31.03.03
Heimdellingar koma í Zombie í fyrramálið. Og fleira.
---
Fór í Hagkaup í Smáralind. Því miður fannst ekki þýski kókbjórinn sem ég sá þar um daginn á 39 krónur líterinn.
---
Það hafa aldrei verið mannætur á Íslandi. Pældu í því.
---
Á morgun er 1. apríl. Ég ætla ekki að gabba neinn.

30.03.03
Æskulýðurinn hefur verið með einskonar andlega ræpu um þessa helgi. Einhverjir Dáðadrengir unnu Músiktilraunir og heyrðist mér lag með þeim vera ágætt í bílnum hjá Sigurjóni er við keyrðum heim hafandi veitt Doktuz og Amos verðlaun fyrir bjartleika og 3. sæti. Þá vann einhver stelpa söngkeppni framhaldsskólanna en þá var ég löngu sofnaður yfir þessu ömurlega sjónvarpsefni. Þetta er slakur vitnisburður um mússikksmekk framhaldsskólanna. Besta atriði kvöldsins var afsakið hlé en í því fékk Lufsan hláturskast. Að lokum varða Gettu betur en þar gerðist það óvænta, MR vann 48. skiptið í röð (geisp).
---
Hef keypt for-grillaðan kjúkling og er uþb að sturta honum í mig. Hef waldorf-salat sem meðlæti. Gott að tæta þennan kost í sig á meðan maður horfir á "fréttir" Stöðvar tvö til að tékka á hvað er að gerast í þessu hundleiðinlega Íraksstríði. Þó ég sé ekki af MTVkynslóð þá er maður samt spilltur af henni og hefur ekki úthald í margra mánuða stríðsbull. 
---
Cat Stevens er nú alltaf góður, sérstaklega á fyrstu plötunni, en þá var hann meira sækadelik og minna hippa.
---
Veit ekki hvort það hafi verið sniðug hugmynd að láta lesendur skipta sér af því hvað platan á að heita. Þetta er svo neikvætt lið sem heimsækir mig. En jú "Snakk fyrir pakk" er frekar pissulegt, ég viðurkenni það.
---
98% herforinginn Davíð Oddsson að taka rúntinn með sama vaðalinn á öllum stöðvum, ekki ósvipaður fávitanum Ron Jeremy sem sagði alltaf það sama í þessum viðtölum sem hann var í hér. Kannski ættu þeir bara að skipta um hlutverk, Ron að fronta XD og Doddi að vöðlast á einhverjum sílikon kellingum. Það yrði varla verra. Annars er maður kominn með jafn mikið leið á að MR vinni þessa Gettu betur og að Doddi sé forsætisráðherra. Í guðana bænum hvernig væri að breyta til?

29.03.03
Fólk sem tekur þátt í plötu-könnun hallast helst að því að platan eigi að heita eitthvað annað en Flatus lifir! eða Snakk fyrir pakk! Þó eru ýkt fleiri sem hallast að Snakk fyrir pakk og ég er svona að hallast að því frekar enda léttur og hressandi titill þó hann sé uppruninn í snakkauglýsingu. Mér hefur að auki dottið í hug titillinn LIFUR, sem er kannski full djúp tilvitnun í Trúbrot og óneitanlega ekki eins hress titill og Snakkið. En skítt með titilinn, innihaldið sjálft skiptir öllu. Hér er lagalistinn eftir síðustu uppröðun:

1.  Hvalfjörður '78
2.  Homo sapiens 
3.  Alltaf meir
4.  Fyrir 100 árum
5.  Heimsk ást
6.  Stóri hvellur 
7.  "Imbox" – á eftir að semja texta
8.  Snakk fyrir pakk!
9.  Ímelda Markos
10.  Konurnar í lífi Errós
11.  Safarí '84 (uppr titill "Rabbit")
12.  Eftir 100 ár 
13.  Stillansar
14.  Undo
15.  Má ég vera með þér

Ógeðslega kúl plata þó ég segi sjálfur frá og hvert öðru hressandi rokklagið, en þó tekur smá mærð við í lokin. Gömlu Pop Kings lögin Imbox og Rabbit eru þarna endurunnin en restin er óútgefið.
---
Meistari Insol kom í Zombie og var ýkt ferskur. Hann færði bæði mér og Sigurjóni að gjöf sitt komplett útgáfusett og má fullvíst bóka að maður hlusti eingöngu á Insol næstu vikurnar. Hann hefur gefið út 6 diska og ættu þeir að vera til í Japis, Laugarvegi. Mæli helst með "Hið mikla samband" (útg. 22 des 99) en þar er smellurinn "Hvenær mun hér á Íslandi rísa stjörnusambandsstöð?" Einnig er diskurinn "Við viljum jafnrétti" (útg. 22. okt 02) mösthav, en þar er leikið á skemmtara o.fl. en ekki bara gítar og munnhörpu eins og á öðrum diskum. Á "Fyrri byggðum" (útg. 15. okt 02) er lengsta lag Insols, "Endurminningin lifir að eilífu" (37:15 mín), og er það stórfengleg æfing fyrir hlustandann í jafnaðargeði og þolinmæði. Aðrir diskar eru "Insol" (útg. 3. des 1998) með kóverlögum eingöngu (aðallega Dylan), "Blóm friður og ást" (útg. 8 des 2000) og "Jafnrétti er eina svarið" (útg. 3 des 2001). Hér eru að lokum tvö umslög ef fólk er ennþá eitthvað skeptískt á því að komplitera Insolinn. 12:33

27.03.03
Já og meðan ég man: tónlistarmaðurinn INSOL verður gestur Zombie í fyrramálið og tekur lagið. 
---
Erpurinn og Bentinn byrja með Óskalög sjúklinga á gamla Alætutímanum í kvöld og hippa og hoppa. Leiðinlegt að vera ekki með Alætuna en maður reynir að taka "músik-zombí" á þetta í Zombie-inum. Spilaði t.d. norskan Kaada í morgun sem er hressandi stöff. Ég dánlódaði plötunni hans á Soulseek, sem mér sýnist skársta þjófaforritið í dag, ellavega ef maður er að spá í rafdóti.
---
Michael Moore er aðalgaurinn í dag. Hér er hægt að sjá hann röfla eftir Óskarinn.
---
Kaninn er að taka nasismann á þetta sem er skerí stöff. Nú fer það bráðum að vera algjörlega sambærilegt þegar Þórbergur var dæmdur fyrir að smána Hitler og Erpur fyrir að sletta á sendiráðið. "Geðveikir ráðamenn Bandaríkjanna eru hættulegri heimsfriðnum en geðveikir ráðamenn Sovétríkjanna og Hitlers-Þýzkalands voru, þegar þeir voru skæðastir", segir Jónas. Og tékkið á þessu – djísús fokk. Ég nennti reyndar lítið að lesa þetta en mér sýnist að þessir gaurar séu alveg að tapa því. Fyrst Rómaveldi, svo gat það orðið Hitler all óver ðe pleis en það gekk ekki, nú á að neyða einhverja biblíubelta Ameríku upp á okkur og Arabana og svo Kínverja í endann. Slatti af liði verður auðvitað voða glatt yfir þessu, Sjálfsstæðisflokkurinn og Gunnar í Krossinum og svona, en þetta endar allt með ósköpum. Einhver geðsjúkur afkomandi Bush að spila á fiðlu meðan Hvíta húsið brennur. Frábær framtíðarsýn og til hamingju með það.
---
Þá er bara að koma þessari DR.GUNNA-plötu á koppinn. Við erum löngu búnir að setja saman prógramm og svona og nú er pródúser kominn í geimið, sjálfur Bibbi Curver, sem án efa er besti pródúserinn í dag, og eiginlega sá eini á íSlandi sem eitthvað rokk er í. Hann er helvíti kræfur og stakk t.d. upp á því að platan héti SNAKK FYRIR PAKK en ekki FLATUS LIFIR! eins og platan er búin að heita til þessa. Honum finnst lagið í Snakk fyrir pakk auglýsingunni svo æðislegt og vill meira að segja að það verði á plötunni líka. Hmm? Ýmsar aðrar tillögur er kallinn með sem er fínt enda er maður að fá hann inn sem pródúser en ekki einhverja takkatík. Þetta er ægilega gott rokk allt saman og platan verður góð alveg sama hvað hún heitir. Þetta nafn, FLATUS LIFIR!, er annars ekkert svo æðislegt eftir á að hyggja. Fyrst fannst mér spúkí og kúl að þetta væri graffití sem er búið að mála á veggi víðsvegar um landið. Það gerðu að sögn nokkrir strákar á ferðalagi eitt sumarið fyrir hvað, sirka 15 árum eða svo. "Flatus" þýðir prump á latínu og er notað af læknum ("Er flatusinn kominn niður af Guðríði, hjúkrunarkona?", spyr Doktor Smári) og eftir að ég komst að þessu minnkaði aðeins gleði mín með þetta nafn, enda vil ég ekki dragast með prump alla leið í gröfina þó ég hafi sungið Prumpufólkið um árið. "Prump lifir" er ekkert svo kúl, ha? Kannski finnur maður bara eitthvað enn flottara nafn en þessi tvö eða hvað? Ég hef sett upp æsilega könnun þar sem enginn annar en þú getur tjáð þig um þetta funheita mál. Já og svo ætlum við að spila á Grand Rokki þann 10. apríl en daginn eftir byrjar upptaka á plötunni, hvað sem hún mun heita. 15:00

