Geislaplötur með Insol:
Plöturnar fást hjá Smekkleysu, Havarí eða hjá listamanninum sjálfum. INSOL á FACEBOOK.


1. Insol
Útgáfudagur 3. desember 1998. Útgefandi Framtíð. Hljóðritað í Fellahelli með Adam Wright.
Á fyrstu sólóplötu sinni flytur Insol ellefu lög eftir goðið sitt, Bob Dylan, og eitt Bítlalag að auki, She loves you. Alls tólf lög. 


2. Hið mikla samband
Útgáfudagur 22. desember 1999. Útgefandi Framtíð. Hljóðritað í September með Hafþóri Guðmundssyni.
Strax á annarri sólóplötu sinni demdi Insol frumsömdum lögum yfir grunlausa hlustendur. Á þessari plötu er Insol í miklum Nýals-gír og undir sterkum áhrifum frá Dr. Helga Pjeturss. Fyrsta lagið á plötunni er poppsmellurinn Hvenær mun hér á Íslandi rísa stjörnusambandsstöð? Alls tíu lög.


3. Blóm, friður og ást
Útgáfudagur 8. desember 2000. Útgefandi Framtíð. Hljóðritað í Stelpu.
Insol í náttúruverndarlegum fílingi. Hann leikur á kassagítar og munnhörpu auk þess að syngja. Meðal laga eru Visthrun, Haltu áfram að trúa á tæknina og hið magnaða titillag. Alls tíu lög.


4a. Jafnréttið er eina svarið
Útgáfudagur 3. desember 2001. Útgefandi Framtíð. Tekið upp í Stelpu.
4b. Jafnréttið er eina svarið
Útgáfudagur 3. desember 2001. Útgefandi Framtíð. Tekið upp í Stelpu.
Tvær útgáfur eru til af þessari fjórðu plötu Insols. Á þeirri fyrstu eru lögin leikin á gítar, en á þeirri seinni er hljómborð komið til skjalanna. Hér er mikið sungið um konur og hvernig eigi að elska þær. Einnig er sungið um jafnrétti. Alls fimmtán lög.


5. Fyrri byggðir
Útgáfudagur 15. október 2002. Útgefandi Framtíð. Tekið upp í Stelpu.
Platan hefst á poppsmellinum Er ég ekki of gamall fyrir þig? og inniheldur að auki fleiri stutta smelli. Einnig er hér lengsta lag Insols á plötu (og á hann þó mörg gríðarlega löng lög), Endurminningin lifir að eilífu (37:15). Alls tíu lög.


6. Við viljum jafnrétti
Útgáfudagur 22. október 2002. Útgefandi Framtíð. Tekið upp í Stelpu.
Aðeins viku á eftir plötu nr. 5 kemur plata nr. 6. Hér er kassagítarnum lagt á hilluna í bili og forláta skemmtari brúkaður í staðinn. Alls tíu lög og eru taktarnir gefnir upp í sviga fyrir aftan nafn lags (swing, jazzrock, o.s.frv.)


7. Jafnréttið er framtíðin
Útgáfudagur 3. nóvember 2003. Útgefandi Framtíð.
Diskur sem styðst við óútgefið efni, teknu upp á árunum 1998 - 2001, einskonar „bland í pok. Hér eru bæði lög leikin á hljómborð og kassagítar, en einnig eru tvö lög tekin upp með meðlimum í Blóðtakti (Steinn Skaptason - trommur, Brjánn Birgisson - bassi) árið 1998.


8. Við eigum að samstillast öll
Útgáfudagur 10. nóvember 2003. Útgefandi Framtíð. 
Lög tekin upp á tímabilinu 1998 - 2003. Hér eru lög úr unnin upp úr fræðum Nýalssinna. Insol leikur á kassagítar og munnhörpu auk þess að syngja.


9. Það og það
Útgáfudagur 18. nóvember 2009. Útgefandi Framtíð. 
Eftir langt útgáfuhlé snýr Insol blessunarlega aftur með plötu og ekki eina heldur tvær. Þessi er tekin upp í Stelpu frá 21. apríl til 12. nóvember 2008. Insol leikur á gítar, munnhörpu og hljómborð auk þess að syngja. Sum lögin voru samin 1997, en önnur 2008 undir áhrifum frá bankahruninu, til að mynda Bankafylliríið er búið og Borgaðu fyrir burgeisana. Áleitið verk. 


10. Ísland skal aría griðarland
Útgáfudagur 25. nóvember 2009. Útgefandi Framtíð. 
Söngur, gítar og munnharpa: Insol. Hljóðritað í Stelpu frá apríl til október 2009. Insol endurskoðar arfleið Þriðja ríkisins og bendir á nauðsyn þjóðernisstefnunnar. Hér má finna meðal annars lögin Adolf Hitler og Það er Baldur, Baldur, Baldur.  


A1 Insol - Hátindar
Útgáfudagur: Des. 2009. Útgefandi Brak (#10).
Helstu lög meistarans (að mínu mati). 18 laga masterpís af öllum 10 plötum Insols til þessa. Ljómandi góður staður til að byrja á. Fæst á GOGOYOKO og það er fjallað um hana á heimasíðu Braks.


11. Ég er laus undan losta og synd
Útgáfudagur 5. desember 2010. Útgefandi Framtíð.
Söngur, gítar, munnharpa: Insol. Hljóðritað í Stelpu frá janúar til martz 1999. Hér er Insol á trúarlegum nótum og ber efnið þannig á borð að hlustandinn veit aldrei hvort hann sé að játa trú sína eða að gera grín á henni. Inniheldur 14 lög, þ.á.m. lagið Veitztu hverjir eru eigendur þessa mannkyns? sem er 37:48 mínútur.


12. Ein hjúskaparlög fyrir alla
Útgáfudagur 8. desember 2010. Útgefandi Framtíð.
Söngur, gítar, hljómborð: Insol. Hljóðritað í Stelpu frá 9. janúar 2008 til 21. júlí 2008. Enn ein "skemmtaraplata" frá Insol. Að þessu sinni veltir hann fyrir sér jafnrétti kynjanna (sem hann hefur nú svo sem gert áður). 14 lög.


13. Kristur kemur
Útgáfudagur 12. des 2010. Útefandi Framtíð.
Söngur, gítar, munnharpa: Insol. Hljóðritað í Stelpu júlí 2001. Trúarsöngvar a la Insol. Líkist plötunni Ég er laus undan losta og synd, nema hér er mikið sungið um "Grillarann", sem var áður víðsfjærri. Einnig koma húðflúr við sögu. 14 lög.


14. Ísland fyrir útlendinga
Útgáfudagur 15. des 2010. Útefandi Framtíð.
Söngur, hljómborð: Insol. Hljóðritað í Stelpu í janúar júlíloka 2010. Nýjasta efni Insol til þessa er á þessari hressilegu plötu. Meistarinn svissar á milli stíla og tekur fram í sviga um hvað er að ræða í hverju lagi (vókalpopp, reif, þungarokk o.s.frv.). Kynþáttamál eru umfjöllunarefn textana og ljóst hvert Insol vill stefna í lögum eins og Ísland verði alveg svart og titillaginu. 12 lög, þ.á.m. lengsta lag Insols á plötu til þessa, Mennirnir urðu allir svartir (38:23).