Hvað var að ske
í október 2002?
31.10.02
Helvítis fíflin á Baggalúti
eru með mig í "þrífarar" í dag. Þessu
gleymi ég aldrei!!! Ég æði hér um gólf
alveg kreisí af vonsku og hefnigirnd og finn eflaust upp á
einhverju. Já bíðiði bara. HAHAHAHAHAHA!
---
Óli í Köben er með tvær brennandi spurningar
í gestabók.
A) Þótt Rótarbjór, svo maður tali ekki um
Cream Soda og Sarsaparilla, sé góður er hann varla seldur
nema í einstaka sjoppu í USA. Hér ræður
einokun Cokka Cóla eða eitthvað. Ráð er að
búa til sitt eigið gos eða kaupa drykki á netinu
og fá senda heim. Hér
er slóð á rótarbjórs-hjálp í
viðlögum. B) Já ég "held með" QPR og ýmsir
aðrir snillingar hérlendis líka (eins og afi Óla
og Gunnar Jónsson leikari). Ég byrjaði að halda með
þeim eingöngu útaf því að liðið
er í þverröndóttum búningum sem var öðruvísi
en öll hin liðin svona var ég orðinn "alternative"
snemma. Þegar ég var í London einu sinni fór
ég á Loftus Road og keypti peysu og húfu. Ég
fylgist nú ekki meira með þessum leiðinda fótbolta
(Enska knattspyrnan dó í mínum huga þegar Stöð
2 hirti útsendingarréttinn) að ég veit ekki einu
sinni í hvaða deild QPR er. Áfram QPR!
---
Ef einhverjum langar að glápa á upptöku á
Popppunkti þá byrjar stuðið kl. 17 í dag en
mæting er svona 16:30 upp á Skjá einum. Flatbökur
og öl í boði að vanda. Svo er ég með Alætuna
í kvöld á Rás 2. Guðni í Ensími
kemur með óskalögin og ég spila fullt af ógeðslega
góðri tónlist. Enn með harðsperrur svo ekki meira
blogg í dag. 10:25
30.10.02
Djöfull er ég orðinn merkilegur eitthvað. Fór
í leikfimi í morgun í Planet Reykjavík. Fór
fyrst um daginn, var mældur í bak og fyrir og þá
kom í ljós að ég er 80% aumingi. Var látinn
teygja mig inn á einhverja reglustriku og þá greindist
ég sem stirðasti maður á landinu því
ég náði bara 0.5 af 100 mögulegum. Áðan
fór ég í fyrsta alvöru tímann og maður
er bara kominn með einkaþjálfara og allt. Fínn
strákur frá Akureyri og nafni minn (auðvelt að muna
það). Maður hefði getað valið einhvern annan,
t.d. Spanjólann Raúl með smjörhár í
tagli eða grafalvarlegan gaur frá Serbíu sem ég
dauðhræddur við. Gunni Akureyringur langsamlega bestur held
ég. Auðvitað er þetta púl alveg drepleiðinlegt
en tilgangurinn helgar meðalið (Hvað kemur meðal þessu
við ég hef aldrei skilið þetta orðatiltæki,
ekki frekar en "vogur vinnur vogur tapar" hvað þýðir
það? Hvaða vog er verið að tala um?).
---
Ég er kominn svo hátt í lífnu að í
kringum mig var nánast eingöngu frægt fólk. Kaffibrúsakarlarnir
svitnuðu á pyntingatækin við hliðin á mér
og í heita pottinum var Stefán Jón Hafstein að
fá hálsnudd frá hinum lipra Lee frá Asíu.
Í móttökunni hitti ég svo Steinunni Ólínu
og að sjálfssögðu Eyþór sjálfan,
sem var að fá sér heilsusjeik og sagðist hafa getað
étið 1 kg af nautakjöti þegar hann var feitastur.
Ég er strax farið að hlakka til næsta tíma
hvaða stórmenni lista- og atvinnulífsins ætli
maður rekist á þá?!
---
Annars er ég með svo miklar harðsperrur að ég
hreinlega get ekki bloggað meira í dag. Ekki nema það
að ég þarf að koma því að að
þessi grein um blogg í Stúdentablaðinu var alveg
ömurleg og allir sem voru að tjá sig eru leiðindapúkar.
Allir nema Katrín auðvitað
sem hafði rænu á að nefna mig (hvað annað?).
Með síðasta andvarpinu langar mig svo til að benda þér
á að Kistan er hætt
að vera grautfúlt "menningar"blað og er orðið opið
málþing um Mikael
Torfason. Nei andskotinn, þeir eru búnir að taka það
allt út. Forsíðan fjallaði ekki um annað en Mikka
í gær, allt út af því að hann kallaði
Úllu ofurgagg "vitleysing". 13:20
28.10.02
Hvað er þetta: Sex á dag sem fá klamedíu!?
Djöfuls vitleysingar. Var reyndar boðaður í test einu
sinni. Því ver og miður var þetta á þeim
tíma sem maður var testaður með nál og engri
smá helvítis nál! Svona 30cm langri og svo var eyrnapinnabómull
á endanum. Var þarna skjálfandi með buxurnar á
hælunum og hjúkka sem leit út eins og nasískt
gylta tók vininn í lófann. Litli vinurinn titrandi
af hræðslu og nánast kominn inn í nárann
af ótta ég var ekki ósvipaður og skjaldbaka.
Hjúkkan tróð nálinni innum þvagrásina
og svo annarri nál. Ég beit í vörina og fór
heim líðandi eins og fórnarlambi úr Þjóðhátíð,
nei eflaust ekki eins kraminn, en þokkalega veiklaður samt. Skömmu
síðar kom annað bréf og mér sagt að mæta
aftur í sama test til að allir yrðu nú 100% sáttir
(Þetta nálartest var svo óáreiðanlegt).
Sama sagan nema nú var ungur karllæknir sem tróð
nálunum innum skjaldbökumunninn. Veit ekki hvort var skárra
karllæknirinn eða nasistinn. Slapp með skrekkinn, engin klamedía.
Rakst áðan á nokkur
ummæli sem fólk hefur heyrt á kynsjúkdómabiðstofum.
Mjög fyndið eða þannig. 07:38
26.10.02
Meðan ég man: Frábær PPPP
í kvöld. Fræbbblarnir á móti SSSól.
Grimm barátta fram á síðustu sekúndu. 12:40
25.10.02
Gífurlegt offramboð ríkir nú á mér.
Svaraði staðalstuðspurningum fyrir Moggann sem kemur á
morgun og svo verð ég hjá Jóni Ólafs í
"Sjalla" (SJónvarpi ALlra LAndsmanna) í kvöld. Þetta
var tekið upp í ágúst svo ég man ekkert
eftir þessu. Eflaust eitthvað rövl um minn stórfenglega
tónlistarferil. Held ég taki þáttinn upp svo
ég geti hraðspólað yfir mesta rövlið. Strákarnir
höfðu þó verið snarpir og sýna fullt af
gömlu drasli með mér, t.d. hið fræga "Látum
Gunna éta hundaskít"-atriði úr myndbandinu við
"Öxnadalsheiði". Svo er þarna "Hár-Gunna" stöntið
sem ég gerði fyrir Kolkrabbann (því miður ekki
sýnt allt) og fleira; fullt af Ununarmyndböndum og ég
í Stundinni okkar með Heiðu. Undursamlegt! Í næstu
viku ku ég svo vera í S&H. Fór í myndatökuna
og reyndi eftir mesta megni að vera "ég sjálfur", en
var svo orðinn eins og versti hálfviti undir lokin, með
einhverjar "flipp" pósur og rugl. Ég á því
miður ekki afturkvæmt í veröld hinna kúl eftir
það dæmi.
---
Flosi Þorgeirsson skammaði mig um daginn fyrir stafsetningavillur
og taldi þær ekki forsvaranlegar gömlum MK-ingi. Þessu
er til að svara að ég játa á mig glæpinn
enda held ég að ég hafi verið heima með hettusótt
þegar Ypsilon-reglan var kennd í barnaskóla. Ég
skil líka ekki afhverju þarf að hafa þetta ömurlega
Y. Til hvers? Enginn munur á framburðinum. Mér væri
slétt sama þó það væri ísa í
matinn og svo ís á eftir. Ég skal þó
reyna að vanda mig eftir mesta megni, enda er maður uppvís
að ákveðnum hálfvitaskap þegar allt sullast
út í stafsetningavillum.