25.03.03
Helvítis emaillinn minn er kominn á djönklista ýmiskonar og ég fæ 50 ruslbréf á dag. Þetta er frekar pirrandi því það eina sem ég fæ eru bréf um þar sem ég er kvattur til að fá mér ýmsar geðpillur, skrá mig á klámsíður (eins og það sé ekki nóg af ókeypis klámi), hjálpa Nígeríumönnum í neyð (með því að senda þeim bankareikningsnúmerin mín) eða gera eitthvað í þessu pínkulitla tittling sem ég ásamt aðrir á djönklistanum eigum að vera með. Bréf eins og þetta er fastur liður:
           * Gain Up to 3+ Full Inches In Length 
           * Increase Your Penis Width (Girth) By 20% 
           * Stop Premature Ejaculation! 
           * Produce Stronger, Rock Hard Erections 
           * 100% Safe To Take, With NO Side Effects 
           * Fast Priority Fed-Ex Shipping WorldWide 
           * Doctor Approved And Recommended 
           * No Pumps! No Surgery! No Exercises! 
           * 100% Money Back Guarantee 
           * FREE Bottle of VP-RX (time limited opportunity)
           * FREE "Male Help E-Book" (time limited opportunity)

Mér er skapi næst að skanna á mér hinn alveg nógu stóra tilla og senda þeim til baka. En fyrst það er alltaf verið að senda mér þetta hlýtur einhver að kaupa. Það eru semsé alltaf einhver fífl sem falla fyrir þessu drasli og halda hringavitleysunni gangandi. Einu sinni hélt ég að það væru bara karlar sem væru nógu vitlausir til að falla fyrir fíflaauglýsingum, en nú veit ég að konur eru ekki síðri í heimskunni. Heimska er auðvitað helsta vandamál heimsins í dag. Það er t.d. ekkert nema helvítis heimska að vera í herliði og hlaupa eitthvað um sandhóla að skipan hálfvita til að reyna að slátra einhverjum arabavitleysingum. Heimska og stöðnun. Gömul hugsun. Öll illska heimsins er knúin áfram af heimsku. Illska er heimska. Aumingja við.
---
Annars ætlar góðmennið Siggi pönk að kíkja í Zombíið í fyrramálið og veita af viskubrunni sínum. Svo veitum við Sigurjón af viskubrunni okkar og er af nógu að taka þar. Mig dreymdi fullt af skít í nótt og verð því að muna að kaupa miða í lottói. Vonandi verð ég viðurstyggilega ríkur og get flúið þetta óveður og helst keypt mér eins og eina eyðieyju til að vera í friði fyrir heimsku heimsins á. Mér sýnist Motu Toute vera á viðráðanlegu verði, eða á skitnar 194.000 evrur (16 millur eða svo). Maður þarf bara að taka einn pott í víkingalottói og þá er þetta stöngin inn. Annars sýnist mér þetta vera algjör pínkueyja og varla eyja. Kannski ætti maður bara að vera heimóttalegur í eyjainnkaupum og reyna við Akurey eða Engey, eða kannski færa sig aðeins út á við og taka Flatholmen í Noregi. Mér sýnist þetta voða flott. 
---
Ef það er ekki heimska heimsins sem er að sliga mann þá eru það leiðindin. Fátt er jafn leiðinlegt og að fara í Ökuskólann og það er einmitt eitt slíkt þriggja tíma sessjón í kvöld og annað eins á morgun. Þá verð ég bara hálfnaður í þessum ökuskóla. 
---
En helvítis væl er þetta. Maður ætti kannski að athuga þessa ruslpósta um geðlyfin.
---
Nei andskotinn hafiða.

21.03.03
Karlar við skrifborð einhvers staðar halda áfram að sprengja skítuga og svanga araba. Við búum í yndislegum heimi og erum dýrategund sem aðrar geta litið upp til fyrir visku. Sérstaklega má líta upp til þeirra Davíðs og Halldórs og það er geðveiki að kjósa þá ekki í komandi kosningum. 

20.03.03
Stríð og rigning. Og ég í algeru nennuleysi.

18.03.03
Zombie á morgun kl. 07 í rosalegu formi. Egill Helgason í "tell all" viðtali, Helgi Seljan í "tell all" viðtali og ég veit ekki hvað! Er að fara í fyrsta tímann í Ökuskólanum og hef byggt upp stuð til að tjilla með 16 ára krökkum í 3 tíma í skúr í MS. Það er naumast að þessi flensa ætlar að doka í mér og má fullyrða að það totti sveran. 

16.03.03
Nei það verður enginn Zombie á morgun af því ég er veikur aumingi. Só sorrí. 

15.03.03
Hef legið með hita og kvef og svitnað og hóstað og brutt beiskan brjóstsykur. Það er nú kannski ekki það skemmtilegasta sem hægt er að gera. Fréttablaðið er með þetta hassdrasl á heilanum og auglýsir Zombie daglega, síðast með einhverju bjánslúðri um að Móri hafi ekki viljað mæta í þáttinn út af þessu hassmolastönti. Já já, whatever. Björk ætlar að mæta í Zombie á mánudaginn og því um að gera að tjúna á 97.7. 15:30

12.03.03
Ég er alltaf að drepast úr syfju enda að vakna kl. 5:30. Gefa hass-plottið tókst vel og fullt af ókeypis auglýsingum eins og að var stefnt. Auðvitað áttum við ekkert hass til að gefa og ég held að þeir sem hringdu inn hafi alveg vitað það, ef ekki fóru þeir bara í fýluferð. Fíknó kom og tók skýrslu. Í fyrramálið fáum við mann frá Fíknó sem skammar okkur og við röflum eitthvað við hann um íslenska dópheiminn og eitthvað svona. Jæja góða nótt. 21:30

11.03.03
Cannabis liðið svaf yfir sig en mætti svo til Gnarrs. Er það auðvitað komið í bann í Zombie í kjölfarið enda eintómir ræflar sem nenna að hassa sig daginn út og inn hvort eð er. Zombie ætlar þó að gefa tvo "búta" af úrvals skúnk í fyrramálið og er um að gera að hanga á línunni. Einnig meðal efnis er maður sem var í Afríku og hljómsveitin Hell is for Heroes sem á lag á hinum geysivinæla pleilista Xins.
---
Fór í 4ða ökutímann og tók m.a. af stað í brekku. Bakkaði út úr stæði og slapp naumlega við að "tjóna" aðsvífandi bíl. Þetta er algjör geðveiki að keyra hér innan um öll gamalmennin, geðsjúklingana og krakka að koma úr skólanum en ég held áfram að fullnema mig í ökulist enda nauðsynlegt áður en maður fer í 3 mánaða ferð um Ástralíu (ca. 2007). Ekki lætur maður sína yndælu Lufsu sjá um allan þann akstur.
---
"Geta menn ekki haft langanir án þess að vera að nýta sér neyð stúlkna sem seldar eru mansali?" spyr Ingibjörg í gestabók og auðvitað er svarið við því já. En eðlilslega er sama karllæga og dýrslega gyrnd að baki og á það var ég að reyna að benda þótt þetta hafi komið eitthvað vitlaust út úr mér. Eða hvað? Ekki væri um mannsalsvandamál að ræða ef mannkynið gengi hér um alveg greddulaust og fjölgaði sér með ljóstillífun.
---
Í hinum slappa Jules Vernes þætti í gær var það viðrað að etv hefðu nokkrar siðmenningar mannkyns risið og fallið áður en okkar tók til við að tvista hér í guðsvolæði. Mannkynssagan eins og við þekkjum hana er því etv bara brot af heildarpakka þessa homo sapiens aumingja. Ekki það að litlu krökkunum í Írak sem Bush langar að drepa sé ekki alveg sama. Eða litlu krökkunum sem Saddam er búinn að drepa. Eða mér. 19:00

