Segjum sem svo að snögglega finnir þú þörf hjá þér fyrir að gerast trúaður. Læknirinn hefur kannski sagt þér þau hörmulegu tíðindi að þú eigir stutt eftir ólifað; þú telur þig kannski sjá í gegnum tilgangsleysi þess að vera trúlaus eða þú ert kannski kominn á botninn og vilt rífa þig upp. Þú hefur lítið pælt í trúmálum til þessa og aðallega trúað á "mátt þinn og megin" eða fótbolta. Í anda ríkjandi mórals í þjóðfélaginu spyrð þú nú sjálfan þig áleitinna spurninga eins og "hvar fæ ég sem neitandi mest út úr trúnni?" og "hverjir bjóða best í eftirlífinu?" Trúarbrögðin eru flókin fræði -- jafnvel flóknari en Star Trek -- en Fókus reyndi samt að setja sig inn í nokkur þeirra. Hér færðu svör við áleitnum neitendaspurningum.

Ferðaskrifstofur Guðs – Hver býður best?


Þjóðkirkjan

Hvað er það?
Samkvæmt stjórnarskánni er þetta kirkja þjóðarinnar. Hún er Evangelísk-Lútersk og undir regnhlíf Mótmælenda. Meðlimir eru 90% landsmanna en Lúterstrúar eru þó aðeins um 75 milljónir á heimsvísu. Kirkjan starfar á kristnum grundvelli, telur sig frjálslinda og er alltaf að endurmeta sig.

Inntökuskilyrði
Ef mamma þín er í Þjóðkirkjunni verður þú meðlimur um leið og þú ert kominn inn í tölvuna hjá Hagstofunni. Þetta er staðfest táknrænt með skýrninni en þannig séð þarftu ekki að staðfesta trúnna með fermingunni. Þú gerir það samt fyrir gjafirnar.

Hverjir eru hátíðisdagarnir?
Stærstu hátíðirnar eru Jólin, Páskarnir og Hvítasunnan (plús "annar-í" í boði löggjafans). Einnig Pálmasunnudagur, Uppstigningardagur og Föstudagurinn langi. Aðventan á svo að vera samfelld hátíð og undirbúningur fyrir Jólin.

Hvernig iðkar þú trúnna?
Þú lifir með Kristi í orðum og anda og reynist náunganum sem Kristur væri. Ekki er svo verra að biðja bænir annað slagið og sækja messur. A.m.k. að hlusta á útvarpsmessuna endrum og eins eða mæta á stórhátíðum.

Hvernig er stuðið í samkomum?
Uppbygging messu er í grófum dráttum sú sama um allt land. Stuðið fer eftir hæfileikum prestsins. Sé prestur léttur og sniðugur getur hann komist í tísku. Kórarnir eru einnig misgóðir og misfjölmennir. Stuðið er þó yfirleitt frekar litlaust og mæting eftir því.

Hvernig er "himnaríki"?
Samfélag við Guð, augliti til auglitis frammi fyrir Guði. Þar ræður vilji Guðs í einu og öllu. Þeir sem komast til himnaríkis mega eiga von á eilífðardvöl. Eilíf gleði og ljós og ilur og allir í hrikalegu góðum gír, enda lausir við jarðneska bresti.

Hvað þarf maður að gera til að komast til "himnaríkis"?
Ríkir eiga samkvæmt Biblíunni jafn mikinn séns að komast til himnaríkis og úlfaldi að komast í gegnum nálarauga. Það er því líklega best að vera skítblankur og hvorki kvótakóngur né að vera að vasast í verðbréfum. Ekki er svo verra að fara eftir boðorðunum tíu.

Hvernig er "helvíti" og hvers vegna fer maður þangað?
Það er eilífur aðskilnaður frá Guði; engin von, ekkert líf, bara eilíf kvöl og grátur og gnístran tanna. Samt má búast slatta af athyglisverðu fólki þarna innan um skítmennin. Spurning hvort hægt verði að spjalla saman fyrir kvalarstunum? Þjóðkirkjan talar sjaldan um helvíti, það er of neikvætt í góðærinu.

