Kennarar grenja, millar græða, svaka stuð!

Þegar ég var í skóla gat oft orðið stormasamt í tímum, sérstaklega í gaggó enda hormónageðveikin að drepa fílapenslaða krakkana. Nokkrir kennarar áttu til að fá nóg af einelti nemenda og látunum í þeim, bresta í grát, hlaupa út og skella á eftir sér. Þá sátu krakkarnir sigrihrósandi eftir. Þótt framtíðar ógæfufólk hafi glaðst alllengi yfir sigrinum þá fóru krakkar sem síðar áttu eftir að verða góðir og gegnir þjóðfélagsþegnar fljótlega að skammast sín. Þeir urðu glaðir þótt þeir leyndu því þegar kennaratuskan var búin að jafna sig og kom aftur til að kenna, samdægurs eða daginn eftir.

Grenjandi kennarar
Mér finnst kennarar upp til hópa hafa hlaupið grenjandi út úr tíma alla þessa viku og það hefur verið óþægilegt að horfa upp á þetta. Einhver reið kennaragrey eru sýnd í fréttum, oftast mömmulegar konur, og krakkagrey í kuldagöllum með hor á kinn og allt einhvern veginn alveg ömurlegt og vonleysislegt í sambandi við þetta. Það er ríkisvaldið með lögin sín sem er óþekku krakkarnir í þessu tilfelli og ekki hjálpa pirraðir foreldrar til, sem virðast ekki skilja að kennarar nenna ekki að kenna nema þeir fái almennilega borgað fyrir það. Og það er auðvitað ekki spurning að kennarar eiga að fá almennilega borgað fyrir að kenna og ég er alveg til í borga það með sköttunum mínum, 38.58%, takk fyrir, af öllu sem ég vinn mér inn plús virðisauki og ég veit ekki hvað og hvað. Og ef það er ekki nóg verður bara að hækka skattana. Það er bara forgangsmál að þetta mál sé í lagi og álíka óskiljanlegt og ástandið í Palenstínu afhverju þetta þurfti að enda svona og ástandið að vara svona lengi.

Kaupandi millar
Og ég sem hélt að það væri offramboð á peningum. Það mætti allavegana halda það á þeim fréttum sem heyrast nánast daglega. Bankar skila hagnaði í tölum sem ég hef ekki vit til að endurtaka, enda voru svona háar hagnaðartölur ekki til þegar ég var í skóla. Endalausar fréttir af alltaf sömu körlunum að veltast um í dýrlegum gróða eins og svín í skít og svo mikil framsókn og útrás að þeir ráða ekki lengur við sig og verða hreinlega að kaupa upp eitthvað drasl í útlöndum því annars muni allir peningarnir kæfa þá, eins og Jóakim önd ef hann fengi flogaveikiskast í seðlagryfjunni. Gera það eins og að drekka vatn að kaupa risaverslanir í stórborgum, einhverja gamalgróna banka í milljónaþjóðfélögum og bla bla bla. Ég skil ekki afhverju það þarf alltaf að vera að segja okkur hinum hvað þessir millar eru að vesenast með peningana sína, dýrlegu yndislegu peningana sína. Hvað kemur það venjulegu fólki við? Á maður að fyllast minnimáttarkennd og langa til að taka krasskúrs í viðskipta- eða hagfræði? Á maður að fá stjörnur í augun og gera það að markmiði lífs síns að komast í hóp þessara lúðalegu manna til að geta keypt ráðandi hlut í ömmu bankastjóra í Bergen? Ég segi það fyrir mig að ég hef engan áhuga á þessum peningafréttum af millum og mín vegna mega blessaðir aumingjans mennirnir troða peningunum upp í rassgatið á hvorum án þess að mér sé sínkt og heilagt nuddað upp úr því í fréttunum.

Hallærislegasti gaurinn í bænum
Þetta ganga sem sé fréttatímarnir út á: Grenjandi kennarar sem fá ekki eðlilega kauphækkun og svo fréttir af körlum í fyrirtækjum sem eru að drepast úr offramboði á peningum. Þá spyr svona einfeldningur eins og ég: Bíddu bíddu, er ekki hægt að jafna þetta eitthvað? Millifæra eitthvað innan þess kerfis sem við köllum þjóðfélag. Er ekki þjóðfélagið einskonar ofið veggteppi sem verður bæði að rúma milla og kennara og helst eiga allir að vera í góðu stuði til að veggteppið sé veggteppi en ekki bara einhver samhengislaus ullarhrúga á gólfinu? Með því að tala svona er ég líklega kominn inn á gamalt og grátt svæði sem má helst ekki hætta sér inn á í dag því þá er hægt að klína því á mann að maður sé bara gamaldags kommi eða hallærislegur sósíalisti og við vitum nú öll hvernig það endaði, er það ekki? Hallærislegt er orðið “misskipting” og fá nú margir grænar bólur að ég hafi nefnt það. Ennþá hallærislegra er annað orð sem ég ætla samt að nefna þótt mér verði stungið inn fyrir að vera hallærislegasti gaurinn í bænum. Það orð felur í sér lausn á hallærislega orðinu “misskipting”. Orðið er “jöfnuður”.