Fiskfélagið, Rvk XXXX
Heimsreisa hjá
Fiskfélaginu. Fyrir 8900 kr. á mann var borinn í okkur hver rétturinn á
eftir öðrum með útskýringum og staðsetningu. Maður átti að "ferðast um
heiminn" með bragðlaukunum. Þetta var ægilega gott og hverrar krónu
virði. Fiskmeti og kjötmeti og grænmeti og englamauk í eftirmat. Maður
valt út tveimur tímum síðar og bjóst við að fólk að berja tunnur tæki á
móti manni fyrir utan fyrir að vera svona mikið svín og hugsa ekki nógu
mikið um skuldir heimilana. Fiskfélagið er töff staður og þjónustan
næs. Túristar sem litu út eins og jarðvísindamenn meirihluti gesta. Ég
þarf þó að minnast á að heimsreisan sem slík stóð ekki undir nafni því
aðeins var boðið upp á evrópska rétti og einn amerískan (nautasteik með
frönskum deluxe). Hvar voru fulltrúar afríku, asíu og eyjaálfu? Ég er
ekkert að kvarta, mér datt þetta bara sísvona í hug.
Tilveran , Hafnarfirði XXXX
Góður fiskstaður í Hafnarfirði, kósí og alþýðlega nettur. Fengum góðan mat á fínu verði í hádeginu.
Súpubarinn, Rvk XXX
Í boði einhverjar 5
súpur. Valdi Tex mex (á 990 kall) sem var ljómandi góð. Vatn með og
fínt kaffi á eftir. Gott útsýni yfir höfnina. Næs pleis.
Shalimar, Rvk XXX
Ég dreif mig aftur
eftir að hafa lesið rosalega góða dóma í
Grapevine. Það er búið að gera staðinn miklu
vistlegri og meira spennandi en þegar ég fór síðast.
Bland af báðum réttum dagsins á 1690 kall + frábært
naan og fínn mangó lassí. Ódýrara en
Austur Indía, en ekki eins gott. Mjög fínt samt og nokkuð
sanngjarnt verð.
Daddi's pizza, Mývatni XXX
Fengum okkur pítsu
á Daddi's pizza á Mývatni sem er án efa besta
pístan á Mývatni og með flottasta útsýni
sem um getur á pítsustað (aukastjarna fyrir það!)
Klausturkaffi, Skriðuklaustur, Fljótsdal,
XXX
Lönshlaðborð
á 2200. Allskonar gúmmilaði og sumt úr héraði.
Geðveik lerkisveppasúpa og fínar hreindýrabollur.
Mjög gott. Einnig í boði kaffi og kökuhlaðborð
sem Lufsan segir meiriháttar.
Café Margrét, Breiðdalsvík
X
Hugmyndin er frábær,
þýskt fólk reisir þýskan bjálkakafa
og býður upp á þýskan mat, víðsfjærri
alfaraleið á Íslandi. Vanda þarf valið vel
því þetta er dýr staður. Þýskur
"pulsuplatti" er algjört okur, mjög illa útilátið
á 3.350 kall, en gýrosið er skárra og skinkubrauð
á 950 kall var það skásta fyrir aurinn. Ég
væri svo til í að mæla með þessu pleisi
en bara get það ekki. Okur!
Bistró, Skaftfell, Seyðisfirði,
XXX
Bestu pítsur á
Austurlandi og allskonar stöff. Fékk ágæta fiskisúpu,
Lufsan ágæta beyglu, krakkarnir djúsí pítsu
(fæ mér sjálfur svoleiðis næst) og allt rammað
inn í Dieter Roth drasllistalegum fílingi. Á
netinu.
Piri-piri, Rvk XX
Fremur undarlegt finnst
mér að bjóða upp á kjúkling á
svona góðum stað við höfnina. Maður hefði
haldið að eitthvað sjávarkyns sé nánast
skylda þarna. En allavega, þetta er stór og ágætur
staður með mjög stóru og fínu barnaherbergi,
sem krakkarnir una sér vel í. Matseðilinn er þó
ekkert yfirmáta spennandi - enda kjúklingur eiginlega svo
algeng fæða hjá manni heima að maður nennir ekki
að borða hann úti, nema þá slísístæl
á KFC. Ég fékk mér kjúklingaborgara
með salati og Lauk chutney og gráðostasósu á
1480 kr (franskar með), sem var alveg ágætt, þó
engan vegin neitt spes. Mun girnilegri mat fékk konan, eitthvað
kjúklingadæmi í vefju. Börnin fengu pítsu,
Chicago Town úr Bónus, sýndist mér. Sem sé,
la la með góðu barna horni. Piri-Piri
á netinu.
Íslenska Hamborgarafabrikkan,
Turninum, Höfðatúni XXXX
Ég ætlaði
alltaf að tékka á Fabrikkunni þótt mér
hafi nú fundist hæpið um staðinn fullgróft.
Simmi og Jói hljóta að vera einhverskonar snillingar
- hæpsnillingar? - því hæpið skilaði svo
geðveikum árangri að það er búið að
vera stútfullt síðan staðurinn opnaði. Alltaf
fullt og biðröð í hádeginu og á kvöldin,
svo það er mesta vitið - nema maður vilji endilega hanga
í röð - að mæta svona á milli kl. 17 og
17:30. En ef það er biðröð lætur maður
taka niður nafnið sitt og fer út og gónir upp á
háhýsið eða eitthvað. Fer smá rúnt,
eða fær sér kaffi á Kaffitári.
En allavega. Matseðilinn
er spennandi og skemmtilega uppsettur á blaði. Pleisið er
Ikea hittir Hard Rock, bara töff og þægilegt. Afgreiðslufólkið
ekkert rugl heldur almennilegt fagfólk. Ég skellti mér
á Fabrikkuborgarann (1.295 kr. með frönskum) - "stolt staðarins".
Borgarinn er mildur undir tönn og bragðast mitt á milli
þess að vera djúsí, slísí og heilsusamlegur.
Verulega góður bara og ég er strax farinn að slefa
yfir öllum hinum hamborgurunum sem ég ætla að prófa
næst. Lufsan fékk sér Ungfrú Reykjavík,
eitthvað kjúklinga-spelt dæmi með pestó. Var
mjög ánægð með hann. Það heyrðist
ekki múkk í krökkunum því þeir voru
með headfóns að horfa á teiknimyndir. Þau borðuðu
matinn sinn upp til agna þar að auki (samlokur og franskar).
Í eftirrétt kom besta skyrkaka sem ég hef smakkað
á ævinni og Jóa Fel súkkilaðikaka sem var
fín. Matseðilinn má skoða á
netinu og eins og sést er staðurinn með fín verð
miðað við sambærilega staði. Íslensk tónlist
var spiluð á þægilegum styrk en ég myndi
taka Söknuð Villa Vill út. Alveg óþarfi að
minna mann á að maður drepst í miðjum borgara.
Fullt hús stiga og ég skelli mér aftur við fyrsta
tækifæri! (júní 2010)
SuZushii, Kringlunni XXXX
Fór aftur og fékk
mér 5xKaliforníurúllur, flugfiskahrogn, ál
og djúpsteikt tófú (sem var ekkert spes) en allt hitt
var æðislegt! --> (fyrra skiptið): Keyptum ég og Lufsan
samplerbakka á 3.200 kall. Fórum með hann heim, skiptum
hnífjafnt og átum, mjög mjög fínt. Ég
þarf að prófa aftur og velja eitthvað exótískara
og borða í Kringlunni. Þessi sushi-staður fékk
bestu meðmæli í Gestgjafanum um daginn og ég trúi
því alveg - besti sushistaður landsins! Og mjög keppnishæft
verð. SuZushii á
Facebook. (júní 2010)
Kaffi Kidda Rót, Mosfellsbæ
XXX
Kiddi hefur lagt mikla vinnu
í að gera staðinn að alíslenskum poppminjaveitingastað,
sem rosa fínt er að skoða. Musteri íslensks popps.
Boðið er upp á úrvals djönkfúdd. Fékk
mér djúsí Kidda special rómantískan
borgara, hlaðinn með feta osti, maís baunum og fleiru. Nokkuð
gott, en staðurinn hækkar almennt v/ poppminjafílingsins.
(apríl 2010)
Ishin, Berlin XXX
Staðurinn lítur
út eins og mötuneyti í frystihúsi en serverar
ódýrt og gott sushi og japanskt stöff. Til kl. 16 er
happy hour með 25% afslætti. (mars 2010)
Kasbah, Berlin XXXX
Marokkóskur með
úrvalsgóðu tajini og kússkúss. Áður
en máltíð hefst eru hendurnar á þér
þvegnar upp úr rósavatni. (mars 2010)
Good time, Berlin XXXX
Gríðarlega flottur
og hipp og kúl thai/indónesískur staður. (mars
2010)
Babel, Berlin XXXX
Líbanskur lítill
og gríðarlega heimilislegur staður á Kastanienallée.
Fyrir 17.50 Evrur skaltu fá þér Babel platel sem er
allskonar líbanskt fæði fyrir tvo. Ótrúlega
gott og vel útilátið og í alla staði æðisgengið.
(mars 2010)
Maredo, Berlin X
Þegar maður kemur
úr flugi vill maður asnast til að gera þau mistök
að fara á næsta veitingahús sem maður sér.