Kalt mat
Eilífðarsumarbúðir með íþróttaálfunum Guði og Jesús er kannski ekki svo eftirsóknarvert pleis, en varla geta 90% þjóðarinnar haft rangt fyrir sér? Þó Biblían tali um hverfandi möguleika ríkra á þessari vist er Þjóðkirkjan búin að endurmeta málið og bíður alla velkomna, sérstaklega auglýsendur.
 

Kaþólska kirkjan

Hvað er það?
Kaþólikkar eru um milljarður, en á Íslandi eru þeir næst fjölmennasti trúarhópurinn, um 4000. Í Biblíunni er sannleikurinn, hinn þríeini Guð er kærleikur og það er hann í sjálfum sér; faðirinn, sonurinn og hinn heilagi andi, og Páfinn í Róm er æðsti fulltrúi hans hér á jörðinni.

Inntökuskilyrði
Þú gengur til kaþólsks prests og færð fræðilegan undirbúning í heilt ár. Næst tekur við verklegur æfingatími í annað ár. Ef þú heldur þetta út fermistu til kaþólskar trúar og trúir því að sannleikurinn sé einn, alger og óbreytanlegur (nema þegar Páfinn ákveður annað).

Hverjir eru hátíðisdagarnir?
Svipaðir og hjá Þjóðkirkjunni plús Uppnumning Maríu (3. sunnudagur í ágúst), Dýridagur (sunnudagurinn eftir þrenningarhátíð) og nokkrir aðrir. Dýrlingarnir eru fjölmargir og serímóníurnar og kreddurnar gríðarlegar svo það má eflaust alltaf halda upp á eitthvað.

Hvernig iðkar þú trúnna?
Biður bænir, ferð í messu og skriftar einu sinni á ári. Þegar presturinn mælir aflausnarorðin er hann að fyrirgefa þér með því valdi sem Kristur gaf honum. Guð fyrirgefur þ.e.a.s. hinum iðrandi manni. "Iðrunargjald" guðs er mismikið og fer eftir stærð syndarinnar.

Hvernig er stuðið í samkomum?
Þunglamalegt. Pípuorgelið á fullu. Hinn þungi niður aldanna læsist um þig. Mikið blaðrað á latínu. Glaðlegur nunnur syngja af innlifun. Þér líður eins og þú sért í einhverri mafíumynd og bíður bara eftir að Robert De Niro gangi í hús og verði með eitthvað vesen.

Hvernig er "himnaríki"?
Að Hreinsunareldinum loknum gengurðu til hins himneska fagnaðar. Þar ertu í tómarúmi þar til Jesús kemur aftur og lífgar þá frelsuðu við á efsta degi. Í framhaldi af því verður stanslaus hamingja til eilífðarnóns.

Hvað þarf maður að gera til að komast til "himnaríkis"?
Vera góður Kaþólikki. Þegar þú deyrð kemur hið alsjáandi auga Guðs og sendir þig í hinn sársaukafulla Hreinsunareld þar sem "óhreinindi lífsins" eru verkuð af þér. Hvað þessi hreinsun tekur langan tíma er ómögulegt að segja því hvorki um tíð né tíma verður að ræða.

Hvernig er "helvíti" og hvers vegna fer maður þangað?
Ef þú ert syndugur og hefur ekki meðtekið Jesús í líf þitt ferðu beint til Helvítis og steikist í eilífum logum vítis og færð enga hvíld. Mesta pínan er þó að vera í eilífum aðskilnaði frá Guði, sem er mátturinn og dýrðin að eilífu, amen.

Kalt mat
Þótt sársaukafulli hreinsunareldurinn sé ekkert til að hlakka til er gott að vita af þeirri handhægu lausn að að segjast iðrast og hókus pókus!: Þér er allt fyrirgefið. Slæm trú fyrir homma og léttlynda því biblíuskýring Kaþólikka er klárlega á móti getnaðarvörnum og "kynvilltum".
 

Hvítasunnukirkjan

Hvað er það?
Frjálslind kirkja sem getur starfað með öllum kristnum félögum nema þeim sem segjast vera hið eina rétta (eins og t.d. Mormónar og Vottar). Sérstaðan felst í skýrnarvenjunum. Hvítasunnumenn (Pentecostal) eru 420 milljón í öllum heiminum. Á Íslandi eru þeir þriðju fjölmennastir, um 1500.

