Hr. Rokk og Rokkarnir / Abbababb

12.07.08    Húnavaka á Blönduósi
Súld í tjaldi. Fínt samt. Merzedes Club og Pólyester á eftir okkur. Spilum: Rauða hauskúpan (allir syngja) / Óli hundaóli (gunni + allir) / Systa sjóræningi (heiða + allir) / Ísinn (Heiða + allir) / Ástin er rokk og ról (allir) / Ég og heilinn minn (heiða) / Hr. Rokk og fýlustrákurinn (felix og gunni + allir) / Prumpufólkið (gunni & allir) / Hvar ertu nú? (gunni, heiða + allir) + Lög unga fólsins (heiða)

04.07.08    Humarhátíð á Höfn
Abbababb hópurinn með Felixi Bergs rokkar úr sér humrinum. Gaman og spilagaldrar með Bjarna töframanni í uppblásnu tjaldi fram á nótt.

22.03.08    Aldrei fór ég suður, Ísafirði
Sem "Abbababb" (sama lið og daginn áður). Kl. 16. Ó. Proppé kemur á svið fyrir Hvar ertu nú? Abbababb lög + Luf. Fínt.

21.03.08    Skíðavikan, Ísafirði
Sem "Abbababbarar" (ég, Heiða, Elvar, Kristján Freyr). Tökum lög af Abbababb, ég og heilinn minn og Luf og Hvar ertu nú? Loppinn á höndum en það lagast. Ágætt stuð í brekku.

09.03.08    Hátíðarsal HÍ
Þórbergssmiðja. Tökum Seltjarnarnesið, Ég er aumingi, Munaljóð XI, Góða nótt.

01.12.07    Landsbankanum, Akureyri
Rokkum pleisið fyrir jólatrésljósasákveikjun, Rokkararnir, Heiða og Jói. Oddný systir og Óli mæta, málóður strákur í fremstu röð og bæjarlistamaðurinn Varamaðurinn eða Vorboðinn mætir á svæðið.

18.11.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 14
Lokasýning, nr. 31. Hættum fyrir fullu húsi og fáum svo kínverskan mat.

18.11.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 14
Sýning nr. 30. Rosa stuð og pakkað.

11.11.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 14
Sýning nr. 29 var fín. Felix er Hr. Rokk og Atli er Steindór aftur. Jón Gnarr er á svæðinu.

03.11.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 14
Sýning nr. 28 var frábær. Gífurlegt stuð á áhorfendum og leikhópurinn á miklu blússi enda er þetta náttúrlega orðið vel smurt núna. Það var uppselt og þurfti víst að vísa frá. María Reyndal kíkti á okkur og Hrafn Gunnlaugsson líka. Algjör snilld. Sigtryggur er Hr. Rokk og þetta er síðasta sýning Jóa sem Steindór.

28.10.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 17
Sýning nr. 27. Eftir Tomma erða annað sjó, færra í kofanum og ekki eins mikið stuð. Pála gleymir ormum. Það munu vera starfsmenn TM sem sjá þessa sýningu.

28.10.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 14
Sýning nr. 26. Stuðsýning, fólk með á nótunum og allir í stuði. Spákúla brotnar. Gífurlega gott stuð og 6000. gesturinn leystur út með gjöfum.

21.10.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 17
Sýning nr. 25. Eftir Tomma erða annað sjó, færra í kofanum og ekki eins mikið stuð. Alveg fínt samt.

21.10.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 14
Sýning nr. 24, aftur á sunnudegi. Sé Þorstein Joð, Jón Hall og söngvara Jonee Jonee. Gífurlega gott stuð á þessari sýningu og kofinn ætlar hreinlega að springa.

13.10.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 14
Sýning nr. 23, Laugardagssýning að þessu sinni því Jói þarf að leika í Reykjavík Rotterdam á morgun. Atli er Hr. Rokk. Slarkfær mæting, þ.á.m. Bogi í Hliði og Andri Snær.

07.10.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 14
Sýning nr. 22. Atli tekur Hr. Rokk. Ágæt mæting. Ég á afmæli.

05.10.07    Lee Hazlewood tribjút á Organ
Ég, Heiða og Elvar spilum How does that grab you darlin', Last of the secret agents og Lightning's girl á HCísku Hazlewood giggi. Auk þess Páll Óskar, Megas, Magga Stína, Geir Ólafsson, Singapore Sling o.m.fl.

30.09.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 14
Sýning nr. 21. Sigtryggur er Hr. Rokk. Mjög gott. Fullt hús og allir í stuði.

21.09.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 14
Sýning nr. 20. Sigtryggur Baldursson leikur Hr. Rokk. Stendur sig vel!