Þetta er fokdýr steikarkeðja með mjög óspennandi
draslmat, túristagildra með útibú út um
alla borg. Fékk sæmilega kjúklingabringu án
sósu en með frönskum og sampler úr djúpsteikingarpottinum,
m.a. djúpsteikta slepjulega sveppi úr dós! Ekki fara
á þennan stað. (mars 2010)
Noodle station, Rvk XXXX
Einfalt, ódýrt
(850 kr núðlusúpan) og frábært núðlustuð.
Snæðið inni og fáið súpuskál. (14.02.10)
Brasilía, Rvk XX
Ég var dálítið
spenntur fyrir þessum stað en varð fyrir smá vonbrigðum.
Maturinn var bragðdaufur og bara alls ekkert spes. Ég sá
eftir aurnum því ég hefði getað étið
á Ruby og verið sáttari. Ég fékk mér
nautasteik á 1790, þokkalega útilátið, ekkert
gæðakjöt og bragðlítið allt saman. Alls ekki
vont, bara ekkert spes. Lufsan fékk sér Brasilískt
salat á 1300 sem hún segist alveg hafa getað gert sjálf
heima hjá sér. Krakkarnir fengu hamborgara og franskar (550
kall). Ef þetta er það sem er étið í
Brasilíu langar manni nú ekkert sérstaklega þangað.
(04.02.10)
KFC, Kópavogi 0
Einhver var búinn
að hrauna út allt klósettið. Allt í drasli
á staðnum, enginn nennir að taka til þótt það
sé ekki einu sinni röss-áer, eins og allir sem eru að
vinna séu þunnir. Maturinn eins og hann er, skilur eftir sig
poll á pappírsdiskunum og allt það. Og aumingja
hænurnar! Takk fyrir samstarfið Kfc, þetta er komið
gott í bili, minningin um þessa glötuðu heimsókn
fælir mig frá ykkur lengi lengi. Eða það vona
ég allaveganna. (16.01.10)
Græni risinn, Rvk XXX
Græni
risinn er á tveimur stöðum í bænum, á
Vatnsenda og á Grensásvegi 10 í sama húsnæði
og Pizzeria Rizzo. Við þangað. Þeir kalla þetta
heilsusetur og staðurinn er "í anda" Serrano, enda eigandinn
áður að vinna þar. Fékk mér lamba vefju
á 690 kall (var á tilboði, kostar annars 890 kr). Fékk
mér súpu með á 200 kall og drakk vatn með.
Ódýrt. Vefjan var stór í tveimur hlutum og
nokkuð pökkuð og góð. Kom með tveimur skálum
af hvítu og rauðu sterku jukki. Súpan var kjúklinga
og heldur bragðdauf. Staðurinn var þéttpakkaður
í hádegi á föstudegi og virðist spyrjast
vel út. Ágætis léttmeti á fínum
stað. (15.01.10)
Balkanika, Rvk XXX
Fyrsti búlgarski
veitingastaðurinn á Íslandi er í gamla Núðluhúsinu
gegnt Geisladiskabúð Valda á Vitastíg. Í
boði er allskyns stöff, þ.á.m. átta tegundir
af salati. Keypti mér eitthvað sem heitir Kjepsi eða eitthvað
álíka og var tvær svínabollur, ein svínapylsa,
franskar, slatti af grænmeti og sósa saman á disk.
Ég var mjög svangur og ruddi þessu í mig af áfergju.
Kostaði 1290 kr. Matur frá Balkanskaga er kannski ekki það
mest hipp og kúl í heimi en þetta var samt mjög
gott og seðjandi. Allt mjög ekta þarna inni og fín
þjónusta. Ég fer örugglega aftur til að prófa
eitthvað annað.
Kryddlegin hjörtu, Rvk XXXX
Ég mæli með
Kryddlegnum hjörtum, dúndurfínum veitingarstað á
Skúlagötu. Þar er heilsufæði gert frábært
á bragðið með nýjum trikkum. Heilsumatur vill
allur smakkast eins, eins og pappi, en hér er nýtt bragð
og gott. Fyrir 1390 kall (ódýrt!) var hægt að fá
sér 4 súpur og af mjög fínum salatbar. Ég
fékk mér sjávarréttasúpu og kókoskjúklingsúpu.
Báðar voru frábærar. Ég bölvaði
liltum maga mínum fyrir að fyllast svona fljótt. Mig
hefði langað til að éta miklu meira. Fer bara aftur.
Fjórar stjörnur!
Saffran, Glæsibæ, Rvk XXXX
Flottur, ferskur, heilsusamlegur
og helvíti ódýr veitingastaður í Glæsibæ.
Fékk mér naanwich sem kostaði ekki nema 750 kall og var
alveg svaka fínn. Mæli með þessum.
Fiskmarkaðurinn, Rvk XXX
Á sama stað og
maður át stundum á Sticks and Sushi og Maru. Hér
er japanskt í fyrirrúmi og búið að búa
til töff innréttingar. Það var full út úr
dyrum á fimmtudegi svo þessi staður spyrst vel út.
Við átum "smakk matseðil" og rúlluðum út.
Fyrst kom ágætur kóngakrabbi, þá lélegt
svínarif og þokkalegt salad. Næst smásmugulegt
sushismakk. Þá aðalréttirnir: ágætur
hlíri, frábær önd og þokkalegur lax í
núðlum. Allt var þetta flott útlítandi og
með óvæntum brögðum og skemmtilegt að éta.
Allt í kring var lið að éta spennandi mat svo maður
fer þarna pottþétt aftur og prófar fleira. Toppurinn
voru eftirréttirnir, 4 á bakka. Einn þeirra, anisfrauð,
var svo spes og æðislegur að ég linni ekki látum
fyrr en ég ét hann aftur. Smakkið kostaði 7900 kall
sem er auðvitað rándýrt, en kannski ekki ósanngjarnt.
Ég hefði bara að fleira hefði smakkast jafn geðveikt
æðislegt og anisinn og öndin.
Tjöruhúsið, Ísafirði
XXXX
Maggi smjörsteikir
ferskan fisk oní gesti og Ranka ber fram á pönnunum.
Fengum geðsjúkan kola. Hugsa um hann ennþá. Ódýrt
miðað við. Ef þú etur ekki þarna á
ferð þinni um Vestfirði ertu eitthvað verri.
Amma Habbý, Súðavík
XXXX
Sem unnandi amerískra
dínera gerði ég mér litlar vonir um oþentikina
á bakvið "Diner" sem stóð framan á gömlu
bensínstöðinni í Súðavík sem nú
er Amma Habbý. En ég hafði rangt fyrir mér. Þetta
er alveg frábær díner og vantaði bara rótarbjór
af krana til að gera staðinn fullkominn. Semsé frábærir
borgarar og besti sjeik norðar Álfheima. Ef þessi staður
væri á hringvegi 1 mættu allir aðrir pakka saman.
Santa María, Rvk XXX
Gerði þau mistök
að fá mér ekki mexíkóskt heldur samloku
sem var svo sem alveg ágæt. Helsti kostur staðarins er
verðið - ekkert kostar yfir 1000 kall. Reyndar allt á 990.
Lufsan segir það hafa kostað 890 síðast þegar
hún fór. En verðin eru sem sé gríðarlega
jákvæð og til eftirbreytni. Vildi að fleiri veitingarhús
tækju þennan pól í hæðina. Þjónustan
var fín en réttirnir komu kannski full seint. Kannski mikið
að gera í eldhúsinu. Innréttingar flottar og stemning
góð. Fer aftur og fæ mér mexíkóréttinn
með súkkulaðinu, það er ljóst.
Šešir moj, Belgrad XX
Í götunni Sardanska
er allt vaðandi í sætum matarbúllum, götur
hellulagðar og stemming góð. Samkvæmt Lonely Planet
er þetta aðalpleisið og ég keypti réttinn sem
stungið var upp á í bókinni. Það reyndist
vera ostfyllt gráleit kjötlengja vafin með beikoni. Langt
í frá góð. Ég gat ekki klárað
einu sinni. En brauð og serbneskt salat var magnað (eins og á
öllum hinum stöðunum í Belgrad). Sígaunaband
glamraði eins og rófulausir kettir við hliðina sem var
frekar pirrandi enda var þynnka í manni.
?, Belgrad XXX
Lítill staður
með skökkum stólum og voða heimilislegur. Át
kálfakássu með kartöflum. Ódýrt og
gott.
Dva bela goluba, Belgrad XXXX
Besta máltíðin
í Belgrad. Staður sem er líka í Sardanska. Át
kalkúnasteik með gorganzólasósu sem var hreinn
unaður. Gott band spilaði allan tímann við hliðina
músik eins og beint úr myndinni Underground.
Vuk, Belgrad XXX
Man ekki hvað ég
át en það var ágætt. Fannst allir líta
út eins og mafíósar en það var bara paranojan
að tala.
Jómfrúin, Rvk XXXX
Óaðfinnanlega
framreitt danskt smörrebröd og fleira. Rauðsprettan til dæmis
æði og sjálfur kaupi ég oftast hálfan buff
tartar sem er alveg nóg. Besta er svo að verðið er nánast
óbreytt síðan 1700 og súrkál og starfsfólk
gott og gestir alþýðlegir.
Prikið, Rvk XXXX
Ég er aðdáandi
amerísks morgunverðar, hins guðdómlega og æðastíflandi.