Inntökuskilyrði
Þú iðrast synda þinna og tekur Jesú Krist sem þinn persónulega frelsara. Svo ertu skýrður með niðurdýfingu í skýrnarlauginni. Biblían talar um að andinn komi yfir eins og dúfa, en það er aðeins líkingarmál. Menn sjá sjaldnast dúfu heldur drífa sig upp úr svo þeir drukkni ekki.

Hverjir eru hátíðisdagarnir?
Nákvæmlega þeir sömu og hjá Þjóðkirkjunni.

Hvernig iðkar þú trúnna?
Þú ræktar samband þitt við Guð með bænum og lestri Guðs orðs (Biblíunni). Þú þarft ekki að fara í einhverjar stellingar heldur getur talað við Guð hvar, hvernig og hvenær sem er, jafnvel á göngu eða í sundi.

Hvernig er stuðið í samkomum?
Á sunnudögum mæta um 400 manns á samkomu hjá Fíladelfíu. Þar er léttara yfirbragð en hjá Þjóðkirkjunni, mikið sungið og lyft upp höndum. Hljómsveit spilar létt gospellög á popphljóðfæri, en pípuorgelið er lítið notað. Á miðvikudögum hittast menn svo yfir súpu og brauði og spjalla.

Hvernig er "himnaríki"?
Himnaríki er óútskýranlegur sælustaður. Þar ríkir engin sorg, engir sjúkdómar, heldur eilíf gleði. Engin sól skýn, heldur er Jesús sú sól sem skýn á allt og alla. Þar dveljast menn til eilífðarnóns.

Hvað þarf maður að gera til að komast til "himnaríkis"?
Það kemst enginn inn í Guðsríki nema sá sem hefur endurfæðst, eignast lifandi trú á Guð. Þetta er svipaður farmiði og hjá Þjóðkrikjunni, nema hér er ætlast til að menn leggi aðeins meira á sig og rækti trúnna betur.

Hvernig er "helvíti" og hvers vegna fer maður þangað?
Eins og Biblían kennir fara þeir sem taka Jesú ekki sem sinn persónulega frelsara beint til Helvítis, ganga veginn til glötunnar. Í Helvíti er eilífur eldur og allir iðrast gífurlega. Á þessum kvalastað dvelja menn til eilífðarnóns.

Kalt mat
Það þýddi lítið fyrir Plús ferðir að bjóða upp á "óútskýranlegan sælustað", en þeir trúuðu hljóta að taka því sem gefnu að himnaríki sé málið, enda eins gott því dvölin þar er eilíf. Þetta er því fín trú ef þú fílar gospelpopp og ekki er verra að vita af súpu og brauði á miðvikudögum.
 

Vottar Jehóva

Hvað er það?
Trúboð stofnað í Bandaríkjunum um 1880 af C. T. Russell. Vottarnir telja Biblíuna æðsta úrskurðarvald um öll mál og óskeikula, eða sína túlkun á henni, og eiga því ekki samleið með öðrum kristnum félögum. Um 6 milljón Vottar eru í heiminum, flestir í Zambíu, en um 300 hér.

Inntökuskilyrði
Þú kynnir þér rétt innihald Biblíunnar á námskeiðum Vottanna og hlýtur að því loknu skýrn með niðurdýfingu. Notaðar eru venjulegar sundlaugar til verksins sem Vottarnir leigja, enda "er vatn vatn".

Hverjir eru hátíðisdagarnir?
Það er aðeins einn hátíðisdagur samkvæmt Biblíunni: Minningarhátíðin um dauða Krists. Hann reikna Vottarnir út frá fornu tímatali Gyðinga og lendir hann á fyrstu tunglfyllingu um jafndægur á vori. Þá er flutt ræða, etið ósýrt brauð og drukkið rauðvín án aukaefna.

Hvernig iðkar þú trúnna?
Með trúboði. Þú gengur hús úr húsi og vilt fræða og gefa Varðturninn og Vaknið!, tímarit Vottanna sem geyma 100% sannleika -- einskonar öppdeit af Biblíunni. Þú mætir líka á samkomur, tvisvar á viku í safnaðarheimilinu og einu sinni á einkaheimili.

Hvernig er stuðið í samkomum?
Það er enginn prestur, en hæfir umsjónarmenn sjá um að allt gangi vel. Stuðið byrjar og endar með söng og bæn, en svo eru flutt erindi, höfð sýnikennsla og opnar umræður. Þrisvar á ári hittast svo allir Vottar á landinu og dunda sér saman.

