31.01.03
Kominn á lappir fyrir sex í fyrsta sinn á árinu. Það var mikið að ég náði mér af jólasleninu. 
---
Jú, Flosi, Sindridirindri er Kjartansson jr. Þrjár ágætis tillögur eru komnar frá gestum um hvað "MMÚH" stendur fyrir. Menn með úfið hár, Með munn úr hálmi og Meik með útlenskri hljómsveit. Því miður er ekkert af þessu rétt heiti á fyrirhugaðri skáldsögu, en menn eru þó nokkuð heitir, allir fá þeir eitt stig fyrir "með". 
---
Það er alltaf jafn gaman að horfa á þetta handboltarusl og halda með hinu liðinu. Gaman að pirra sig á því hvað þjóðremban ríkur upp úr öllu (fullt af liði byrjað að pæla í að skella sér til Portúgal, he he) og sérstaklega "gaman" að láta Samúel Örn fara í taugarnar á sér, en hann lýsir leikjum þannig að hann fær það af hrifningu ef eitthvað gerist á vellinum og skiptir þá litlu hvað það er. Hann gæti öskrað yfir heilan leik af blindrabolta, hvílíkur snillingur (fáviti) sem hann er. En "við" skíttöpuðum þessu auðvitað enda geta þessir bjánar ekkert og ættu að skammast sín. Áfram Spánn!
---
Jú jú, auðvitað veit ég það að Laugarásvideó ríður feitum hesti, en hvað ætli maður nenni þangað í hvert skipti sem manni dettur í hug að slaka á og glápa á mynd. 06:27 

30.01.03
Hamaðist í allan dag við að skrifa analíska ferilsskrá. Einnig á útlensku enda meikdraumar hvergi nærri slökknaðir.
---
Fékk óvænt email frá Heikonen, einum af þrem eigendum Bad Vugum, míns gamla finnska útgáfufyrirtæki. Hann virðist hafa náð réttinum á fyrirtækinu frá vinum sínum fyrrverandi (löng útskýring í Leiðarljós-stíl er á nýju síðunni) en hefur líka stofnað hliðarfélag, BV2 og gefur þar út mússekk og einnig teiknimyndasögur sem hann hefur sjálfur þýtt á finnsku. Hann byrjar með stíl, gefur út meistaraverk D. Clowes, Ghost World og band sem heitir Cleaning Woman. Það ku vera tríó, hvers meðlimir spila á heimatilbúin hljóðfæri og koma fram í kjólum. Og það sem meira er, Cleaning Woman mun spila á Íslandi bráðlega! Á einhverju sem heitir "Vetrarljósahátíðin". Vú hú! Hér er nýja lén BAD VUGUM, fullt af spennandi stöffi. 21:05
---
Alætan datt niður fyrir viku vegna verðlauna, en í kvöld verður ljómandi skemmtileg Alæta á Rás 2 kl.22.10. Gesturinn er sjálfur Mugison sem mætir með óskalögin kl. 23. Á undan og á eftir verður skaðræðis stuði haldið á lofti með því nýjasta og bestasta í mússikinni. Létt áhersla verður á skandinavíska tóna (mjög létt), en þar að auki verður leikin mússikk með Knifehandchop, Max Tundra, Dj Brokenwindow, Happyland, Los Angeles Negros, The Robot ate me og Hoppy Kamayama, svo fátt eitt sé nefnt. Alls ekki missa af þessu! 09:40

29.01.03
Enterinn í stuði í dag. Þeir mega líka eiga það hjá PoppTíví að South Park er ágætt. 22:50
---
Jæja hvað segirðu? Mér segist sá hugur að ég haldi áfram að vera fremur latur hér í blogginu enda að komast á blússandi skriftarfart með skáldsöguna mína M.M.Ú.H. (hafa gestir hugmynd um hvað það stendur fyrir?). Sýnist líka að blogg sé að drepast úr leiðindum á ýmsum öðrum vígstöðum. Mæli þó með Sindradirindra, sem án efa er ferskasti blöggarinn í dag.
---
Ég ruglast alltaf hvort það er Írak eða Íran sem Búss geðsjúkingur ætlar að fara að lemja á. Rugl hjá þessu liði að geta ekki haft þessi lönd með ólíkari nöfnum svona hlið við hlið. Búss er náttúrlega æpandi fáviti eins og sést með því einu að skoða mynd af honum. Hvað þá að heyra fíflið tala. Hvílíkur skítaheimur sem maður býr í fyrst svona fáviti telst vera mikilvægasti maður í heimi.
---
Ég er ekkert smá duglegur í Planet Pöls og fer 5 sinnum í viku. Er bara farinn að fýl'etta. Tek syrpu eins og ofvirkur hamstur á göngufæribandinu og svo í svona asnalegu tæki sem maður hálfpartinn hjólar í lausu lofti í og heldur sér í stangir. Veit ekki hvað það heitir. Fyrir framan mig eru sjónvarpsskjáir og ég neyðist því stundum til að horfa á poppfávita-Tíví eða poppmyndböndin á s1-um. Það er alltaf sami rúnturinn á þessu drasli. PTV sýnir bara það nýjasta frá Norðurljósum, yfirleitt negrakellingar með stóra rassa, sem verður fljótt þreytt þótt ótrúlegt megi virðast. Ég skil ekki hverskonar örvitar horfa á þetta ótilneyddir. Sá annars nýjasta myndbandið frá Nick Cave (við lagið "Bring it on"), það fylgdi með á sínglunni (glætan að PTV myndi sýna það) og þar eru þeir gömlu heróínsjúkingar, Nick, Blixa og strákarnir umvafnir negrakellingum sem hrista hvílíkt rassgötin að maður er hræddur um að þau detti hreinlega af. Svona á að gera þetta! Mesti viðbjóður sem um getur er nýja myndbandið frá súkkulaðiviðbjóðnum Robbie Williams. Ég hreinlega ærist af illsku þegar ég sé þessa viðurstyggð birtast, svona er ég nú óþroskaður og mikið fífl. Í huga mér á Robbie í mikilli baráttu við þá ömurlegu Gallagher-bræður um titilinn "mesta ógeð poppsögunnar", en ég held að Robbie vinni, þó Liam drulla fylgi fast í kjölfarið. Svona hugsa ég ljótt um blásaklausa poppara og hamast á brettinu þar til það rýkur úr draslinu.
---
Skemmtilegasta myndbandið í dag er íslenskt og er með einhverjum ungrapppíum. Ég styð það heilshugar að þær séu allar með bumbur sem standa út úr bolunum.
---
Við tiltekt rakst ég á frábært flugvélagrín sem ég hef sett upp þér til ánægju og yndisauka. Ég myndi tékkáðí. 16:45