Hnausþykkir pönnukökur löðrandi í hlynssýrópi,
spæld egg, beikon, franskir kartöflukubbar. Ég hef ekki
fundið þetta hér. Grái kötturinn hefur verið
með "Trukkinn", illa útilátna og rándýra
útgáfu af þessu. En nú, halelúja, hef
ég fundið "vörubílinn" á Prikinu,
glæsilega vel útilátið, ágætlega verðlagt
(1190 kr) og hræðilega gott. Ég fann hjartað dröslast
í gegnum óhollustuna, en svei mér þá,
þetta fer ég og fær mér aftur... og aftur...
og aftur...
Sushibarinn, Rvk XXXX
Ef þú kemst
á sushi-bragðið er ekki aftur snúið. Oft hefur
verið erfitt að fá sushi en nú er þetta komið
víða, t.d. á Dómó (ekki smakkað þar)
og Sushi the train. Nýjasta pleisið er Sushibarinn Laugavegi
2 þar sem Gott í gogginn var til forna og fleiri staðir.
Þetta er pínkulítill staðar og brjálað
að gera í hádeginu. Dótið er búið
til fyrir framan kúnnann og er ferkst og ljúffengt. Verð
eru í sama dúr og fólk er vant, Best fyrir 1 á
1500 kall (magafylli og vel það). Semsé, frábær
staður sem maður á eftir að styrkja í framtíðinni.
Great Wall, Rvk XX
Í gamla Naustinu
er nú kominn allt í lagi Kínastaður. Ég
fékk mér hádegishlaðborð á 1450 kall
og át mig pakksaddann af allskonar gúmmilaði. Staðurinn
hefði fegnið XXX ef ekki hefði komið til ófyrirleitis
okurs á kóki, lítil kók í gleri á
350 kall er forkastanlegt okur.
Rauða húsið, Eyrabakka
XXX
Eru fluttir í stærra
hús. Keypti sjávarréttarsúpu (1990 kall) sem
var ágæt og fékk ábót. Nákvæmlega
tveir humrar. Steini keypti nautasamloku sem leit mjög girnilega út.
Krakkar fengu hamborgara sem virtust í lagi. Fínt en ekki
æði.
Askur, Rvk XXX
Líklega elsta starfandi
veitingarhús Íslands (síðan 1966 stendur á
servéttunni). Mjög gott steikarhlaðborð á sunnudögum
kl. 18. Fór og fékk mér hamborgara sem var fínn
og svo sem ekki staðnum að kenna að ég hafi haldið
að jalapenjo væri gvakamóle. Gríðarlega prófessíonal
þjónar. Ég var kallaður "Herra minn". Askur er
klassa búlla!
Sjávarkjallarinn, Rvk XXXX
Eitthvert rándýrasta
átpleisið í bænum (skilst mér) og gæðin
eftir því. Það er gáfulegra að spælsa
þessu á sig í hádeginu því þá
er ódýrara. Við skelltum okkur á 3ja rétta
hádegistilboð á 2700 kall. Tampúrakrabbi í
forrétt (stórkostlegt), ég fékk mér
eggjanúðlur með sjittsveppum og tígrisrækjum
(3 stk - mætti vera fleiri), en Lufsan fékk sér lúðu
(of þurr). Mitt var helv gott og það var vel útilátið.
Eftirrétturinn fór alveg með geðveikina, geðveikt
súkkulaðimúss með ís. Hverrar krónu
virði og merkilega vel útilátin máltíð.
Ég var alveg á blístri enda var borið í
mann snittubrauð og sósa og ídýfukorn. Svaka fínt.
Systrakaffi, Kirkjubæjarklaustri
XXX
Fínt kaffihúsalegt
veitingarhús með bæði borgarum og öðru stöffi.
Ég fékk mér enskan morgunverð sem var dúndur
hress og slær öðrum íslenskum enskum morgunverðum
við, enda slíkt vandfundið hér.
Fosshótel Vatnajökull XX
Þjónarnir voru
franskir sem bjó til international stemmingu. Ægiflott út
um gluggann. Hamborgari þurr og lélegur, en fínni matur
fínni.
Skaftafell bistró, Seyðisfirði
XXX
Hér bar Gurra fram
plokkfisk og góða fiskisúpu sem franskur (kannski?) kokkur
matreiddi. Strákar sem litu út fyrir að fíla Múm
átu við hliðina og ferðalangur frá Amsterdam
kom grátandi inn því það var verið að
spila eitthvað hollenskt rapp sem var það síðasta
sem hollendingsgreyið átti von á að heyra þarna
í rassgati. Artí fartí eins og í últöndum
og því ekki það? Gaman.
Hótel Aldan, Seyðisfirði
XXX
Allt gamalt og fínt,
leirtau frá því sirka 1940 og maturinn voða fínn.
Reyndar rándýr,en hei!
Fjarðarhótel, ReyðarfirðiXXX
Fékk ágætan
hamborgara hér sem lofar góðu um hitt. Á næsta
borði var Íslenskur gullgrafari í símanum. Samtalið
gekk út á að hann var að reyna að finna upp formúlu
sem gerði það að verkum að hann myndi græða
á verktilboðinu alveg sama hvort dollarinn færi upp eða
niður.
Fjalladýrð, Möðrudal
XX
Lengst upp í sveit
á hæsta sveitabæ landsins - 400 og eitthvað metrar.
Fjallasjoppa með góðri en gífurlega beisikk kjötsúpu.
Götugrillið, Akureyri XX
Brjálað að
gera enda bara einn kokkur á vakt (kona hins var að fæða
barn, sagði okkur sveitt en almennileg þjónustustúlka).
Hér er m.a. boðið upp á indverskt, sem var bragðdauft
og nokkrum kílómetrum frá því sem best
gerist (halló Austur indía félagið). Alveg ágætt
engu að síður og verðið gott (miðað við
landið).
Greifinn, Akureyri XXX
Þetta er nú
alveg klassískt og ekki eins dýrt og mig minnti.
Brekka, Hrísey XX
Þjónusta í
slómó og þegar humarsúpan kom loksins var hún
köld og humarinn hrár. Send til baka til upphitunar og var
ok þegar hún kom loksins. Næs pleis en mætti sýna
meiri metnað þó lítið sé að gera.
Red Chili, Reykjavík XX
Fórum í Pósthússtrætið.
Alveg þokkalegt svo sem, ég át kjúklingabörrító
sem var bragðlítið og óspennandi og einhvern bland-forrétt
sem var lala. Lufsan fékk sér salat sem var ok. Held ég
leggi það ekki fyrir mig að fara þarna aftur.
Sægreifinn, Reykjavík XX
Karlinn er náttúrlega
hress, en þessi súpa hans er nú kannski ekki himnasængin
útbreidd, þótt ok sé. Hann er að leggja
drög að dorm-aðstöðu á efri hæð
en ég hef lengi barist fyrir svona, enda er upplagt að geta
lagt sig eftir mikla máltíð. Það er þó
algjör óþarfi að leggja sig eftir humarsúpu
úr frauðmáli. Vantar frekar legubekki á Hereford
eða Argentínu.
Hlið, Álftanesi XXXX
Bogi, kenndur við Bogarúllur,
og Nok eiginkona hans hafa komið upp frábæru "heimaveitingarhúsi"
á Hlið á Álftanesi, friðuðu eiði þar
sem maður hefur Atlantshafið að fótum sér út
um gluggann. Nok reiðir fram magnþrunginn Thailenskan mat, margrétta
gúmmilað, án efa besta thaistöff landsins. Sjón
er sögu ríkari og ekki verður þetta verra þegar
Bogi verður búinn að koma upp spa-inu. Þessi staður
ætti eiginlega að fá fimm stjörnur, en það
myndi sprengja skalann.
Ólsen ólsen, Keflavík
XXX
Þokkalegur hamborgadjónt
við Hafnargötuna, en megahagstætt verðlagið (miðað
við) hífir pleisið upp um stjörnu.
The Sushi train, Iða, Reykjavík
XXXX
Loksins! Sushi-færiband
í Reykjavík. Komum í hádegi á sunnudegi
og var nokkuð þétt á færibandinu. Dótið
rann hjá með góðum varíöntum. Verðin
eru 200, 250, 300, 350 og 500 á disk. Nokkuð vel sloppið
bara. Ferskt og gott og svo hægt að sérpanta. Fékk
mér Californiu kramarhús og er enn að sleikja út
um. Pottþétt pleis fyrir sushi frík!
Sombrero, 303 W 48th St., NYC XXX
Allt í lagi mexíkóskur
staður.
Victor's Café 52, 236 West 52nd
St., NYC XXX
Þéttur kúbanskur
staður. Kúbanskt er aðeins öðruvísi en mexíkóskt.
Cheyenne Diner, 9th Avenue & West
33rd St. NYC XXX
Eðalbras í díner
frá 1940 og eitthvað. Sögulegt en ekkert ótrúlega
gott á bragðið!
Skyline Diner, 9th Avenue & West
34th St., NYC XXX
Eðalgott BSÍ-ameríka-stæl.
Veltur út aðframkominn af áti.
Nos Ancetres Les Gaulois, 39 rue Saint-Louis-en-l'Île,
París XXXX
Magnað risavaxið
pleis í aldagömlum katakombum á þessari eldgömlu
eyju í miðri Signu. Nafnið þýðir "Forfeður
okkar Gaulverjarnir" og er allt í svona Ástríx-stemmingu
þó honum hafi per se ekki verið stillt upp á staðnum.