10.03.03
Nuddgesturinn var blygðunarlaus og játti því möglunarlaust að nuddmeyjar hans rúnkuðu kúnnum í lok erótíska nuddsins. 15þús kall er frekar mikið fyrir þetta en hér færðu samt tækifæri áður en Kolbrún kemur nýja frumvarpinu í gegn. Næst á mælendaskrá Zombie (í fyrramálið) eru þau Tinna og Magnús frá cannab.is og verður eflaust fengið sér í eina feita í beinni. Ég er annars djöfull syfjaður enda nýtt að vakna kl. 5:30. Held ég leggi mig bara þó ég vildi faktískt sjá þáttinn um Verne. 19:50

09.03.03
Þrír ökutímar að baki og ég enn sprelllifandi. Ég keyrði m.a.s. að allt að 80 km/kl hraða í gær og brunaði án teljandi stóróhappa upp í Hafnarfjörð (og aftur til baka). Þetta er stórkostlegt og mun einfaldara en ég átti von á. Nú stefni ég ótrauður á að gerast bíladellukarl enda hefur heimilið komið sér upp nýjum bíl, Toyota Corrolla, samskonar tegund og þorri landsmanna á. Það er sérdeilis ánægjulegt að vera kominn með bílalán á herðarnar, enda gera afborganir manni ekkert nema gott og koma manni niðrá jörðina og gefa manni öryggistilfinningu. Maður er semsé að þessu til að borga upp lán. Það er tilgangur manns hér á jörðu á. Þegar maður hefur engin lán til að borga upp er maður greinilega orðinn gamall og þá er stutt í gröfina. 
---
Mér fannst fyrsti ZOMBIE-inn fínn og svo verður þetta bara betra og betra. Við höfum lænað upp fínum þætti á morgun, m.a. viðtali við íslenskan hórumangara, eða kannski nuddstofueiganda, eins og hann vill örugglega frekar láta kalla sig. Ég hef oftast verið frekar pornógrafískur í hugsun og verið fylgjandi frjálsræði í þessum bransa, en svo fór ég á hina frábæru Lilya 4-ever og það er ekki laust við það að ég sé orðinn vinstri-grænn í kjölfarið og helst á því að gelda sjálfan mig til að losna úr vítahring erótískra langana. 12:22

06.03.03
Jæja þá erða fyrsti í ZOMBIE kl. 7 í fyrramálið og á X-inu 97.7. Já þú lest þetta rétt, Radíó-X á að hætta og X-ið að taka við aftur á gömlu tíðninni, 97.7. Mikið stuð. ZOMBIE verður í svaka stuði með Davíð Oddsson og Hrein Loftsson í sprengiviðtali kl. 8 ha? Tja... Vúúúdúú! 21:01

04.03.03
Bónussvínið er bleikt það er alveg rétt. Að öðru leiti hafa ræður gesta í innanpíkunni gengið út á hina ömurlega pleilista og er það vel. Margir virðast þó misskilja þetta og halda að ég sé nýji tónlistarstjórinn á Radíó X. Þetta er ekki rétt, tónlistarstjórinn er Frosti í Mínus. Samkvæmt venju er morgunþátturinn ekki undanskilinn pleilista og því er mitt verksvið að tala og vera hress á milli laga. Ef mér verður einhvern tímann boðin staða tónlistarstjóra megið þið böggast í mér eins og ykkur listir en núna er Frosti maðurinn. Ég hef þó fullan hug á að reyna frelsis-þanþol mitt í þættinum og pota einhverju framhjá mötuninni. Sköft eru til að færa sig upp á. 
---
Ég er þrjátíu og sjö ára karlpungur en hef aldrei lært á bíl en nú hef ég látið undan þrýstingi og fer eftir 10 mínútur í fyrsta ökutíma minn á ævinni. Að sjálfssögðu er ég að kálast úr stressi og ef þetta verða mín hinstu orð vil ég bara segja: Ég elska ykkur öll og þá sérstaklega Lufsuna, fjölskyldu mína og vini. 17:50
 

03.03.03 (Hei... flott dagsetning)
Góð mússikk og flott röfl. Er það ekki kúl blanda sem hressir mannskapinn? Virðulegir gestir verða að athuga að við sem viljum ferska og töff mússikk og erum tilbúin að umbera Bítlana og Donnu Summer við hliðina á Link Wray, Butthole Surfers og Serge Gainsbourg erum minnihlutahópur og til lengdar verða ekki seldar auglýsingar út á svona frík eins og oss. Lýðurinn vill fast land undir löppunum í mússikkinni, gott táfýlurokk og lög sem það hefur heyrt áður. Það má ekki fæla bolinn, þið glöðu ferskleikaboltar hljótið að skilja það.
En svona svona. Róm var ekki byggð á einum degi. Á ísmegilegan hátt mun Zombie á lævísan hátt taka rokkið í nýjar áttir ef ekki víddir. Bíðiði bara...
---
Er Davíð Oddsson geðveikur? Eru "Bónus-feðgar" mafíósar? Heldur þú með bláu höndinni eða gula svíninu? Djöfull er ég þreyttur á þessu liði. En þetta er voða gaman ef maður nennir að velta sér upp úr þessu liði eins og einhverskonar undirgefinn höfðingjasleikja. Þetta eru náttúrlega glaðir og ríkir móngólítar í góðu stuði og liðið sem heldur um taumana. Það eina sem við getum gert er að kjósa rétt á 4 ára fresti. Til hamingju með það. 17:55

01.03.03
Í næsta húsi hefur hundhelvíti gelt viðþolslaust af geðveiki í allan dag. Þetta er ógeðslegt áreiti og ef ég ætti byssu myndi ég hreinlega fara yfir og skjótann. Nei ég segi svona. Þetta leiðir hugann að tveim morðingjum. Frægur er Sonur Sams sem drap og drap eitt sumarið og kenndi geltandi hundhelvíti í næsta húsi um. Ég skil manninn vel. Málinu var gerð léleg skil í mynd e. blökkumann sem ég nenni ekki að fletta upp í imdb hvað heitir, en ég á að muna það. Svo erða gamalt karlgrey sem drap geltandi kjölturakka í íslenskri blokk um árið. Allir vorkenndu hundhelvítinu og kerlingunni sem átti hann og farin var blysför að heimili hins látna hunds. Gamli maðurinn fékk hins vegar enga samúð og var stimplaður geðveikur morðingi þó hann væri einungis að bregðast við óþolandi áreiti. Hann hafði kvartað hægversklega nokkrum sinnum og fengið bann á hundinn í blokkinni en allt kom fyrir ekki og elskulegur gamli maðurinn snappaði á endanum. Þetta er mjög skiljanlegt enda sígjammandi hundar það versta sem hægt er að hafa nálægt sér.
---
Hef stillt á hina nýju stöð "múzik" og er í skýjunum með að nú séu tvær stöðvar með samskonar pleilista. Þetta er mikið framfaraspor og gífurlega stórfenglegt. Eins og allir vita eru útvarpshlustendur hálfvitar og geta einungis meðtekið lög sem hljóma öll svipuð á sömu tíðni. Ef annars konar mússikk myndi heyrast er hætta á að hausar útvarpshlustenda myndu springa úr sjokki, eða það sem verra er; að þeir skiptu um stöð. Eins og allir vita mega lögin sem eru öll eins einungis vera um 50 talsins á hverri stöð og það á að rúlla þeim ótt og títt, helst í sömu röð á hverjum degi. Þetta pleilistasýstem hefur verið fullreynt í útlöndum og byggir á þeirri alþekktu staðreynd að fólk er fífl. Þetta hefur reynst vel á Íslandi á sama hátt og í Amerikkku, en þaðan barst pleilistamenningin til Íslands með tilkomu fv. eigenda "Aðalstöðvarinnar". Áður en þeir Kanar komu sem frelsandi englar og sýndu öðrum íslenskum útvarpsstöðvum hvernig útvarp er rekið í alvörunni, fékk útvarpsfólk að spila það sem því langaði til. Það segir sig sjálft að slík geðveiki var á góðri leið með að drepa íslenskt útvarp og gera hlustendur að slefandi hælismat. Húrra fyrir pleilistunum!
---
Elskulegir gestir binda vonir við að ég hafi eitthvað að segja um mússikkina sem spiluð verður í útvarpsþættinum Zombie (7. mars). Ég veit það ekki. Allur er ég að vilja gerður og mun ota mínum tota, en hitt zombíið og Frosti í Mínus (tónlistarstjórinn) eru þarna miklu meiri karlar í brú en ég. Ég er nýji gaurinn og læt ekki reka mig fyrir uppvöðslusemi á fyrsta degi. Það hlýtur líka eitthvað fólk að hafa gaman að nú-metali, handboltarokki og tyggjópönki og helst að vilja heyra sama draslið daginn út og inn fyrst þetta er svona. Er það ekki málið? Ég og gestir erum bara einhver frík sem fáum aldrei þá drauma útvarpsstöð sem við viljum af því í þessum bransa sem og öðrum er alltaf verið að höfða til einhvers ímyndaðs "fjölda"? Hmmm? Svo er líka líklegt að lagarstaðan í Skífunni hafi eitthvað að gera með lagavalið og ekkert svo sem óeðlilegt við það. 18:21

