Avatar, bíó XXXX
Indjána og kabboj
mynd í geimnum og svaka ævintýri og upplifun í
3D.
Inglorious basterds, bíó
XX
Nasistaþunnildi frá
einusinnigóðum, en ekki lengur.
Extract, bíó XXX
Eftir Mike Judge, sem gerði
snilldarverkið Office Space og King of the hill. Ágætis
fíl gúdd ræma um karlavanda og gráan fiðring.
Ekkert Office Space samt.
Whatever works, bíó XXXX
Snilldar tómhyggjugrín
a la Woody Allen með jákvæðum boðskap - whatever
works maður.
Papa jazz ævisaga Guðmundar
Steingrímssonar trommara e. Árna Matt, bók XX
Upptalningasamur flumbrugangur
og næsta óunnið demó. Nokkuð fræðandi
þó um örlí tímabil poppsins, en er eiginlega
frekar skýrsla en djúsí ævisaga.
A Christmas carol í 3d, bíó
XXXX
Ofsaflott ævintýr.
Db segir fullt hús.
Söknuður ævisaga Villa
Vill e. Jón Ólafsson, bók XXX
Upplýsandi og skemmtileg,
Jón kannski full lekkert í stíl, en náttúrlega
erfitt að rokka feitt með löngu látinn mann og goðsögn
þar að auki.
Sjúddirarí rei ævisaga
Gylfa Ægissonar e. Sólmund Hólm, bók XXXX
Mikill skemmtilestur um
grallaraspóalega ævi meistarans. Enginn rembingur, bara stuð!
One train later e. Andy Summers, bók
XXX
Ágæt ævisaga
Policegítarleikarans, en ekkert yfirmáta djúsí.
Hann reynir aðeins of mikið að vera gáfulegur og listrænn.
Management, bíó XX
Jennifer Aniston í
einni indie mynd upp á kreditlistann. Ágætis indie
ástarsaga, eða svona af manni sem reynir og reynir við Jennifer
og eltir hana um öll Bandaríkin. Woody Harrelson leikur fv-pönkara.
Desember, bíó XXX
Ljúfsárt basl
í jólaslabbi.
Reyndu aftur, ævisaga Magga Eiríks,
e. Tómas Hermannsson XXXX
Mest djúsí
ævisaga íslensks poppara só far. Snar grípandi
og spennandi skemmtilesning.
Guð blessi Ísland, bíó
XX
Kreppuklám - fremur
óspennandi. "Innlendur fréttaánnáll" með
aukaefni: dramatískri músik HÖH og smá innsýn
í líf Stulla á vörubílnum, Evu nornar
og sonar Geir Jóns löggu.
Anvil! The Story of Anvil, bíó,
XXX
Strákarnir í
Anvil eru frábærir. Gæða heimildarmynd um þungarokksmeistara
og vonina.
The Informers, bíó, X
Barðist við að
sofna ekki yfir þessari sem byggð er á smásögum
Bret Ellis Easton, gerist í LA örlí eitís og
er langdregin og leiðinlegt og ekkert gerist svo sem í. Ungt
ríkt og gullfallegt fólk riðlast og er í fýlu
og eitthvað svona rugl. Eina góða er tónlistin, þar
á meðal orginal músik sem líkir eftir tegundinni.
Les það að handritið hafi verið í skralli
á þessari mynd og það sést. Þetta vantar
alveg tilgang.
Män som hatar kvinnor, bíó,
XXX
Ágætlega þétt
og skemmtilegt þótt langt sé. Maður sér
hinar tvær.
Lennon in America e. Geoffrey Giuliano,
bók, XXX
Um árin eftir Bítlana.
Í stuttu máli: Yoko Ono er hrægammur, en Lennon var
kynóður með tendens til homms og hálfgert grey. Bókin
styðst að hluta við dagbækur Lennons og er ítarleg
og frekar skemmtileg.
The Great Buck Howard, bíó
XX
Tilþrifalítil
mynd um dávald/galdrakarl sem John Malkovitz leikur og ungan rótara
hans sem sonur Tom Hanks leikur. Sjónvarpsmyndaleg en svo sem ok.
Þangað sem vindurinn blæs
e. Einar Kárason, bók XXX
Einar lætur allt renna
svo skemmtilega og smurt, eins og maður sé eiginlega bara að
hlusta á hann tala. Ferill KKs var manni í móðu
fyrir 1990 og þar sem þetta er spennandi stöff og viðburðarríkt
er maður alveg fastur við bókina allan tímann.
Indjáninn e. Jón Gnarr,
bók XXX
Fyrsta bindi í boðaðri
trílógíu. Jón eltist við æskuárin,
oft nokkuð fyndið en full væmið kannski og full endurtekningarsamt.
Mér finnst vanta dýptina sem hefði komið ef Jón
hefði litið til baka sem fullorðinn maður á það
sem gerðist þegar hann var barn. Ég vona samt innilega
að Jón skrifi bráðlega næstu tvær bækur
og pakki þessu inn.