Þjónarnir voru eiturhressir og maður mátti henda
sígarettunum á steingólfið. Þeir sögðu
að svínin væru tekin fram og látin hreinsa til
eftir lokun. Til að byrja með var sett á borðið
gríðarleg karfa troðfull á grænmeti sem maður
átti að búa til salatið sitt sjálfur úr.
Svo var hlaðborð með ýmsu kjöti og dóti.
Svo gat maður valið um aðalrétt og eftirrétt.
Allt þetta á 35 Evrur á kjaft. Að auki voru rauðvínstunnur
á svæðinu sem maður mátti gangi í að
vild enda rúlluðu að lokum allir út fullir og magasíðari
en áður. (Heimasíða)
Chez Paul, 13 Rue de Charonne, París
XXXX
Ekta franskt og unaðurinn
einn. Gráðostafylltur héri og eitthvað meira sem
ég man ekki enda með nokkra fokdýra kokteila í
maganum sem við héldum að við værum að kaupa
á happy hour (á skítabúllunni Boca Chica sem
ber að varast. Vilji fólk ódýra kokteila (5 evrur
stk) má mæla með happy hour á glansbarnum á
35 rue Vieille-du-Temple (til kl. 20). Franskt og þægilegt
pleis.
Chez Omar, 47 Rue de Bretagne, París
XXXX
Kússkúss aldarinnar!
Hrikalega vel útilátið og kjötið meirt eins
og rjómi. Í Lonely Planet-bókinni er tekið fram
að þjónarnir á þessu pleisi séu furðulegir
og reyndist það rétt. Einn arabatittur var með eintóma
stæla og grín sem maður tók bara enda maturinn
of góður til að væla. Hann hélt því
m.a. fram heillengi að það væri ekkert kússkúss
til í húsinu og þegar hann bar fram expressóið
þóttist hann hella yfir Steina. Í smástund frusu
allir en þá var karlskrattinn með tóman bolla.
Mæli með Royal Couscous-inu sem inniheldur einhverjar 4 kjöttegundir.
Óheyrilega gott. (Heimasíða)
Ambassade d'auvergne, 22, rue du Grenier
Saint-Lazare, París XXXX
Ægilega fínt
pleis sem reiðir fram mat frá Auvergne hérðinu og
er staður sem veitir vel og mikið. Ýmiskonar gúmmilaði
í forrétt, m.a. pylsur og hráskinkur frá héraðinu.
Nautakjöt í aðalrétt voru mistök, en ég
smakkaði líka perluhænsn (Guinea-fowl) og í eftirrétt
var hrikalega gott chocolate-múss í 2 lítra skál
svo allir átu yfir sig. Þjóninn var dáldið
þurr til að byrja með en linaðist upp í góðu
gríni eins og t.d. með því að láta sem
2 lítra múss-skálin væri fyrir Lufsuna eina.
Topp stöff og það má algjörlega mæla með
öllum þessu fjórum hér að ofan. Muna að
þykjast vera Doktör til að fá góða þjónustu.
(Heimasíða)
Hótel Búðir, Snæfellsnesi
XXXX
Nýju Búðir
finnst mér alveg halda sama sjarma og Búðir sem brann.
Kom í hádeginu og fékk mér franska lauksúpu,
skötusel og súkkulaðiköku. Magnað og magnað
pleis.
Kaffi Krókur, Sauðárkróki
XXX
Metnaðarfyllsta veitingarhúsið
á Króknum. Alveg fínt, en aðeins og dýrt
kannski.
Maður lifandi, Borgartúni
XXX
Grænmetis og lífrænt-bla
bla pleis í nýja viðskiptahverfinu, Voll strít
Íslands í Borgartúni. Ljómandi gott "hollt"
gúmmilaði og verðið þokkalega sanngjarnt.
Purple Onion XXX
Magnað Schwarma hjá
Alex í Hafnarstrætinu. Svaka gott og sanngjarnt verð.
Cafe Kidda Rót, Hveragerði
XX
Í fyrstu ferð
á Kidda Rót í hinni glæsilegu Sunnumörk
var étið eitt stk af hinum, að sögn, rómaða
rómantíska hamborgara. Lítið rómantískt
var við borgarann, þetta var svona týpískur landsbyggðarborgari
í anda American Style. Ágætur sem slíkur en
ekkert spes. Lufsan át Pízzu og þótti ok. Í
næstu ferð verður þó étin belgísk
vaffla sem ku lostæti.
Asian Express, Hafnarfirði XX
Hér er meiningin
að bjóða upp á asíska rétti úr
heitu borði og eru fánar ríkjanna notaðir til stuðnings.
Gæti verið flott en er bragðlítið og varla meira
en þokkalegt.
Gran Slow Boat, Playa del Ingles, Gran
Canary XX
Þokkalegt kínakrapp.
Bragðlítil appelsínuönd en ágæt crispy
duck. Hefði kannski átt að kaupa eitthvað annað
en þessa feitu önd.
Bali, Playa del Ingles, Gran Canary
XX
Dúndurhress
þjónn sem talaði hrafl í íslensku en bragðlítill
indónesískur matur. Fannst þetta eins og dótið
í borðinu á Nings. Vonbrigði. Þar að auki
er búllan í kjallara á dauðalegu hóteli
og maður bjóst við að mæta zombí á
vappinu.
Sakura III, Playa del Ingles, Gran Canary
XXXX
Loksins eitthvað almennilegt:
Stórfínn japanskur staður með glæsilegu úrvali
og lifandi humrum í búri. Langbesti veitingastaðurinn
á Gran Canary (sem ég fann a.m.k.) en það segir
sína sögu að það var nánast tómt
hér inni enda vill meirihlutinn sitt snítzel.
Mannabar, Playa del Ingles, Gran Canary
0
Þessi staður fer
nú alla leið í ruglinu. Sama dót og annars staðar
nema ennþá ólystugra og fullir íslendingar þegar
líða tekur á enda kann þjónninn (Manuel)
nokkur íslensk orð. Maður er furðulostinn að hafa
ekki verið ekið í skyndingu á spítala eftir
að hafa étið hérna.
El Duke, Playa del Ingles, Gran Canary
X
Matseðill flestra staða
á Kanarí er eins með sömu réttunum. Vínarsnítsel,
hálfur kjúklingur, smokkfiskur í orlí, brasaðar
franskar kartöflur, lummó og óspennandi hallæri.
Það væri þannig séð hægt að
hafa sama matseðilinn á þeim öllum, myndir af sömu
gulnuðu réttunum. Bjakk...
Moreno II, Playa del Ingles, Gran Canary
X
Matseðill flestra staða
á Kanarí er eins með sömu réttunum. Vínarsnítsel,
hálfur kjúklingur, smokkfiskur í orlí, brasaðar
franskar kartöflur, lummó og óspennandi hallæri.
Það væri þannig séð hægt að
hafa sama matseðilinn á þeim öllum, myndir af sömu
gulnuðu réttunum. Bjakk...
Pizza Hut Rvk X
Þessi staður er
orðinn sjabbí og draslaralegur. Þjónustufólkið
eins og zombís. Pítsurnar þokkalegar en alltof dýrar.
Eldsmiðjan er jafn dýr en 1000sinnum betri.
Nings Rvk XXX
Peking öndin er mjög
góð og á þokkalegu verði.
Nings Kóp X
Heita dótið í
borðinu er bragðlaust og lélegt.
Hótel Selfoss XXX
Smellur á 14000 kall.
Hótelherbergi og menu og morgunmatur innfalið á Selfossi,
exótískum stað á Suðurlandi. Maturinn var
fínn og hótelið ægilega flott.
Galileó XX
Ég vil byrja á
að taka það fram að mér finnst ítalskur
matur ekki góður, eiginlega reyni ég að forðast
hann á veitingarhúsum. Mákona mín mátti
ráða hvert við færum, enda búin í prófum,
og hún vildi hingað. Át helming af tveim pítsum,
einni með carpaggíó-hrákjöti og hin var með
humri. Í dýrari kantinum og ég fann eiginlega ekkert
bragð að þessu. Líklega er það eitthvað
líffræðilegt vandamál hjá mér, að
bragðlaukarnir á mér skilja ekki ítalskan mat.
Mákonan og systir hennar voru hins vegar alveg skínandi glaðar
með þessar pítsur og myndu gefa staðnum 3 eða
jafnvel 4 stjörnur. Ég ræð hins vegar og gef bara
2, en þetta er líklega geggjað pleis sé fólk
fyrir ítalskt.
Perlan XXX
Villiréttahlaðborð.
Voða fínt. En ekkert rosalega æðislega gott miðað
við hvað það kostaði. 4990 á virkum dögum,
5990 um helgar. Jæja, Ragnheiður Rist var allavega á næsta
borði að skemmta einhverjum útlendingum. Þjónarnir
óðir og uppvægir í að hjálpa manni.
En þessi snúningur... Ég veit það ekki. Er
ekki hægt að hægja á þessu? Lufsunni var byrjað
að svima. Maður varð að stara oní matinn til að
fá ekki æluna í hálsinn.
Mekong X
Mörgum finnst þetta
fínn staður en ég mér var umsvifalaust refsað
fyrir að halda fram hjá Krúa Thai, sem ég hef
sannfærst endanlega um að er langbesti thai staður landins.
Hér er allt miklu dýrarar og miklu verra. 3 örsmáar
vorrúllur á 810 kall, þokkalegur kókóskjúklingur
(samt bragðlaus og slappur) og svo viðbjóðsleg rækjufóstur
í brúnuvatni. (auglýst sem "kjúklingur í
sætri sósu"). Sleppi þessum stað framvegis.
