn
er dreginn niður.
2. dagur. Meira labb. Alllöng
ganga í eyðilegu landslagi. Fyrst framhjá Hattfelli svo
framhjá Stórusúlu. Tvær ár til að
vaða sem eru pís of keik miðað við Þverá
í gær. Álftavatns-skálinn er sá stærsti
á leiðinni. Þar eru 4 klósett og 2 sturtur. Á
Emstrum eru bara 2 klósett og 1 sturta.
3. dagur. Nú þarf
að fara upp mjög bratta og langa brekku en þegar upp er
komið er hægt að horfa yfir allt galleríið og
sjá þrjá jökla. Framundan er háhitahverbullandi
svæði og amk 3 tíma labb í Hrafntinnusker, síðasta
skálann. Þar er bara kamar með ógeðslegri lykt
en skálinn mjög fínn að öðru leiti. Fer
upp á Söðul sem er auðvelt labb og þaðan
sést út um allt.
4. dagur. 4 tíma
skokk í Landmannalaugar sem er eins og flóttamannabúðir.
Svaml í heitri laug að leiðarlokum og búðin í
rútunni skemmtileg. Rúta í bæin.
Niðurstaða: Flott
leið en næst fer ég fljótar yfir og gisti kannski
bara á einum stað á leiðinni. Það mun þýða
meira hefí labb. Að taka 4 daga í þetta er full
mikið hangs. Vinsæl leið svo maður mætir mörgum.
Á sömu slóðum er Fimmvörðuháls-labbið
skemmtilegra, bæði meira kefjandi og flottara og fjölbreyttara
landslag. Áfram Ísland!
Lágafellslaug, XXX
Hér er kominn enn
ein ástæðan til að flytja í Mosfellsbæ,
ný og nútímaleg sundlaug með öllu. Þó
full mikið kaos í búningsklefa og kraftleysi í
sturtum og einn heiti potturinn mjög asnalega hannaður svo maður
rak sig í. Ljómandi gott annars.
Meðalfell, 345 m XX
Tókum Meðalfell
endilangt. Nokkuð þokkalegt labb á voða mikið
meðal fell.
Búrfell í Grímsnesi,
534 m XXX
Fjallasumrinu 2008 startað
með þessaru bungu. Ágætis tölt upp mosa, mela
og grjót. Sléttur klukkutími upp á topp. Uppi
er lítið vatn og maður labbar hring í kringum það.
Gott útsýni inn yfir Þingvelli og Suðurlandið.
Alveg fínt bara!
Fimmvörðuháls, 1043
m
XXXX
Frá Skógum
að Básum í Þórsmörk eru ca. 23 km,
sem maður getur farið rösklega á 7 tímum eða
10 tímum á góðu drolli með kaffipásum
og miklu glápi. Fyrstu 2-3 tímana er gengið upp með
Skógaá þar sem stórglæsilegir fossar eru
með jöfnu millibili. Ég hef ekki tölu á þeim
en þetta voru allavega 10 stk þar til maður kom loks að
vaði þar sem brú er yfir ána. Þá tekur
við eins klukkutíma öræfalabb í smá
upphækkun allaleið að Baldvinsskála sem er nothæfur
þótt í hálfgerðu eyði sé. Enn
breytist landslagið enda er maður nú kominn á milli
Eyjafjallajökuls og Mýrdalsjökuls. Skítugan snjó
þarf að ösla og klakahröngl og smá svell --
létt þó, amk á sumrin. Þetta er klukkutíma
brölt upp á hæsta hluta leiðarinnar. Margt í
umhverfinu þarna minnir á leiðina upp á Hengil.
Mýrdalsjökull á hægri hönd er rosalega flottur
að sjá en Eyjafjallajökull til vinstri er mun ljótari,
minnir helst á skítugt þakið á Laugardalshöll.
