Vondar fréttir, engar fréttir og góðar fréttir

Ég er fréttafíkill. Ef ég heyri ekki fréttatíma yfir daginn telst sá dagur varla með. Rúnturinn byrjar á morgnanna með blöðunum. Svo tek ég hádegisfréttirnar og síðan kvöldmatarfréttatímana. Um helgar er fátt meira spennandi en að horfa á álitsgjafa rifja upp fréttir vikunnar í sérstökum þáttum. Svona gengur þetta viku eftir viku.

Vondar fréttir
Svo er auðvitað sjaldnast rassgat í fréttum. En ef það er eitthvað þá er það bara fleiri sönnunargögn fyrir því að homo sapiens sé alveg vonlaus dýrategund. Flestar fréttir sem maður heyrir vekja upp slæmar tilfinningar. Morð, fjöldamorð, þjóðarmorð, limlestingar, nauðganir, hópnauðganir, eldsvoðar, náttúruhamfarir, deyjandi fólk, ljúgandi stjórnmálamenn, sem eru kosnir aftur og aftur – allt að fara til fjandans með sífellt meiri krafti, eins og geðveikur snjóbolti að rúlla niður brekku. Hvenær kom frétt sem kveikti þá tilfinningu að það væri ennþá einhver von fyrir mannkynið? Einmitt, ég man ekki eftir neinni síðan Berlínarmúrinn féll og þar á undan kannski þegar sýndar voru óskýrar myndir af mönnum að hoppa á tunglinu.
En maður er auðvitað orðinn svo dofinn að maður er löngu hættur að kippa sér upp við þetta allt saman. Það er ekkert mál að slökkva á heilanum um stund þegar limlestir eða næstum því hungurmorða smákrakkar eru dregnir inn í stofu til að mæna á mann tómum augum frá öðrum heimshluta. Og ef það er ekki nóg að slökkva á perunni nægir að tuða í barminn gamalkunnar réttlætingar eins og “Jæja, þú vilt kannski bara hafa Saddam Hussein ennþá við stjórn” eða “Það er alltaf fórnarkostnaður í stríði”. Svo bara sorrí litla blóðuga smábarn og fjölskylda: Gleðileg jól, en þið urðum að deyja. 

Engar fréttir
Það er engin furða að orðatiltækið “engar fréttir eru góðar fréttir” sé til. Stundum, þegar ég er búinn að glápa mikið og lengi og það eru ekkert nema hörmungar í gangi, hugsa ég með mér að e.t.v. væri bara ágætt að hætta alveg að fylgjast með fréttum. Taka Gísla á Uppsölum jafnvel til fyrirmyndar, flytja í sjálfsskipaða útlegð einhversstaðar í útnára og lifa lífinu án frekari upplýsinga um ógeðið í veröldinni. Láta dagana snúast um hegðun veðurs og kinda, glápa á fjöllin, spila á pumpuorgel og lifa í alla staði laus undan sorglegu oki upplýsts viðbjóðs. En ég renn auðvitað á rassinn með þessa hugsun um leið og klukkan slær hálf sjö og Edda og Páll birtast góðhlakkaleg með “sneisafullan fréttapakka”.

Góðar fréttir
Nú bregður svo við, kannski í tilefni komandi jóla, að nokkrar góðar fréttir hafa skotið upp í fréttatímunum. Þetta eru kannski ekki fréttir sem gefa til kynna að allt mannkynið eigi raunhæfa von á frábærri framtíð, heldur eru þetta fréttir sem benda til þess að við hér á skerinu munum hafa það drullugott á næstunni.
Nú eru bankarnir búnir að taka svo mikil lán í útlöndum til að lána okkur að við veltumst næstum því öll um í svo miklum yfirdrætti og afgangi af endurfjármögnunarlánum að við getum keypt miklu fínni og dýrari jólagjafir en síðast. Það er miklu meiri jólaverslun en um síðustu jól og þar að auki er krónan svo sterk að við getum látið eins og millar í Bandaríkjunum, en þar eiga innfæddir undir högg að sækja með sinn vitavonlausa dollar. 
Ég heyrði líka mann segja í fréttum að gróðurhúsaáhrifin muni hafa frábær áhrif fyrir okkur. Ísland verður sirka í jafn góðum málum veðurlega séð og Skotland og þar sem nú verður hægt að sigla í gegnum norðurheimsskautið lengur en áður verða hafnir á Íslandi dúndur vinsælar. Hér fyllist allt af nýjum dýrategundum, maður fer kannski að sjá villta apa í Heiðmörk og menn hætta þessu hestastússi og fara að brokka um á úlföldum. Þessar jákvæðu gróðurhúsafréttir eru svo sannarlega annað hljóð í strokknum miðað við það neikvæða taut sem lopapeysuháskólaúrtölutittir (nýtt orð sem ég var að finna upp) hafa hingað til borið á borð. 
En það er ein góð frétt í viðbót og það er góða fréttin sem toppar allar aðrar. Hún er um breskan erfðafræðing sem heldur því fram að innan skamms muni menn geta lifað í sirka 1000 ár af því erfðatækninni hefur fleygt svo fram. 
Er þetta ekki frábær framtíðarsýn: Að maður eigi eftir að borga niður lán og horfa á fréttirnar í 960 ár í viðbót, og það í funhita umkringdur exótískum dýrum? Stórkostlegt!