Sowieso XXX
Í menningarsjoppunni
Iðu er þessi ágæti sushistaður. Ekkert spes
en alveg í góðu lagi enda sushi rokk og ról.
Thank God it's Friday XXXX
Eftir viðamikla úttekt
á hamborgastöðum í Rvk hef ég komist að
kjarna málsins: besta bandaríkja stöffið er á
TGIF. Hver réttur er vætlandi í bragðlaukalokkandi
eðalinnihaldi sem gerir dýrin sem dóu fyrir máltíðina
að Guðum. Ég er sökker fyrir þessum stað,
frábærum matnum, góðri þjónustunni
og ágætu verðinu, sérstaklega í hádegi
virkra daga. Ég og þessi staður fórum kannski öfugu
megin fram úr í byrjun (sjá dóm að neðan),
en hann hefur svo sannarlega unnið sig upp í áliti síðan.
Til staðfestingar kaus ég að eyða afmælinu mínu
hér og voru afmælisgestir algjörlega sammála að
hér væri einfaldlega mest jömmí stuðfæði
á landinu. Ég fæ vatn í munnin bara við
að nefna það: TGIF! TGIF! TGIF! Slef...
Krúa thai, Tryggvagötu 14
XXXX
Þetta er einfalt:
Krúa Thai er besti tælenski teikavei staður landsins.
Réttirnir smakkast eins og á rándýru veitingarhúsi
en verðið er eins og á lélegasta teik aveipleisi
(flest allt undir 1000 kall). Frábært!
Fylgifiskar XXXX
Þeir gera það
ómögulega: Allur fiskur er ógeðslega góður
hjá þeim. Hér tekurðu fiskinn með heim, en
getur líka étið á staðnum. Framúrskarandi
fiskistöff.
Tapas XXXX(04.09.04)
Spennandi 50 rétta
tapas-matseðill og allt frábært eða gott sem við
sömpluðum. Eini neikvæði punkturinn er að þessi
staður er vinsæll hjá saumaklúbbskerlingum og því
má bóka að maður lendir í hífuðum
dömum sem baula eins og yxna beljur á næsta borði.
Og svo er til önnur spænsk tónlist en moðerfokking
Gipsy Kings.
Na Na Thai XXX(07.08.04)
Í mjög fráhrindandi
umhverfi í Skeifunni svo ég tók með heim. Gott
en nokkuð dýrara en á stöðum eins og Krúa
Thai og Mekong. Ekki það mikið betra að maður tými
mismuninum. Hér eru víst sömu eigendur og Ban Thai á
ferðinni.
Hótel Holt XXX
(04.08.04)
Löngum fínasta
pleis landsins (ásamt Grillinu). Leðurklædd koníaksstofan
er góð í mikilvæga fundi og til að taka viðtöl.
Þetta var þó frumraun mín á veitingastaðnum.
Ég fór í hádeginu en þá er 3 réttað
á 2600 kall (og 2 réttað á 1900 kall). Hægt
var að velja um 4 for- og aðalrétti en eftirrétturinn
er alltaf sá sami. Fékk mér naut í forr. Ekkert
sérstakt en meðlætið gott. Grís í aðalr.
Fremur nískulega útlátið og ekkert spes. Eftirr
var krem brúlé sem var ókei en enn of aftur ekkert
spes. Kannski gerir maður e-h ofurnáttúrlegar kröfur
á svona stað, ég veit það ekki. Ágætt
svo sem allt saman en ég myndi aldrei tíma að éta
þarna á öðrum tíma en í hádeginu.
Þar fyrir utan er maturinn settur upp eins og mínímalísk
innsetningar, sem er leiðindi og eitthvað svo 90s. En þá
er maður allavega búinn að fara á Holtið.
Hafið bláa við ósa
Ölfusár XXXX (14.07.04)
Snilldarstaður með
glæsilegu útsýni. Frábær matur og hverrar
krónu virði. Fiskistaður á heimsmælikvarða.
Menam, Selfossi XX(13.07.04)
Nokkuð dýrara
en á sæmbærilegum thai-stöðum í bænum
og að auki boðið upp á hamborgara o.s.frv. Át
í hádeginu og thai-ið var full hveitikennt og bragðlaust
– ekki það að ég hafi leyft einhverju samt! Þarf
að tékka á penang og massman kjúklingi, sem ku
gott stöff...
Rauða húsið, Eyrabakka
XXX(11.07.04)
Notalegt og smakkaðist
vel. Í dýrara kantinum, en humar er víst gull.
Galbi, Rvk XXX
(06.07.04)
Kóreanískt
grill í leiðinlegu hverfi. Maður steikir matinn sjálfur
og smyr sósum á og treður í kálblað.
Bragðast ágætlega en leiðinlegt að standa í
steikingum sjálfur. Það er borið í mann þar
til maður er saddur, skammturinn kostar 2900 kr á mann. Veitingarhúsið
er gífurlega óspennandi innréttað og ekkert Kóreanískt
við það. Þjónusta góð.
La Medina du Marais, 77 Rue des Gravilliers,
Paris
7.8 af 10
Tjaldbúamatur, kússkúss
og pottréttir. Enginn diskur í húsinu er eins. Arabarnir
ynnu ef þeir færu í stríð við júðana
um sigur yfir bragðlaukunum.
Chez Julien, Rue Du Pont Louis-Philippe,
Paris 5.0 af 10
Frönsk matreiðsla
en bjánalega dýrt og snobbað og maturinn slappur. Forðist.
Matsuri Sushi, 36 Rue de Richelieu,
Paris 8.0 af 10
Sushi á færibandi.
Alveg fínt, en í dýrari kantinum og maður hefur
fengiða ferskara.
Le Petit Picard, 42 Rue Sainte-Croix-de-la-Bretonnerie,
Paris 9.2 af 10
Fann hvergi spóa,
lóu eða froskalappir en þessi franski staður var frábær
engu að síður. Ódýr og maturinn glimrandi
góður.
Le Pain Quotidien, 18 Rue des Archives,
Paris 8.8 af 10
Hluti af morgunverðarkeðju
sem má finna á nokkrum stöðum í París.
Þú færð körfu fulla af munnvatnshvetjandi brauðmeti
og smyrð oná ýmsum sultum, súkkulaðum og dóti
sem er á borðum í kring. Geðveikt stuð og verð
fínt.
Jo Goldenberg, 7 Rue des Rosiers 5.4
af 10
Kosher Gyðingarestaurant
sem varð fyrir hríðskotaárás 1982 þegar
6 voru drepnir af aröbum. Langaði að smakka þetta kosherdót
og niðurstaðan er sú að kosher er rusl. Maturinn bragðlaus
eða í mesta lagi súr og slepjulegur eins og matreiðslan
felist í því að allt sé fortuggið. Fengum
8-rétta for-smakk þar sem hver rétturinn var verri
en sá fyrri og sumt beinlínis viðbjóðslegt
og svo kom þokkaleg bortsch súpa (of sæt) og úngverskt
gúllas sem maður gæti hafa fengið hjá mömmu
sinni. Staðurinn fær þó ekki algjöra falleinkun
því vissulega var ákveðin exótík
í því að éta þarna.
Safran, 13 Rue de la Harpe, Paris 6.0
af 10
Fremur hefðbundinn indverskur
staður. Þokkalegt.
Hamborgara-búllan 9.0
af 10 (29.04.04)
Hamborgaralegendið Tommi
með hamborgarabúllu sem er ekkert að tvínóna
við þetta heldur skellir fram einni tegund af hamborgara og frönskum
sem rokka feitt í maga sérhvers manns. Ekkert kjaftæði.
Kaffi og sjeikar til sex skilst mér. Hefði verið í
lagi að geta fengið það á kvöldin líka.
Burger King, Smáralind
6.6 af 10 (27.03.04)
Blessaður vertu, Burger
King er alveg ágætis stöff. Boðið er upp á
borgara sem eru einhvers staðar mitt á milli viðbjóðsins
hjá McDonald og alvöru borgara hjá TGIF, RT, Grillhúsinu
og HRC og er verðið í fullu samræmi við gæðin,
þ.e. mér sýndist þetta kosta mitt á milli.
Oftast er maður nú í meiri fíling fyrir alvöru
borgara, en stundum vill maður bara subbulegan viðbjóð
eins og McD er með. Ég held manni langi einna síst í
eitthvað sem er þarna mitt á milli og því
eflaust langt í að maður eigi erindi á BK aftur.
Alltílagi snarl þó séu menn á hraðferð
í Smáralind.
Perlan, 4hæð, Rvk 2.2
af 10 (11.02.04)
BSÍ eða Eden
stemming með gömlu bakkelsi, kekkjóttri hveitisúpu
og ellidauðri rækjusnyttu sem lyktaði eins og atvinnutæki
gamallar portkonu. Ét ekki þarna aftur.
Humarhúsið, Rvk 9.2
af 10 (05.02.04)
Humar. Lítur út
eins og stækkað skordýr en smakkast eins og fullnæging.
Mmm. Humarhúsið reytir af sér humarinn og manni stendur
af gleði. Eftirrétturinn "3xSúkkulaði" hræðilega
góður. Kom út fullnægður af mat. Topppleis.
Lækjarbrekka, Rvk 7.2
af 10 (05.01.04)
Vinalegt dúkkuhús
með kósí fíling. Skrautkenndur matur sem "lúkkar"
vel. Humarsúpa æði, nautalund full sölt, mokka creme
brule ókei. Verð full hátt. Fínt pleis til að
monta sig við deitið – þeas ef maður splæsir.