---
En ég er ekki hálfviti. Í alvörunni! Tók
m.a.s. eitthvað greindarpróf
um daginn og skoraði sæmilega fékk 126. Ég var
dauðhræddur fyrir prófið; hélt ég myndi
vart mælast, eða fá undir meðallagi. Pæliði
í því að taka svona próf og komast svo aððí
að maður sé vitleysingur! Ég skil reyndar ekki hvað
einhverjir þríhyrningar og strik hafa með greind að
gera. Mér finnst að próf sem er ekkert nema kubbar, hringir
og strik mæli frekar hvort maður sé einhverfur eða
ekki. En það er nú bara af því ég
er svo sár að fá bara 126. 07:06
24.10.02
ALÆTAN á Rás 2 í kvöld kl. 22:10. Músikvatur
úr Apparat
mætir með óskalögin, Nýja
sjáland verður í sviðsljósinu og ég
ætla að fumspila stórfínt lag Sesars
A (hann er búinn að uppfæra síðuna sína),
"Bananalýðveldið". Plús allskonar fínt stöff
auðvitað. 09:50
---
Stórsniðugt skemmtiefni í Kastljósinu í
gær. Hired Goon #2 mætti fölum Merði sem lítið
heyrðist í (gleymdi bláa höndin að hækka
í míkrafóninum hans?) Goonið í svaka stuði
að vanda, öruggur og talaði hátt og skýrt. Komdu
með sannanir, var beisiklí það sem hann sagði.
Vottaði ekki fyrir lýgi þegar hann sagði: "Þetta
er allt saman algjört kjaftæði og örvæntingafullur
uppspuni pólitískra andstæðinga". Mér fannst
samt votta fyrir smá hræðslu jafnvel efa þegar
hann eldsnöggur sagði "Nei" við spurningunni "Er ekki alltaf
eldur undir þar sem er reykur?" Mörðurinn slappur, tautaði
bara eitthvað um "almennt andrúmsloft" eins og eitthvað
jafn loftkennt og það myndi sannfæra goonið og briddsspilarann
JSG, eða þannig séð einhvern, sem hefur ekki orðið
það frægur að komast inn á hið margfræga
teppi. Og svo eitthvað rugl um að fólk þori varla
að senda email....!? Það verður nú aðeins
að fókusa hér í baráttunni, ekki láta
paranojuna hlaupa með sig í gönur er það ekki
Kjartan?
---
Öllum heima í stofu eflaust alveg nettsama um þetta,
bara að bíða eftir ER, og þar að auki eru viðmælendurnir
fremur illa þokkaðir af almenningi: Goonið fyrir að vinna
ötullega að vægum dómum á barnaníðingum
og Mörðurinn fyrir að banna Einari Bárðarsyni að
syngja á ensku. Þetta var því hálfgert
"nó sjó" þó sniðugt væri, enda vantaði
aðalleikendurna: HH sem vitnar ekki í tveggja manna tal (a.m.k.
ekki opinberlega) og DO sem mætir nú varla pólitískum
andstæðingum, hvað þá einhverjum smásagnahöfundum.
---
En þetta gæti orðið stuð... og þó.
Hápólitískur vetur framundan með spear campaigni
og látum. Fólk verður þó að passa sig
að ráðast ekki einum of þungt á DO því
þá snýst þetta allt við; fólk fer
að vorkenna honum og Bláa höndin fær yfir 50%. Persónulega
kýs ég eingöngu þann flokk sem lofar og stendur
við það að vinna ekki með D eftir kosningar. Ég
stórefast um að einhver þessara framapotara hafi göts
í slík loforð. Skila því auðu ef ég
á annað borð nenni að taka þátt í
þessum hálfvitaskap. Lýðræði? Pfffft...
---
Ég ætti bara að fá að ráða þessu
öllu. Djöfull kæmu margir á teppið hjá
mér. Hmm... hver kæmi fyrstur? Þarf að gera lista.
Ég myndi setja upp gapastokka á lóðinni fyrir
framan stjórnarráðið og eftir að ég tæki
fólk fyrir á teppinu myndi ég láta það
í stokkinn yfir nótt. Þangað færu líka
fylliraftar sem hafa orðið til vandræða, samt ekki Lalli
Johns því hann gerði ég að Hired Goon #1. Hired
Goon #2 yrði þarna löggan sem er í Hvítasunnu,
en fyrst þyrfti ég auðvitað að lækna hann
af trúarlegum ranghugmyndum. Meðal helstu baráttumála
minna væri að leggja niður Íslenska dansflokkinn og
Sinfóníuna og veita sömu upphæðum í
rokk og poppstarfssemi. Fólk ætti ekki að byrja að
borga skatt fyrr en við 120þús kallinn og Ríkið
ætti að sjá sóma sinn í að veikir, börn
og aldraðir geta verið í gúddí fíling.
Mjög einfalt allt saman.
---
Hinn verðlaunaði og stórfengilegi 'Lútur hefur
komist yfir minnislista Davíðs
yfir hættulegustu listamenn þjóðarinnar. Ekki veit
ég nú hvað ég er að gera þarna því
ég er ekki "listamaður". Í besta falli listi.
---
Já og ég fer í viðtal á Steríó
í hádeginu. En er sú stöð ennþá
til?! Mér var boðin píta fyrir að mæta og ekki
slær maður hendinni á móti slíkum eðal
löns. 06:10
23.10.02
Popppunkts-síðan
er loxinz komin upp. Tékk it át mar. 12:06
---
Jæja, þá er hið stóralvarlega mál
HH vs DO byrjað að kólna. Ekkert í Mbl., ekkert á
Bláskjá. Sörpræs sörpræs! Á
morgun eða hinn kemur svo rútínubundið bréf
JSG eða HHG í Mbl. Ég gæti skrifað það
sjálfur og sent inn, en nenni því ekki. Tel þó
fullvíst að eitthvað af eftirtöldum frösum verði
notaðir: Ofstæki, ómaklegar árásir
sem jaðra við geðveiki, óraunhæfar samsæriskenningar
kaffihúsaspekinga, þetta dæmir sig sjálft, þetta
er ekki svaravert, bull, klikkun, o.s.frv. Eftir bréfið bíðum
við bara spennt eftir næsta mafíukasti og komum okkur
þægilega fyrir með hausinn í sandinum á meðan.
09:45
---
Meira um Jónas Sen: Ástæðan fyrir því
að ég kallaði hann "alvöru" gaggrýnenda er sú
að mér hefur virst hann segja ætíð það
sem honum finnst og það óháð því
hvort sú skoðun færi fyrir brjóstið á
viðfangsefninu. Það sama gerði Jón með augnakippina
og málaði sig því fljótt út í
horn meðal hinni ofurviðkvæmu og sjálfhverfu leikarastéttar.
Jón var að lokum látinn taka pokann sinn þegar
leiklistargengið hafði náð að sannfæra þá
sem höfðu Jón í vinnu að þetta gengi ekki
lengur. Jónas er örugglega úthrópaður í
þessari hallærislegu "æðri" tónlistarklíku
en DV hefur ekki rekið hann enn sem er gott og fær DV prik í
kladdann fyrir það. Þegar Jónas skrifar veit maður
að hann er að segja "satt", hann er að segja akkúrat
það sem honum finnst (sem er auðvitað hans skoðun/álit
etc). Þess vegna trúir maður gaggrýninni hans.
Þegar aðrir skrifa fær maður oftast hálfvelgju
og þokuslæðing sem maður þarf að kafa oní
og lesa milli línanna til að ná. Ekki gott. Eiginlega
mjög vont og móðgun við lesandann. Þetta er nú
kannski eitthvað að lagast samt. Íslenskar myndir fá
ekki lengur 2 og hálfa stjörnu í forgjöf sýnist
mér. Man ekki betur en Fálkar hafi verið tekin í
svokallað bakarí hjá Hilmari höfðingja á
DV og popptónlistar-gagg Mbl er löngu orðið trúverðugt
þökk sé Árna Matt. Þó hann fái
lesendabréfsnöldur frá "særðum" poppurum lætur
hann ekki buga sig og lærisveinar hans hafa tekið upp sama sið:
Þ.e.a.s. að segja sannleikann um eigin smekk. Gott.
---
"Persónuleg" kynni af íslenskum
stjórnmálamönnum I
Þegar ég var að dimmitera 1985 (í Michelin-karls
búningi sem var svo illa gerður að allir héldu að
ég væri draugur) rakst ég á Jón Baldvin
hjá Alþingishúsinu. Ég hófst undir eins
handa við að hreyta óprenthæfum ónotum í
kallfauskinn sem rauk í burtu án þess að svara
þessum vankaða draugi. Í dimmiteringunni fór ég
líka í Kirkjuhúsið og spurði með klúryrðum
hvort þau ætt'ekki bækur um kynlíf Krists. Kerlingin
var snúðug og sagði að ekki ætti hún slíkt
en bætti við að kynlíf Krists hafi örugglega
verið gott.
---
"Persónuleg" kynni af íslenskum
stjórnmálamönnum II
Einu sinni sá ég Davíð Oddson strunsa eftir
Austurstræti. Hann var lítill. Stuttu síðar sá
ég Þorstein Pálsson strunsa eftir Austurstræti.
Hann var líka lítill. Ég var í hvorugt skiptið
að dimmitera svo ég sagði ekki neitt.