The Beatles e. Bob Spitz, bók
XXXX
Heljar doðrantur um
besta band í heimi. Mjög yfirgripsmikið og nákvæmt
án þess þó að vera yfirmáta fræðilegt.
Hélt manni alla leið.
Brüno, bíó XXXX
Ég var aðeins
hræddur um að þetta yrði flopp, en það var
rugl. Bruno er viðbjóðslega fyndin mynd og eiginlega allan
tímann. Þegar ég kom úr bíóinu
verkjaði mér í magann því ég hafði
hlegið nonstopp. Sem ábyrgður fjölskyldufaðir var
mér um og ó á köflum yfir gríninu, en
það vantaði sem betur fer alltaf þennan millimetra
upp á að Bruno færi yfir nákvæmlega öll
strikin. Hann fer yfir þau öll, nema þetta síðasta.
Maðurinn er schnillingur!!!
Gran Torino, bíó XXX
Clintarinn urrar og hrækir
en blíðkast á manninn við þá skáeygðu
við hliðina. Gamalmenna Dirty Harry og ég hló oft
af þessu. Fínt.
The International, bíó
XX
Órakaður Clive
Owen eltist við vonda bankakarla. Niðurstaða: Það
er ekki að breyta neinu því það kemur alltaf
nýr vondur karl í stað annars. Þokkaleg spennumynd
með fullflóknum efnivið. Manni hefði ekkert veitt af
að hafa þetta textað.
Transformers 2 Revenge of the Fallen,
bíó XX
Alveg er ég viss
um að kostunaraðilar myndarinnar eru Hasbro leikfangagerðin
og Bandaríski herinn. Mig langaði allavega til að kaupa
bílakalla og ganga í herinn til að skjóta á
vonda bílakalla og rústa menningarverðmætum í
Egyptalandi eftir að hafa séð þetta ofbeldisrúnk
dulbúið sem barnamynd. Þetta er 3ja tíma djöfulgangur
og svona helmingi of langur. Dagbjartur var hins vegar eiturhress með
þetta og fer eflaust bráðlega að suða um nýjan
bílakall.
The Fallen e. Dave Simpson, bók
XXX
Elst er við fyrrum meðlimi
The Fall (eitthvað um 50 talsins) og þeir rekja sögu sína
í bandinu. Flestir eru á því að Mark E Smith
sé æðislegur snillingur þótt hann sé
geðveikur harðstjóri og fyllibytta. Þokkaleg bók
en skrifuð með alltaf mikilli nördavirðingu fyrir byttunni.
Role Models, bíó XX
Alveg lala grín eitthvað
með körlum sem verða að passa stálpuð börn
og bleh eitthvað. Sumt fyndið.
Yes man, bíó XXX
Jim Carrey í ruglinu.
Nokkuð fín rómantísk gamanmynd, smá eitís
nýbylgjufílingur í þessu og músikin eftir
Eels. Alveg slatta ha ha.
Kill your friends, bók XXX
Þetta er góð
bók, en ekki frábær, til þess er söguþráðurinn
of mikil klisja, en hún lýsir fávitapoppbransanum
á upplýsandi, trúverðugan og sprenghlægilegan
hátt. Þetta er bókstaflega mannskemmandi bók.
En fyndin. Þú munt ekki líta poppbransann sömu
augum eftir þessa bók. Skildulesning fyrir alla bláeygða
krakka sem ætla sér einhverja hluti í bransanum.
Changeling, bíó XXXX
Clintarinn er alveg að
gera sig. Óþægileg mynd, ekki ósvipuð og
Mystic River í fílingi og uppbyggingu. Gríðargóð
mynd.
Last Change Harvey, bíó
XX
Miðaldra rómantísk
gamanmynd, sem þó er gríðarlega lítið
fyndin og meira svona hugguleg.
Draumlandið, bíó XXX
Ég var mjög
ánægður með hana lengi framan af, áhrifarík
og skemmtilega fram sett. Reyndar læddist sá grunur að
mér að verið væri að fjalla um gamalt hitamál,
en ekki heitasta hitamálið í dag. En auðvitað
tengjast þessi hitamál. Í lokin, þegar hreindýr
voru búin að hlaupa full mikið undir Sigur Rósarlegri
tónlist Valgeirs Sigurðssonar, var þetta orðið
ágætt. Eins var gæsin með eggið að drukkna
í hækkandi lóni versus Austfirðingar í hoppukastala
við opnun álbræðslunnar, full væmið trikk.
Not Quite Hollywood: The Wild, Untold
Story of Ozploitation!, bíó XXX
Gríðarstíliseruð
heimildarmynd um ástralskar draslmyndir frá 70s og 80s. Klám
og ofbeldi. Quentin röflar út í gegn um hvað þetta
er allt æðislegt. Manni er vel skemmt, en nennir svo sem ekki
að sjá neitt af þessum myndum.
Paul Blart, Mall Cop, bíó
XX
Kevin James, aka feiti kallinn
í King of Queens, er mættur sem fábjánavörður
í molli. Eins og við er að búast er þetta fávitamynd,
dáldið víruð meira að segja, og þokkalega
fyndin á köflum.