Síam, Hafnarfirði 8.8
af 10 (10.09.03)
Tælandi tælenskt
á spottprís í úldnu verksmiðjuhverfi í
Hafnarfirði. Virkilega öndvegis og svaka fínt! Einar Bárðarson
keyrir að sögn sérstaklega úr Grafarvogi til að
fá sér "Himneskt nautakjöt", en allt hitt sem við
sömpluðum var dúndur fínt. Massa.
Café Bleu, Kringlan 7.5
af 10 (10.07.03)
Hlaðborð í
hádeginu: Þokkalegt alveg og ódýrt miðað
við það sem gengur og gerist. Brokkolísúpan
var best.
Hereford, Rvk 7.5
af 10 (04.07.03)
Steikhús á
Laugarvegi. Dálítið skemmtilegt sistem í pöntun,
maður skrifar bara á miða hvað maður vill éta.
Gerði þau mistök að fá T-bón steikina
medium rare sem var alltof rare svo maður var að jarma á
blóðugum kjöttægjum og gat ekki tuggið slatta
af steikinni eins og maður væri einhver tannlaus amma. Engu að
síður klassastaður en ég er kannski bara ekki svo
mikill kjöttægjukarl þegar allt er á botninn hvolft.
Culiacan, Rvk 7.0
af 10 (28.06.03)
Enn einn mexikanski skyndibitastaðurinn
í bænum. Þessi á það sameiginlegt með
Serrano og Mamas tacos að vera ódýr, góður
og maður fær magafylli og vel það. Þessi er nútímalegastur
í innréttingum, sem skiptir nú kannski engu máli.
Steikhús Selfoss 6.5
af 10 (22.06.03)
Gott viðmót (annað
erfitt, vorum einir þarna). Þokkaleg búlla í
bláum kofa í hliðargötu við aðalgötuna.
Útlit í late 80s anda og á matseðli bæði
borgarar og dýrari fæða. Verð í miðkantinum.
Borgarar með frönskum og sósu og salati um 1000 kallinn.
Keypti ostaborgara með "kántrí frönskum". Þokkalegt
alveg. Brauðið þó þurrt og ostar ekkert sérstaklega
að tala saman. Langt í frá eins gott og það
besta í Reykjavík city, en ágætt á landsbyggðarstandardi
- t.d. mun betra en jukkið í þjóðvegasjoppunum.
Fjöruborðið, Stokkseyri
8.5
af 10
Hér snýst
allt um humar. Humarsúpa, humar með dóti og svo kaka
og kaffi. Við Lufsan vorum sprengd í loft upp í svaka
veislu og nenntum varla að keyra heim. Gerðu nú vel við
elskuna og bjóddenni í humar. Humar er humar.
Serrano, Kringlunni
7.8 af 10
Þessi staður er
þar sem Poppæs var og bíður upp á mexíkanskan
(mér dettur ekki í hug að segja mexi"kóskan")
skyndibita, nokkuð góðan. Maður velur úr borði
hvað maður vill inn í börrítóið eða
það sem maður pantar og minnir þessi aðferð
mig á það þegar ég smakkaði mexikanskan
mat í fyrsta skipti. Þá fórum við liðsmenn
Bless á tex-mex búllu í San Fransisco og átum
börrító. Vissum ekki neitt hvað var í gangi
og stóðum á gati yfir því hvað var í
gangi, virkilega sveitó. Sem betur far var einhver með okkur
sem gat sagt okkur til. Sósan hjá Serrano mætti nú
vera sterkari og alls ekki fá ykkur mjúkar taco-skeljar;
sá skammtur er ekki upp í aðra nösina á ketti.
Börrítóið er fínt, bæði með
kjúkling og nautahakki, og líklega grænmeti líka.
Duus-hús, Kef 7.6
af 10
Fínt slísfúdd
á ókei verði. Fínt útsýni yfir dráttarbrautina
víðsfrægu. Myndalegar og almennilegar pæjur á
vakt. Dús-hús rúls!
Potturinn & Pannan, Rvk
8.2 af 10
Það
er rosafínt hlaðborð í hádeginu á þessum
ævaforna stað. Jömmígott salatborð, súpa
og svo hinir ýmsu heitir réttir. Fyllir magann af góðmeti.
Þeir þarna virðast þó í einhverjum
sætra kartaflna-gír og sætum kartöflum er bætt
í flesta rétti. Þar sem ég gleymdi sætri
kartöflu í potti og mauksauð hana um daginn hef ég
komið mér upp óþoli í garð s.k. og fúlsa
við slíkri fæðu í dag. En skítt með
það, sé hlaðborð í hádeginu málið
er Po&Pa tálið og brjálið.
Heitt og kalt, Rvk 8.1
af 10
Skil
reyndar ekki hvað allir þessir staðir eru að gera á
hinum forljóta Grensásvegi, en þessi er þar sem
Pízzahúsið var áður. Svona tapaz dæmi
í gangi og allt í hlaðborðsstemmingu. Mar fær
altso að éta á sig gat fyrir 1390, eða getur einskorðað
sig við súpa/salatborð etc ef mar er að spara. Slappt
samt að kaffi og eftirréttir fylgi ekki með 1390kallinum.
Nú nú: Súpa og salatborð var alveg gasalega gott,
framandi og spennandi og mar getur auðveldlega étið á
sig 3 göt í því. Heitur matur var ekkert spes,
en ókei. Ætla bara að fá mér súpu
og salatborð næst. Heitt og kalt er fínt pleis og ég
fer örugglega þangað aftur!
Banthai v.2 8.0
af 10
Var
dreginn aftur á Banthai þrátt fyrir hótanir
mínar hér að neðan. Fékk loksins mat og hann
var fínn. Veiiii.
Austur Indía félagið,
Rvk 10 af 10
Jamms
- toppnum náð. A-I-F er einfaldlega toppurinn á matarmenningu
landsins og hjálpast þar allt að: lipur og prófessjónal
servis, notalegt andrúmsloft, ágætt verð og síðast
en ekki síst stórkostlegur maturinn. Allt af matseðli
er dúndur en fyrir magnaðasta matinn mæli ég með
rétti #20 í aðalrétt, sem er kjúklingur
sem hefur verið nuddaður í mánuð af súmóglímumanni
svo meyr er hann. Gumsið með er til enn frekari fullnægju.
Einnig: #27: lamb sem hefur legið undir valtara svo meyrt er það
og rann niður eins og rjómaís. Í forrétt
var eitthvað í grænni sósu sem gerði allt til
að æsa mann upp. Það eina neikvæða sem ég
get týnt til er að á salerni voru engar pappírsþurrkur,
en þrátt fyrir svoleiðis pínöts má
alveg slengja 10 á pleisið. Þetta er einfaldlega besti
matsölustaður landsins og stendur sig alltaf 100%. Húrra!
Matstofan
(aka Dússabar), Borgarnesi 8.6 af 10
Hér
ræður Dússi ríkjum, gamall kall með hækju,
og hefur auga með öllu. Honum til aðstoðar er líklega
filippönsk kona hans ásamt fjölskyldu. Staðurinn er
inni í bænum, nálægt hótelinu og höfninni.
Gengið er inn í fremur hrörlegan skúr og blasir
þá konungshöll Dússa við, flott sveitalúkk
á öllu, og maður þarf ekki gífurlega mikið
hugmyndaflug til að byrja að ímynda sér að maður
sé kominn til útlanda. Á veggjum málverkasýning
naiv-listamanns og frískandi fituilmur í lofti. Á
matseðli bæði filippínskir réttir og vestænir
- stundum blandað saman (Jolly burger / Pinoy burger o.s.frv.). Smakkaðist
allt vel en vart varð þó við töluverða bragðleysu.
Þú ert ga ga ef þú ferð á Borgarnes
án þess að heimsækja þennan akfína
stað.
Vivaldi, Borgarnesi
7.0 af 10
Þegar
Hyrnan er full af æpandi unglingum ("prumpukarlinn prumpukarlinn"),
grenjandi smákrökkum og ófrýnilegum ferðalöngum
er mun betri kostur að tylla sér á Vivaldi sem er í
nýju lengjunni þarna beint á móti Hyrnuhelvítinu.
Þetta er nett börgerbúlla með lekker-yfirbragði,
eilítið karakterslaus og þjónustan var reidd fram
af áhugalausri unglingsstelpu sem ætti nú bara að
vera heima hjá sér. Matur kom á viðunandi tíma
(12 mín) og smakkaðist vel. Klínt var í sig BBQ-borgara
sem gaf slíkum borger í borginni lítið sem ekkert
eftir. Vivaldi fyrir vandláta en Hyrnan fyrir hyskið.
Þakka þér
Guð að það er föstudagur, Smáralind, Kóp
5.8
af 10
Loksins
þegar maður fékk sæti á þessum plebbastað
reyndist það svo sem sæmileg upplifun, en enn og aftur
verð ég í sömu andrá að benda á
yfirburði Grillhússins þegar djönkfúdd er
annars vegar. Át eitthvað sull sem ég er búinn
að gleyma hvað var (það var ekki eftirminnilegra en það),
en ég man að þjónustan var vangefin. Það
var td ekki búið að taka diskana undan forréttunum
þegar aðalrétturinn mætti og því var
maður þarna slafrandi í sig ruglinu með allt vaðandi
í skítugum diskum fyrir framan sig. Sérlega óprófessjónal.
