Limlestu smákrakkarnir og Halldór Ásgrímsson

Ég hef allur meyrnað síðan sonur minn fæddist. Ég er orðinn mun næmari fyrir myndum af limlestum smábörnum. Ég sá forsíðu Moggans í síðustu viku; vitstola faðir með nýlátinn son sinn í fanginu og ég gat ekki annað en sett hausana á okkur feðgunum á skrokka þessara óheppnu Íraka og þar af leiðandi fundið til einhvers sem líklega heitir samkennd. Það var ekki fyrr en ég “gat sett mig í spor” þessa fólks að samkenndin kom. Ekki það að ég hafi gert eitthvað meira en að glápa á myndina og heimfært harmleikinn upp á okkur feðgana. Hvað á maður svo sem að gera? Hvað get ég gert í þessum risa vandamálum sem hrjá heiminn?

Hin fullkomna martröð
Í september 2001 hafði sprungið rör undir baðkarinu hjá mér og vatn flætt niður á næstu hæð. Þar var eldhúsinnrétting nágranna míns í klessu og ég bótaskyldur. Allt þetta röravesen var hundleiðinlegt en ég var búinn að kaupa ferð til New York fyrir mig og konuna í desember til að hafa eitthvað til að hlakka til í grámósku hversdagsins. Ég var í íbúð nágrannans ásamt verklögnum vini mínum að tjasla eldhúsinnréttingunni saman. Rétt eftir hádegi kom konan heim: “Fljótir,“ sagði hún, “kveikið á sjónvarpinu, það er flugvél búin að fljúga á World Center”.
Þetta var ægilegt. Við höfðum verið á netinu kvöldið áður að skoða myndir af “mollinu” í World Trade, sem var eina mollið á Manhattan. Konan fríkaði út af ótta og ég sá New York ferðina fuðra upp. Í sjónvarpinu hrundi turninn fyrir augunum á okkur og við sem höfðum talað um að fara í útsýnisferð upp á topp. Ég setti mig í spor fólksins sem var dáið eða á leiðinni að deyja, sá mig og konuna fyrir mér á efstu hæðinni þegar þotan flaug á turninn. Þetta var efsta stig martraðarkenndar tilhugsunar og er enn.
Við fórum reyndar til New York í desember en þurftum að fara til Staten Island til að komast í moll.

Íslenskur stimpill á líkunum
Það var ægileg geðshræring í samfélaginu. Þessi atburður var vatn á myllu kölska. Ég man eftir lafhræddum Össuri Skarphéðinssyni í Kastljósi talandi um að nú þyrftum við líklega að “fórna einhverju af frelsinu”. Það fannst mér ekki góðs viti. Fljótlega varð ljóst að Ósama Bin Laden væri vondi karlinn og hann átti að hundelta með öllum tiltækum ráðum. Stríðið í Afganistan kom eins og af sjálfu sér, en Írak var næst. Maður gat fylgst með því í Jay Leno hvernig Kanarnir voru æstir upp í stríð, stig af stigi. Flestir arabar voru satanískt skítapakk, Saddam og Ósama voru víst góðkunningjar og Saddam tilbúinn að eyða heiminum hvenær sem er. Þegar “alþjóðasamfélagið” vildi ekki vera með Könunum í stríðinu fóru þeir bara samt enda olíuauður Íraka alltof girnilegur til að sleppa tækifærinu. Kanarnir drógu með sér nokkrar viljugur þjóðir til að þetta liti ekki alveg eins illa út. Davíð og Halldór Ásgrímsson samþykktu að Ísland yrði með þótt meirihluti landsmanna væri á móti því. Það ber ekki beinlínis mikið á Íslandi í þessu stríði, það er ekki eins og Selfyssingar séu að deyja í Bagdad, en táknrænt séð er samt íslenskur stimpill á líkunum. Ósama er reyndar ekki fundinn en Kaninn er allavega ennþá á Miðnesheiði.
 
Fórnarkostnaður lýðræðisins
Flest getum við lítið gert í vandamálum heimsins annað en “ræktað eigin garð” og kosið eitthvað lið yfir okkur á fjögurra ára fresti. Það lið er síðan í vinnu fyrir okkur, ekki sjálfráðir einræðisherrar eins og margir þeirra halda, eins og t.d. þeir tveir sem komu Íslandi í hræðslubandalag smápeða sem tekur táknrænt þátt í viðbjóðslega ruglinu í Írak. Heiminum er stjórnað af fólki en ekki andlitslausum fyrirtækjum eða þjóðum. Því var ég að spá í því hvernig þessir gaurar sem mögulega gætu gert eitthvað í stöðunni ef þeir kærðu sig um bregðast við öllum hörmungarfréttunum. Hvað ætli Halldór Ásgrímsson hugsi t.d. þegar hann sér limlestu og blóðugu smákrakkana í Írak. Ætli hann hugsi: “Já, djöfull er gott hjá okkur að vera með í þessu”. Ætli hann hugsi kannski: “Fokk, við verðum að draga okkur út úr þessu rugli, skítt með það þótt herinn fari”. Kannski er hann svo harðsvíraður að hugsa bara: “Þetta er náttúrlega bara fórnarkostnaður lýðræðisins. Þeim líður miklu betur eftir að Saddam var bolað í burtu, jafnvel þótt þau séu dauð”, eða kannski reynir hann bara að hugsa um eitthvað annað, eins og t.d. hvað það er æðislegt að vera loksins kominn á toppinn.