16.09.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 14
Sýning nr. 19. Dáldið seig sýning en fín. Fullt hús. Elma og Dagbjartur. Sigtryggur tekur nótur.

09.09.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 14
Fyrsta sýning eftir sumarfrí, nr. 18. Felix er Hr. Rokk, Tinna Gunnlaugs er Halla í stað óléttrar Álfrúnar og Jóhann Haukur er Steindór í stað hnéaums Atla Þórs. Gengur vel. Menntamálaráðherra í salnum.

01.09.07    Ljósanótt í Keflavík
Ljósanótt var nú meira giggið. Svoleiðis rok og rigning að maður bjóst við að tjaldið með öllum græjum fyki út á haf. Það var klukkutíma frestun vegna veðurofsans og vegna þess að Jón Skuggi hljóðmaður fékk sviðsmyndina í hausinn og þurfti að láta sauma sig upp á slysó. Í gámi á bakvið biðu Skoppa og Skrýpla og Kalli á þakinu og grísinir þrír sem reyktu eins og strompar. Disneyland á sýru. En svo var voða gaman þegar þetta byrjaði loksins og Kalli á þakinu stökk upp á svið og fretaði með. Maður stóð í pollum og átti von á steikingu á hverri stundu en það slapp.

18.08.07    Menningarnótt í Landsbankanum
Troðum upp í Landsbankanum. Heiða er með. Voða stuð!

20.05.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 14
17. sýning. Felix er Hr. Rokk

13.05.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 14
16. sýning. Svaka þynnka í mannskapnum (leikurum, áhorfendum) vegna Euro/kosninga kvöldið áður. Felix er Hr. Rokk.

06.05.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 14
15. sýning. Felix er enn Hr. Rokk. Fljótandi sýning. Arnar Eggert í salum.

29.04.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 14
14. sýning. Sigurjón fjarverandi. Felix er Hr. Rokk. Biggi fjarverandi. Gaddi trommar. Sindri á ljósunum. Gengur allt vel samt sem áður.

22.04.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 14
13. sýning. Ný léleg dínamítsprengja notuð.

15.04.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 17
12. sýning. Stormsker, Halli, Óskar Jónasson og Eva María í salnum. Fáir samt. Líklega fámennasta sýningin.

15.04.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 14
11. sýning. Troðið og mikið stuð.

01.04.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 17
10. sýning.

01.04.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 14
9. sýning.

25.03.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 17
8. sýning. Þorgrímur Þráinsson í salnum.

18.03.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 17
7. sýning. Snælandsskóli og HK í salnum. Dáldið rólegt fyrir hlé.

16.03.07     Rás 2
Abbababb! liðið með gigg í Popplandi Rásar 2. Mikið stuð!

11.03.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 17
6. sýning. Siggi Pönk í salnum.

04.03.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 17
5. sýning. Bjarni Ármannsson í salnum.

25.02.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 17
4. sýning.

17.02.07     Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 17
3. sýning. Aðeins rólegra krád en vanalega, samt fínt.

17.02.07     Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 14
2. sýning. Gífurlegt stuð.

11.02.07     Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 17
Frumsýning. Svaka mikið stuð. Dói klikkar á þræðinum. Ok samt.

10.02.07    Hafnarfjarðarleikhúsið kl. 16
Í Rokkunum eru auk mín (bassi, rödd), þeir Birgir Baldursson (trommur, hljóðeffektar) og Elvar Geir Sævarsson (gítar, rödd). Sigurjón Kjartansson, eþs Hr. Rokk, er svo leiðtogi sveitarinnar og leikur á svuntuþeysi (hættir e. 13 sýningar), en Sveinn Dói lék á svuntuþeysi í laginu Abbababb! þar á eftir. Fyrsta gigg er svokölluð generalprufa. Gríðarlegt stuð. Alltaf sama prógrammið: Abbababb! /Rauða hauskúpan / Óli hundaóli / Baba bú / Rússneskt Abbababb! / Eitt þúsund eldspýtustokkur! / Rússneskt Abbababb! / Systa sjóræningi / Stóru strákarnir / Doddi draugur / Pála spákerling / Pála sér framtíðina / Meira diskó / Baba bú / Hr. Rokk og Fýlustrákarnir / Rauða hauskúpan / Prumpufólkið / Þema Stóru strákanna / Látum Aron sprengja skólann / Ástarlag Steindórs / Þema SS / Baba bú /
Ástin er rokk og ról / Frelsum Aron Neista / Baba bú / Pála magnar kyngimagnaðan seið / Frelsum Aron Neista / Þema Stóru strákanna / Eltingaleiks Abbababb! /
Ástarlag Steindórs / Forspil að LAME + Litli Aron með eldspýturnar / Þema SS / Rauða hauskúpan / Ástin er rokk og ról.