---
"Persónuleg" kynni af íslenskum
stjórnmálamönnum III
Nýlega hélt Dagur B Eggertsson hurð fyrir mig opinni
þegar ég var aðkoma út úr Landsbankanum,
Aðalbanka. Hann brosti sínu blíðasta sem mér
þótti gott hjá honum því það
var þá þegar búið að kjós'ann
í borgarstjórn.
---
"Persónuleg" kynni af íslenskum
stjórnmálamönnum IV
Var í afmæli þar sem Ísólfur Gylfi
Pálmason lék á gítar og söng. Flúði
vettvang. Nýlega hitti ég Ísálf í heita
pottinum og hann fór eitthvað að spyrja mig út í
hvaðan ég hefði alla þessa poppvisku. Sagðist
sjálfur vera aðallega í tímabilinu frá
Toxic til Tatara.
---
"Persónuleg" kynni af íslenskum
stjórnmálamönnum V
Einu sinni var Árni Johnsen næstum búinn að
drepa mig þegar hann virti ekki stöðvunarskildu og æddi
fyrir mig á Island jeppanum þar sem ég beið eftir
að komast yfir götu spandexhúðaður á hjólinu.
Hvenær fer hann í fangelsi?
---
"Persónuleg" kynni af íslenskum
stjórnmálamönnum VI
Hef tvisvar séð typpið á forsetanum í
almenningssturtu. Segi ekki meira af hollustu við þjóðfánann.
En það er altso meira sem "hangir á spýtunni" hjá
Dorritt en að það sé fyndið að vera svona
hálfdrottning í smáríki, wink wink.
---
"Persónuleg" kynni af íslenskum
stjórnmálamönnum VII
Sé stundum Katrínu Fjeldsted út í búð.
Virðist vera almennileg kona.
---
"Persónuleg" kynni af íslenskum
stjórnmálamönnum VIII
Sé stundum Jón Kristjánsson út í
búð MEÐ KONUNNI SINNI. Segir það ekki allt? Góðmenni
og ljóðaáhugamaður en hálfgerð gunga.
Ekki á réttri hyllu.
---
"Persónuleg" kynni af íslenskum
stjórnmálamönnum IX
Geir H. Haarde var stundum að puða við hliðina á
mér í leikfimi. Var orðinn nokkuð fitt. Horfði
samt alltaf á mig á svipinn eins og hann héldi að
ég ætlaði að lemja sig. Annað hvort þannig
eða á svipinn eins og hann ætlaði að lemja mig.
Eflaust bara einhverjar ranghugmyndir í mér.
---
"Persónuleg" kynni af íslenskum
stjórnmálamönnum X
Afgreiddi Kolbrúnu Halldórsdóttir oft þegar
ég var bankagjaldkeri. Alltaf glöð og hress og almennileg.
Hún heilsar mér alltaf brosandi á förnum vegi
og ég held svei mér þá að ég myndi
"fylkja" mér á bakvið hana ef hún væri ekki
svona obsessd á því hvaða klámi ég
er hugsanlega að sjálfsfróa mér yfir.
---
"Persónuleg" kynni af íslenskum
stjórnmálamönnum XI
Nauðaði í Össuri vikum saman um að fá
örlitla
kauphækkun þegar hann var ritsjóri og yfirmaður
minn á DV. Hann lofaði alltaf öllu fögru og "á
morgun" eitthvað. Minnir að það hafi tekið þrjá
mánuði að hækka þessa lús. Stórkostlega
framtakssamur stjórnmálamaður sem gustar af. 07:20
22.10.02
Meistari Jónas Sen skrifaði frábærlega
skemmtilega krítík um einhver "nútíma"leiðindi
sem hann fór á. Svo kom einhver vælukjói með
væl sem Jónas svarar hér.
Alltaf gaman að Jónasi, eina alvöru gaggrýnenda
landsins síðan Jón... æ þarna kallinn sem
Spaugstofan var svo fúl út í og þess vegna alltaf
að "gera grín að"... var og hét.
---
Best að fylgjast með fréttunum í kvöld fyrst
Hallgrímur er byrjaður að tala um skammastu þín-fundinn
sem hann átti með Dabba klikk. Ætli Bláskjár
verði með þetta í sínum fréttum? Ha,
haldiði að Elín Hrist hafi ekki verið óð
og uppvæg að gera frétt um þetta? Haldiði að
Gísli Marteinn verði ekki með Hallgrím næst?
Sjáum til hversu Bláa höndin heldur þéttingsfast
um hinn andlega pung á þessu fólki. 17:52
---
Loftur á Séð og heyrt vélaði mig til að
mæta í tökur. Á að pósa í hinum
ýmsu hawaii-skyrtum. Lítið við því að
gera, það fylgir víst sjónvarps"frægð"
að sprella í S&H. Ég get líka alveg viðurkennt
það að mér finnst gaman að fletta blaðinu
til að sjá hvaða bjánar eru nú að sprella.
Hví ekki að leggja sitt til á vogaskálar aumingjahrollsins?
Ég vona að hinir harðsvíruðustu af lesendum snúi
ekki við mér baki.
---
Reykingar eru eitt mesta tilgangsleysi samtímans. Að hanga
einhversstaðar og reykja jaðrar við sturlun í fáránleika
sínum. Samt er ég orðinn nikótínfíkill
en hef gert samning við konuna um að reykja bara utanhúss.
Stend því eins og álka í útidyrunum og
reyki og passa að eyrun detti ekki af mér vegna kulda. Stundum
legg ég á mig ferðir í sérstaka reykstaði
sem ég hef fundið upp. Gaman er í góðu veðri
að sitja á leiði í Suðargötukirkjugarði
og fylla lungun af viðbjóði. Einnig í grjótgarði
aftanvið bensínstöðina í Ánanaustum.
Þegar ég var geðveikur um daginn hraktist ég um
strandlengjuna í fjóra tíma í Gefjunarúlpu
og keðjureykti. Eftir að bráði af mér er ég
með hámark eina í einu, sem er nú alveg nóg
því eftir tvo fyrstu smókana er ég hvort eð
er kominn með ógeð. Klukkutíma síðar byrjar
fíknin að kalla og þá læt ég undan.
---
Foreldrar mínir reykja hvorugir og hafa aldrei gert og því
var það þeim mikil sorg að fjögur eldri systkini
mín byrjuðu öll að reykja á tilskildum aldri.
Mapa bundu lengi vonir við mig og enn finnst mér ég vera
að bregðast þeim þegar ég reyki fyrir framan
þau.
---
Ég er af fyrstu kynslóð þeirra sem urðu
fyrir andreykingaráróðri. Tóbaksvarnarnefnd tók
til starfa þegar ég var um 10 ára. Krakkarnir fengu
límmiða og ég skellti einum á hurðina á
svefnherberginu mína: "Við reykjum ekki hér". Foreldrar
mínir voru yfir sig ánægðir. Ég og Halli
höfðum safnað tómum sígarettupökkum af
hinum ýmsu tegundum. Þegar Tóbaksvarnarnefnd byrjaði
sinn réttmæta áróður urðum við fasískir
í andreykisma okkar. Efndum til brennu á sígarettupakkasafninu
og höfðum uppi stækan áróður við krakkana
sem söfnuðust í kringum logana. Tólf ára
bekkurinn fékk viðurkenningaspjal af því hann var
reyklaus. Allir voða hressir með það. Allir nema við
Halli auðvitað því við vissum að Hulda hafði
verið að fikta. Hulda fékk snemma bein í nefið
og var sú eina sem lét ekki ferma sig einu ári síðar.
Ég og Halli, þessir litlu fasistagrey sem við vorum, gengum
þungum sporum til umsjónarkennarans sem hafði babú
samband við Tóbaksvarnarnefnd sem afturkallaði viðurkenningaspjaldið.
Litlu fasistarnir við svaka stoltir auðvitað, en hvorki Hulda
né hinum krökkunum fannst þetta sniðugt, minnir mig.
---
Svo liðu árin og ekki reykti ég. Byrjaði eiginlega
ekki fyrr en svona 1988 þegar hljómsveitin Bless hóf
starfssemi sína. Þá var ég í minnihluta
sem reykleysingi og komst á bragðið í "partíum"
þar sem við Ari og Biggi drukkum og hlustuðum látlaust
á "Magical Mystery Tour". Síðan hefur þetta verið
allskonar. Sígarettur, vindlar reyndar aldrei pípa en
svo reyktyggjó og plaststaukar í öll þessi skipti
sem ég hef hætt. Aldrei náð pakka á dag
og stundum náð að halda mér í 5 stk dagskammti.
Stundum ekki reykt í eitt ár eða meira.
---
Ég sýg rettu (Marlboro af því ég
las að White Stripes reykja Marlboro) og ímynda mér viðbjóðinn
fylla lungun, þessi stórkostlega fíngerðu líffæri.