28.02.03
Kommon! Hvaða þurrkuntu íslenskufræðingatuð er þetta í háttvirtum gestum Innanpíku? Það sjá allir að hið lipra zom-bí er mun þjálla en hið stirðbusalega Upp-vakn-ing-ar og þar að auki mun meira kúl. Mér finnst alveg fínt að tölva heitir tölva en ekki kompjúter eða þota þota og ekki djett, en ég áskil mér rétt til að hlaupa ekki með þessa íslenskugeðveiki út í algjörar öfgar. Svo það verður Zombie og fáiði ykkur Snickers. 09:30

27.02.03

Jú. Það er lágmark að ég sé fyrstur með fréttirnar sjálfur, en ekki blöðin í fyrramálið. Zombie er nýr morgunþáttur sem ég og Sigurjón Kjartansson sjáum um á Radíó X frá kl. 7 til 10 alla virka daga. Fyrsti þátturinn er eftir viku, föstudaginn 7. mars. Organdi góður þáttur, ætla ég að vona, annars kála ég mér! Nei nei. Nei í alvöru: Drullu góður þáttur! Þetta þýðir að Alætan í kvöld er sú síðasta. Það gengur víst ekki að hafa þætti á mörgum stöðum, mönnum er illa við það. Ég fæ þó alveg að vera með Popppunkt part II í haust. Kannski verður einhver búinn að kaupa einhvern þannig að það skipti ekki máli, ha? Ekki eins og mér sé ekki sama hver á hvað. 
---
Heyrði í Dale Canigale manni á Rás 2 í gær. Hann var að spyrja dagskrárgerðarfólkið hvað það ætlaði að gera eftir 25 ár og það var með einhver plön sem Dale Carnigale-mennska átti að stuðla að. Afhverju ekki að líta lengra og spyrja: Hvað sérðu þig vera að gera eftir 200 ár? Það vantar alla framsýni í þetta Dale Carnigale lið.
---
Sigurjón tók mig undir verndarvæng sinn og sýndi mér innviði hins ógnvekjandi Norðurljósabatterís áðan. Maður er þarna eins og krækiber í helvíti innan um gamla diskóbolta úr Hollywood og FM-hnakka, en þetta eru tvær hliðar á sama pening, aðeins aðskyldir með 20 árum eða svo. Svo er maður búinn að móðga þetta lið í bak og fyrir í gegnum tíðina og því ljóst að róðurinn verður þyrnum stráður. Popp-tíví gaurar á hverju horni sem ég skrifaði illa um hér í blogginu, Einar Ágúst í Skítamóral sem ég gagnrýndi í spað um árið og Ívar Guðmundsson sem ég kallaði uber-hnakka Íslands í blaði – svo maður nefni aðeins toppinn á ísjakanum. Maður dregur auðvitað allt í land og ég stefni á að vera kominn með aflitaða hárkollu innan árs. Nei nei, ég læðist með veggjum og forðast augnaráð meistaranna. 16:50
---
Sælt veri fólkið,
Hinn sívinsæli útvarpsþáttur ALÆTAN verður í metnaðarfyllri kantinum í kvöld. Allur þátturinn verður helgaður finnskri tónlist og hún ólgar úr hátölurum á miklu blasti. Hin frábæra finnska sveit CLEANING WOMAN verður allt í öllu í Reykjavík um helgina, spilar á föstud og laugardagskvöld í Iðnó og opnar VETRARHÁTÍÐINA í Ráðhúsinu í kvöld kl. 20:00. CLEANING WOMAN er einmitt útgefin af mínu fyrrverandi útgáfufyrirtæki Bad Vugum, eða BV2 eins og það heitir núna. Til landsins er kominn Kari nokkur Heikonen, sem er einmitt aðalgaurinn í BV2 og hann verður hjá mér í Alætunni  og hjálpar mér að kynna finnska stöffið sem hann kemur með að stórum hluta. 
Sum sé eintóm finnsk gleði í ALÆTUNNI í kvöld og það verður stórfenglegt! (Rás 2 kl. 22:10 - 00:00) 10:12

26.02.03
Z------------0-------------------M------------------------------------B----------------I---------------------E
---
Ég vil nú helst ekki missa af The Office!
---
Birgir fór á fyllirí á Gran Canari og er alveg í steik. Vinsamlegast sýnið honum stuðning í verki og heimsækið hans fínu síðu, en í guðana bænum ekki reyna að ljúga því að honum að guð sé til.
---
Fór á Nóa albinóa sem er fín alveg. Ég er jákvæður. Svona túristamynd sem gerir að því skóna að fólk á Íslandi sé svona skondið á létt furðulegan hátt, sbr. myndir Friðriks Þórs. Mun örugglega bæta ferðamannastrauminn og gott að hafa Sigríði Níelsdóttir í sándtrakkinu. (nánari gagnrýni má finna á menningarsíðunni) 21:50
---
Það er hreinlega allt að verða vitlaust. ZOMBIE er nýja vinnan sem ég byrja í föstudaginn 7. mars. Ég get ekki sagt hvað ZOMBIE er að svo stöddu. 10:54

24.02.03
Fór á ömurlega mynd sem er tilnefnd til 10 Óskarsverðlauna. Laugarásbíó má þó eiga það að þar hafa ruggustólar dauðans ekki fests sig í sessi ennþá. 
---
Vilko vöflur eru þrumugóðar. Var þetta einróma niðurstaða gesta.
---
Sá nýjustu kvikmynd Woody Allens og sofnaði. Hann er búinn að missaða. 
---
Ahhhh sól í heiði. Helvítis rigning á undanhaldi!

21.02.03
Sá fína mynd um karlgarm í Regnboganum. Er hins vegar lemstraður eftir sýninguna enda var boðið upp á ruggustól. Er ég eini maðurinn sem finnst þessir stólar óþægilegir? Djöfulsins krapp. 
---
Siggi í Stilluppsteypu sendi mér dót af heimasíðu David Lynch. "Rabbits" er nú einum of hægt fyrir minn smekk en "Dumbland" er skondið. Lynch er einskonar snillingur. Mætti samt gera fleiri myndir sem meika sens. Það er einum of auðvelt að meika ekki sens.

SÁTTASEMJARINN

Kona og maður í auðu herbergi. Á borði er lampi.
þögn í 30 sekúndur.
Kona: Mér líður illa. Ég held ég sé veik.
þögn í 30 sekúndur.
Maður (snýr sér að konu): Káetunni sagði ég, KÁETUNNI!!!
(peran í lampanum springur með háværum hvelli)
þögn í 10 sekúndur.
Kona: Ég hef misst þrjú fóstur. Ég get ekki átt barn.
(reykur gýs upp í einu horninu)
Kona: Ekkert er mér óviðkomandi. 
Maður (snýr sér að konu): Helvítis tíkin þín. (kyrkir hana:) Afhverju er sag á gólfinu. AFHVERJU!!!
Dvergur birtist. Heldur á vasaljósi. Kona og maður horfa agndofa á hann. Dvergur lýsir vasaljósinu framan í sig.
Dvergur: Ég er sáttasemjarinn. Ekkert er mér óviðkomandi. Sagið er úr káetunni.

endir. 23:59

20.02.03
Minni bara á Alætuna á Rás 2 í kvöld. Strákarnir í Ampop velja óskalögin + leikin lög af plötum: Meira með Cleaning Woman, finnsku fríksveitinni sem verður hérna um þarnæstu helgi, lag af nýju White Stripes og svo bara jafn ólíkt og þýska gríngrindkorsveitin Excrementory Grindfuckers og Israel Kamakawiwo’ole, 200 kílóa tenórsöngvari frá Hawai'i sem lést árið 1997. Ofsa stuð. 14:55 