Jökladrunurnar eru dulúðlegar. Hæðst uppi utan
á smákletti er minningarskjöldur um fólkið
sem varð þarna úti 1970, það var illa búið
og hreinlega örmagnaðist í vonsku veðri. Veðrið
var gott hjá okkur en þarna uppi var þó rok og
auðvelt að sjá hvernig þessi blettur getur snarlega
breyst í veðravíti. Nú blasir við unaðsfögur
sýn yfir hálendið og leiðin er niðrí móti
það sem eftir er. Dáldið hefí skriður og
svo Heljarkambur sem maður gengur haldandi sér í keðjur.
Þetta er svona álíka erfitt og klettarnir í
Esjunni. Nú tekur við marflöt Morinsheiði, korterslabb
og svo niður Heiðarhorn. Nú heldur maður að maður
sé á grænni grein og á góðri siglingu
til Bása en fyrr en varir er maður þó kominn í
skelfilegasta kafla leiðarinnar, Kattahryggina. Þarna kemur rassinn
sér vel til niðurferðar, haldandi í ótryggar
keðjur og eitt 15 metra einstigi þarf maður að hlaupa
með þverhnýpi til beggja hliða. Best er að fara
þetta með því að horfa bara beint niður
á skóna sína, en ef lofthræðslan er alveg
að fara með mann má hreinlega skríða þarna
yfir. Svo er frábært að koma í aðstöðu
diskóferðafélagsins Útivistar í Básum,
en það er lang flottasti staðurinn af þessum þrem
þar sem eru skálar í Þórsmörk (hinir
eru Langidalur og Húsadalur, og jafnast ekkert á við
Bása í náttúrufegurð.)
Þórslaug, Þórsmörk
XX
Lítill og grunnur
heitur (eiginlega volgur) pottur með takmarkaðri búningaskiptaaðstöðu
en 2 sturtum. Auðvitað magnað að hita vöðva eftir
labb, en fyrir utan heppilega staðsetninguna er lítið stuð
í Þórslaug.
Vatnaveröld Reykjanesbæ XXX
Nokkuð solid sundlaug
með öllu þar á meðal ágætis vatnaveröld
fyrir púkana. Helst má setja út á kraftlausar
sturtur og vatnaveröldin mætti náttúrlega vera
stórkostlegri. Samt fín en maður spyr sig: Við með
allt þetta heita vatn, af hverju er ekki svona stöff víðar?
Borg í Grímsnesi XX
Ágæt sundlaug
í miðju sumarbústaðahverfi. La la pottar og há
rennibraut sem krakkar fíla.
Hestfjall í Grímsnesi,
322 m XX
Hálftíma labb
á smátind með góðu útsýni. Gengið
yfir draslaralegu jörðina á Vatnsnesi. Ágætt
sumarbústaðagutl.
Hafnarfjall, 844 m XXX
14
maí með Bigga. Nú beint upp á Vesturbrúnina,
þaðan á Gildalshnúk og svo niður. Um 3 tíma
labb í góðu veðri.
Strútur, 937 m XXX
Strútur í
Kaldadal rétt hjá Húsafelli er frekar auðvelt
uppgöngu enda búið að ryðja veg alla leið upp
sem er nóg að fylgja bara. Þokkalega erfið ganga í
möl og melum en útsýnið uppi er algjör snilld
enda Eiríksjökull bókstaflega framan í manni
í panorama og síðan Lang- og Þórisjökull.
Mjög magnað.
Djúpavogslaug XX
Þokkaleg innilaug
með einum asnalegum potti/laug úti. La la.
Eskifjarðarlaug XXX
Aka Eiturlaugin. Metnaðafull
laug með fínum pottum og þrem rennibrautum. Heitt vatn
virðist af skornum skammti á Austfjörðum og því
eru sturturnar alltaf kraftlausar þarna. Topp skítur að
öðru leiti og óþarfi að mæta með gasgrímu.
Reyðarfjarðarlaug XX
Bráðum mun örugglega
rísa hér glæsileg állaug en eins og er er boðið
upp á öreigalega innilaug sem mér sýnist vera
hægt að breiða yfir og breita í íþróttasal
með lítilli fyrirhöfn. Heitur pottur einmanalegur. Minnti
mig á gömlu Kópavogslaugina og hækkar því
upp í 2 stjörnur.