Sé æðakerfið mygla og viðbjóðinn sverta
gumsið innan í mér. Yfir mig hellist dauðaótti
og skamvinnt þunglyndi, en allt kemur fyrir ekki. Það er
sjálfu sér ekki líkamlega gott að reykja. Það
er bara gott að fullnægja þessari líkamlegu fíkn
sem kemur þegar líkaminn vill fá sinn skammt. Það
tekur 10 sekúndur. Mér hefur ekki þótt erfitt
að kikka þessum habit, en það er bara spurning um hvenær.
Ég veit alveg hvenær og hef m.a.s. skriflegan samning upp
á það. Ef þú vilt vita meira um reykingar
skaltu fara hingað...
---
Svara gestum: Náði í kazaalite
en finnst nú winmx eiginlega
ennþá miklu betri. Takk samt. Tékka kannski á
imesh
við tækifæri. // Nei, konunni þykir ég alveg
eins og fífl með ekkert skegg. Sem er alveg satt. Er að
safna as ví spík alveg nauðsynlegt að hafa eitthvað
svo að undirhakan sé ekki alveg svona augljós. // Nei
Elvis2,
ég fæ auðvitað ekki krónu fyrir borðana
hér að ofan, enda komast bara vinir og kunningjar að. Leiðinlegt
að þú teljir Mikka
totta því hann var svo ánægður með sms-rúnk
söguna þína að hann sendi slóðina á
hana út um allan bæ. // Það er því
miður ekki pláss fyrir Vonbrigði í fyrstu seríu
Popppunks. Það eiga bara tvö lið eftir að keppa
(þó það sé eftir að sýna fjögur
lið) og síðastu liðin í 16-liða keppni verða
Rokkslæðan og Land og synir. Þegar þeim leik lýkur
tökum við til við að gera 8-liða leiki og svo á
milli jóla og nýárs fáum við sigurvegara:
"Poppfróðustu hljómsveit landsins". Þetta er altso
sama sístem og í HM, ef það hefur eitthvað
farið framhjá fólki. Ef þátturinn mælist
með eitthvað svaka áhorf (það ku vera að mæla
slíkt núna) er aldrei að vita nema við rennum í
aðra 16-liða keppni og þá koma Vonbrigði sterkir
inn (+ öll hin böndin sem hafa haft samband eða upp á
þeim verið stungið). 09:55
21.10.02
Í Gestabók
hvetur Kitkat mig að skrifa bók fyrir jólin, en hún
verður að bíða til jólanna 2003, ef ekki lengur,
eftir einni slíkri. Hugmyndin að skáldsögunni er
komin og allt, nafnið á bókinni meira að segja líka,
en ég held kjafti enda bjánalegt að rövla um eitthvað
sem er bara hugmynd enn. Ætli maður reyni ekki að væla
út rithöfundalaun frá Ríkinu (les: þér),
en umsóknarfrestur rennur víst út um miðjan 15.
nóv. Þegar ég fæ ekkert verð ég óður
og læt vini mína skrifa í blöðin, svona eins
og þegar Gyrðir fékk ekki að lufsast í sinni
loftkenndu vitleysu árum saman heldur fékk bara 6 mánuði.
Best væri auðvitað að enda í æviáskrift
eins og Þráinn Bertl og taka því svo rólega
bara og tuða endalaust um hvað allir eru alltaf fullir niðrí
miðbæ.
---
Sem er nú reyndar alveg satt. Hvenær hef ég orðið
það fullur að ég færi að böggast í
slökkviliðinu við erfiðar aðstæður? Ég
held að meira að segja í mínum verstu blakkátum
og snarfylliríum hefði ég haft rænu á að
drulla mér í burtu ef ég hefði rekist á
þennan eldsvoða þarna á Laugarveginum. Hvað
er að þessu hyski? Ég minni enn á gapastokkinn
sem góða refsingu fyrir svona pakk.
---
Líkþornaði heimavið í gær og horfði
á imbann, endursýningar fyrst: Spaugstofan... Ja... Skítsæmilegt
svona inn á milli en alltof margir brandarar sem maður er farinn
að bíða eftir að endi. Þarf svo að bíða
og bíða og verður pirraðri við hverja mínútu.
Svo kemur kannski sama konsept aðeins seinna og þá brjálast
maður. Hvað er þessi Randver að gera þarna? Ætli
hann sé á sama kaupi og hinir? Ég væri allavega
ekki hress með það ef ég væri Siggirjóns
eða Örn. Foreldrar mínir hafa ekkert gaman af Spaugstofunni
og þá er nú mikið sagt. Ég fíla nú
reyndar alveg aðhaldsgrín þeirra í garð DOogCO
en þeir eru alltof fljótir að missaða. DO verður
td með reglustriku út önnina hjá þeim og hversu
fyndið er það? Sigmund mun eflaust láta DO vera með
reglustriku líka og þá er geðveikin í DO
bara orðin eitthvað skondn en ekki háalvarlegt pólitískt
mál. Svona endar öll pólitík hér, Ekki
að menn drullist úr embætti heldur sem grín.
---
Gísla Martein tók ég með hálfu öðru
auganu. Gísli er voða hress alltaf en í vitlausum flokki.
Lagði ekki í sjúkrasögur Ingólfs og missti
af Bubba. Konan sagði að hann hafi bara vælt um Brynju og
börnin. Gísli greinilega pantað mjúkan pakka.
---
Svo varða Silfur Egils. Spekingar spjalla fyrst, þar sem
í endann gaus upp að Karl Th fór stamandi og dragandi
augað í pung eitthvað að tala um einræðisherrann
sem við lifum undir. Á greinilega að vera mál hjá
samfokk. Vonandi verður smear campaign. Það er allavega næg
drulla til að nota í slíkt. Óli Björn glotti
bara en maður sá að hann veit sannleikann, það
glytti í heiðarleika undir bólunum. Einhver rauðhaus
frá VG var slappur. Ekkert fútt í því
liði "Ja, þetta er spurning um málefni en ekki menn"
var það eina sem hann gat sagt. Djöfuls kjaftæði.
Pólitík er eingöngu spurning um menn. Í næsta
lið bauð Egill upp á nasistaforingjann úr Allo Allo,
HHG, en þá fór ég að sýsla við
annað enda ekki með maga í aðra eins vitleysu. Svo kom
eitthvað leiðinlegt, u, já Bónuskallinn og loftræst
sjálfsstæðiskerling í rauðum bol eitthvað
að tala um verð á nauðsynjum, og í lokin var
Egill með einhvern útlending sem ég nennti ekki að
horfa á. 06:06
20.10.02
Gamli maðurinn brá sér á dansiball í
gær. Apparat voru hressir. Ættu kannski að koma fram í
eins búningum? Ganga alla leið. Gott band. Svo komu ömurlegir
rapparar í Blakkalizíus með hundleiðinlegt blöðruhipphopp.
Fullt af liði að fíla þá samt og í hvert
sinn sem þeir sögðu "Æææææslanddddd!"
trylltust krakkarnir. Sem var nokkuð gott af því þeir
sögðu "Ææææææslanddddd!" svona
tvöhundruð sinnum. Ég fór fram og gáði
hvort ég ætti að kaupa Híves bol. Þeir voru
bæði ljótir og dýrir svo ekki gerði ég
það. Svo komu þessir sænsku rokkarar og ja; jú
jú, þokkalegt alveg. The Hives eru langt í frá
besta band í heimi og ekki einu sinni besta band í Svíþjóð.
Þeir eru alltof útreiknanlegir og seif svona einskonar Iggy
Popp á Volvo. Volvo rokk. Það er engin ógn eða
skelfing blönduð groddalegu ruslrokkinu, ekkert hættulegt
við þetta. Öryggispúði í andlitið,
ekki krepptur hnefi eins og í "alvöru" rokki. Þeir mega
þó eiga það að eiga nokkur fín lög,
en restin er svona c-flokks Ramones eða Kinks b-hliðar. Þeir
eiga líka heiður skilið fyrir að greiða götu
bassadverga með hormottu og gítarfitubollu. Litla skoffínið
sem söng er ekki sannfærandi frontari. Vill vera Jon Spencer
+ James Brown en er bara ósannfærandi sænskt skoffín.
Ég hafði heyrt af einhverri geðveikri sviðsframkomu
en svo var þetta bara svona nokkuð hresst, en ekki eins geðveikt
og ég hélt. Alveg fínt auðvitað samt. Í
uppklappinu tóku þeir einhvern frábæran ellismell
- "Stop and think it over", held ég hann heiti - sem ég geri
nú dauðaleit að á netinu í orginal útgáfunni.
Eftir þessa gaura komu Gustuk og bassaleikarinn úr Housemartins
en þá var ég farinn heim að leggja mig. Gott framtak
hjá strákunum í Erveifs!