19.02.03
Hef fílað mig mikilvægan í dag, sem er undursamleg tilfinning. Bæði Hallgr. Torsteinsson og blaðakona af Mbl hringdu í mig til að nota mig sem svokallaðan álitsgjafa. Hallgr notaði mig í bút af þættinum sínum á Sögu, lagði út frá tónlistarnöldrinu hér og í Innanpíku. Mbl-blm. var að skrifa (enn eina) greinina um blogg og vildi að ég segði eitthvað markvert. Efast um að eitthvað hafi komið út úr mér af viti. Fékk líka einskonar tilboð um söngleik upp úr Abbababb, að ógleymdu tilboði sem ég gat ekki hafnað á mánudaginn, en um það tilboð get ég ekkert talað að svo stöddu. En það mun allt skýrast á næstu vikum.
---
Í raunheimum fauk fellibylur í fang mér við ÁTVR, Austurstræti. Andlega skertur meistari (sem ég sá einu sinni í sundlaug og líkti við Damon Albarn) var í leikfiminni og lék á alls oddi. Það er merkilegt að hann flautar alltaf upp úr þurru þegar minnst varir og minnir að því leitinu á einn Marx-bróðurinn, þann heyrarlausa að ég tel. Kanar eru alveg gaga yfir Marx-bræðrum, svo og Three Stooges, en hvorugt hef ég fattað og hvorugt hefur vakið mikla lukku annars staðar en í USA. Ég man þó eftir Marx-bræðra mynd sem sýnd var í Kópavogsbíói. Man reyndar ekkert nema eftir atriðinu með sígerettuauglýsingunni.
---
Það voru annars bara ljótar kellingar í leikfiminni og æfingar því ekki markvissar. Maður lippast allur niður ef gráhærðar kerlingar um sextugt eru sitthvoru meginn við mann í einhverjum bleikum latexgöllum, en séu ávalar gellur á svæðinu má búast við metárangri. Reyndi að hlusta á Steríó en kynnirinn var einum of þroskaheftur fyrir minn snúð. FM var ekki skárra að þessu sinni. Kannski er ég loksins búinn að heyra öll lögin á pleilista þeirrar stöðvar. Ég meinaða, hver nennir þessum pleilistum? Eins og allir séu svona miklir fávitar að geta bara heyrt sömu lögin aftur og aftur? Rás 2 (sem ein stöðva er ekki með alveldi pleilista) er ekki sérlega vel fallin til leikfimi eftir hádegi, alltof mikið af rólegum lögum, Eyvör Pálsdóttir og Neil Young og eitthvað svona. Maður pumpar ekki mikið við svoleiðis gufurokk.
---
Hef lokið dánlódi á nýju White Stripes plötunni ELEPHANT en útgáfufyrirtækið reyndi allt til að stöðva ólöglega útbreiðslu. Sendi plötuna t.d. bara út til gagnrýnenda á vinýl. Ég held að þannig aðgerðir komi alltaf í andlitið á útgáfunum, að bútleggarar hreinlega leggi allt í sölurnar til að hefna. Platan er annars fín. 17:27 

18.02.03
Gríðarlegar umræður hafa átt sér stað um tónlist á gestabók unga fólksins, Innanpíkunni. "Tannstöngull Ó" kom með verðugt innlegg og segir beisiklí að allt totti bigg tæm í mússikk í dag. Undir þetta má taka, eins og flest sem kemur úr Fossvogskirkjugarði. Svarið í tilfelli Tannstönguls er vitanlega að snúa sér að gamalli músik og fara að hlusta á tónlist sem var vinsæl "í gamla daga", t.d. á tímabilinu 1920 - 1960, þ.e.a.s. áður en rokkið kom fram, eða um það bil sem það var að taka yfir. Við erum eiginlega enn að veltast um í gömlum rokkfrösum og þó það sé auðvitað sorgleg staðreynd þá er rokkið dautt fyrir löngu (þó það geti alveg verið skemmtilegt samt). Finnist mönnum allt leiðinlegt og dauðhreinsað þá er um að gera að byrja að þefa uppi eldri mússikk, helst eitthvað sem tekið hefur verið af 78snúninga plötum – eða bara hlusta á þær plötur sjálfur. Gaman að trekkja upp grammófóninn og svona. Þar er nóg af geðþekku rispi og snarki og raddir fortíðar eru eins og úr öðrum heimi. Ég er auðvitað að tala út um rassinn á mér eins og vanalega, en ég er að vona að mússikkin þróist í þessa átt. Að fólk fái bara leið á nútíma sándinu og snúi sér að ellismellum. Ýmsar gerðir popplaga eru frá þessu tímabili; kolsvartur blús, harmóníkumússikk, sönglög etc. etc., en ég er í sjálfu sér á fyrsti stigi uppgötvanna og algjörlega grænn í þessari deild. Get þó mælt með nokkrum lögum sem fólk ætti að athuga. T.d.:

Skip James - Devil got my woman
The Three Suns - Peg O' my heart
Gene Austin - Yes Sir, She's my baby
Wendall Hall - It Aint Gonna Rain No Mo
Martin Denny - Quiet Village

Þetta má finna í dánlódum hér og þar á góðum degi. Ef einhver gamalmennapoppsspekingur er að lesa þetta má hann endilega senda ábendingar um skemmtileg lög og flytjendur í innanpíkunni. Semsagt ekki gefast upp þótt allt totti og sé marflatt og dautt: Fortíðin er núna! 20:30

17.02.03
Hér eru myndir af verulega ógnvekjandi hljómsveitum. Tsjekk it át, mar.
---
Æ æ, þungarokkssenan í Vestmannaeyjum hefur snúist af alefli gegn mér og atar mig saur í innanpíku. Það var mikið að ég fæ smá skít framan í mig á þessari gestabók. Nú get ég bráðum hætt að blogga eins og Beta og kennt því um að allir hafi verið svo vondir við mig. Ég vissi það auðvitað að best væri að þykjast hafa gaman að FM957 til að kúkabyssur Suðurlands hæfu skothríð. Nú vil ég ólmur að litlir bólugrafnir þungarokkarar haldi áfram í virðingarverðri viðleitni sinni til að hrekja mig af öldum bloggsins. Ég segi því allsgáður að það var stórfenglegt að B.Haukdal skildi taka Eurovisjón enda ein stórfenglegasta söngkona sem uppi hefur verið þar á ferðinni. Koma svo Metallica-aðdáendur! 
---
Þess ber þó að geta að Anal Cunt er eina þungarokkshljómsveitin sem stendur undir nafni. Allt annað er nánast alveg eins og Celine Dion. Djók fyrir pissudúkkur.

16.02.03
Þokkalega sorglegt þetta fólk sem eyðir tíma sínum í skák. Og nú er Hrabbi Jök að reyna með öllum mætti að gera þetta heilarúnk voða kúl. Ætli litlu krakkarnir sem hann er að æsa upp í skák viti að það bíður þeirra ekkert nema hanga á Grand Rokki, bjórvætt í vindlareyk með Kokk Kvæsir og H. Blöndal lögfræðing æpandi yfir sér í miðri Sikileyjarvörn búin að skíta og míga á sig? Skák er örugg leið til ógæfu eða geðveiki og ætti að banna. Það sést nú langar leiðir að allir þessir íslensku skákkappar eru drykkjurútar eða skapofsamenn. Ég ætla að taka sveig næst þegar ég mæti skákmanni.
---
Dyrabjallan hringdi kl. 11. Andskotans læti eru þetta, hugsaði ég. Í dyrasímanum sagðist vera maður vera að selja ljóð en ég vildi auðvitað engin ljóð heldur svefnfrið. Menn að selja ljóð er samt voðalega seventís- eða eitíslegt eitthvað og ég minni á ágætt atriði í snilldarverkinu Morðsaga þar að lútandi. 
---
Haukdal vann Eurovisjón og við það varð partíið svo fúlt að slökkt var á sjónvarpinu. Æ hvað þessi úrslit voru nú fyrirsjáanleg og kannski ekki við öðru að búast enda er Haukdal næst mesti listamaður þjóðarinnar samkvæmt könnun í Fréttablaðinu. 
---
Úr innanpíku: Þegar sólinnni bræðir út, sbr. "Sólin búin að brenna öllu sínu vetni", já já einmitt. Hressir unglingar í pízzabolum sem geta aldrei haldið kjafti, jú einmitt, spot on.
---
Ég fer yfirum ef Egill Helgason verður með unga pólitíkusa í settinu hjá sér á eftir. 12:22