Egilsstaðarlaug XX
Lélegar sturtur en
ókei laug alveg.
Dalvíkurlaug X
Þessi laug er nýleg
og virðist sérhönnuð fyrir gamalmenni. Er með svaka
hjólastólarampi en samt með asnalegum heitum pottum sem
voru of kaldir. Alveg þokkaleg laug svo sem þó. Þegar
ég var stóð yfir vatnsleikfimi eldri borgara sem hefði
svo sem verið ókei en blessað fólkið var pínt
með því að yfir það var blöstuð
einhver sólóplata með Páli fokking Rósinkrans.
Drepleiðinlegt kóversull á hæsta styrki yfir allt
og alla, sannkölluð mannréttindarbrot sem lækka þessa
laug oní eina skitna stjörnu.
Súlur, 1213 m XXXX
Nú fór ég
á þetta í annað sinn og á báðar
Súlurnar, bæði Ytri (nær Akureyri - 1144 m) og Syðri-Súlu
(1213 m). Aðalleiðindin við þetta er svona 60 mín
drepleiðinlegt labb frá bílastæði að rótum
fjallsins. Þegar uppáferðin hefst er strax meira stuð.
Ég gerði mistök og reyndi að komast upp á kolvitlausum
stað. Þurfti að snúa við og finna leiðina
á ný - þetta mætti sem sé vera betur merkt.
Á milli súlanna er létt labb á skrýtnu
eyði (gjóskukennd steintegund) og á bakaleiðinni
var ég alveg að drulla í mig. Ég átti eftir
90 mín labb niður. Þar sem enginn var á svæðinu
hægði ég á mér í holu á þessu
eyði. Óskeindur tölti ég niður sem var ok því
um var að ræða harðan og þrifalegan saur. Niðri
hringdi Óli Palli og tók mig í símaviðtal
v/ færslu CBGBs til Las Vegas. Hann sagði að það
væri lítið pönk í mér því
ég væri í fjallgöngu. Ég fattaði það
ekki fyrr en síðar að ég hefði átt að
segja honum að víst væri pönk í mér
ennþá, því ég hafði skitið á
fjallinu og væri óskeindur og frjáls í fjallasal,
enda fátt meira frelsandi og meira pönk en að sleppa því
að skeina sér. Vegna þessarar lífsreynslu fá
Súlur 4 stjörnur þótt þetta sé bara
3ja stjörnu fjall vegna leiðindanna neðst.
Þelamerkurlaug, Glæsibæjarhreppi
XXXX
Þessi laug státar
sig af því að vera sú heitasta á landinu.
Er svona 34°C sem er mjög fínt. Heitu pottarnir svo enn
heitari. Allt mjög gott og fínt. Ég hef skrifað
í minniskompu að laugina vanti "magic touchið" og eigi því
bara 3 stjörnur skilið, en ég hef fallið frá
því og ætla að gefa þessari eðallaug fullt
hús.
Kleppsjárnreykjalaug, Borgarfirði
XXX
Traust sveitalaug, fínn
pottur og laug. Mætti vera meiri kraftur á sturtunum. Þokkalega
hreinlegt og blessunarlega fámennt. Gott.
Hafnarfjall, 844 m XXX
Upp Klausturtunguhól
sem er drepleiðinleg klöngur að hamrabelti þar sem AT
segir að sé með klauf. Fundum hana ekki en fórum
samt upp á hæsta tind, Gildalshnúk. Þaðan
auðvelt niður. Nokkuð strembin 6 tíma ferð og skemmtileg
fyrir utan byrjunina.
Hengill, 805 m XXXX
Nú var tekin leiðin
frá bílastæðinu við Dyradal og stikur eltar
á topp nema brugðið út af vananum og farið upp
skriður efst. Tók nokkuð hressilega á á köflum
en hverrar mínútu virði! Útsýni geðveikt
að vanda og frábært að svona töff stöff
sé í 30 mín fjarlægð frá sollinum.