---
Nei, þetta "Stop and think it over" er ekki gamall soul-smellur
eins og þetta vissulega hljómaði eins og, heldur lag frá
2000 með Sympathy for the Industry-bandi sem heitir Compulsive Gamblers.
Möst að tékka á því. Nú væri
gaman ef gamli Audiogalaxy væri ennþá - það
kom varla fyrir að maður fynndi ekki stöffið sitt þar.
Hvorki Soulseek né Winmx eru alveg að köttaða. Veit
fólk um betri forrit? 09:15
---
19.10.02
Popppungurinn í kvöld er mikil snilld. Sykurmolar mættu
með eintómt grín í farteskinu en Rúnar
og synir tóku þessu alvarlega. Bæði lið vissu
þó heilmikið og úrslitin... þið sjáið
þau í kvöld.
---
Mér tókst á yfirskilvitlegan hátt að
klúðra einni spurningu. Ég er alveg í rusli auðvitað
en sem betur skipti þetta ekki máli upp á úrslitin.
Lag á Sumar á Sýrlandi heitir auðvitað "Andafundurinn
mikli", en ég, þessi fábjáni, hélt því
statt og stöðugt fram að lagið héti "Andaglas".
Og af hverju hélt ég það? Af því ég
las það í einhverri rokkskruddu sem kom út í
fyrra. Svona elta meinlokurnar mann árum saman! Ég bið
keppendur og áhorfendur þúsund sinnum afsökunar
á þessum hálfvitaskap og er farinn að bryðja
grænt te beint upp úr dósinni í von um að
eitthvað létti til í skýjuðu heilabúinu.
Úff...
---
Gaman að þeim Jóni
og Pétri Kristjáns í gær. Þetta pungatal
var nú alveg bráðfyndið. Verst hvað var til lítið
af gömlu Pelican stöffi á mynd. Það er auðvitað
búið að eyða þessu öllu upp á Rúv
enda var rokk ekki talið nógu merkilegt til geymslu. Nú
er blessunarlega ný tíð með alvöru fólki
eins og Jónathani og Óla Palli og svona köppum sem vita
að poppið er það sem lifir en maður er nefndur Hr.
ráðuneytisstjóri ekki. Nonni
er annars alveg að rúlla þessu upp og er skemmtilega "loose"
með gestunum. Og hvaða poppauli haldiði svo að verði
í næsta þætti? Enginn annar en ég sjálfur
takk fyrir.
---
Hápóltísk grein mín í gær
hefur auðvitað engin viðbrögð vakið. Ég
sem hélt að fréttatímarnir tækju á
þessu, eða þá að Innanpíkan
yrði full af stuðningsyfirlýsingum og samsæriskenningum.
Nei nei, ekki múkk engum finnst það skrýtið
að menn séu kallaðir á teppi DO og skammaðir
eins og hundar fyrir að segja skoðanir sínar. Ég
er annars að spá í að eyða öllum heilafrumunum
sem geyma upplýsingar um DO og Bláu höndina út
úr hausnum á mér því það er
engum manni hollt að spá of mikið í þessu.
Best að þegja bara eins og þið og vona að einhver
felli hyskið eftir veturinn og hér komist á þjóðfélag
sem er ekki morkið af spillingu og hagsmunatengslum. Fat change. Kannski
eftir 4 ár í viðbót.
---
Ég er orðin senditík fyrir Mikka
Tott sem er kominn með nýja bók, Samúel. Samúel
er gaur sem lætur ástand heimsins og þjóðfélagsins
fara svo mikið í taugarnar á sér að hann fær
það á heilann og snappar. Allt sem hann segir er þannig
séð "satt", en það er bara svo mikil yfirhylming og
þegjandi samþykki og heiladauði í gangi að þjóðfélagið
úrskurðar Samma geðveikan fyrir "sannleikann" (reyndar nokkur
ofstopi í Sammanum). Mikael er hér með sína bestu
bók og það er öllum hollt að lesa hana og spá
aðeins í þessu. Bara að passa sig að snappa ekki...
---
Ég, senditíkin, sentist semsé með eintak af
bókinni til Blazroca, en
hann var ekki heima heldur bara Sesar
A sem bauð í te. Hann lét mig hafa eintak af stóru
plötunni sinni sem heitir "Gerðuþaðsjálfur" og
á að koma út 8. nóv. nk. Þetta er alveg
svaðalega fín plata hjá stráknum, full af smellum
og gáfulegum og góðum textum. Eitt heitir t.d. "Bananalýðveldið"
(Blazroca gestar) og passar vel við þegar maður er eitthvað
að spá í DO og Bláu höndinni. Ég segi
nú bara; enn er von fyrir mannkynið á meðan þeir
Eyvindarsynir rappa. Sesar ætlar að prevjúa titillagið
23.okt (á miðvikudaginn á heimasíðunni
sinni) svo þið ættuð endilega að tékka
á því.
---
Ég fór í Garðabæ í gær.
Djöfull er ég feginn að búa ekki í þeim
grafreit. Mér fannst fólkið í Hagkaupum næstum
því minna mig á liðið í 2000 Maniacs
og ég fann sterklega fyrir návist Bláu handarinnar.
Nei æ: Muna að gleyma. 09:29
18.10.02
Í Kalda stríðinu var heimurinn svart/hvítur.
Menn hugsuðu í svart/hvítu. Nú er heimurinn einlitur:
blár.
---
Hallgrímur Helgason skrifaði bók um s/h heiminn.
Kiljan kommi óð í villu og svima. Bláa höndin
var glöð. Tók nýja hvolpinum fagandi koddu hvutti,
góður strákur. Snati litli sá samt muninn á
réttu og röngu að lokum. Kannski fékk hann nóg
af hundakexinu. Hann beit leiftursnöggt í bláu höndina.
Bláa höndin ærðist. Hundskratti, skamm! Hvutti var
kallaður inn á teppi inn á teppið sem hann var
búinn að míga í. Fékk yfir sig þær
skammir sem óþekkir hundar eiga skilið. Og snáfaðu
svo út og mígðu aldrei aftur í teppið eða
við látum þig aldrei aftur fá listamannalaun.
---
Í Fréttablaðinu í dag er sagt frá Snata
og Óla. Nema hvað Snati er aldrei sagður hafa þorað
á teppið. Ég veit ekki hvort hann fór á
teppið í alvöru eða hvort hann flúði land.
Skiptir það máli? Óli kallaði á Snata
og það ætti að vera nóg til að landsmenn
láti svona mafíustæla ekki ganga yfir sig lengur.
---
En auðvitað ekki. 40% landsmanna eru Snatar sem vilja Óla.
Elska Óla. Sama þótt Óli sparki í punginn
á þeim, þá elska þeir Ólann sinn
alltaf jafn mikið, því þeir eru villuráfandi
hvuttar sem halda að þessi Óli sé sá eini
sem á hundakex og kökur um jólin. Voff voff!
---
Er ég geðveikur að segja þessa sögu? Vakna
ég í nótt upp við það að Óli
eða félagar hans standa yfir mér með kodda tilbúnir
að þagga niðrí þessum óða hundi,
mér? Fæ ég aldrei listamannalaun sama hvað ég
rembist? Verð ég rekinn af Skjá einum og Rás 2?
Hvað á maður eiginlega að halda? Fylgist spennt með
og passið ykkur nú að gelta ekki of hátt. 10:30
17.10.02
Þá er komið að enn öðrum "massa-fimmtudaginum":
Brjálað að gera hjá mér. Við tökum
upp tvo þætti af Popppunkti í dag. Og ÞÚ,
já ÞÚ!, mátt gjarnan koma og glápa á
meðan við gerum það. Á meðan húsrúm
leyfir auðvitað, en af því er nóg. Upptakan
fer fram í stúdíói Skjás eins, sem er
í gráum steinsteypukumbaldi beint á móti Pítunni
eða svo, gengið inn af bílastæði. Við byrjum
að taka upp fyrri þáttinn Sykurmolarnir - Rokksveit
Rúnars Júl kl. 17 svo það er gott að mæta
svona um 16:30. Upptaka á seinni þættinum Fræbbblarnir
- SSSól hefst kl. 19 og þetta er búið svona 20:30.
Á milli þáttana verður pítza og svo verður
öl og gos í boði. Gott grín myndi ég áætla.
---
Ég held þetta verði nokkuð jafnar keppnir. Ég
hef lagt dag við nótt að skrifa góðar spurningar
sem ég held að séu engum í neinn sérstakan
hag. Var ekkert mikið að spá í það hvað
þetta fólk myndi hugsanlega vita og sá sem vinnur er
bara einfaldlega betur að sér í almennum poppfræðum.
Fyrir Sykurmolana mæta Björk, Magga og Þór, nei
nú lýg ég! Hinir þrír koma, en Rúnar
Júl tekur með sér syni sína Júlla og Baldur
sem hafa verið að spila með kallinum. Fræbbblarnir verða
Valli, Stebbi og Helgi og SSSól að ég tel Helgi, Eyjó
og Jakob. Topp lið allt saman og ég iða í skinninu
af tilhlökkun eftir að sjá hvernig þetta spilast
allt saman. Syk-Rún verður svo frumsýndur 19. okt, en
Fræbbbl-Sól 26. Massastuð.