15.02.03
Kominn nýr dagur sem er nú alveg stórfenglegt. Þú mátt éta skít ef þú ert eitthvað á móti því. Nennti ekki að standa á Ingólfstorgi áðan af því það er svo mikil úrkoma. Sá í sjónvarpinu að það var geðveikt mikið af liði að marsera í London. Já, takk, engin stríð, betri heim, allir glaðir. Ég get alveg lofað ykkur því að það verður ekki friðvænlegt á þessari plánetu fyrr en síðasti Homo Sapiensinn er dauður. Sorrí, tékkaðu bara á sögubókunum ef þú ert eitthvað í vafa. Samt dagljóst að Bush og Blair eru svipaðir fábjánar og Saddam, Sharon og Kim Il. Burt með þá alla saman.
---
Tými bara að kjósa Heiðu einu sinni. Síminn er 900-1013. Ef hún vinnur ætla ég rétt að vona að ég fái að fara með til Riga og spila á bassa. 17:40

14.02.03
Fór á Videóspóluna áðan og ætlaði að leigja eitthvað heilarúnkandi fyrir kvöldið. Ekkert. Ég fann ekki neitt sem ég nennti að eyða tímanum í. Fór í videó Gerplu en þar er yfirleitt eitthvað. Ekkert núna þó. Ég fann ekkert sem ég nennti að glápa á. Kannski var ég svona var um mig afþví ég er nýbúinn að sjá tvær slappar myndir, eina ömurlega, hina sæmilega. Bind vonir við að myndin Pollock sé sæmileg, en sjónvarpið er með hana í kvöld. En hvað er með þessar Disney myndir? Gerðu þeir endalausan samning upp á þessar myndir? Verða Disney myndir á föstudögum þar til sólin bráðnar? Einu sinni voru eintómar myndir sem gerðust á sveitabæ í USA og fjölluðu oftar en ekki um einstæða móður með son með hvítblæði. Sally Field var oft í aðalhlutverki. Ég veit ekki hvort er verra, það eða Disney.
---
Ég held svei mér þá að ég taki FM957 framyfir Radíó-X. Margir gætu auðvitað túlkað þetta sem einskonar guðlast, ég veit það, en ég hef komist að því að FM957 er besta stöðin þe'r maður er að hamast á einhverju bretti í ræktinni. Áðan spilaði mikilmennið Einar Ágúst t.d. lag með dönsku vinum mínum í Junior Senior og svo eru oft einhver gjörsamlega heiladauð pump-pump-pump lög sem gleðja sveitta karla í góðri brennslu. Radíóið er aftur á móti með eintómt pungsvitarokk sem dregur alltof mikið seiminn af gömlu þungarokki, en minna af pönki. Eins og allir vita er þungarokk leiðinleg drasl upp til hópa og það hefur mér alltaf fundist. Aldrei mun ég þykjast hafa gaman af Iron Maiden og Judas Priest, hvað þá Metallica, Skid Row eða Guns N Roses. Til að gæta sanngirni get ég þó alveg viðurkennt að ég fíla margt með Ac/dc, Motorhead og Aerosmith.
---
Það er samt á hreinu að helvítis þungarokkið er að meikaða feitt hjá strákum í bílskúrum landsins. Ég var í dómnefnd um daginn í hljómsveitakeppni á vegum Sánd og hlustaði á 27 bönd. 90% af því var skaðræðisþungarokk og flest ömurlegt. Það sama virðist ætla að verða upp á teningnum í Músiktilraunum, teipin streyma inn og allt eitthvað ömurlegt gítarþungarokk hef ég heyrt. Pirrandi. Enda virðast Músiktilraunir einhvern veginn ekki vera málið fyrir rafara eða rappara þó að XXXR hafi unnið um árið. Ég get þó alveg sagt ykkur að liðið í dómnefnd er mjög opið fyrir einhverju öðru en þungarokki og sigurlíkur þeirra sem sneiða hjá þeirri drepleiðinlegu mússekk eru talsverðar, ef eitthvað er varið í bandið, þ.e.a.s.
---
QOTSA og Brain Police eru þó góð bönd, bara svo það sé á hreinu.
----
Drepa Saddam. Svo karlinn í N-Kóreu. Ég held nú reyndar að hann sé hálf vangefinn. Svo Sharon. Svo Bush. Það má alltaf finna illmenni/hálfvita við stjórnvöl sem er gott mál að taka úr umferð.
---
Gettu betur. Alltof mikið af poppspurningum. Það er hneyksli hvað þeir eru að herma mikið eftir Popppunkti. Frekar leiðinlegt. Mér sýnist MR vinna. Og skemmtiatriðin maður. Á.
---
Er ég svona neikvæður eða er allt bara svona ömurlegt?
---
Ég var hreinlega stórkostlegur í Poppi og kóki áðan. Það er ágætur þáttur og verður betri ef maður myndi heyra eitthvað af því sem liðið er að segja. Lækka mússekkina sem er undir takk.
---
Hei Corky var í ER í fyrradag. Ekki það að ég horfi á það læknadrasl, ég sá gamla góða Corky bara svona útundan mér. Fleiri mongó á skjáinn takk. 10:02

13.02.03
Sá óvenjumikið af svarta manninum í gær, en það er sannarlega ánægjulegt því ekki veitir af blöndun. Sá líka þegar tveir Trabantar mættust á götu – einn hvítur, hinn gulur – og mun það sjaldgæft atvik í nútímasögunni.
---
Burt með Kidda! er gigg sem hljómsveitin Dr. Gunni leikur nokkur lög á í kvöld á Gauknum. Bassaleikari sveitarinnar er í Danmörku að kynna sér aðbúnað og mun ég því spila á bassa í kvöld. Þetta verður eitthvað skrýtið held ég, en skítt með það, Kanínan á skilið sitt kveðjuhóf.
---
Alætan verður þó á sínum stað í kvöld kl. 22:10. Gestur þáttarins er Jóhann Jóhannsson úr Daisy Hill og Apparat svo eitthvað sé nefnt, og veldur hann óskalög og spjallar um feril sinn. Þess fyrir utan dúndrast góð mússekk af fóni og má nefna að !!! og Beige heyrast, auk Cleaning Woman, sem er finnsk sveit sem spilar bráðlega á Íslandi. Einnig verður brugðið undir nálina tónlistarsköpun frá Páska- og Tongaeyjum. Páskaeyjar heita reyndar Rapa Nui og þar eru stytturnar furðulegu og bara 5000 manns. Á Tonga er konungsríki og keyrir spikfeitur kóngurinn um bæinn á sunnudögum á þríhjóli og með skíðagleraugu. Þar eru allur feitir af fiskiáti og þótti það fínt öldum saman. Síðan sjónvarp fór að nást þarna fyrir nokkrum árum hefur þó anorexía lagst á mannskapinn, enda allar fyrirmyndirnar orðnar grindhoraðar. 11:00

11.02.03
Hvaða læti eru þetta. Auðvitað eru ekki allir MR-ingar fábjánar. Það er bara aulabandalagið í kringum D.O sem hefur á sér ákveðinn MR-glampa. Voða voða. 
---
Nenni ekki að blogga neitt í bili. Soldið annað að gera. Já og svo bara slappur eitthvað. 22:09

07.02.03
Voða var gaman að sjá heima hjá Mikael Jackson í gær í þættinum. Ég er alltaf að bíða eftir slefandi kjarngóðri ævisögu um þetta stórkostlega frík, en þátturinn var alveg í áttina. Það er ekki hægt annað en að vera áhugasamur um manninn, enda hefur amerískur sjóbizz hvergi farið eins í hundana og hjá honum. Þetta er auðvitað sorgarsaga allt saman, en fortíðin skýrir nú varla alveg afhverju hann er svona mikið frík. Og auðvitað er maðurinn að ljúga þegar hann segist bara hafa farið í eina lýtaaðgerð út af nefinu á sér. Að allar hinar breytingarnar séu bara eðlilegur "þroski". Já, einmitt. En alveg er mér svo sem sama hvað fólk gerir við líkamann á sér. Þar sem hann hékk einmana á Four Seasons hótelinu í Las Vegas minnti hann óneitanlega á trilljónamæringinn Howard Hughes, sem geyspaði golunni á svítu í Vegas eftir að hafa verið að ganga smám saman af göflunum í nokkra áratugi. Howard og Mikael eru svipaðir í geggjuninni og líf þeirra ógnvænleg minnismerki um það að peningar gera þig ekki hamingjusaman. Og svo þetta með krakkana. Ég tel það frekar ólíklegt að Mikael sé eitthvað með typpið úti í nágrenni við krakkafíflin sem hanga í Neverlandi, enda má búast við að typpið á Mikael hafi lent í álíka "þroskaferli" og allt annað á honum. Ég stórefast eiginlega um að það sé eitthvað typpi eftir undir honum og mér sýnist það liggja í augum uppi að hann sé algjörlega laus við kynhvöt. Ég vildi samt allsekki að mínir krakkar væru eitthvað að hanga með honum, ef ég ætti krakka það er að segja. Ekki að ég haldi að hann væri að nudda sér eitthvað í þeim, heldur af því að heima hjá Mikael er alltof mikil geðveiki. Dvöl þarna gerði ekkert nema ala upp frekju í krökkunum. Ætli þeim fyndist ekki ómerkilegt að fara í Húsdýragarðinn eftir að hafa verið að leika með Mikael "frænda" og apana og legókubbarnir yrðu hálf slappir í samanburði við allt draslið í Aldreilandi. En þetta var fínn þáttur. Og kannski skilur maður karlgarminn aðeins betur og vorkennir honum vitaskuld óskaplega. Ég held hann muni deyja ungur. 18:00