Scolty Hill, Aberdeenshire, Skotlandi
299 m XXX
Fyrsta fjallið sem ég
geng á í útlöndum er þessi hóll
í Banchory. Gaman að ganga í gegnum skóg, tilbreyting.
Efst sleppti skónum og var þokkalega bratt á flatann
toppinn. Þar er 20 m turn reistur 1850 til heiðurs einhvers lókals
manns. Löngu seinna flaug þyrla með hringstiga sem hægt
er að labba upp. Gott rölt og vonandi byrjun á góðu
labbsumri.
Salalaug, Kópavogi
XXX
Nokkuð köld og
grámóskulaug nýtískulaug í smekklegu
úthverfi. Bubblupottur góður svo og mósaík-klætt
eimbað. Minnir á Borgarneslaug. Gott stöff en slær
ekki bestu laugarnar við.
Skarðsheiði 1053 m XXXX
Tókum hringinn sem
Ari Trausti talar um í biblíu sinni. Langt labb upp (3 og
hálfur tími) í nokkuð flottu landslagi. Grýtt
undir fót. Skarðshyrna 946 m og Heiðarhorn 1053 m. Margmagnað
útsýni þaðan. Klöngur og hjakk á grjóti
niður. Í allt um 6 og hálfs tíma ganga, 9-10 km.
Fínt stöff.
Þjórsárdalslaug
XXX
Almögnuð laug í
eyðimörk. Búningsklefar frekar hranalegir og lélegt
að ekki sé samhliða sturta og búningsklefi. En mjög
fínt að öðru leiti.
Húsfell 288 m XXX
Fellið sjálft
er ekki neitt neitt en þessi hringur (Kaldárbotnar -- Húsfell
-- Helgafell) er flottur í góðu veðri. Hraun og spakir
spóar. Íslensk eðalnáttúra í skottúr
frá Rvk.
Laugarvatn XX
Þokkaleg sundlaug
og pottar en búningsherbergin frekar subbuleg og asnaleg.
Gamla gufan, Laugarvatni XXX
Rosalegt stuð og ekki
skemmti fyrir að Heiða og Elvar eru að vinna þarna!
Grænadyngja 402 m XX
Eða "kryppan" sem maður
sér úr borginni í námunda við Keili. Trölladyngja
("Keilir 2") skyggir á grænudyngju en umhverfi þarna
er allt hitasvæði og flott með miklum litum og geimblæ.
Komum við í Spákonuvatni, en labbið á dyngjuna
er ekki mjög strembið. Ágætis stuð.
Ytri-súla 1144 m XXX
Annar tindurinn í
Súlum, bæjarfjalli Akureyringa. Nokkuð strembið labb
án átakabletta þó. Lítur hræðilegar
út en það er í raun. Gott stuð.
Jarðböðin Mývatni
XXX
Bónusútgáfa
af Bláa lóninu, ekki eins flott en ódýrara
og alveg eins gott, þannig séð.
Hólar í Hjaltadal XX
Skítþokkaleg
laug. Skemmir þó fyrir að það væru full
margir prestar á svæðinu enda eitthvað rugl um Guðmund
góða í gangi hjá blessuðum vitleysingunum.
Grettislaug, 15 km frá Sauðárkróki
XXXX
Stórfenglegur pottur
á hjara veraldar. Sirka 2x stærri en stór heitur pottur
í sumarbústað. Glæsilegt umhverfi og góðir
víbrar.
Hátindur 909 m XXX
Enn ein leiðin á
Esjuna. Dálítið hræðilegt að sjá
í fjarlægð en rættist úr þessu þegar
við fundum "rennuna" upp. Því ver og miður var þoka
uppi en engu að síður fín ferð. Mættum
Ara Trausta, Tolla og Árni pabba Döggu á leiðinni
upp sem var fínt því ég gat suðað smávegis
í Ara Trausta, m.a. spurt hann að því hvaða
fjarstæða þetta væri í honum að Hátindur
og Þverfellshorn væri jafn erfitt. Hann svaraði litlu en
benti á að það væri stutt eftir upp.