Hvernig er "himnaríki"?
Biblían boðar Guðsríki: Paradís á jörð, þar sem friður og eining ríkir, engin mannleg vandamál fyrirfinnast og flestir snudda í garðrækt, sé miðað við myndirnar í Varðturninum. Jehóva velur líka 144.000 súper-Votta sem verða konungar og prestar á Himnum; einskonar himnesk ríkisstjórn.

Hvað þarf maður að gera til að komast til "himnaríkis"?
Sálin er dauðleg. Þú deyrð og hefur enga meðvitund. Í kjölfar heimsenda (öll teikn sýna að hann verður bráðlega) verður almenn upprisa dauðra (bæði réttlátir og ranglátir rakna úr rotinu) og lifa í vellistungum í paradísinni sem ríkir að eilífu. Öll dýrin vakna líka aftur svo það verður fjöl"mennt".

Hvernig er "helvíti" og hvers vegna fer maður þangað?
Helvíti er ekki til og hefur aldrei verið til. Helvíti er heiðin hugmynd, segja Vottarnir.

Kalt mat
Þetta er sko aldeilis fín ferðaskrifstofa sem bíður upp á góð pakkatilboð! Bara verst hvað biðin eftir ferðinni tekur langan tíma. Vottaforingjar hafa spáð heimsenda 1914 og 1975, en ekkert hefur gerst enn. Þá er bara að bíða, berja á hurðir, sötra rauðvín og vona að maður þurfi ekki á blóðgjöf að halda.
 

Ásatrú

Hvað er það?
Ásatrú -- "Vor siður" -- er heiðin þjóðleg trú sem byggir á fornri menningu landsins. Aðalguðirnir eru Óðinn og Þór, en einnig koma við sögu aðrir æsar auk landvætta og dísa. Forfeðurnir eru einnig mikils metnir. Trúin er á jafnréttisgrundvelli, guðirnir eru ekki æðri en þú. Um 600 félagar á Íslandi.

Inntökuskilyrði
Þú skráir þig á Hagstofunni. Það eru engar kröfur gerðar aðrar en að fólki finnist það vera ásatrúar.

Hverjir eru hátíðisdagarnir?
Fimm aðalblót á ári. Svið og annað slátur étið á fyrsta vetrardegi. Gjafir og svínakjöt á jólum við sólhvörf. Þorrablót með tilheyrandi mat. Egg, hrogn, laukur, svína- og hrossakjöt á sumardaginn fyrsta. Þing haldið á Þingvöllum í kringum 20. júlí. Nesti tekið með.

Hvernig iðkar þú trúnna?
Það er einstaklingsbundið en ætlast er til að meðlimir mæti á a.m.k. þrjú blót á ári. Fólk kemur þar saman til að styrkja böndin innan félagsins og milli guða og manna. Bilið er sagt vera minna þar á milli en í Kristni og besta og nánasta sambandið þykir myndast á blótum.

Hvernig er stuðið í samkomum?
Þegar fámennara var í félaginu voru blótin þekktar fylliríissamkomur. Nú er stemningin orðin nokkuð dönnuð. Hver og einn tjáir sig á meðan étið er eftir hinum fornu siðum. Fólk tekur sjálft með sér áfengi, yfirleitt nokkra bjóra á mann.

Hvernig er "himnaríki"?
Þú uppskerð eins og þú sáir og verður í svipuðum málum og þú varst hér. Þetta er því lítið öðruvísi en að flytja til Ameríku. Vopndauðir menn eru fátíðir nú til dags en fyrr á öldum beið þeirra vist í Valhöll. Það var fínt pleis, stútfullt af búsi, 12 gellur á mann og bardagar frá morgni til kvölds.

Hvað þarf maður að gera til að komast til "himnaríkis"?
Ásatrúin viðurkennir ekki syndina og því ekki heldur fyrirgefninguna. Þín bíða því engir dómstólar. Samkvæmt Eddukvæðum skiptist maðurinn í þrjá hluta: Líkama, sem sameinast jörðinni eftir dauðann; anda, sem heldur sig nálægt gamla staðnum og í huga eftirlifandi; og sál sem flyst til.