What we do is secret, bíó
XXX
Saga Derby Crash, söngvara
The Germs, sem drap sig eftir 5 ára planið. Ekki mjög djúp
en nokkuð trúverðuglega gerð. Ágætlega
skemmtileg.
Cadillac Records, bíó
XXX
Fjallar um Chess records
í Chicago fiftís. Ágætis mynd og ágætt
að fá smjörþefinn af þessu stöffi öllu,
uppgangi Muddy Waters og Howlin' Wolf og þessa liðs alls. Það
var farið hratt yfir sögu og ekkert endilega verið að
hengja sig í sagnfræðilegum staðreyndum.
Ghost town, bíó XX
Ricky Gervais í amerískri
rómantískri gamanmynd um drauga. Alveg fyndin fyrir "hlé"
en full klisjuð og væmin eftir "hlé".
Vicky Cristina Barcelona, bíó
XXX
Þokkalegast Vúddí
Allen mynd (djöfull er hann samt eitthvað glataður). Vondi
kallinn úr No country for old men riðlast á Scarlett
og einhverri annarri og Vúddí dregur upp þá
hugmynd úr hausnum á sér að í Barcelona
sé ástandið í raun eins og 1930 og allir ennþá
í svaka bóhemafílingi.
The Tale of Despereaux, bíó
XXXX
Þessi mynd kom á
óvart. Þetta er ævintýri um fyrirgefninguna.
Mun dýpri barnamynd en þessar venjulegu Disney sem virðast
allar eins. Dagbjarti fannst gaman líka. Fullt hús!
Milk, bíó XXX
Seventís hommabaráttumynd.
Frábærlega gerð og leikin af Sean Penn (enda er óskarinn
í höfn). Næs períodpís.
The Wrestler, bíó XXXX
Mikkí Rúrk
er alveg magnaður sem gamall og slappur glímukappi. Illgleymanleg
mynd og frábær. Rímar við King of Kong í
80s hallærislegheitunum og er tekin í New Jersey, grotnandi
amerískum draumi.
Bad vibes, Britpop and my part in its
downfall, e. Luke Haines, bók XXX
Aðaldúddinn út
Auteurs, Black Box Recorder og Baader Meinhoff leggur allt á línuna.
Stuð. Leiðinlegast að Luke reynir einum of að vera eitthvað
svo svaka svalur og töff. Ekki sjálfhæðinn nema dóp/alkóhólista-lega
séð.
Taken, bíó XXX
Flissdúkkudóttir
Liams Niessons fer til Parísar og er rænt af albönsku
mafíunni og á að fara í mansal. Liam, verandi
gamall leynikall, fær algjört kast, skreppur til Parísar
og 50 eða svo morðum síðar finnur dótturina,
sem flissar nú ei meir. Bæði snúa aftur til USA.
The End. Ágætlega heiladofin þeysireið. Svokölluð
afþreying. Alltaf gaman að sjá París.
Slumdog Millionaire, bíó
XXX
Indland er gettó
og drullukúkur. Krakkar í 3ja heiminum er ekki innan áhugasviðs
en þetta er voða fínt. Ekki eins góð t.d. og
City of God. Bollywood stuð.
Open Season 2, bíó XXXX
Fullt hús hjá
Dagbjarti, spræk barnamynd að mínu mati. Fyndnari en flest
af þessu dóti.
Sannleikurinn, leikhús XXX
Pétur Jóhann
með lúxus-uppistand. Fynd og fjör en vantar aðeins
á dýpt og innihald - Pétur er bara eins og hann er.
Fínt stöff, en ekki alveg Nörd.
Sólskinsdrengurinn, bíó
XX
Það hefði
hjálpað til upp á að maður fílaði
myndina í botn ef maður væri áhugasamari um heilbrigðismál
og/eða einhverfu. En engu að síður: Mjög fínt.
Móðir Kela fer á stúfana til USA að kynna
sér sjúkdóminn. Finnur þar hina indversku Sumo
sem hefur náð að draga einhverfa út úr skel
sinni. Fyrr en varir er Keli komnn þangað og nær góðum
árangri. Friðrik getur ekki stillt sig um smá Íslandsumhverfisáróður
og blastar Sigur Rós og Björk við frekar asnaleg tækifæri.
Cloverfield, bíó XXX
Svona Blair witch-vél
á hreyfingu fílingur um skrímsli sem ræðst
á New York. Bara miklu betur gert. Eiginlega alveg ógeðslega
vel gert. Lostkarlinn JJ Abrams er með puttana í þessu.
Mjög skemmtilegt.
Around the bend, bíó XX
Fjölskyldudrama on
ðe ród. Gríðarleg auglýsing fyrir KFC. Ég
fékk mér KFC daginn eftir þessa mynd.
Firewall, bíó XX
Harrison Ford reddar fjölskyldunni
sem græponar halda í gíslingu. Hann er nú orðinn
full gamall fyrir svona.
Bolt, bíó XXXX
4stjörnu mynd að
mati Dagbjarts. 3víddar disneyklisja.