LÝÐVELDISLEIKHÚSIÐ

LEIKRITIN

SÝNINGAR

FRÉTTIR

HÓPURINN

ENGLISH




Út í kött!

Sýningar hafnar að nýju


Lýðveldisleikhúsið sýnir um þessar mundir á leikritið Út í kött! en það er nýr dans og söngleikur fyrir börn á öllum aldri. Verkið, sem var frumsýnt síðastliðið vor, er ævintýraleikur og fjallar um tvo krakka og ferðalag þeirra um tölvu og ævintýraheima.

Leikritið fjallar um strákinn Erp sem neyðist til að taka á móti dóttur vinafólks foreldra sinna inn í herbergið sitt. Helga Soffía er hress og hraðlýgin og kann frá mörgu undarlegu að segja. Erpur á erfitt með að sætta sig við þennan gest sinn, enda snýr hún heimi hans, þar sem hetjur teiknimynda og tölvuleikja eru karlmenn, á hvolf. Með fjörugu ímyndunarafli sínu nær hún að sýna honum að tilveran þarf ekki að vera niðurnjörvuð í fyrirfram ákveðin hólf og kassa. Sögur Helgu Soffíu eru þrjú Grimms-ævintýri byggð á útgáfum Roalds Dahl og fléttast þau inn í leikverkið með tónlist, dansi og söng. Þar birtast Rauðhetta, Öskubuska, prins, úlfar og grísir en Rauðhetta er enginn ráðvilltur sakleysingi sem lætur éta sig mótþróalaust og Öskubuska áttar sig á að hamingjan felst ekki í því einu að vera fótnett og fríð.

Tvö tólf ára börn fara með hlutverk Erps og Helgu Soffíu, þau Fannar Guðni Guðmundsson og Sóley Anna Benónýsdóttir, Ragnheiður Árnadóttir söngkona fer með hlutverk sögumanns, og leikararnir Finnbogi Þorkell Jónsson og Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir fara með hlutverk geimskrímsla og ýmsra ævintýrapersóna t. d. Rauðhettu og úlfsins og Öskubusku og prinsins. Benóný Ægisson er höfundur handrits, semur tónlistina og þýðir kvæði Roald Dahl, Kolbrún Anna Björnsdóttir er leikstjóri Sigríður Ásta Árnadóttir gerir búningana en Kristrún Eyjólfsdóttir leikmyndina .

Miðapantanir eru á lydveldisleikhusid@gmail.com og nánari upplýsingar um sýningar eru hér

Á myndinni eru talið frá vinstri. Ólöf Hugrún Valdimarsdóttir, Sóley Anna Benónýsdóttir, Heiða Árnadóttir, Fannar Guðni Guðmundsson) og Finnbogi Þorkell Jónsson

Meira um verkið

Sýningar



Lýðveldisleikhúsið - Skólavörðustíg 4C - 101 Reykjavík - S: 897 8694