Hvernig er "helvíti" og hvers vegna fer maður þangað?
Ef þú er fúlmenni í þessu lífi hefnist þér fyrir hegðun þína eftir dauðann. Illmenni fara m.a. til Nástrandar, sem er leiðindastaður, fullur af gargandi lögfræðingum og barnaníðingum.

Kalt mat
Fín trú ef þú ert sáttur við sjálfan sig og vilt t.d. halda áfram að vera strætóbílstjóri í næsta lífi. Einnig fínt ef þú fílar gamlan íslenskan mat, lopapeysur og fornbókmenntir. Slöpp trú ef þú býst við ferskri byrjun í næsta lífi og vilt að guð geri strangt gæðamat á þér.
 


Bahá'í trúin

Hvað er það?
Slagorðið hér er: "Trú sem byggir brú". Bahá'u'lláh er höfundur trúarinnar og sætti ofsóknum og útlegð vegna kenninga sinna um miðja 19. öld. Samkvæmt honum er mannkynið allt aðeins ein þjóð í einu ættlandi og öll trúarbrögð komin frá einum guði. Meðlimir eru um 6 milljón, 350 á Íslandi.

Inntökuskilyrði
Þú fyllir út eyðublað hjá Hagstofunni og skilar því inn á skrifstofu Bahá'íista. Um leið og skráning þín í félagið hefur verið samþykkt af þjóðarráði Bahá'íista ertu orðinn Bahá'íi. Ráðið samþykkir nánast alla svo þú ættir að fljúga inn.

Hverjir eru hátíðisdagarnir?
Þeir eru níu talsins. Nýársdagur samkvæmt Bahá'íum er 21. mars. Fyrsti dagur 19 daga Ridván-hátíðarinnar er 12 apríl, en einnig er 29. apríl og lokadagurinn 2. maí hátíðisdagar. 23. maí er Yfirlýsingadagurinn. 29. maí, 9. júlí, 20. október og 12. nóvember eru einnig hátíðisdagar.

Hvernig iðkar þú trúnna?
Þú ferð eftir lögum og kenningum Bahá'ía. Þeir fylgja boðorðunum 10 auk m.a. að banna fjárhættuspil, víndrykkju, misnotkun eiturlyfja, slúður og baktal. Þú mætir á samkomur og átt að fasta í 19 daga í lok Bahá'íársins.

Hvernig er stuðið á samkomum?
Bahá'u'lláh lagði áherslu á það hve mikilvægt væri að hittast á nítján daga fresti, "til að samtengja hjörtu yðar". Þegar trúarleg iðkun fer fram eru lesnir upphátt kaflar úr ritum meistarans. Á eftir eru almennar umræður þar sem allir geta tekið til máls. Hátíðin endar á félagslegri samverustund.

Hvernig er "himnaríki"?
Bahá'íar trúa á sálina og líf eftir dauðann. Þeir viðurkenna þó að vita ekki nákvæmlega hvernig eftirlífið sé. Bahá'u'lláh líkti dauðanum við fæðingu til nýs lífs: "Heimurinn að handan er jafn frábrugðinn þessum heimi eins og heimur okkar er frábrugðinn heimi barns í móðurkviði."

Hvað þarf maður að gera til að komast til "himnaríkis"?
Sálin deyr ekki; hún lifir eilíflega. Þegar líkami mannsins deyr frelsast sálin úr viðjum líkamans og hefur feril sinn gegnum andlegan heim. Bahá'íar trúa því að hinn andlegi heimur sé ekki einhver efnislegur staður í aðskildum fjarska heldur framhald af okkar veröld og óháður tíma og stað.

Hvernig er "helvíti" og hvers vegna fer maður þangað?
Helvíti er ástand. Ástand fjarlægðar frá Guði ("Himnaríki" er ástand nærveru við Guð). Hvort tveggja er eðlileg afleiðing viðleitni hvers einstaklings, eða skorts á henni, til þess að þroskast andlega.

Kalt mat
Það er slöpp ferðaskrifstofa sem hefur ekki hugmynd um hvert hún er að fara og lofar engu sérstöku. Þú ferð bara þangað sem þú hefur þroska til andlega, segir ferðaskrifstofan og lætur þig fasta dögum saman í ofanálagt. Bölvað vesen líka að vera að rugla svona í tímatalinu.
 