28.01.03
Þetta er nú bara ömurleg kenning að fólk utan af landi sé eitthvað hallærislegt í tauinu, a.m.k. ekki ef það er frá Akureyri, þeim mikla menningarbæ. Skil ekki hvað ég var að hugsa.
---
Músíktilraunir Tónabæjar og Hins Hússins verða haldnar í 20 skipti í mars. Þar hafa fjölmargar hljómsveitir hlotið brautargengi og nægir þar að nefna hljómsveitir eins og Jójó, Nabbblastrengi, Gypsy, Stæner og Soðin fiðla + hinar sem eru frægari. Skráning er í Tónabæ og Hinu Húsinu og hefst 27. janúar og lýkur 28. febrúar. 
Frekari upplýsingar er að finna á www.tonabaer.is og www.hitthusid.is, en þess má geta að ekki er ætlast til að keppendur séu eldri en 25 ára.
---
Ég fer að hallast að því að það hafi verið glapræði að kaupa DVD-spilarann. Það er ekkert til á dvd á leigunum og bara einhver blokkböst sem koma út í þessu formi. Fór hins vegar á bíó í gær og sá franska mynd um foreldra sem gera allt sem í þeirra valdi stendur til að losna við son sinn að heimann. Þokkalegt. 09:38

25.01.03
Það er athyglisvert að fara út á Reykjavíkurflugvöll og virða fyrir sér mannlífið. Einstaklega skrýtið fólk sem er að koma í bæinn frá landsbyggðinni. Allir einhvernveginn berskjaldaðir en í sínu fínasta pússi. Fólkið er vant að gusast bara ógirt og með krumpugallann á hælunum á milli húsa í hvínandi snjófjúki gefandi lítið fyrir tískuna. Sem er gott. Á nálum með allt á hælunum, en tekur sig til og fer í fínt púss er í menningarlega bæjarferð er komið. 
---
Aldrei voru myndir af stelpur að kyssast eða stelpum að sýna á sér brjóstin þegar ég var foli á djammi. Já það var heldur ekkert internet. Missti ég af einhverju?
---
Sá Daníel Ágúst og Gabríelu á förnum vegi, ógnvænlæg í útliti. Söngvarinn pínkulítill í einhverri loðkápu svo ekkert sást nema galdrakerlinganefið – ekki ósvipaður honum Orlok greifa úr Nosferatu, hann Daníel. Listakonan hins vegar klædd að hætti vinnumanna frá 18. öld, í vaðmáli með lopahúfu. Þau svifu löturhægt í andlegum erindargjörðum og mér var svo mikið um við þessa sýn að ég hopaði skíthræddur, snérist á hæli og gekk helmingi lengri leið heim til þess að þurfa ekki að mæta ósköpunum. Þau hefðu eflaust lagt á mig álög ef ég hefði gengið í flasið á þeim.
---
Sá hundleiðinlega kellingamynd í gær á videó. Svona gloprar maður lífi sínu frá sér. Nei nei. Þessa grísku giftingamynd þarna. Drasl.
---
Gummi Jóh er með nýja kenningu um Gollumið sem er svona:


Mér sýnist nú sem eitthvað sé búið að fikta í Felixi. Skamm! 16:25

24.01.03
Kárahnjúkamálið = LOTR. Lesandi stakk upp á því að Gollum væri krúttilingurinn Kjartan hjá D-flokki, sem er kannski eitthvað í áttina, en annar lesandi, Hallgr.Thorsteinsson, bendir á að Gollum sé að sjálfssögðu enginn annar en álfurinn fyrir austan, Smári Geirs. Hér er sönnunargagnið, hér sjáum við tvíbura:

Hringurinn? Hallgrímur dregum upp þá skýringu að þar sé etv vill á ferðinni hringurinn framan á nýju Sigur Rósar-plötunni, sem var að vísu bara hálfur...? 20:00
---
Ég er svo illa gerður að ég æsist upp og verð reiður þegar ég sé sýnt úr bíómyndum sem misbjóða gáfum mínum. Það eru til dæmis tvær myndir í gangi núna sem ég myndi frekar láta einhvern ganga örna sinna upp í mig frekar en að sjá. Þetta eru sjálfssögðu "kynjamyndirnar" Juwanna Man og The Hot Chick, með hinum gjörsamlega ömurlega Roy Schneider eða hvað sem hann heitir þetta fífl. Ég er búinn að sjá nokkrum sinnum úr þessum ruslmyndum og verð alltaf jafn fúll – er það eðlilegt? 
---
Handboltafábjánar mörðu sigur á einhverju þriðja heims liði í gær aðallega af því það var einhver útlendingur í markinu hjá okkur. Skil ekki hvað er alltaf verið að setja þennan bollurass Guðmund í markið sem spriklar eitthvað eins og jólasveinn en ver aldrei neitt heldur er sídettandi á rassinn. 
---
Var með í maganum í allan gær fyrir þessa verðlaunaafhendingu. Fyrst var einhver æfing sem ég hékk yfir í fleiri tíma og svo hátíðin sjálf. Við komum þó bara fram í eina mínútu eða svo, svo þetta var kvíðamagi fyrir lítið. Er annars að mestu hættur að fá kvíðamaga sem betur fer, en í æsku fékk ég kvíðamaga oft í viku og ræpu í hvert skipti sem ég þurfti að fara í sund eða leikfimi. Það má segja að töfralyfið "verk og vindeyðandi" hafi verið minn besti félagi þar til ég óx upp úr skylduíþróttum. Jæja skítt með það. Fullt af íslenskum selebs í gær en ég lét mig hverfa með hraði þegar þetta var búið enda finnst mér fátt jafn leiðinlegt og að "míngla" við eitthvað lið sem ég nenni ekkert að tala við og drekka ókeypis bús fram á nætur. Ég er einn slappasti "mínglari" sem um getur og stend yfirleitt einn út í horni eins og einhvern bjáni. Mér finnst það eiginlega bara kúl. Þarna var slatti af poppurum og sinfóníuliði og djössurum en allir í sínum hópi svona að mestu. Það þurftu allir að þakka svona ægilega mikið fyrir sig að dagskráin tafðist um fleiri mínútur. Ég var búinn að spá í spilin fyrir Moggann og hafði rétt fyrir mér í 5 tilfellum af 7. Svona er ég nú klár. Hafði bara rangt fyrir mér með söngvarana. Ég skil ekkert hvað þessi Hera var að fá verðlaun sem söngkona ársins; ekkert spes söngkona og hundleiðinlegur tónlistarmaður. Svo skil ég ekki alveg hvað söngvarinn í Leaves var að gera með verðlaun, mér finnst hann syngja allt í einum tóni og öll lögin með þessari hljómsveit eru nákvæmlega eins. Ágæt hljómsveit svo sem en voðalegt rokkrúnk eitthvað og ófrumlegt.
---
Hurðin sem opnaðist fyrir okkur þegar við gengum inn á sviðið var nú ekki eins mikið töfratæki og halda mætti. Það var nú bara sér maður frá Rúv sem vann við að draga hurðina frá og ég held það hafi verið Gunnþór sem var bassaleikari í Q4U. 10:35

23.01.03
Það er engin Alæta í kvöld, bara bein útsending frá Íslensku TónlistarVerðlaununum. Ég mæti auðvitað í mínu þokkalegasta pússi enda eigum við Felix að kynna "lag ársins". 
---
Ó nei nú er enn eitt handboltadraslið í gangi. Íþróttadeild RÚV reynir eins og þeir geta að æsa múginn upp í eitthvað áfram strákarnir okkar dæmi. Það er meira að segja kominn klaki í búðirnar frá Kjörís eða Emmes sem heitir "Strákarnir okkar". Plebbalegt allt þetta helvítis handboltadrasl. Þetta er ekki íþrótt, bara eitthvað hnoð og menn að hossast hver á öðrum og tuddandi hvern annan eins og fávitar. Geðveik þvæla sem rennur upp úr íþróttafréttamönnum, eins og þegar Ísland vann Ástrala þá var það "einstakt afrek að liðið skildi halda einbeytingunni". Æ handbolti er plebbismi og það er eiginlega enn meiri plebbismi að vera að röfla eitthvað yfir plebbismanum í kringum þessi leiðindi. Mest kúl auðvitað að þykjast ekki vita að það sé eitthvað mót í gangi.
---
Konan var með "klúbb" í gær og ég hraktist að heiman í norðangaddi og varð næstum úti á leiðinni í Háskólabíó. Ætlaði í bíó hvað sem tautaði og raulaði svo klúbburinn gæti horft á ER og saumaklúbbast án þess að ég væri þarna sem niðurlægt framlag karlmanna. Ég var búinn að stúdera myndirnar sem voru í boði af mikilli kostgæfni en hafði samt ekki gert upp hug minn. Mig langaði á franska kvikmyndahátíð en þá var myndin kl. 8 einhver ástarmynd um lesbíur. Stella í Framboði var ekki á dagskrá í mínum huga en ég var að spá í þessari Eminem mynd en langaði svo bara ekki enda hef ég engan áhuga á Eminem og hafði lesið að þetta væri einhver klisja þessi mynd. Grill Point var einhver mynd en mér leist ekki á hana og fór því á lessumyndina. Ekkert nema franskar lesbíur í salnum og ég og Árni Þórarinsson en hvar var eiginlega Thor Vilhjálmsson? Svo byrjaði myndin sem var svona skítsæmileg. Ekki mikið um erótískar lesbíusenur. Önnur kerlingin er ólm í hina, en sú hefur allt á hornum sér og vill ekki sjá lessísk ævintýri nema þegar hún á bágt og er langt niðri, þá tekur hún vinuna í sátt og það var einmitt í slíku ásigkomulagi sem eina lessuatriðið fór fram. Báðar kafloðnar auðvitað enda franskt á ferðinni og salurinn tók undir í æsilegu atriðinu og frá bekkjunum bárust nautnahljóð. Nei nei. En ætli maður þurfti ekki að drífa sig aftur á franska kvikmyndahátíð og þá kannski á eitthvað meira spennandi.
---
Annars er kalt og dimmt og maður alltaf syfjaður. Skammdegisstemmning og það er allt í lagi. 11:30

