Hvaða æsingur er þetta?

Þegar öllu er á botninn hvolft skiptir flest voðalegu litli máli, til lengri tíma litið. Það sem allir eru að æsa sig yfir í dag verður grafið og gleymt á morgun og fólk man ekkert afhverju það var svona æst og spennt.

Merkilegustu skóför í heimi
Um sumarið 1969 hugsaði heimurinn til dæmis um lítið annað en tunglferðir. Fyrir jólin 1968 hafði Apollo 8 náð myndum af jörðinni utan úr geimnum og fólk hafði fengið það framan í sig að jörðin er bara örsmátt sandkorn á endalausri strönd alheimsins. Fólk fann því áþreifanlega fyrir smæð sinni á síðum blaðanna og sú uppgötvun fékk það til að íhuga málin um hríð. Vikum saman starði almenningur á tunglið, þessa upplýstu eyðimörk á himninum, og fannst sem mannkynið myndi vinna mikið afrek með því að tveir Kanar gengu þarna í sandinum. Svo gerðist það í beinni (nema tveim vikum síðar í íslenska sjónvarpinu): Kanarnir lentu, Neil fór með frasann sinn, karlarnir hoppuðu eitthvað, tóku myndir og flugu til baka. Smám saman dofnaði minningin um afrekið þótt fleiru færu upp; fátækt fólk hélt bara áfram að drepa annað fátækt fólk í stríðum hinna ríku og áhrifamiklu, og ekkert breyttist heldur versnaði ástand heimsins sífellt. Almennt séð virðist sem aldrei hafi allt verið að fara hraðar til andskotans en einmitt núna. Og það þrátt fyrir að mannkynið hafi gengið á tunglinu. Nú hefur auðvitað engin áhuga á hinu óspenndi tungli. Þar er ekkert að hafa og ekkert að sjá nema skóför af Neil og félögum, sem ku verða þarna næstu eitthvað þúsund árin nema loftsteinar skemmi. Skóför. Það var þá eitthvað til að æsa sig yfir.

Margboðaður heimsendir
Ég var alinn upp “í skugga kalda stríðsins”, eins og vinsælt er að segja. Líkt og í dag í  Bandaríkjunum – þar sem “varnarstigið” skiptir í sífellu um lit til að halda fólki hræddu – var stöðug ógn af kjarnorkusprengjum. Sovétríkin voru næstum því alltaf að fara að sprengja okkur í tætlur. “Herstöð er skotmark”, jörmuðu menn og Utangarðsmenn myndgerðu atburðinn fyrir okkur á framhlið plötunnar Geislavirkir. Börn og fullorðnir lifðu í sífelldum ótta. Þeir klikkuðustu komu sér upp neðanjarðarsprengjuskýlum með dósamat. Einna mestum andlegum usla olli myndin The Day After Tomorrow með Jason Robards. Fólk eyddi ótrúlegum tíma í að spá í þetta allt saman, heilu skógarnir voru felldir til að prenta á vangaveltur um yfirvofandi tortímingu, en svo féll múrinn bara eins og hendi væri veifað og nú er engin hræddur við kjarnorkusprengjur. Fólk hættir bráðum að skilja af hverju við létum þetta ganga yfir okkur, líkt og menn skilja ekki afhverju Nasistar gátu espað alla upp í slátrunina miklu. Eftir ekki svo mörg ár skilur enginn afhverju það þurfti að drepa alla þessa Múslíma í Írak, líkt og nú skilur engin hvað var í gangi með að drepa alla þessa Víetnama.
Í stað kjarnorkuógnar höfum við í dag hangandi yfir okkur hefnigjarna náttúru, sem ef spár ganga eftir mun hefna sín á sóðaskapnum í okkur og drepa flest kvikt með ofsalegum hamförum eftir þetta 2 til 200 ár. Myndin The Day After með Dennis Quaid sýndi okkur þetta svart á hvítu fyrir skömmu.
Eftir 20 ár kemur svo kannski myndin The Day með Macaulay Culkin sem sýnir nýjasta hræðsluvaldinn tortíma heimininum á stórbrotinn hátt. Ég veit ekki hvað verður í tísku að hræða og fá fólk til að æsa sig yfir þá, en það verður örugglega eitthvað.

Ekkert jafnaðargeð
Allskonar mál og efni til að æsa okkur upp skella á með stuttu millibili, enda í eðli fjölmiðla að halda æsingsástandinu uppi. Það er líka í eðli mannskepnunnar að vera æst og með sífelldar áhyggjur. Maður gleymir auðvitað alltaf öllu um leið og lærir aldrei af reynslunni. Áhyggjurnar af Vísareikningnum skipta nefnilega engu máli einu ári síðar og maður hefur ekki hugmynd um það í dag afhverju maður var að rífast við konuna og sitjandi í ískaldri þögn fyrir framan sjónvarpið í gær. Samt heldur maður áfram að hafa áhyggjur og rífast um ekki neitt.
Auðvitað væri viturlegast og taka öllu með jafnaðargeði og láta ekkert fara í taugarnar á sér, vera spakur á gáfulegan hátt, eins og síðskeggjaður vitringur í tunnu eða heiladauður bjáni. Yppa öxlum spekingslega yfir því hvort Kerry eða Bush vinni og segja eitthvað spekingslegt og órætt eins og kannski, “Tja, sólin kemur nú upp hvernig sem fer”.
Yeah right. Jafnaðargeðið fer fyrir lítið um leið og maður er komin út í umferðina að byrjaður að djöflast og andskotans, hugsandi fólki á bílum sem flækjast fyrir þegjandi þörfina. “Burt þarna helvítis karl helvíti,” hugsar maður og berst við löngunina að flauta fruntalega á gamlan karl með hatt á ryðguðum skrjóð.