Búddismi

Hvað er það?
Um 350 milljónir eru Búddistar, um 300 hér. Búdda var auðugur prins um 500 f.kr. sem ofbauð þjáningar heimsins en fann innri frið með hugleislu. Búddisma má skipta í þrennt: Hinayana (gamli Búdda er aðal), Mahayana (nýjir Búddar líka) og Tíbet-búddisma (Dalai Lama er guðleg vera).

Inntökuskilyrði
Ef þú vilt gætirðu kallað þig Búddista hér og nú og þyrftir ekki skírteini upp á það. Ekki væri samt verra að heimsækja Búddistafélagið á Laugarvegi og fá tilsögn. Búddisminn er öðrum þræði heimspeki svo þú myndir lesa þér vel til og iðka hugleiðslu og jóga.

Hverjir eru hátíðisdagarnir?
Það er hellingur af hátíðisdögum, en það fer eftir því hvar þú ert í heiminum hverjir þeir eru. Þeir tengjast árstíðum og frjósemi jarðar, ásamt gömlum goðmögnum. Hinayana er stundaður í Víetnam og þar um kring, Mahayana í Japan og Kína og Tíbet-búddismi í Tíbet heima hjá Beastie Boys.

Hvernig iðkar þú trúnna?
Búddha talaði um sannindin fjögur: Tilveran er þjáning. Orsök þjáningarinnar er lífsgirndin eða
sjálfshugðin. Lækning þjáningarinnar er fólgin í því að uppræta lífsgirndina. Leiðin til lækningar er meðalvegurinn, hinn göfugi áttfaldi vegur. Þú gengur hann.

Hvernig er stuðið í samkomum?
Á Vesturlöndum hittast menn til að fræðast og hugleiða í hóp. Annars staðar eru hof og klaustur þar sem munkar og nunnur biðja fyrir almúganum, og í Tíbet kunna munkarnir jafnvel galdrabrögð. Svo ertu með húsaltari heima með reykelsi, Búddastyttu og mynd af forföður. Þar biðstu fyrir í einrúmi.

Hvernig er "himnaríki"?
Búddistar trúa á að þú sért búinn til úr fimm sköndum. Fjórir eyðast við dauðann, en sá fimmti, Karmað, lifir og fær nýja skanda í næsta lífi. Karmað eru allar þínar gjörðir í fyrri lífum. Þú leitar að hinum fullkomna innri frið, hugarástandinu Nirvana; endalokum grimmdar, haturs og heimsku.

Hvað þarf maður að gera til að komast til "himnaríkis"?
Nirvana ná menn með því að fylgja hinum áttfalda vegi í hvívetna. Hinn áttfaldi vegur byggist á því að viðhafa rétta hugsun, rétta skoðun, taka réttar ákvarðanir, viðhafa rétt tal, réttar athafnir og rétta breytni, rétta hugsun, og rétta íhugun.

Hvernig er "helvíti" og hvers vegna fer maður þangað?
Helvíti hlýtur að vera það að endurfæðast aftur og aftur án þess nokkurn tímann að ramba á að ná Nirvana, að fara alltaf út af áttfalda veginum. Með öðrum orðum að vera alltaf sami bévítans asninn og ómennið; að ná aldrei valdi á lífsgirndinni.

Kalt mat
Búddismi er ekki vænleg trú fyrir þann sem vill skyndilausnir. Þín bíður í mesta lagi að ná Nirvana -- "það að vera ekki til en vera samt til" -- og það bara ef þú ert svakalega dyggðugur. Þú verður að gera þetta allt sjálfur og ef þú misstígur þig á áttfalda veginum verðurðu að byrja allt upp á nýtt. Fúlt.
 


Hindúasiður

Hvað er það?
Þriðja stærsta og elsta trúarregla í heimi. Hindúar eru um 900 milljónir, örfáir hér. Reglurnar birtast í ótal ritum, fyrst í Veda bókunum frá því um 1500 f.k. Guð er Aum, en birtist á a.m.k. 200.000 vegu, t.d. í mannslíki (Brahma eða Krishna), sem pláneta eða dýr. Kamdhenu er t.d. móðir allra belja.