18.01.03
Meik í stuði. Það er mín spá að Apparat verði í sviðsljósi meiksins í ár. PBS (Almenningssjónvarpið ameríska) gerði smá innslag um íslenska mússikk og þar voru þeir einhverfu hljóðgerflameistarar í aðalhlutverki. Hér er hægt að sjá þetta dæmi, nokkuð fönkí. Þarna er m.a.s. talað við einhvern nördalegasta þungarokkara sem ég hef séð og hann ku í hljómsveitinni Charger. Say what!? 
---
Jú þetta var víst Jónsi öðlingur og ljósálfur sem var hent út fyrir að vera "sá sem mest hafði sig í frammi" í mótmælum á ráðhúspöllum. Ég get bara ómöguleg séð Jónsa fyrir mér sem einhvern brjálaðan mótmælasegg. Hvað gerði hann eiginlega, æpti "tjú tjú" á Ingibjörgu? Annar ofurtvíburinn hefur á orði að þetta Kárahnjúkadæmi sé eins og upp úr Lord of the Rings og ég hef einmitt haft það á tilfinningunni líka. Góða liðið eru Jónsi (Fróði), mamma Bjarkar, Kolbrún, Hjálmar H og allt hitt frið- og náttúruelskandi fólkið, en vonda liðið er framsóknarpakkið og aðrir sveittir álpungar. Friðrik Sóphusson er augljóslega vondi kallinn sem Christoper Lee leikur. Mér hefur alltaf fundist sá gaur (Sóphusson) einstaklega svipljótur og sminkdeildin þyrfti ekki að leggja mikið á sig í förðun til að breyta honum í algjört illmenni – þarf t.d. ekkert að eiga við nefið á honum. Hann er þó eflaust ágætur enda kvennalistakerlingin konan hans líklega búin að mýkja hann upp í gegnum árin (þó ekki nóg). Svo er þarna vondasta augað í turninum, það er greinilega Davíð í stjórnarráðinu. Vonda liðið í LOTR vill breyta öllu til hins verra, rífa skóga og leggja sótsvart ský yfir tilveruna (sama með Framsókn og álpunga) en góða liðið vill bara fá að hobbitast áfram og rækta gulrætur og eitthvað svona ("smáiðnaður"). Það er svo greinilegt hvaða hlutverk liðið á Reyðarfirði hefur; það er auðvitað orkar sem er hvatt áfram af Sóphussyni og á sér æðst takmark að fá að strita andlaust í sinni holu. Er það ekki? Nei ég veit það ekki. Ég er t.d. ekki búinn að hugsa þessa samlíkingu alveg til enda. Hvað er hringurinn? Hvað er Gollur (eða hvað hann heitir – hefur engin annar en ég tekið eftir því hvað það fyrirbæri er líkt og kvikindið sem var í síðustu Harry Potter mynd?) og hvað með þessa geðveiku trjákarla? Hef ekki myndað mér skoðun enn, en maður hlýtur að halda með góða liðinu. Ekki er maður allavega svo ófyrirleitinn að halda með Sóphusson og Framsókn. 15:30