---
Eftir þetta akkorð fer ég á Rás 2 og
verð með Alætuna frá kl. 22:10. Tek aðeins mið
af Erveifs og Ferveifs,
en spila svo allskyns dót; Kiddi Kanína kemur líklega
með Færeyinga og allskonar kúl krakkarokk fær að
óma í tilefni af hinni snillingslegu plötu Búdrýginda:
Ef þú ert ekki nú þegar búinn að
fjárfesta í þessu rokkskrýmsli ættirðu
að gera það núna. Þetta er skipun.
---
Annars ætti að gefast tóm til að blogga aðeins
af viti þegar þessi syrpa er afstaðin. Mig langar að
blogga aðeins um reykingar, túrisma og eitthvað svona. Tékk
mí sún. 07:30
15.10.02
Það á ekki af henni Heiðu vinkonu minni að
ganga. Fyrst er gítarnum hennar stolið og svo hjólinu.
Skítt með hjólið en gítarinn er sorglegt mál.
Blár Fender Telecaster (USA):
Einhver dópræfilinn komst inn í æfingarhúsnæði
Heiðingjanna í Brautarholti og tók þennan eðalgítar
ásamt öðru dóti frá öðrum böndum
sem æfa þarna. Vínyll ku m.a. hafa misst helling. Þessi
gítar er uþb 15 ára og áður í eigu
Þórs Eldon, sem notaði hann í Sykurmolunum. Heiða
er alveg miður sín og ekki furða. Þetta er ömurlegt
rugl og allt heilbrigðiskerfinu að kenna, eða Sjálfsstæðisflokknum
sem týmir ekki að halda svona aumingjum af götunni. Nei
nei, bara mannlegt drasleðli... Ég, og aðallega Heiðu,
langar alveg óstjórnlega að heyra í öllum
sem kunna að vita hvar gítarinn er niðurkominn. Þetta
er kannski langsótt, en sendu línu
ef þú veist eitthvað. Fundarlaun etc.
---
Hvað er þetta?! Eru allar fitubollur landsins orðnar
mjóar nema ég? Sá Eyþór úr Bong
á förnum vegi og hann svona líka léttur á
fæti. Hélt hann færi að syngja frystikistulagið
með Tappanum, hann var svo sprækur eitthvað. Sá hann
líka í S&H og hann svona líka grind. Dáldið
geðveikur til augnanna þó. Sá líka Einar
Bárðason í S&H og hann er orðinn tálgaður,
sýndist mér, en þó með sama geðveikisglampann
í augunum og Eyþór. Eru menn hér umvörpum
komnir í amfetamínsterana? Nei. Skilst að Einar hafi
farið í eitthvað "fatfarm" í Tælandi, en Eyþór
bara pumpað og drukkið 6 lítra af vatni á dag. Hann
hlýtur að vera með eina stærstu blöðru landsins.
---
Ég get ekki látið mitt eftir liggja í fitunni
og verð örugglega með Eyþóri framan á
S&H innan skamms með fyrirsögninni "Doktorinn gerði kraftaverk
á sjálfum sér með hjálp Eyþórs".
Fæ víst rosalega ódýra tíma í
þessu Planet Puls (sem starfsmaður Skjás 1s), en það
er bara verst hvað það er ógeðslega leiðinlegt
að hanga í þessum tækjum. Mætti ég
þó frekar biðja um badminton. Vantar ekki einhverjum fjórða
mann í fasta tíma eða eitthvað?
---
Skil heldur ekki hvað yrði unnið þó ég
væri 25kg léttari. Fötin sem ég hef komið
mér upp myndu hanga utan á mér og ég yrði
að fata mig upp frá grunni eða að nota eitthvað
sem ég keypti fyrir 15 árum síðan vissulega
kúl retro gaur, kannski. Ekki þarf ég að lúkka
slimm fyrir konuna og hvaða rugl er þetta þá? Ja,
kannski spurning um almenna vellíðan eða eitthvað. Vottever.
Sjáum til. Verður eflaust svaka átak bráðlega.
Einkaþjálari og læti.
---
Fór á ágætis nýjan íslenskan
veitingastað í gær og hef bætt í gagnrýnina.
Nenni ekki að skrifa um það sem ég át erlendis,
enda græðir enginn neitt á því. Og Poppæs
bara farið á hausinn? Helvítis rugl er það.
---
Vinir mínir skrifa á netinu eins og þeir eiga lífið
að leysa. Mikael er með
ýmislegt á heilanum og hefur skrifað
pistil um heilbrigðiskerfi á heimasíðu JPV. Kannski
ekki mest spennandi umfjöllunarefni í heimi (nema þegar
maður er veikur) en ágæt grein hjá Mikkanum. Grímur
er með Sjálfsstæðisflokkinn á heilanum og segist
hafa skrifað einhverja svaka grein á heimasíðuna
sína, en ég fann nú ekkert. Hmmm...? Ég þarf
kannski að leita betur, en þoli bara ekki þetta blogspot
drasl sem hann notar. Birgir er að
vanda með trúarbrögð og guð á heilanum og
hefur löngum fengið útrás í leiðinlegri
rökræðu við vitleysinga. Hinn agureyski HC (sem er með
ekkert sérstakt á heilanum nema kannski sjálfan sig
og er því ekki ósvipaður mér í
því sambandi) er þó enginn vitleysingur og sendir
Bigga tóninn á korktöflu
Birgis. Úr þessu er orðin heljarinnar romsa sem aðeins
helstu nötkeis landsins endast í að lesa. Knokk jorself
át. 14:00
13.10.02
Jæja. Var ekki alveg jafn steiktur og mig minnti í PPPP
í gær, en Felix var nú líka farinn að steikjast
í eigin þreytusafa svo þetta jafnaðist út.
Gaman að því. Jú, ég var full erfiður
í garð Mausara, hafði bara ekki siðferðisþrek
til að sjá það fyrir, en þeir voru nú
bara að klikka á spurningum sem ég hélt þeir
hefðu, t.d. þessi um Factory Records. Ég held bara að
"óver oll" hafi Pops verið betri, og kannski engin furða
miðað við aldur og fyrri störf. Elwar vill komast í
kofann þegar tekið er upp og er það guðvelkomið.
Ef þessi popppunkts-síða á www.s1.is væri
komin upp væri hægt að skrá sig þar en eins
og er verður fólk að fylgjast með hér. Næsta
upptaka er nk. fimmtudag (17. okt) og hefst að ég held um kl.
17 og stendur til svona 21. Það verða teknir upp tveir þættir:
Sykurmolar
- Rokksveit Rúnars Júl og Fræbbblarnir - SSSól.
Á milli verður boðið upp á öl og flatbökur.
Öllum er velkomið að mæta eins lengi og fólk
hagar sér sæmilega vel og er ekki með frammíköll,
eins og þessir hasshausar sem mættu síðast og létu
Pops halda að 1000 andlit væri Tottmóbíl. Það
þarf ekkert að skrá sig, þið mætið
bara í góðu stuði. Ég verð með frekari
tímasetningu þegar nær dregur.
---
Keypti grilljón vinílplötur í Kolaportinu
í gær, en segi ekki hvað því þessa
dagana er ég ein mistería enda að semja hinar dularfullu
poppspurningar. Keppendur gætu komið hingað og séð
hvað ég var að kaupa og þar af leiðandi lagt saman
2 og 2.
---
Óli í Köben var um daginn að spyrja hvort "venjulegir
lúðar" gætu keppt í PPPP og nú er útlit
fyrir að svo verði því einn þátturinn
verður svona "utandeildarleikur" þar sem pælingin er að
"venjulegir lúðar", sem samt vita ógeðslega mikið
um poppedírokk, verði í liði á móti
frægu poppheilaliði eins og Óla Palla. Það verða
bara 3 "lúða" poppheilar sem komast í liðið og
við byrjum örugglega að taka á móti umsóknum
bráðlega. Þessi þáttur verður tekin upp
rétt fyrir jólin. Ég ætla að taka forskot
á sæluna: Skrifaðu
okkur og segðu okkur afhverju
ættir að vera í "Popplandsliði götunnar". Láttu
okkur vita símann/símana þína og taktu fram
þín helstu sérsvið á lendum poppedírokksins
(= "dægurtónlistar").
---
Sá nýja stuttmynd e. Ara Eldjárn í gær.
"Tindar" heitir hún í höfuðið á samnefndri
ímyndaðri hljómsveit, sem átti að hafa verið
heit í kringum 1970. Myndin fjallaði þó aðallega
um trommarann 30 árum síðar (ágætlega leikinn
af Kristjáni Séð og Heyrt) og nostalgíukast sem
hann fær þegar sonur hans dregur trommusett inn í bílskúr.