Inntökuskilyrði
Hindúar bera ekki út trú sína eins og t.d. kristnir menn, svo þú yrðir að fara til Indlands og vígjast vildir þú gerast Hindúi. Hindúar fæðast inn í eina af fimm stéttum og geta ekki hækkað í tign. Þú velur þér þinn uppáhaldsguð sem þú tilbiður. Flest hof eru tileinkuð Brahma eða Vishnu.

Hverjir eru hátíðisdagarnir?
Þeir eru fjölmargir og fara eftir því hvar þú býrð og hvaða guð er þinn. Hindúar spá mikið í stjörnufræðum og stöðu himintunglana. Þeir halda því m.a. upp á nýtt tungl (Amavasya) og fullt tungl (Purnima). Með 200.000 guði í liði má eflaust gleðjast oft og það gera Hindúar.

Hvernig iðkar þú trúnna?
Hindúar líta á pílagrímsferðir sem mikilvægan þátt trúar sinnar. Þeir líta á þessar ferðir sem þjónustu við guðina og þátt í að eiga góð samskipti við þá. Hindúismi er einnig lífsstíl sem byggir á mikilli jógaiðkun. Það er leið til þess að ná valdi yfir líkama og sál svo að andinn verði frjáls.

Hvernig er stuðið í samkomum?
Hinn eini sanni sannleikur sýnir sig á svo óteljandi vegu að mannshugurinn mun aldrei skilja hann til fullnustu. Samt hittast Hindúar og gúrú hofsins leiðir menn áfram í hugleiðslu, jóga og pælingum í fræðunum. Svo er sungið, kyrjað og beðið.

Hvernig er "himnaríki"?
Líkt og Búddatrúarmenn trúa Hindúar á Lífshjólið, einnig nefnt Hjól kenningarinnar. Það er hin samfellda hringrás fæðinga og endurfæðinga (Samsara) sem fólk fjötrast í nái það ekki Moksha, en það er toppurinn; lausn undan því oki að vera mannlegur einstaklingur.

Hvað þarf maður að gera til að komast til "himnaríkis"?
Ég og þú erum blekking og skinvilla því við og allt sem til er í heiminum er aðeins brot guðlegrar einingar. Þegar við höfum fundið okkur sjálf og guð í okkur sjálfum, hverfur sjálfið aftur inn í Brahman, sem er hin algera verund, óbreytanleg, óvirk og handan góðs og ills.

Hvernig er helvíti og hvers vegna fer maður þangað?
Ef þú skilur ekki bofs í Hindúismanum ertu haldin vanvisku og sjálfsblekkingu. Þangað til þú nærð þessu endurfæðistu aftur og aftur. Ef þú hefur verið vondur endurfæðistu jafnvel sem eitthvað dýr, kannski sem ógeðslegt skordýr ef þú varst alveg hræðilegur.

Kalt mat
Þetta eru rosalega flókin trúarbrögð. Strangar reglur gilda um hvernig fólk af mismunandi stéttum á að umgangast hvert annað og hverjir mega giftast. Ef þú fílar ekki jóga ertu í klípu. En guðirnir eru flottir, margir með margar hendur og fílshöfuð, og ekki ósvipaðir súperhetjum teiknimyndablaðanna.
 


Islamstrú

Hvað er það?
Önnur stærstu trúarbrögð heims á eftir Kristni. Um 1.2 milljarður Múslíma er í heiminum, um 500 hér. Islam þýðir undirgefni við eina guðinn, Allah. Hann fór að tala til Múhammeðs spámanns í Mekka um 610 e.kr. Múhammeð skráði speki Allah í Kóraninn og eftir þeirri helgu bók er farið.

Inntökuskilyrði
Þú samþykkir allt í Kóraninum og ákveður að gerast Múslími. Í Islam eru engir milliliðir. Þú ræktar bara samband þitt við Allah á eigin spítur. Svo skráðirðu þig sem Múslími í Hagstofunni. Múslímar á Íslandi eiga enga mosku eins og er, en hittast í heimahúsum.

Hverjir eru hátíðisdagarnir?
Ramadan stendur yfir í mánuð og færist aftur um 10 daga ár hvert. Þá er bannað að borða, drekka eða reykja í dagsbirtu. Í ár byrjar Ramadan í desember, en þetta verður erfitt þegar Ramadan hittir á sumarmánuðina hér. Beint á eftir kemur hátíð föstuslita. Þá heimsækja menn ættingja og gefa gjafir.