Sé ekki ástæðu til að fara þarna aftur.
Kaffisetrið, Hlemmi 7.9
af 10
Vel útilátinn
og góður tælenskur matur á hagstæðu verði.
Gullmoli í skarni Hlemms.
Si Senor, Rvk 4.6
af 10
Það er nú
ekki mikið mál að búa til mexikóskan mat en
þessi búlla klikkaði á því. Forréttur
illa útilátinn og bragðslappur - salat ekkert spes og
"mild mangósósa" reyndist vera sætt chili. Ekki alveg
að gera sig þessi staður og þar að auki alltof
dýr miðað við gæði matarins. Læt hann
eiga sig í framtíðinni.
Goonk Gink - Dried Tom Yum Flavour 7.4
af 10
Þegar hart er í
ári er gott að vita af Sælkerabúðinni á
Suðurlandsbraut sem Hr. Nings rekur af myndarskap. Þar er besta
úrval landsins af núðlusúpum. Tælenska Goonk
Gink merkið bíður upp á ýmsar tegundir og
sérhæfir sig í þunnum núðlum, eða
"vermicelli" eins og við fagmennirnir köllum þær.
Ef maður passar sig á að setja ekki of mikið af chili
pipar út í er hægt að gera sér glaðan
dag og eta heila máltíð á aðeins 70 kr sem
svona núðlusúpa kostar. Tom Yum er með sítrónugras-bragði
og sérlega hressandi.
Eldsmiðjan, Rvk 9.5
af 10
Þrátt fyrir
að margir hafi reynt og beytt ýmsum brögðum þá
fást hér einfaldlega lang bestu pizzurnar í bænum.
Verð er þolanlegt miðað við gæði. Allt
er jömmí jömmí fínt en ég mæli
með þessum tegundum: C-pizza ostagerðarmannsins, Y-El pollo
loco (með kjúklingi og hnetum) og Æ-Pizza alle lumache
(með sniglum).
Pizza Hut, Rvk 6.9
af 10
Mikill og yndæll "hvítt
hyski" blær hvílir á þessari sjoppu. Spikfeitar
konur í hlýrabolum reykja yfir ljótum krökkum
á meðan öll fjölskyldan raðar í sig feitum
réttum. Salatbarinn slappur. Pizzur alveg þokkalegar, en toppurinn
er ísbarinn, en um þessar stundir bíðst hann frír
með og þá leggst hyskið því sem næst
með kjaftana undir ísdæluna og lætur gossa. Alveg
þokkalegur matur í alla kanta, en pizzur verða ekki sælgæti
(nema hjá Eldsmiðjunni).
American Style, Rvk 5.4
af 10
Með
auglýsingaherferðum sínum hefur þessi hamborgarabúlla
skapað sér ímynd sem eitt helsta hang-out FM-hnakka.
Fólk sem ég tek mark á varðandi mat hefur þó
mælt með staðnum og þar hef ég etið a.m.k.
3 sinnum. Aldrei hef ég fengið borgara sem komast í hálfkvist
við það sem Grillhús Guðmundar bíður
upp á og því skil ég ekki hvað ég
er alltaf að fara þarna! Síðast var hamborgarabrauðið
gamalt og kalt og ég og jökkið inn í vorum bara
ekki að tala saman. Þessi staður minnir mig helst á
hinn goðsagnakennda Staðarskála, sem hefur það
framyfir að vera út í sveit. FM-hnakkarnir mega því
eiga staðinn mín vegna og jappla á sínum fúnu
hamborgurum.
Greifinn, Akureyri 8.4
af 10
Allra handa restaurant með
áherslu á ítalskan mat, pítsur og slíkt.
Eftir lapþunna og bragðdaufa sveppasúpu kom einn besti
salatbar sem ég hef smakkað á Íslandi. Stór
plús. Svo kom hið ágætasta kjúklingasalat,
en konan fékk sér 5-osta pítsu sem var góð.
Staðurinn er frekar dýr (aðkeyrslugjald?) og er það
hans helsti ókostur.
Shalimar, Rvk 6.4
af 10
Á
að vera ódýr indverskur hversdagsmatur, en er í
raun frekar dýr. Smakkast alveg þokkalega vel, vel kryddað
og útilátið. Ágætur kostur sem kvöldverður,
en staðurinn mætti vera ódýrari.
Skrúður, Hótel Saga,
Rvk 4.0 af 10
Æi
æi, staður sem leggur upp úr lúkkinu á matnum.
Lýsisbragð af smokkfisknum í forréttnum og lítið
af honum. Þó enn minna af túnfisknum, fjórar
næfurþunnar sneiðar með laufblaði og einhverju
pjatti. Leiðinlegt. Aðalréttur nautasteik sem leit út
eins og lambakjöt og smakkaðist eins og svín. Borið
fram á grænmetis-"beði". Leiðinlegt og ekki gott.
Eins gott og tengdó blæddi, annars hefði einkuninn verið
enn lægri.
Ruby Thuesday, Rvk 8.2
af 10
Nú á að
taka sig á og því varð fyrir valinu eini rétturinn
sem er merktur með fitusnauðum miða. Það var þurrkuntulegur
kjúklingur en nokkuð góður engu að síður.
Ruby hallar sér að stæl Hard rokk - er með amerískt
beisboll drasl á veggjum og þar gaula rokkslagarar daginn
út og inn. En maturinn er nokkuð góður og nokkuð
jákvætt verðlag ríkir þar inni. Því
er óhætt að gæða sér á jömmí
bita þar.
Argentína Steikhás, Rvk9.9
af 10
Jólahlaðborðið
er gjörsamlega unaðslegt og svo safaríkt að allir vessar
líkamans hoppa af kæti. Ekki skemmdi fyrir stemminguna að
þegar ég var þarna var margt góðra gesta.
Fyrst bera að nefna Sálin hans Jóns míns sem var
þarna ásamt róturum og mökum á sínu
árlega jólahlaðborði. Þar sem Sálin
etur er þér óhætt. Einnig viðstaddir voru
Jón Ólafsson í Skífunni og Árni Vigfússon
af Skjá einum, en þeir sátu á sitt hvoru borðinu
og ég/við á borði á milli. Jón og Árni
voru að éta úti með erlendum fjárfestum og
lögfræðingunum sínum. Ég myndi segja að
hápunktur kvöldsins hafi verið þegar Jón og
Árni fóru að bera saman farsímana sína.
Þeir létu þá hringja og voru kumpánlegir
við hvorn annan... er sameining í vændum? En maturinn
var svo unaðslegur að ég missti mig og er enn saddur, nú
2 dögum eftir átið. Úff.
Sticks & Sushi, Kringlunni 8.2
af 10
Sushi er Guð. Jafnvel
þó maður þurfi að hanga á priki. Ég
er til í að éta hráan fisk og hrísgrjónakökur
í öll mál. En mikið er sushiið syndsamlega dýrt.
Afhverju í helvítinu?
Te og kaffi, Smáralind, Kóp.
5.0
af 10
Ágætis lokur
og kaffi og góð þjónusta en alltof fokking dýrt!
Sælkerahúsið Tex Mex,
Langholtsvegi, Rvk. 7.1 af 10
Ódýrt tex
mex á ísl. mælikvarða. Ágætt stöff
en einum of upphitaður fílingur þó. Klósettaðstaða
farin að sjúskast og Witney Houston var ekki mexikósk
síðast þegar ég vissi.
Kaffitár, Kringlunni, Rvk. 5.5
af 10
Þrátt
fyrir misjafnt viðmót stelpnanna verður að viðurkennast
að besta kaffi landsins fæst hjá Kaffitári. Beyglurnar
eru þó vafasamar -- maður þarf að setja þær
saman sjálfur. Daman gleymdi nú reyndar að setja frönsku
spægipulsuna með á diskinn og baðst ekki afsökunar
á því forkastanlega áhugaleysi þegar til
hennar var leitað eftir pulsu. Fátt er eins leiðinlegt og
áhugalausir krakkahálfvitar í framreiðslustörfum
og því fær Kaffitár ekki nema 5.5 fyrir að
hafa svona pakk í vinnu.
Hlölla-bátar, Rvk.
7 af 10
Hlölli
er góður vilji maður láta sósu leka á
hökuna. Jömm!
This, Rvk. 8
af 10
Þetta
ku vera Hlölli útfluttir til London og innfluttur aftur sem
hinn árennilegi bátastaður This, sem hefur á sér
erlendan blæ og stíl. Ég kom þarna rykugur um
hánótt og fékk mér bát. Tvímælalaust
hápuntur kvöldsins!
Popeyes, Smára, Kóp.
8.4 af 10
Þrátt
fyrir skítkastið hér að neðan fór ég
aftur á Popeyes og nú var allt annar standard á staðnum.
Fitan lak ekki lengur af gómsætum bitunum og ég var
sæll og saddur. Popeyes - þrímælalaust besta djönkfúdd
á klakanum!
Banthai, Hlemmi.
0 af 10
Lengi
hefur maður heyrt góðar sögur um þennan tælenska
stað á Hlemmi. Og einu sinni fékk ég ágætis
mat þarna. En ekki í gær. Nei, fjandinn hafiða,
ég fékk engan mat! Ætlaði að panta borð,
hringdi og hringdi, en númerið var alltaf "utan þjónustusvæðis".