16.01.03
Fólk með hár fær frekar krabbamein í hársvörðinn en ég. Sérstaklega ef það litar á sér hárið. Alltaf gott þegar eitthvað jákvætt og skemmtilegt gerist.
---
Var þetta Jónsi í Sigur Rós sem var með mestu lætin í Ráðhúsinu í dag? Mér sýndist það í fréttum. Nei ég trúi þessu bara ekki. Voðalegur æsingur er í liðinu. Maður er greinilega að missa af einhverju. Kannski ætti maður að hætta þessum vingulgangi og "taka afstöðu" og þykjast hafa svaka áhuga á þessu og vera svaka á móti. Láta binda sig við skurðgröfu og svona. Búa sér til skoðun og standa svo á henni. Æ æ.
---
Hitti Hugleik sem prangaði inn á mig bókinni sinni. Nú sé ég fram á kvalitítæm, lesa bókina og hlusta á safndiskinn "Blue Hawaii – A Vintage Anthology 1926-1942", sem ég keypti í dag á útsölu hjá 12 tónum. Hugleikurinn er með svona best of og vorst of bíómyndir síðasta árs á síðunni sinni og ég get ekki verið minni maður, þó ekki sé ég kvikmyndanörd. 
Bestu myndirnar sem ég sá 2002
1.   Ghost World
2.   Elling
3.   Lord of the Rings (fyrsta myndin)
4.   The Good Girl
5.   Yu Tu Mama Tambien
6.   From Hell 
7.   Jalla! Jalla!
8.   Hafið
9.   24 Hour Party People
10. The Royal Tenebaums
Verstu myndirnar sem ég sá 2002
1.   Joe Dirt
2.   Interstate 84
3.   American Pie 2
4.   Jay and Silent Bob strike back
5.   3000 Miles to Graceland
6.   City by the sea
7.   Moulin Rouge
8.   Star Wars II - Attack of the clones
9.   A.I.
10. I'll make you happy
---
Ætli sánælin sé dauð? 19:30
---
Alætan er í kvöld kl. 22:10 á Rás 2. 110 mínútur af æsilegri mússikk (lög um sameinuðu þjóðirnar, pönkhljómsveitir sem byrja á X og spjall og óskalög með strákum úr hljómsveitinni Hudson Wayne svo eitthvað sé nefnt). Fyrir alla muni ekki missa af þessu!
---
Hef enn ekki tekist að mynda mér skoðun á "mesta hitamáli síðari tíma", Kárahnjúk – eða kannski "Kára Nuke em". Ég er hugsanlega fáviti, en mér tekst ekki fyrir nokkra muni að æsa mig upp í hafa skoðun eða áhuga á þessu. Sé mig ekki votna um augun af eftirsjá eftir því landi sem fer undir vatn (Eiga barnabarnabarnabarnabarnabarnabörnin eftir að sjá eftir þessu öllu 2213 og blóta langlanglanglanglanglangafa sínum fyrir heimskuna? Hmm?). Á hinn bóginn eru ekki allir jafn heppnir og ég og Hjálmar H. Ragnars að hafa gáfur eða eðli nagdýrsins til að meika sens í svokallaðri list í hringiðu strauma og stefna í 101. Þetta blessaða fólk sem hýmir eins og kotasæla í kyndiklefa fyrir austan í þorpum sem hafa varla burði til að reka bensínstöð, hvað þá til að geta boðið upp á ljóðaupplestur eða sýningu á nýjustu verkum letihauga úr listaháskólanum, má það ekki vinna í álverksmiðju ef það nennir eða vinna við að leigja Pólverjunum sem vinna í álinu videó eins og þetta verður orðið eftir sirka fimm ár? Alveg er mér sama þó þessi skítafabrika sé í miðjum firði og að þarna fyllist allt af eiturgufum. Já já, en djöfull er þetta leiðinlegt og ég hef ekki enn myndað mér skoðun.
---
Hef fundið fyrir undarlegri kennd síðustu daga, þeirri að langa til að sjá franskar kvikmyndir. Kannski er þetta vegna þess að ég er að lesa þessa slöppu ríðingarbók þarna eftir hann Húllembecq. Þetta gæti verið úr henni: "Valérie beygði sig og tók tittlinginn upp í sig. Hún tottaði vel og ég þurfti að halda aftur að mér til að fá það ekki upp í hana. Á sama tíma nuddaði svertingjastúlkan rennblautri píkunni í andlit mitt og sterk lyktin bar mig næstum ofurliði. Hún sat klofvega ofan á mér og erti risavaxinn snípinn með nefbroddinum á mér. Við fengum það bæði í einu og lágum svo hljóð í svitapolli, en Valérie þurrkaði framan úr sér og fróaði sér á meðan hún horfði á okkur. Ekki leið á löngu þar til hún fékk það með háværu öskri sem fékk svertingjastúlkuna til að bregða."
---
Hef legið og fundið blóðið renna til skildunnar á meðan ég les þetta krapp en nú er þessi bók sem betur fer að verða búin. En mig langar allavega að sjá franska mynd. Það er ekkert á leigunum nema í mesta lagi einhverjar búningadrömur sem mig langar ekkert að sjá (búningadrömur eru það leiðinlegasta) heldur langar mig til að sjá eitthvað nýtt og nútímalegt (og franskt). Ég ber einhverja undarlega kennd til fransks kúltúrs þessa dagana og því hljóp aldeilis á snærið hjá mér því nú er víst frönsk kvikmyndahátíð að bresta á í Háskólabíói. Um að gera að menna vel á það. 10:59

14.01.03
Ef fólki þyrstir í meiri Popppunkt getur það spreytt sig sjálft hér. Þetta er spurningasíða sem þrír íslendingar reka, nokkuð sneddí en erfitt. Ég gat ekki rassgat í þessu. Þá er víst enginn PP fyrr en hugsanlega í haust og tekur annað við. Sólóplata og skáldsaga svo eitthvað sé nefnt. Best að hætta þessu rövli hér, enda lítið í rövlskjóðunni eins og er, og drífa sig í þeim verkefnum. 