Hvernig iðkar þú trúnna?
Biður til Allah fimm sinnum á dag og snýrð í áttina að Mekka. Hjálpar fátækum og viðheldur bænastöðum. Drekkur ekki áfengi og borðar ekki svínakjöt. Fastar á meðan á Ramadan stendur. Ferð a.m.k. einu sinni á ævinni í pílagrímsferð til Mekka. Þú verður að vera skuldlaus í þeirri ferð.

Hvernig er stuðið í samkomum?
Föstudagar eru frídagar. Þá skulu menn mæta í mosku. Þar fer fram stutt athöfn, um 40 mínútur, sem samanstendur af u.þ.b. 10 mínútna bæn og svo eru fluttar ræður um andleg og félagsleg mál Múslíma. Ekkert er sungið eða trallað í moskunni svo einhverjum gæti þótt stuðið þurrt.

Hvernig er "himnaríki"?
Þegar Allah ákveður kemur Dómsdagur, heimurinn ferst og hinir dauðu rísa. Sá dagur er byrjunin á lífi sem mun aldrei enda. Allah mun dæma menn eftir gjörðum þeirra í jarðlífinu. Eilíf sæla er tryggð hinum sanntrúuðu. Allah mun sérstaklega baða þá sinni náð sem þjáðust fyrir hann.

Hvað þarf maður að gera til að komast til "himnaríkis"?
Vera góður múslími og bíða svo rólegur í draumkenndu ástandi í gröfinni þangað til Allah ákveður að skella á Dómsdegi. Í gröfinni dreymir hinum góðu um garð Paradísar (Jannat), hinir vondu verða sem í holu úr holu helvítis og fá eintómar martraðir.

Hvernig er "helvíti" og hvers vegna fer maður þangað?
Þú ert í skítamálum ef þú varst þræll eigin girnda og ástríðna og trúðir ekki á Allah. Sérstakar píningar bíða þeirra sem gera grín af þeim trúuðu. Á dómsdegi finnur Allah upp þunga refsingu fyrir svona skríl, sendir til Heljar og steikir, brennir og kvelur á margvíslegan hátt.

Kalt mat
Það er ekki beisin ferðaskrifstofa sem lofar töf á flugi og lætur viðskiptavinina bíða dreymandi í gröfinni. En ferðin verður eflaust ánægjuleg ef þú borgaðir nógu mikið inn á. Ekki trú fyrir þá blautu eða skinkuunnendur og varla góð trú fyrir konur ef þær fæddust inn í stangtrúað samfélag.
 

Sérðu ekkert sem þú vilt kaupa?
Ekki örvænta, þetta er bara lítið brot af trúarbragðaflórunni. Hér eru ekki taldar með ýmis trúarfélög/hópar sem byggja á Biblíunni, en túlka hana á mismunandi vegu; viðurkenna Krist sem frelsara eða ekki, eða draga eitthvað út úr Biblíunni og gera að aðalatriði. Í þessum litskrúðuga hópi eru t.d. Mennónítar, Fríkirkjan, Kirkja Krists hinna síðari daga heilögu (Mormónar), Óháði söfnuðurinn, Krossinn, Betel, Amish, Ungt fólk með hlutverk, Boðunarkirkjan, Aðventistar, Sjónarhæðarsöfnuður, Kletturinn, Íslenska kristskirkjan, Baptistar, Fjölskylda ástarinnar, Moon söfnuðurinn, Kvekarar, Meþódistar, Gyðingar, Rétttrúnaðarkirkjurnar rússnesku og grísku, Satanistar, Vísindakirkjan og Hjálpræðisherinn.
Ef þú kaupir ekki guð Biblíunnar eru fjölmörg önnur trúarbrögð á boðstólum. Þau boða ýmiskonar lífsstíl og lofa mismiklu um framhaldslífið. Hér má nefna Nýalisma, Voodoo-isma, Ananda Marga, Hare Krishna, Bön, Sikhisma, Gnostikisma, Shintó, Konfúsíontrúarbrögð Kínverja, Ifa, Farmtrú og Vedisma.
Ef þú "trúir" ekki á trú eða trúarbrögð, en vilt samt kaupa eitthvað, geturðu skráð þig í Samfélag trúlausra eða Siðmennt.