Við mættum því bara. Allt fullt á neðri
hæðinni. Lítill sveittur og stressaður karl sagði
okkur bara að fara upp. Þar var nóg pláss, borð
og stólar, allt þó frekar hrörlegt og slísí.
Ókei, við hefðum getað sagt okkur það strax
og komið okkur út, en fyrst verið var að bjóða
manni sæti hélt maður að þetta yrði í
lagi. Stelpa sem hafði setið á næsta borði með
kærastunum sínum var allt í einu komin í þjónustuhlutverk.
Mætti með matseðilinn eftir 20 mínútur. Næst
kom hún með vatnið eftir aðrar 20 mínútur.
"Takk fyrir að bíða," sagði hún, en ekki "afsakið
biðina". "Það er dálítið mikið að
gera á neðri hæðinni", bætti hún við
eins og það væri einhver afsökun. Gengur neðri
hæðin fyrir og hvað er þá efri hæðin
eiginlega? Eitthvað bónusfarrými? Ekki sýndist
mér það á verðunum. Þegar við vorum
búin að bíða eftir forréttinum í 40
mínútur nenntum við þessu ekki lengur og fórum
glorhungruð og fúl. Af hverju var okkur ekki bara sagt að
það væri ekki pláss fyrst það var ekki
mannskapur til að sjá um lágmarks þjónustu?
Ég held að eigendur Banthai ættu að hugsa aðeins
minna um að græða peninga og reyna að bjóða
upp á sómasamlega þjónustu. Banthai er drullupleis.
Ég fer aldrei þangað aftur.
Nings, Rvk.
6 af 10
Frekar
svona upphitaður fílingur þarna. Ókei í
hófi. Næs afgreiðslufólk og mjög fljótur
servis.
Mekong, Rvk.
7 af 10
Ég
hef trú á að þessi staður sé ókei.
Þetta er tælenskur staður og ekkert nema karlar í
rassaskorubuxum sem eru þarna í góðu tælands-stuði
og svæla yfir mann eins og þeir fái borgað fyrir
það. Ódýrt og bara nokkuð bragðgott, svona
fínt í hádeginu-staður, en maður færi
ekki á deit þarna.
Quiznos, Rvk. 6.4
af 10
Þokkalegar
samlokur, ristaðar og því ekki eins slepjulegar og
á Subway. Djönkfúdd í meðallagi.
Hard Rock Café, Rvk. 6
af 10
Þetta
er nú bara svona og svona. Aðallega hálf naktar eldspýtur
að bera matinn á borð, en samt erum við svo heppin að
fá þybbnar gengilbeinur sem kunna þetta. Eldspýturnar
eru með gufu í stað heila. Ha, vilduði fá skeiðar
með súpunni, ó sorrí, ég kem aftur eftir
10 mínútur með skeiðar. Djönkfúddið
er ókei, samt verra og verr útilátið en á
Grillhúsinu (still #1). Svo rennur mér líka til rifja
að sjá öll þessi flottu hljóðfæri
hanga ónotuð upp á vegg og þetta beljandi rokkgaul
sem er spilað lon og don þarna inni er leiðinlegt til lengdar,
ég tala nú ekki um þegar eldspýturnar þurfa
að syngja ammælislagið fyrir einhvern óheppinn gest.
Eldhúsið, Rvk.
7.9
af 10
Við ætluðum
að fá okkur sushi af færibandinu á Eldhúsinu
í Kringlunni, héldum etv að það væri
eitthvað í áttina að svona stöðum í
London. En nei nei, það voru ekkert nema samlokur á þessu
færibandi og stöku slappir sushi bitar hixtuðu hjá
eins og berklasjúklingar. Svo, við átum bara mjög
góða hamborgara í staðinn. Þetta er svaka hverjir
voru hvar pleis - Fjölnir hennar Mel og Tinna hans Ólafs voru
þarna og ekki amalegt að slafra í sig hamborga með
útsýni beint upp úr Séð og heyrt.
Sticks & Sushi, Rvk.
9.1
af 10
Við erum algjör
sushi-frík og gætum étið sushi 5 sinnum í
viku. Fyndið að Ísland á að heita fiskveiðiþjóð
en samt er sushiíð hérna svona helvíti dýrt.
Þú ættir að sleppa þessum sticks sem þessi
staður er með og einbeyta þér að sushi-inu, það
er oftast gott. Skil samt ekki hvað þau eru að hafa flugfiskahrogn
á matseðlinum því ég hef komið þarna
4 sinnum og flugfiskahrognin hafa aldrei verið til. Í staðinn
bjóða þau manni upp á loðnuhrogn. En það
má þakka fyrir hreinskylnina því þau gætu
auðveldlega sagt manni að loðnuhrogn væru flugfiskahrogn,
því svona er maður vitlaus í hrognum (eða vitlaus
í hrognunum / eða vitlaus í hrogn). Besta sushi á
Íslandi!
Tveir fiskar, Rvk.
8.6
af 10
Ekki alveg eins gott og
á S&S. En samt gott! Næst besti sushi-staður á
Íslandi! Bara verst að þeir eru hættir með súshíið.
Austur-indía félagið,
Rvk.
9.9 af 10
Ef maður er á
annað borð að fara út að éta indverskt ætti
maður að fá sér það hér. Ég
tékkaði á þessum stað þar sem Kabarett
var og það var ömurlegt. Á Austur-indía á
maður í mestu vandræðum að ákveða hvað
maður á að borða því allt er svo gott.
Eina vonda við staðinn er nafnið - "Austur Indía félagið"
- hvaða rugl er það? Ég mæli með "Karrýhúsið".
DOMINOS, Vesturbæ, Rvk. 0
af 10
Ég veit auðvitað
að þetta er ekki veitingahús heldur teik avei, en ég
verð samt að tjá mig pítsurnar frá þeim,
svo viðbjóðslegar voru þær. Við vorum glorsoltin
og höfðum nánast étið hvað sem er. Við
pöntuðum tvær pítsur af matseðlinum og hentum
þeim báðum eftir 2 bita. Svoleiðis gerist eiginlega
aldrei! Þetta var viðbjóðslegt og ég vara við
þessum stað. Þú getur alveg eins brætt kertavax
oná ristabrauð og kallað það ostapítsu.
Gjörðu svo vel.
NÚÐLUHÚSIÐ, Rvk.
7
af 10
Gott miðað við
verð. Fínt pleis. Ódýrt og oftast bragðgott.
POPEYES, Smára, Kóp.
2.7
af 10
Ég vil taka það
skýrt fram að Popeyes eru venjulega í hámarki
skyndibitaiðnaðarins. Kjúklingabitar staðarins eru góðir
á bragðið og bera mér sér ferskan keim frá
Louisana. Í Smáranum hafa kokkarnir/krakkarnir ekki alveg
fylgt leiðbeiningum á frosnum afurðum heldur dissað
allt saman og gert þetta bara einhvern veginn. Útkoman voru
bragðlausir bitar löðrandi í fitu og meira að segja
ég gat ekki klárað einn lítinn skammt. Áður
en þú étur á Poppæs næst skaltu
gá hvort einhver fullorðinn sé að vinna, og þá
hvort hann lítur út fyrir að vera sæmilega heilbrigður.
Annars ertu í skít, nema þú fílir löðrandi
fitu þess meir. Þar fyrir utan eru kjúklingabitar búnir
til úr vansköpuðum dýrum og þú ert
verulega viðbjóðslegur að leggja þetta þér
til munns. Svona er þetta bara.
RIKKI CHAN, Smára, Kóp.
4.7
af 10
Konan var almennileg. Ég
bað um 50/50 djúpsteiktar rækjur (og reyndi að gleyma
myndinni sem ég sá einu sinni af rækjum að éta
ýsu lifandi í neti) og núðlur. Með voru hrísgrjón
og súrsæt sósa. Bragðlaust og "íslenskt".
Vantaði allan kínafíling í þetta. Ekki það
að ég hafi étið svona í Kína. Allavega
miðað við myndina Tampopo ætti að vera meira stuð
í kínamatnum í Kína (og líka í
Japan). Varð saddur og kláraði af disknum. Síðast
þegar ég kláraði ekki af disknum var á Sjanghæ,
Laugarvegi. Enda er það eiturpleis, en Rikki er ókei.
GRILLHÚSIÐ, Rvk. 9.8
af 10
Langbesta borgarabúllan
í bænum, allt er jömmí og slefandi gott og þetta
pleis valtar yfir draslið sem American Stæl er með. Uppáhaldið
mitt er Californía Klöbb samloka, en allt sem ég hef
smakkað þarna hefur verið fínt. Frönskurnar eru
góðar líka og sjeikarnir algerlega þrumuskuð.
Þau eru líka sniðug þessi vegabréf sem staðurinn
er með, fimmti hver hamborgari er frír. Grillhúsið
mætti samt bjóða upp á banana-og-jarðhnetusmjörs-sjeika,
eins og Ed's í London er með. Þá mundi Grillhúsið
fá algerlega fullt hús.
Ed's, Soho, London. 6.2
af 10
Það eina virkilega
góða við Ed's í London eru áðurnefndir
banana-og-jarðhnetasmjörs-sjeikar. Hamborgararnir sjálfir
eru ekkert til að hrópa húrra fyrir, enda kunna Tjallar
ekki að búa til hamborgara og það er ekki nema von
að það sé allt vaðandi í gini, klaufum
og kúariðu þarna hjá þeim. En eins og ég
segi: Sjeikinn er góður!