Nokkuð gott hjá Ara. Flott gerð mynd og "gömul" myndskeið
fiffuð á sannfærandi hátt. Fannst fyndnast þegar
Tindar eru í spjalli við Rúv 1970 og segjast syngja á
ensku því Svavar Gests hafi sagt það betra upp á
að fá dreifingu í Svíþjóð. Það
hló enginn annar í salnum. Ari sagðist hafa verið
innblásinn af Eru
ekki allir í stuði þegar hann gerði myndina og
er það gott. Mér finnst einmitt að í þeirri
bók búi 1000 og 1 stuttmynd. Ari segist kannski ætla
að stækka konseptið og er það vel. Þessi
stuttmynd er ágætis innlegg í stærra dæmi
en stendur varla kyrfilega óhaggandi svona ein og sér. Maður
vildi fá meira... 06:10
11.10.02
Fór í miðbæinn og sá þessa Skotabjána.
Nokkrir ungir Skotar í pylsum hömuðust baulandi fótboltabullubaul
fyrir framan gamla Útvegsbankann (ö, Hæstarétt?)
og höfðu glaðar fermingastelpur safnast utan á bullurnar.
Gengu sjússar á milli og munu eflaust nokkur meyjarhöft
bresta þegar á líður. Gaman að því.
Góð íþrótt gulli betri.
---
Bjarni Móhíkani var hins vegar í hrókasamræðum
við öryggisvörð Landsbankans.
---
Í apóteki kom amfetamínsjúklingur að
máli við mig. Hann sagði mér hversu vel hann fílaði
PPPP og brosti tannlausu brosi. Hress sendill var á sömu skoðun
í pósthúsinu. Í heita pottinum sagðist
Ísólfur Gylfi vera að fíla þetta og maður
um sextugt sagði að þetta væri "helvíti góður
þáttur hjá ykkur Felix". Það er því
ljóst að allir eru að fíla PPPP, og ég hlusta
ekki á neitt annað. Nema það sé uppbyggilegt.
Tala í lausnum, krakkar.
---
Þátturinn annað kvöld - Maus / Pops -
er hins vegar sá súrasti til þessa, enda var ég
snarsteiktur af svefnleysi og rugli samfara því þegar
hann var tekinn upp fyrir rúmri viku. Ég man ekki neitt hvað
var í gangi í þessum þætti og hlakka því
til að sjá'ann. Man þó að ég remdist
við að halda haus allan tímann og að standa mína
pligt. Ég var næstum því búinn að
komast í gegnum þetta þegar ég klúðraði
öllu
á frábæran hátt í blálokin. Þið
tékkið á því. Það er því
ekki nóg að við séum að stæla "Gettu betur"
og "Kontrapunkt", því á meðan ég er svona
steiktur erum við búnir að blanda "The Osbournes" í
mixið líka. Ég bind þó vonir við að
ég fái ekki aftur flugþreytu svona uppúr þurru.
---
Svo eru bara 3 þættir eftir í 16-liða og mér
skilst að þetta verði leikirnir:
19.10: Sykurmolarnir - Rokksveit Rúnars Júl
26.10: Fræbbblarnir - SSSól
02.11: Rokkslæðan - Oxzmá
18:40
---
Hvassegja krakkarnir, ha? Var með fína Alætu
í gær og Siggi Pönk
fór á kostum. Ég spilaði Black Sabbath fyrir gaur
sem var að hamast í vinnu í Kárahnjúkum.
Var ekki búið að hætta við það? Ég
veit það varla: ég er alveg lost í þessu
virkjunardrasli öllu. Fatta hvað liðið sem vill vernda
er að spá og fatta hvað gaurarnir sem vilja virkja og byggja
verksmiðjur og drasl eru að spá. Get því ekki
ákveðið mig í þessu máli og segi bara
pass - má það ekki? En allavega gott að ég
fann lag fyrir Kárahnjúksgaurinn - hann hringdi í
Alætuna og sagðist ekki vita lengur hvort það væri
dagur eða nótt þarna fyrir austan. Örugglega sveittur
á einhverri ferlýkis vinnuvél. Vonandi fær hann
ágætis aur fyrir þetta. Glatað að leggja svona
rugl á sig og fá ekki almennilega umbun.
---
Það er allt í lagi að biðja um óskalög
í komandi 'ætur. Einn vildi "Kyrkingaról" með Tolla.
Sagði það passa vel við þjóðfélagsástandið
í dag. Ég ætlaði að setja það á
fóninn í gær en svo var helvítis platan ekki
á svæðinu. Það mál er í vinnslu.
Sendu
bara línu, ef þú vilt að ég spila eitthvað
hressandi.
---
Við Lusulufs fórum í sætsíing þegar
við vorum í Vegas. Fórum í rútu að
skoða Hoover Dam. Rútukarlarnir í Amríkku eru
allir stand-öpp grínistar í fjötrum. Þessi
reytti af sér djókin en var fræðandi um leið.
Hundleiðinlegt Kana helvíti. Svo kom löggan og skoðaði
inn í rútuna áður en við komumst inn á
stíflusvæðið. Þeir skíthræddir
auðvitað að Bin Laden væri mættur með bombu.
Var ekki svona fyrir 11. sept, sagði rútudjókerinn. Löggan
var líka stand-öpp grínisti í fjötrum. Fór
með vel smurð gamanmál. Fannst ég dólgslegur
og spurði hvaðan ég væri. Fannst Æsland of framúrstefnulegt
til að ég væri hættulegur.
---
Leiðrétting: Að gefnu tilefni skal tekið fram að
með þessum snarpa ritstíl er ég ekki að stæla
Eirík Jónsson.
---
Stíflan Hoover Dam? Jamm, jú jú, hin þokkalegasta
stífla og allt sko. Maður var svimandi lofthræddur að
horfa niðraf henni. Datt bara Harrisson Ford í Fugitífs
í hug. Ógeðslega heitt þarna, enda við stödd
í miðri eyðimörkinni. Það dóu víst
margir við gerð stíflunnar. Minnsimerki um þá.
Meira að segja flækingshundur, sem verkamennirnir höfðu
tekið í fóstur, en hafði dáið í
slysi, átti sitt minnismerki þarna. Var grafinn í steypunni
þarna ofan á stíflunni og platti og allt. Mér
fannst það eiginlega merkilegast við þessa ferð.
Já, Kana greyin. Jú, þeir eru barnalega einfaldir og
eitthvað sætt við þá á svona Lassílegan
hátt.
---
Svo keyrði rútan til baka í Las Vegas geðveikina
og rútudjóker djókaði látlaust, enda eins
gott því rúsínan í hans pylsuenda var
tippsið að lokinni ferð. Tipps-sístemið gerir það
að verkum að allir Kanar í þjónustuiðnaði
eru sírövlandi um allt og ekkert. Halda að þeir fái
meira tipps ef þeir eru svona "almennilegir". Fyrst fannst okkur
þetta bara sætt, en svo var þetta farið að fara
óstjórnlega í taugarnar á okkur. Í lokin
vorum við farin að æla við tilhugsunina. Vorum kannski
að éta eða kaupa eitthvað einhversstaðar og þá
byrjaði rullan: Hvaðan eruði?, hvert eruði að fara?,
hvað geriði? og svo framvegis. Við auðvitað of þægileg
til að biðja fólkið vinsamlegast um að halda kjafti.
Ég vona að tipps-sístemið komist aldrei á
hér. Það er bara notalegt þegar fólk í
þjónustustörfum er passlega hranalegt.
---
Felix er búinn að skrifa annan
pistil um reynslu sína af Popppunkti. Það er verið
að setja upp almennilega síðu fyrir þennan geggjaðsgóða
þátt, en þetta tekur allt voða tíma því
strik.is er eitthvað með í þessu og endalausar flækjur
og bull. Annars eru Felix og Smalinn og fleira gott fólk að
fara að setja upp leikrit í Vesturporti sem ku brjálæðislega
gott. Heitir Kvetch. Það er komin heimasíða
með dæminu. Tékk it. 07:15
09.10.02
Svona hættiði nú að dissa Kolbein greyið.
Þetta er ábyggilega fínn strákur, sem hitti
bara á mig í eindæma fágætu geðvonskukasti.
Annars voru stelpur um daginn að
skrifa á Innanbleiku
um gildi kvennatónlistar og voru alveg gaga að ég skildi
hafa kallað stelpur í rokki og rafi "frík". Þær
ættu þó að vita að "frík" í mínum
huga er mjög jákvætt, enda tel ég sjálfan
mig ekkert annað en hreinræktað frík. Stelpur í
mússekk gera yfirleitt mjög ferskt dót, enda hin "kvenlegi
blær" ferskur í þessum pungsvitabransa. Kvennabönd
eins og The Slits, Raincoats, Shaggs og hinar japönsku Go-Bangs eru
allar í miklu uppáhaldi hjá mér, en íslensk
kvennabönd mættu vera fleiri, ekki satt?, og stelpur í
þessum strákabransa mættu vera helmingi fleiri, ef ekki
miklu meira en það. Stelpurnar
ættu þó að hoppa af gleði við það
sem ég segi þeim núna: Að Rokkslæðan
mun að öllum líkindum vera bráðlega í
Popppunkti. Áfram stelpur! Jákvæð mismunun, húrra!