11.01.03
Þess má geta að spekingaþáttur Popppunkts er í kvöld kl. 21 og er það síðasti skammtur í bili. Alveg frábær þáttur þar sem Óli Palli, Andrea og Arnar Eggert fara á kostum á móti SSSka, Tjödda og Ölvir sem fara algjörlega á kostum sömuleiðis. Meiri PPPP næsta haust ef "guð lofar" eins og kellingin sagði og ég vomi yfir gestabókinni eins og gammur ef gestir álpast nú til að nefna eitthvað sem meikar sens en er ekki bara eitthvað rugl.
---
Voru Hafnfirðingar hoppandi af kæti með flugeldasýningu þegar álverið í Straumsvík komst á koppinn? Jæja gott hjá fólkinu fyrir austan að það sé loksins eitthvað komið í líf þess sem er nógu gott fyrir fagnaðarlæti. Vei! húrra! við fáum að strita bakveik og sveitt í álverksmiðju fyrir 120þúsund á mánuði! Jibbí jei! Æ ég veit það ekki. Kannski er þessi grenjandi Steinunn Sigurðardóttir eða óðamála Jakob Magnússon ekki rétta liðið til selja salti jarðar fyrir austan þá hugmynd um að "virkja hugaraflið". Í þessum málum eins og svo fjölmörgum öðrum kýs ég þá lýðræðislegu afstöðu að vera drullusama.
---
Ég er hvílíkt búinn að taka mig á í bókalestri. Kláraði doðrant um daginn (sjá menningarafurðir) og er nú hálfnaður með aðra bók, Áform eftir Michael Huellembecq. Þar segir hann m.a. að fyrst konur séu komnar út af heimilunum og séu í sífellt meiri mæli að líkjast körlum í hegðun þá hljóti að vera stutt í að þær fari að leita sér dráttar hjá hórulhúsum fyrir kerlingar þar sem sætir strák-hórlar svitna við afgreiðslu. Konan mín er algjörlega á móti þessari hugmynd sem er vissulega ágætt. Gaman væri þó að heyra í jafnréttiskerlingum í gestabókinni og hvort þær myndu notfæra sér svona þjónustu. Til dæmis mætti ímynda sér hórulhúsið ÁSTARHREIÐRIÐ í bakhúsi á Grundarstíg. Konur ganga inn í hvítmálaða forstofu þar sem ljúf rakspýralykt dillar í nefi. Við afgreiðsluborð stendur hórulpabbinn, maður sem líkist Sigurðuri A Magnússyni, í leðursvuntu utan yfir jakkafötum. Hann leiðir konur inn í setustofu og spjallar við þær á meðan með sjentílmanískri röddu. Einn veggurinn í setustofunni er úr gleri og þar fyrir innan eru hórularnir númeramerktir. Þarna eru nokkrir hórlar á lausu, númer sex líkist Fjölni Þorgeirssyni, hann er í leðurpungbindi einu fata, númer 12 er svipaður og Bent Rottvæler, hann er í hvítum karlanærbuxum og væfbíter og er að maula kleinur. Númer 13 er af asísku bergi brotinn í leðurbuxum þar sem rassinn stendur ber út úr en númer 17 er sláandi líkur Stefáni Jóni Hafstein, hann situr í íþróttabuxum en ber að ofan og er að greiða sér fyrir framan spegil. Úr þessum föngulega hóp velur konan nú hórul og skemmtir sér vel með hjálp nautnakremsins Vígal, sem er reyndar óþarfi því hórullinn er fagmaður og vindur sér í verkið af einurð og krafti. Er þetta eitthvað sem lesendur telja rakta gróðraleið? 17:35

10.01.03
Hér er hægt að reyna að komast að sem trommari í bandinu hennar Marzípan. Þokkaleg tímaeyðsla.
---
Djöfull er ég latur maður. 11:20

09.01.03
Í heiminum hefur allt meira eða minna verið að fara til fjandans síðan ég man eftir mér. Fyrst varða kalda stríðið en nú erða eitthvað ennþá skemmtilegra og það er hægt að velja um ýmislegt til að hugsa um eða bara sleppa því alveg enda væri ég kominn á hæli ef ég hefði fylgst grannt með öllum viðbjóði heimsins síðan ég man eftir mér. Til að fylgjast með þessu öllu á einfaldan hátt og í smá fjarlægð er upplagt að lesa punktana hans Jónasar, enda sá karl nokkuð ferskur. Skipti þó engu að hann væri ritstjóri í 1/4 öld, allt er jafn mikið að fara til fjandans fyrir því og sama drullan á Íslandi og annars staðar. Ég sé annars ekki fram á almennilegt ástand fyrr en öllu lífi hefur verið eytt af jörðinni nema skordýrum og grasi. Þá verður komið eðalástand og friður að eilífu amen. 19:00
---
Nei nei, hvaða hvaða, ekkert álag lengur á þessu pöntunarkerfi hjá æsland express enda erlent kerfi. Búinn að kaupa miða og allt! Verð sukkandi með Mikael Torfasyni yfir helgi í maí og er ástæða til að fara að hlakka til strax. 14.600 kall báðar leiðir mar. Ekkert smá lúxus. Svo keypti ég kjúkling í Nóatúni áðan á 290 kall. Heilan kjúkkling. Ég held nú að þessir vesalings Íslendingar sem flutt hafa til Danmerkur undanfarið, helst í þeim tilgangi að kaupa ódýran kjúkling að mér skilst, ættu nú bara að fara að koma sér heim. 18:00
---
ALÆTAN Á RÁS 2 Í KVÖLD KL. 22:10. FULLT AF ÆÐISLEGRI MÚSSIKK!!! Lög um rostunga. Lög um eiturlyf. Ný lög með Heiðu, Ms John Soda og The Roots. Gestir: strákar í hljómsveitinni DIKTA (diskurinn þeirra "Andartak" er fínn)
---
Ahhh, íslenska verkvitið. Ekkert slær því við. Ætlaði auðvitað að rjúka til og kaupa miða hjá Iceland Express, en þar er bókunarkerfið að sjálfssögðu algjörlega í hakki og bara endalaust please try later. Mér líður eins og ég sé í biðröðinni hjá Elko og það sé útsala. Styð þetta fyrirtæki þó heilshugar – burt með bláa einokun Flugleiða! – og mun reyna aftur og aftur að bóka á netinu uns það tekst.
---
Eftir langa fjarveru var ég farinn að halda að hinn léttlyndi og hressi Thors væri alveg hættur að skrifa á innpíkulesbókina, en nei nei, er hann ekki mættur blessaður drengurinn og segir mig nú tötsí og pirraðan sem er að sjálfssögðu hverju orði sannara þótt engin sé Herbalæf neyslan. Ég sef þar að auki til kl. 11 á hverjum morgni og er ógeðslega lengi í gang. Fyrir nokkrum mánuðum rauk ég í gang kl. 6 og skrifaði rosa bálka hér en nú rétt nennir maður að pota á rafblað nokkrum línum. Ég kenni geðsveiflum algjörlega um þetta misræmi. Þessi umskipti hafa þó jákvæða hlið því nú get ég vakað frameftir og klárað myndirnar sem ég leigi. Í október sl. leigði ég myndina Lantana en sofnaði í henni miðri. Horfði á hana í gær glaðvakandi og hress og er hún komin á gagnrýnissíðuna. Ég sofnaði líka yfir Amores Perros í haust og þarf því að taka hana aftur við fyrsta tækifæri og klára.
---
Fólk er mikið að tjá sig um huxanlega keppendur í PP2 og þetta er að sjálfssögðu eitthvað sem maður hefur pælt í. Við eigum slatta af stórpoppurum eftir og eru þar vitanlega fremstir Bubbi, Bó, Maggi Kjartans og Megas. Það verða auðvitað bara 16 bönd í næstu umferð en mikið er um að velja. Hér er það helsta í stafrófsröð. Endilega bætið við á innanpíku ef það vantar eitthvað:

PP2 HUXANLEGIR KEPPENDUR:
Á móti sól
Á túr (Beta Rokk, Bibbi Curver + 1)
Apparat
Bara flokkurinn
Ber
Botnleðja
Brimkló / Sléttuúlfarnir / HLH-flokkurinn (til að ná Bó)
Brunaliðið / Júdas (til að ná Magga Kjartans)
Bubbi + ? (t.d. Stríð & Friður, Egó, MX21 - varla Utangarðsmenn því menn eru í fýlu frá síðasta túr).
Búdrýgindi
Buttercup
Change
Dúkkulísurnar
Ensími
Grýlurnar
Kalk
Kátir piltar
Kikk
Kolrassa
Logar
Megasukk (Megas + Súkkat)
Mezzoforte
Mínus
Nefrennsli (til að ná Jóni Gnarr)
Oxzmá
Papar
Quarashi
Rikshaw
Ríó tríó
Risaeðlan
Saktmóðígur
Sign
Sigur Rós
Skítamórall
Skriðjöklar
Sniglabandið
Snörurnar / Erna+Eva+Erna
Sóldögg
Sororicide
Stjórnin
Stuðkompaníið
Þú og ég (Helga Möller, Jóhann Helga + Gunnar Þórðarsson)
Todmobile
Trabant / Funerals
Vinyll
Þúsund andlit

Svo má fastlega búast við að einhver ný unglingabönd verði orðin vinsæl næsta haust og allt það. Það verður að setja ákveðinn fyrirvara á "meikböndin" (Sigur Rós, Quarashi etc) því þau gætu verið fjarverandi í meiki á úrslitastundum. Hvað segja lesendur um þetta? Hvað vantar? Öskraðu þig hása(n). 12:05

07.01.03
Glæsilegur þáttur um tunglgönguna í gær frá Frakklandi. Virðist sem þetta hafi allt verið svindl og allt tekið upp í stúdíói eins og var reyndar haldið fram í einni af uppáhaldsmyndinni minni, Capricorn One. Blessaður vertu, það er allt meira og minna svindl í þessum fréttum, kæmi mér ekki á óvart að einn daginn kæmi í ljós að þessi Ósama Bin Laden sé bara einhver leikari í Mið-ameríku.
---
Veit ekkert hvar Dato Triffler er niðurkominn. Sennilega á lyfjum einhvers staðar út á landi. Flatus lifir ha?! Sannleikurinn kemur í ljós einhvern tímann en meira verður ekki togað út úr mér nema með rafmagni í punginn. 20:10

06.01.03
Hössi hættur í Kvarassí. Þá myndi maður nú halda að bandið væri búið. Allavega var Hössi alltaf aðalgaurinn í videóunum og þetta er því örugglega markaðsátak í súginn.
---
Mogginn á mánudögum líka. Enn eitt blaðið sem maður missir af.
---
Af hverju fá þessir klónunargeðsjúklingar svona mikli athygli í fjölmiðlum? Það er ekkert mál að klæða sig í mussu og segjast vera æðstiprestur og láta einhverja gleðikonu halda því fram á blaðamannafundi að klónaðar krakkar velti nú út úr útungunarvélunum í massavís. Fáránlegt bull en sniðugt ef þetta lið er ekki geðveikt heldur bara svona mikið flipplið. 
---
Djöfull lýst mér illa á þennan Donald Römsfíld. Það sést langar leiðir hvað hann er geðveikur. Það þarf ekki sterkt ímyndunarafl til að sjá að hann myndi sóma sér vel í hvítum sloppi að gera tilraunir að hætti nasista á einhverjum arabavitleysingi. George Bush er hinsvegar ekki illskulegur að sjá, bara vitlaus.
---
Lalli Johns vatt sér að mér í morgun og rövlaði eitthvað um að einhver í athvarfinu hefði þjóðkennt sig. Sagðist ætla upp á Stöð 2 með þetta stórmál. Kallgreyið. Alltaf í góðu stuði.
---
Fegurðardísin María Ellingsen byrjuð í Planet Reykjavík. Mikið myndi geðsjúki stalkerinn úr Séð og heyrt að öfunda mig að fá að svitna við hliðina á henni. 10:50