06.02.03
Verð hjá Sigurjóni á eftir. Klukkan svona 8. Svo er Alætan í kvöld á Rás 2. Nú fýkur allt jafnrétti fjandans til því kvenmenn ráða öllu í þættinum og kvennabönd og söngkonur vella um völl. Meðal flytjenda má nefna The Donnas, Spúnk, Chicks on Speed, Pram og Peaches, en óskalagagesturinn er Heiða sem nýlega gaf út disk með spunamússikk við Bukowski-ljóð. Sveittur og kvenlegur þáttur og í guðanabænum ekki missafonum.
---
Pönkklám er það nýjasta í kláminu og pönkinu. Athyglisverð grein hér úr Seattle-blaðinu The Stranger sem virðist vera ágætt. Hér er t.d. grein um Bush og Írak og það kjaftæði allt. Nennti samt ekki að lesa það. Séu menn allir að vilja gerðir að þefa uppi þann helling sem er rotið í heiminum er alltaf hægt að komast í feitt hjá Jónasi. Hann línkar svo út og suður í greinar um allskyns gleðitíðindi eins og barnamorðingja í Kólumbíu studda af Pentagon svo eitthvað sé nefnt. George Monbiot er hress náungi eins og Jónas og skrifar svaka athyglisverðar greinar sem ég nenni ekki að lesa, en ætti auðvitað að lesa ef eitthvað vit væri í mér. Þá er nú pönkklámið skemmtilegra...
---
Gott hjá Samkeppnisráði að gramsa aðeins í Flugleiðum. Ég vona að einhver finnist með buxurnur á hælunum. 00:08

05.02.03
Ha, nú var Ingibjörg ekki í MR? Þá er nú aldeilis ástæða til að kjósa hana. Ekki það skipti mig máli hvaða ofdekruðu metnaðarbrjáluðu stjórnmálamenn þykist hafa hér taglir og höld. 13:13
---
Flugleiðir er skítafyrirtæki. Rándýrt og í einangrunaraðstöðu allan ársins hring. Þegar snilld eins og ICEXPRESSkemur á svæðið með almennileg verð verða Flugleiðir allt í einu voða góðir og lækka sig á sömu leiðum. Ég ætla rétt að vona að fólk falli ekki fyrir þessu gamla trixi. Það sama gerðist þegar Go opnaði hér fyrir nokkrum árum. Um leið og Flugleiðir höfðu drepið niður þá samkeppni ruku verðin upp í gamla okrið. Ef það er hægt að versla við einhverja aðra þá geri ég það. Allt friðelskandi og neytendavænt fólk ætti að gera það sama. 
---
Afhverju fara þessi Kanakvikyndi ekki og stúta nokkrum Aröbum til að koma efnahagnum í lag? Ég hef ekki efni á því að dollarinn sé svona lár, enda eru öll auðævi mín geymd inn á dollarareikningum og fara nú ört lækkandi. Þetta skítafyrirbæri íslenska krónan er nú alveg suddalegt rugl og ljóst að fjármálastjórnun hérlendis er eins og þrír úrskitnir mongólítar í sundi séu að sjá um þetta. Þegar ég brá mér í skemmti- og innkaupaleiðangur þurfti ég að borga 110 kall fyrir hvern dollar en einu ári síðar er dollarinn á 77 kall eða eitthvað. Þetta er geðveiki. Burt með þessa helvítis krónu!
---
Og burt með þennan helvítis Sjálfsstæðisflokk. Djöfull er ég orðinn þreyttur á þessu gamla MR-pakki sem hefur vaðið hér uppi alltof lengi nautheimskt, hrokafullt og hundleiðinlegt. Burt með þetta! Ha, var Ingibjörg líka í MR?
---
Ég er í hundfúlu skapi enda svaf ég alltof lengi.
---
Ég þekki engan Jónas sem er kynferðislega fyrrtur svo engin skörun á sér stað.
---
Sindridirindri, rólegan skæting mar, þú ert kominn í skemmtilegan hlekk.

04.02.03
Asnaðist til að horfa aðeins á þroskaheftalinginn Jay Leno í gær. Þetta prógramm hlýtur að vera í boði bandaríska hersins og var verulega subbulegt að horfa upp á þetta. Þarna góluðu Kanarnir yfir stríðsæsingi enda um að gera að koma þjóðinni á þá skoðun að það sé hreinlega nauðsynlegt að ráðast á 3-heimsþjóðir og lemja aðeins á þeim. "Þeir lömdu okkur og nú verðum við að lemja á þeim" er beisiklí hugmyndafræðin og skiptir þá engu þó aðalhrekkisvínið sé ófundið, þá er bara næsti tekinn, gott ef hann er einhver sem var vondur við pabba forsetans, eins og forsetinn sjálfur sagði svo gáfulega. Til hamingju!
---
Horfði spenntur á Eurovisjón part 1. Lagið með Heiðu náttúrlega langbest í gær, lagið með Spoon-gaurnum er nú bara Geirmundarsveifla og Hreimur með eitthvað rugl eftir Friðrik Karlsson jóga. Mér skilst að Rúnar Júl syngi besta lagi og það er í kvöld. Bíð spenntur.
---
Gestabók: Nei, Insol flutti í Kópavoginn löngu eftir að ég var fluttur í burtu og var því ekki einn af strætósnillingunum í denn. Hann kemur vafalaust sterkur inn í dag. "Mínar Mellur? Úff, Margar!" fær ekkert stig, enda stemmir það ekki einu sinni við MMÚH. 09:55