Grímmannsfell 482 m XX
Það sem Halldór
Laxnes hafði út um gluggann. Sæmilega bratt en frekar
boring tölt með fram gaddavírsgirðingu á flatan
stóran topp með litlu fjöri. Einnota.
Þverfellshorn 782 m XXX
Algengnasta fjallaleið
landins og allt vaðandi í fólki. Samt nokkuð fínt
bara, skerí sjitt á toppnum svo ég fór út
á hægri hlið og upp snjóbreiðu (ok skafl).
Fínasta fjallapopp (sæmilega þungt) og útsýni
gott í góðu veðri. Framúrstefnulegt gestabókarhylki
á tindinum.
Brekkukambur 646 m XX
Þetta fjall hefur
maður milljón sinnum keyrt fram hjá án þess
að sjá það. Þetta er semsé fjallið
fyrir ofan braggahverfið í Hvalfjarðarbotni. Nokkuð
Jöfn ganga upp, þokkalega létt, en upp tekur við
ein stór slétta og er erfitt að finna hæsta punkt.
Ágætt útsýni, en svona í heildina la
la, þótt alltaf sé auðvitað gaman að komast
út úr húsi og á fjall.
Trölladyngja á Reykjanesi
375 m XXX
Fín ganga á
flott fjall í gríðarflottu umhverfi (Höskuldarvellir
og Keilir við hliðina). Drjúgt labb upp á topp (gott
útsýni). Í næstu lotu verður tekið labb
í kringum Spákonuvatn og upp á Grænudyngju.
Móskarðahnúkar 807m
XXX
Fórum þetta
í hífandi roki. Fyrst upp meli sem var leiðinlegt, en
þegar líparítinu var náð varð ferðin
skemmtilegri. Útsýni gott og flott umhverfi. Fórum
á efsta hnúkinn, en nennti ekki á hina tvo. Frekar
auðvelt stuð í nágrenni borgarinnar.
Helgafell í Mosfellsbæ
215m XX
Voðalega lítilfjöllegur
hóll en útsýni ágætt og gott sem fjölskyldulabb.
Kerhólakambur 851m XXX
Kamburinn blasir við
nánast hvert sem maður fer í Rvk. Því er
nauðsynlegt að sigrast á þessu fjallhelvíti.
Erfiðast er að komast úr gilinu í hlíðar
fjallsins og ekki hjálpar til að þetta er hvergi merkt.
Var maður því nokkuð smeikur á tímabili
og fór á rassinn á leiðinni niður. Þessi
leið ku vera sú næst fjölfarnasta á Esjuna,
en ekki sá ég einn einasta kjaft þessa 7 tíma
sem ferðin tók. Mikið labb upp hlíðina og ekki
svo heví að komast upp á kambinn sjálfan. Útsýni
gott til allra átta af tindinum. Djöfulli mikið verkefni
en mjög gott að vera búinn að þessu. Nú
getur maður horft á kambinn og fundið fyrir karlmannlegu
stolti.
Helgafell í Hafnarfirði 340m
XXX
Ekki erfitt (í gestabókinni
á toppnum var 4 ára stelpa!) en mjög skemmtilegt. Flott
sandberg og móberg og skemmtileg leið og flott útsýni.
Vífilsfell 655m XXX
Stutt frá bænum
og nokkuð þægilegt allt saman. Engin drápsskilyrði
allavega, þótt nokkrir hafi reyndar látist þarna
en þá helst á veturna skilst mér. Leiðin
á tindinn mætti vera betur merkt, maður væflaðist
þarna um í smátíma áður en maður
fattaði hvar ætti að fara. Fínt útsýni
yfir Suðurlandið.
Kobbi kútur - Sundlaug Selfossi
XXXX
Gífurlega barnvæn
sundlaug og algjör snilld. Fullt hús!
Grábrók 173m X
Hraunhrúga fyrir
alla fjölskylduna.
Þyrill 393m XXX
Auðvelt labb og útsýni
nokkuð kúl yfir Hvalfjörðinn af toppi.
