Myndir Hörpu
 
 
Ferð Atla, Hörpu og Vífils á Strandir 16. - 17. júní 2006

Feðgar utan við Galdrasafnið í Hólmavík

Lönguhaus og vindgapi til hægri;  Ef fer ekki að létta til hér á suðvesturhorninu gæti maður sossum prófað þennan galdur ;)
 

Þennan staf skal rista á lönguhöfuð með blóði úr hægri fætinum og skal bera það í með hrafnsfjöður. Síðan skal reisa höfuðið upp á stöng þar sem saman koma sjór og land í flæðarmáli og skal kjaftur löngunnar snúa í þá átt sem veðrinu er ætlað að koma úr. 

 

Tilberaspeni á læri konunnar ... og tilberar til hægri (reikna með að þetta 
sé vita-gagnslaus kúnst nútildags á tímum jurtates).

Uppvakningur á Galdrasýningunni á Hólmavík.

Fornar- og nútímagaldragræjur á Galdrasýningunni ...

Drengbörn og heimspekingur við herta þorskhausa í Drangsnesi

Hér sjáumst við kerlingarnar, sú stærri ætlaði víst að draga Vestfirði burt.   Ég læt mér nægja að draga að mér óhollustuna (var samt soldið að spá í að klóna yfir jurtapródúktið sem ég held á ...)

Þetta er ekki sérlega góð mynd en það voru teknar svo fáar myndir af mér í ferðinni að ég varð að setja inn einhverja :)

Fyrir neðan eru piltungarnir og kerlingin.

Maðurinn paufast um rekann ...

Maðurinn reynir kraftana í rekanum ...
 

Maðurinn sýnist hafa krafta í kögglum ... eða þannig ...
 

Drengbörnin (Vífill og Gunnlaugur) eru víst að kukla ... þarna fyrir utan Kotbýli kuklarans.  Sunnlenski piltungurinn gerir þetta eflaust alveg rétt enda vel verseraður í draugafræðum ýmiss konar.
 

Vífill, Atli, Elín og Gunnlaugur skoða skilti við Gvendarlaug hins góða.  (Einhverra hluta vegna er engin mynd af Bjarna á minnisspjaldinu í myndavélinni - er hugsanlegt að Bjarni hafi verið þarna sem uppvakningur?)
 

Og þarna er laugin Gvendar - talsvert íburðarmeiri en Vígðalaug á Laugarvatni en í svipuðum stíl samt. 

Gert 18. júní 2006