02.02.03
Vegna "fjölda" áskorana hef ég sett inn smásöguna Merkilegt nokk. 18:21
---
Einhver í húsinu keypti sér mat frá Kentucky Fried Chicken á föstudaginn. Í framhaldi af því ilmaði gangurinn af KFC-svitalykt. Lyktin æsti upp í mér löngu gleymda kjúklingafíkn og ég varð uppveðraður fyrir því að éta á mig gat á KFC. Gat vart hugsað um annað. Leið nú og beið en á laugardaginn var komið að stóru stundinni. Ég pumpaði tvöfalt í ræktinni til að eiga þetta inni og tók svo SVR í Skeifuna í snjóbyl og geðveiki. Í SVR var margt, helst útlenskt fólk eða vangefið, enda alltaf gaman í strætó. Arkaði sem leið lá frá stoppistöð og pantaði slefandi skammt #1: 2 bita, franskar, salat að viðbættri dós af kokkteil. Settist við plastborðið og hófst handa við að ryðja þessum viðbjóði í mig. Að áti loknu fékk ég ógeð á sjálfum mér og öllum kjúklingabransanum og varð hugsað með viðurstyggð til myndar sem ég setti hér upp einu sinni. Mér verður nú bara hálf flökurt við að skrifa þetta og ætla að selja upp í ruslafötu... ah, mmm. En KFC er svona matur sem fer algjöran hring; fyrst er maður slefandi í þetta en svo gæti maður ælt. Það kom á óvart að þarna voru foreldrar með varla meira en 1 árs gamla krakka sem voru látnir éta þetta drasl. Ekki held ég að það sé nú uppbyggilegt.
---
Við mig hefur verið tekið viðtal hjá músiknetmiðli í Litháen. Er ég þarna að tjá mig eitthvað um íslenska mússikk og svona. Aldrei hef ég komið til Litháen en bæði spilað í Eistlandi og Lettlandi. Er á því að Eistrasaltslöndin séu frábær. Það var frábært að koma þarna í fyrsta skipti. Maður er búinn að fara víða en það er eiginlega allt eins hvert sem maður fer. Allstaðar sama djúnkfúddið og sami vestræni blærinn á öllu. Á fyrstu klukkustundinni í Tallinn fann maður að maður var kominn í nýtt umhverfi. Fórum á einhverja litla matbúllu og fengum stórfenglega súpu á innan við fimmtíu kall. Fórum svo eiginlega beint til Riga höfuðborgar Lettlands. Þarna á milli er ekki lengra en svona til Vík í Mýrdal en samt tala Eistar og Lettar tvö ólík tungumál og skilja ekki hvors annars, þurfa að tala ensku þegar þeir hittast. 
Hittum hljómsveitina Sirke frá Lettlandi. Fjórir hressir krakkar. Hittum þau þar sem þau voru að taka upp í fáránlega stúdíói innan í risastórum vatnstanki. Klósettið þar var það subbulegasta sem um getur í sögu heimsins. Spiluðum ágætis gigg í einhverri búllu. Komu auðvitað nokkrir Íslendingar að sjá okkur, einhverjir karlar sem voru þarna á vegum Eimskip. Keyrðum í myrkrinu eftir gigg heim til eins úr Sirke sem skaut skjólshúsi yfir okkur. Keyrðum lengi en sáum ekkert út um gluggana annað en myrkur. Komum að blokk og fórum upp stiga. Vistarverur ágætar, en allt í rússneskum stíl þarna inni og lykt af soðnu káli í loftinu. Heimilislegt. Sváfum. Vaknaði við dáleiðandi tóna og leit út um gluggann. Varð fyrir mikilli andlegri upplifun af þessari blöndu, lettnesku döbbhljómsveitinni Latvijas Gaaze sem Sirke-krakkarnir voru að spila og því sem ég sá út um gluggann. Blokkin sem við vorum í var í miðju blokkarhverfi, frá gullaldartíma sovét-geðveikinnar. Ég sver það: Það voru ekkert annað en nákvæmlega eins blokkir eins langt og augað eygði. Ég fann strax hvers konar ömurleika hér væri hægt að rækt upp í sér, hvílíkur grámi og geðveiki! 
Á horninu var sjoppa en lítið til nema klámblöð, súkkulaði og sígarettur – svo sem ekki verri nauðþurftir en hvað annað. Allt á fimm kall eða tíkall. Þetta eru verstu sígarettur sem ég hef smakkað og ég þarf hreinlega að spúa í ruslafötuna við tilhugsunina... ah, mmm. 
Næst var spilað í bænum Pärnu í Eistlandi. Á hardkor klúbbi sem einhverntímann hafði verið vopnageymsla hjá Sovétríkjunum eða eitthvað í þá veruna. Allt var málað í þannig stíl ennþá, engu breytt sem sé. Fengum lánaða magnara sem voru líklega smíðaðir upp úr traktorum, algjörir massahlunkar með sovétrísku pönksándi. Um upphitun sá vinsælasta pönkhljómsveit Eistlands, BLIND, og gengu áhorfendur af göflunum við það pönk. Þeir voru að kynna plötuna sína "Wife for sale". Svo kom Unun og mætti miklu fálæti ef mig minnir rétt. Ég talaði við söngvara Blind baksviðs en hann hafði verið krakki á þeim tíma þegar Sovétríkin stjórnuðu þessum löndum – áður en Jón Baldvin bjargaði þessu þ.e.a.s. (Talandi um það þá var öllum alveg sama þó við værum frá Íslandi – fólk gekk ekki af göflunum af gleði og þakklæti þegar það vissi af þjóðerni okkur, öfugt við það sem manni hefur verið talin trú um að myndi gerast). Blind-söngvarinn, Urmas Voolpriit, var á trúnó bakksteits og sagði að þegar Sovét stjórnuðu hafi aldrei verið hægt að kaupa banana. Sagðist Urmas hafa mælt frelsið með því hvenær yrði hægt að kaupa banana, þ.e.a.s. þegar hann gæti étið banana væri hann orðinn frjáls maður. Samkvæmt því er hann orðinn frjáls.
---
En aftur að þessu viðtali. Blaðamaður spurði nokkurra skrýtinni spurninga sem erfitt var að svara, t.d. hvað væri breytt á Íslandi frá 1986. Ég sagði að núna gæti maður keypt meira en þá, t.d. fleiri tegundir súkkulaðis en bara Prins Póló, en að öðru leiti væri þetta svipað. Svo spurði hann líka afhverju Múm og Sigur Rós spiluðu svona melankólíska mússik komandi frá svona ríku þjóðfélagi og við því átti ég auðvitað ekkert svar. Hann spurði líka hver væri vinsælasti drykkur unga fólksins á Íslandi og við því er að sjálfssögðu bara svarið Kóka kóla. Frekar sorglegt. Ætli hann hafi ekki viljað fá "Hrútspungasafi" frekar.
---
Hmm. Reynir furðulegi? Jú það hljómar sennilega. Er hann nokkuð að keyra leigubíl í dag? "Þú ást Geirfinn!" – góður. Meira hvað Kópavogur er þakinn af furðufólki. Biggivar t.d. að rifja upp ævintýri af því að ferðast í Kópavogsstrætó með túrettsjúklingnum Axeli Bang og er þetta lífsreynsla sem mér er í fersku minni. Maður gat gengið að því vísu að hitta fyrir furðufugla í Kópavogsstrætó, ef ekki Axel, þá Sæma, Valla, Helga "Slef", Hauk "Halló" að ógleymdum konungnum sjálfum, Hr. Stefáni Grímssyni.
---
Talandi um furðufugla í strætó þá sá ég hlaupandi manninn með síða skeggið þegar ég fór heim eftir KFC-orgíuna. Hann er búinn að stytta skeggið all verulega enda skilst mér að sídd þess hafi verið farin að hamla honum í hreyfingum. 
---
Fór á frönsku viðbjóðsmyndina í gær. Man enn eftir hausnum á karlinum sem var maskaður með slökkvitæki. Ekki mynd fyrir viðkvæma. 12:12

01.02.03
Horfði með öðru á endursýnd Radíó-X verðlaun og Björk (voðalega er hún orðin hrum en samt létt í anda að vanda). Vona að lagavalið á Radíó-X muni taka aðeins meira mið af þessari verðlaunaafhendingu, þ.e.a.s. að byrjað verði að spila meira af rappi og elektróník. Er sannast sagna löngu búinn að koxa endanlega á þessu táfýlurokki sem streymir endalaust fram en best væri auðvittað að leggja af playlistann, enda fátt eins heilalaust og playlistar. Nú er Stjáni Stuð sem er tvímælalaust besti dj-inn og annar snillingur með honum. Veit ekki hvort það sé jákvætt, maður fær eiginlega óverdós af snilldinni.
---
Gestir steypa áfram í góðu glensi um huxanlega merkingu MMÚH: Minningar Mínar úr Hverfinu, Mundu Munnmökin Úldna Hóra, Menn Mjálma Úúúúú Hei!, Með mömmu úr Hafnarfirði, Með magasár úr helvíti, Martröð með útlenskum hálfvitum og Moldvarpa med útstædar hredjar. Þess má geta að ein af þessum ágiskunum er nálægt lagi og fær tvö stig af fjórum mögulegum.
---
Í Kópavogi, á göngustíg neðan við fótboltavöllinn hjá Kópavogsskóla, var stundum strákur sem átti heima í húsalengjunni þarna hjá Torfa rakara, eða hvað hann heitir. Það brást ekki að þegar ég og Guðmundur Hannes (áður í Bootlegs) vorum á rölti þarna kom hann skellihlæjandi að okkur og sagði alltaf það sama: "Þykir Nonna gaman að rokklögum?" Hann sagði þetta alltaf þannig að það lægi í augum uppi um hvað hann var að tala, en við Hannes skildum þetta aldrei. Þetta hefur valdið mér miklu hugarangri alla tíð (eða þannig). Hefur einhver svör á reiðum höndum? Hvaða Nonna á að þykja svona gaman af rokklögum?
---
Mér skilst að rapparinn Móri hafi verið að hita upp fyrir Sesar A á Grandrokki einhvern tímann fyrir jól. Umboðsmaðurinn hans var í fámenninu og er víst einhver æstur hnakkagaur. Á mixernum var einhver grindhoruð rola og gerði sitt besta. Greinilega slappur mixermaður því það fór að væla í mæknum hjá Móranum. Hann varð alveg brjálaður, öskraði: "Ef það hættir ekki að væla í mæknum verðurðu drepinn!" Mixer-rolan alveg í keng en það vældi bara meira og meira þar til rapparinn missti sig og æddi út í sal með umbann jafn kreisí á hælunum. Mixermaðurinn hljóp á bakvið en var víst tekinn í gegn úti á plani. Þetta eru sögurnar sem ganga og aldeilis gott að Móri sé að standa undir nafni sem harðasti glæparappi landsins. Pant ekki vera á mixernum!
---
Svitna í Pöls takk já úti hríð ha? leikur í sjónvarpinu núna éttu skít aumingjar geta ekki neitt. Nei. (Stílæfing) 13:18

JANÚAR 2003