Akrafjall 643m XXX
Drjúgt labb á
tvo toppa, Háahnjúk og Geirmundartind. Gestabækur á
báðum tindum. Glæfralegt útsýni af Geirmundi
en dalur milli tinda frekar leiðinlegur.
Skálafell Mosfellsdal 771m XX
Frekar leiðinleg leið
á toppinn en draugaleg fjarskiptastöð á toppi vegur
upp á móti leiðindunum. Allt í þoku og spúkílegheit
allnokkur. Kúl útsýni í gegnum þokuslæðurnar.
Keilir 378m XX
Beint strik upp og beint
strik niður. Gestabók á toppi. Þokkalegt labb,
fjölfarið og poppað.
Hengill 805m XXXX
Fórum lengri leiðina
frá skíðasvæði og gegnum allan Innstadal. Margþætt
labb og efsta svæðið mjög spúkí umhorfs,
eins og í súrrealískri sæ-fæ mynd. Vorum
í algjörri blíðu svo útsýnið á
toppnum var algjörlega geðveikt. Sáum eiginlega allt Ísland
þarna. Möst labb fjall.
Suðurlaug, Hafnarfirði XXX
Alveg hin fínasta
laug og pottar. Gaman að verðinum sem segir "Nú kveiki ég
á sveppinum" með ákveðnu millibili.
Seltjarnarnes XXXX
Topplaug! Ódýrari
en aðrar laugar og í alla staði pottþétt.
Vesturbær XXX
Klassískt sund ef
maður lendir ekki á álagstíma. Alltaf gaman að
rekast á Möggu stínu!
Sundhöllin XXX
Heitari potturinn góður.
Búningsklefar góðir til Gusgus-videóframleiðslu.
Laugardalur XXX
Ferlíkisflæmi,
en aðal-pottur notalegur.
Kópavogur XXX
Annað ferlíkisflæmi,
en engu að síður fínt.
Hótel Loftleiðir XX
Ískalt og draslaralegt,
en einhver 60s-sjarmi engu að síður.
Grafarvogur XXX
Ægilega fínt,
en vantar sérstöðu.
Árbær XXXX
Topplaug! Eðal aðstaða
til stríplunar úti og pottar góðir. Mætti
samt minnka bubblið.
Bláa lónið XX
Fáránleg okurbúlla
og klefa-sýstem út í hött. Maður nær
ekki hvítu slikjunni af sér fyrr en eftir eins og 3 sturtuferðir
en engu að síður er alltaf "event" að fara í
Lónið.
Mosfellsbær XX
Alveg þokkalegt, en
án sérstöðu.
Ljósafossvirkjun XX
Þokkaleg lítil
laug. Sáum Bessa Bjarnason!
Hveragerði XXXX
Dúndur sundlaug!
Næstum því nógu góð ástæða
til að flytja til Hveragerðis!
Seljavallarlaug XXXX
Falin ævintýralaug
undir hömrum. Skítt með það að hér
sé ekki sturta. Upplifun.
Skógar XX
Sæmileg innilaug.
Laugar í Reykjadal XX
Öreigalegur pollur
í kjallara, en ku standa til bóta að stækka.
Akureyri XXX
Topplaug með öllu.
Stór mínus er þó hið fáránlega
vatnstakmörkunarsýstem í sturtunni. Til hvers? Er ekki
nógu mikið vatn á Íslandi?
Krossnes XXXX
Ævintýralaug
á hjara veraldar (Ströndum). Magnað útsýni,
mögnuð laug.
Varmaland XX
Þokkalegt, en alveg
laust við að vera eftirminnilegt.
Laugagerðisskóli XX
Þokkalegt, en alveg
laust við að vera eftirminnilegt.
Lýsuhóll XXX
Sjabbí og grotnað,
en sódavatnið gerir gæfumuninn.
Hvammstangi XX
Þokkalegt, en alveg
laust við að vera eftirminnilegt.
Suðureyri XX
Þokkalegt, en alveg
laust við að vera eftirminnilegt.
Borgarnes XXX
Metnaðarfull laug og
góð.
Kjalanes XX
Lítið og öreigalegt.
Heiti pottur ágætur en setlaugin grín.