03.01.03
Er þessar stundirnar í heví vinnu fyrir engan annan en Einar Bárðason og því lítið um blogg á næstunni. Tja, sjáum til. Það eru svo slæm skilyrði að ég verð að hlusta á Súra gæjann í gegnum netið. Hann er í feikna stuði heyrist mér. Já og meðan ég man: Gott ég minntist þess: Horfa á Gnarrenburg á eftir. Ruglað auðvitað því þetta Norðurljósabatterí er ekkert nema gamlir diskóboltar úr Hollywood eða einum of streit lið úr MK, sbr. þau í sófanum, Guðrúnu og Snorra Má. Nei hvað er þetta: þau eru ágæt. Samt ekki það gott stöff þarna að maður tými að blæða í áskrif enda nóg af skyldu- og fríu sjónvarpi.
---
Helv. eru þau hress í Hveragerði. Eru búin að hleypa mér í "Listamannaíbúðina" sína í apríl. Mar verður bara skrifandi meistaraverkið í góðum gír í höfuðborg hasslampanna. Jamm jamm og fokking jamm og til hamingju gamli hólkur segi ég nú bara í skitzófrenísku flogi.
---
Verð að segja að mér líst á að jólin séu búin, sérstaklega ef þetta sumarveður helst. Mar var orðinn alvarlega soðinn á þægindunum og sluxinu. Soðið grænmeti. 20:48
---
Þegar ég fór í strætó um daginn var ég að koma mér fyrir aftast með poka fulla af gjöfum og eitthvað jóla jóla. Þá heyrði ég lágt neyðaróp og skimaði í kringum mig. Sá fyrst ekkert en svo kom ég auga á gamlan karl sem var með hausinn út en líkamann inni. Gúmmíhulsur strætóhurðanna héldu honum föstum, lágu að kinnunum og klemmdu hann fastann. Ég hafði engan tíma til að sjá skoplegu hliðina á þessu heldur æpti á strætóbílstjórann sem var að leggja af stað. Þessir strætókallar eru nú upp til hópa algjörir lúðar og þessi varð bara fúll og kenndi gamalmenninu um allt saman. Opnaði þó hurðina svo klemmdi kallinn komst út og gekk leiðar sinnar, af því er virtist í heilu lagi. Alltaf gaman í strætó skal ég segja ykkur. 10:08 

01.01.03
Hei hei! Gl. ár! Verð í fyrramálið Sigurjóni til halds og trausts í þættinum hans. Kl. 8 skilst mér. Svo er auðvitað ALÆTA annaðkvöld og í tilefni af nýju fersku ári ætla ég bara að spila lög sem hafa náð efsta sæti vinsældarlistans í Ameríku eða Bretlandi síðustu 50 árin eða svo. Óskalagagesturinn verður bassaleikari Írafárs, Siggi Sam, enda Írafár besta og mesta bandið í dag. Þú mátt setja drullu oní þig ef þú ert eitthvað ósammála því.
---
Hef verið ógeðslega latur að rövla hér í handarkrika bloggsins yfir svokallaðar hátíðir enda á maður ekki að lyfta litla fingri þessa daga. Við skulum sjá til hvort hagur strympu í blogginu vænkist ekki núna þegar makkintossið er búið og gráhvítur raunveruleikinn með ógeðslegu megrunarfæði og þrotlausum æfingum í rækt djöfulsins tekur við. 
---
Helstu plön ársins 2003 eru svohljóðandi:
feb/mars: kaupmannahöfn ferðalag
maí/júní:  Flatus Lifir! (sólóplata) 
sumar:     skotland / austurland ferðalög
haust/vetur: MMÚH (leyniheiti) --> skáldsaga
september-desember: Popppunktur 2003 (II hluti - 16 ný bönd + nördaþáttur II sem Óskar stuðpiltur hefur unnið sér þáttökurétt í með einföldum romm í kók)
---
Annars er auðvitað best að plana sem minnst (líklega) því á morgun gæti maður verið kominn með æxli í drellirinn eða loðnar vörtur á skordýraheilann (já ég var að fletta "Lifandi vísindi"). 
---
Þess má geta að ég hefi (hvað er að þýðendum sem nota alltaf "hefi" í staðinn fyrir "hef"?) legið yfir nokkrum spólum og gert þeim skil á menningarafurðasíðu. Ef þú hefur eitthvað á móti því geturðu drullað upp í þig. 
---
Voða var Bubbi asnalegur með gamalmennunum að taka á móti stórriddarakrossi eða hvað þetta kjaftæði er. Sá hann í sjónvarpinu áðan. Voða asnalegt. Ekki ætla ég að sækja minn kross þegar ég fæ þetta. É ræt. Verð mættur slefandi fínn í pússinu með fávitaglott fyrstur manna.
---
Mér finnst þessi síða stórkostlega vel hönnuð og þú getur drullað í buxurnar ef þú ert eitthvað ósammála því. 
---
(verð að muna að hætta að segja fólki að drulla hingað og þangað. Það er svo mikil gelgja).
---
Síðasta ár byrjar svo hér........................::::::::::::::::::::::::::::::20:20