---
Sjálfur verð ég hjá Grjóna á
Radíó-X kl. 9 í fyrramálið að taka
púlsinn á stuðinu. 17:15
---
Æ ég var nú fullleiðinlegur við Kolbein
greyið. Hann meinti örugglega vel. Það er samt ljóst
held ég að ég verði eitthvað minna í blogginu
en áður, enda miklu meira að gera hjá mér
en þegar heilu doktorsritgerðirnar runnu hér um síður
einu sinni. Þið vitið að maður þarf að
forgangsraða og það sem mar fær pening fyrir gengur
fyrir. Þið ættuð að sjá helvítis
Visa-reikninginn, mar. Ekki það að einhver hafi verið
að neyða mig til að eyða öllum þessum peningum
- en jæja: mar fer bara einu sinni í hónímún.
---
Alætan annað kvöld á Rás 2 - Siggi Pönk
(yngri) verður með óskalagahornið og ættu eyrun
að bráðna af einhverjum við þau ósköp.
Gaman gaman.
---
Ég er allur að koma til í svefnleysisgeðveikinni.
Tók á þessu með heitum pottum og svo lét
ég Láru á Nuddstofunni Umhyggju nuddast í mér.
Hvort um sig var stórkostlegt. Ég tek heitu pottana kl. 6:30
um leið og gamla liðið og þegar ég lagðist
flatur í heitasta pottinn í Vesturb.lauginni var ég
5 sek frá sáðláti - hvílík sæla.
Ekki var nuddið síðra. Slökunarnuddið ber nafn
með rentu og ég var eins og undin tuska þegar Lára
hafði lokið sér af. Var næstum kominn með bullandi
standpínu þegar hún var að hamast á ofanverðum
lærunum, en gat beint heilanum á aðrar brautir sem betur
fer. Eftir nuddið var ég látinn liggja eins og drusla
á beddanum og snarsofnaði um leið. Svaf örugglega í
klukkutíma og hraut eins og biluð jarðýta. Ég
held að karlinn sem var í slökunarnuddi við hliðina
á mér hafi ekkert verið að fíla mig, he he.
En nú ætla ég í heita pottinn og svo á
ég tíma hjá nuddstofunni Umhyggju á föstudaginn.
Hvílíkur lukkunar pamfíll (pamfíll - vot ðe..?)
maður er. Nudd og pottar og svo er maður giftur bestu konu í
heimi í ofanálagt. 06:15
08.10.02
Djöfull þoli ég svona vanþakklátt lið
eins og þennan Kolbein sem vælir grenjandi og rekandi við
um að ég sé ekki skemmtandi honum út í
eitt. Heldur þetta pakk að ég hafi ekkert betra að
gera? Drullastu bara til að gerast áskrifandi af Lifandi vísindum
eða eitthvað. Mér er skapi næst að steinhalda
kjafti þar til þessi móngólíti hefur beðist
afsökunar. 18:16
07.10.02
Kæra fólk. Er enn einum of slappur til að skrifa mikið.
En er á batavegi, takk. Hef sofið þokkalega vel sl. daga
og án þess að éta svefntöflur - er m.a.s.
hættur að keðjureykja. Ætli maður fari ekki bara
í svett til Nonna Indjána til að ná sér
almennilega niður?
---
Já þátturinn með Ham-Írafári
var massakúl og ef Orri Harðar segir að Egill hafi sungið
þetta já-já-lag en ekki Bjólan er eins gott
að Ham unnu. Auðvitað átti ég triple-tékka
það dæmi, en var bara einum of steiktur. Jú liv
og lörn. Bráðaspurningin kom okkur gjörsamlega í
opna skjöldu því við höfðum bara ekkert
hugsað út í þann möguleika. Sem betur var
ég með spurningar í töskunni í einhverju
bríaríi, en allt sem var á blaðinu voru spurningar
sem ég hafði verið með í morgunþætti
Sigurjóns - nema tvær spurningar og önnur þeirra
var þessi um Jóhann G og bassann. Jú það
er góð hugsmynd hjá Esju að draga þetta úr
potti næst, takk fyrir það.
---
Annars á ég afmæli í dag (37 ára
- kan jú belíf it?) og ætla bara að sluxa um í
náttfötum og éta (hef misst 5 kg sl. viku - ekki eins
og það sjáist högg á vatni). Farið vel
með ykkur. 05:00
05.10.02
Súrrealisti vikunnar:
"Það eru fortíðardraugar að gerjast í
farangrinum"
Þorgrímur Þráinsson (eða einhver fótboltasnillingur
sem var líka) að tjá sig um fótbolta á
Rás 2 í gær.
---
Það ætti öllum að vera ljóst að
blogghlé mitt hér á síðunni er vegna svefnleysis,
brjálæðra anna, og snerts af geðveiki sem ég
varð fyrir í kjölfarið. Það hjálpaði
því ekkert þegar ég heyrði þessa setningu
Þorgríms (eða hins) úr vasatækinu mínu
hver ég gekk keðjureykjandi í Gefjunarúlpu um
Nauthólsvík í tilraun til að ganga í mig
þreytu (til að geta e.t.v. sofið eins og maður í
kjölfarið.) Ég myndi segja ykkur frá þessu
öllu saman ef ég væri ekki ennþá hálf
ruglaður.
---
Ég mæli með að allir lími sig við skjáinn
kl. 9 í kvöld þegar Ham og Írafár mætast
í Popppunkti. Þetta er að öllum líkindum sá
mest spennandi spurningaþáttur sem sést hefur í
íslensku sjónvarpi frá upphafi. Mjög góða
skemmtun!
18:00
02.10.02
Ég er allur að braggast, enda leitaði ég aðstoðar
besta læknis landsins. Hann lét mig hafa tvær tegundir
svefntaflna til að ráðast á svefnröskunar/andvöku-vandann.
Eina pillu Imovan tók ég strax kl. 10 í gærmorgunn,
en átti samt erfitt að sofna. Það var ekki fyrr en
steiktur hausinn á mér sveif um ís-breiður Grænlands
að mér tókst að slökkva á heilanum og
sofna. Var reyndar áður búinn að klæða
mig alsberan í svona eskimóa-úlpu með loðhettu,
fannst það við hæfi þarna á sléttunum.
Lufsan fékk kast og tók mynd þegar hún kom heim.
---
Vaknaði nokkuð hress kl. 15 og tók törn í
að semja PPPP-spurningar. Um kl. 22 var komið að part-2 í
masterplani læknisins. Þá poppaði ég annarri
Imovan og einni Surmontil, sem læknirinn sagði mér að
væri gamalt þunglyndislyf. Reynslan af þessu Surmontili
voru aukaverkanirnar: gríðarleg syfja. Það þótti
víst ekki passa að þunglyndissjúklingarnir væru
sífellt sofandi hér og þar, nógu slappir væru
þeir fyrir. Því var lyfið tekið úr umferð,
en ennþá gefið við svefnleysi. Af þessari blöndu
tókst mér að sofa til kl. 05 í nótt, sem
var nú bara alveg frábært! Mér létti
stórum að þessi pillukokkteill virkaði því
ef ekki hefði næsta skref verið að nota Mogadon, sem
mér leist nú ansi illa á að ég ætti
fara að bryðja í tíma og ótíma, enda
vinsælt efni meðal dópista (skilst mér). Nú
er bara að vona að með hjálp lífefnafræðanna
(eru þau ekki yndisleg?) takist mér að komast á
réttan kúrs hið fyrsta.
---
Hef annars lokið við að semja spuringapakkann fyrir PPPP#4:
Ham - Írafár. Í dag þarf ég að semja
PPPP#5, eða Maus - Pops. Eins og áður reyni ég að
gæta fyllsta hlutleysis. Svo verður upptaka á morgun,
fimmtudag. Þetta verður maraþondagur og eins gott að
ég verði orðinn ágætur í hausnum. Upptakan
byrjar kl. 17 niðri á Skjá einum. Þú, já
þú, ert velkominn að koma og vera gestur í sal.
Þá þarftu að mæta kl. 16:30 (Staðsetningu
Skjás eins finnurðu í símaskránni) og vera
tilbúinn að eyða 4-5 tímum á svæðinu,
því við tökum nefnilega upp 2 þætti á
morgun. #4 ætti að vera búinn kl. 18:30 og þá
er hlé þar sem bjór og pítsur verða í
boði fyrir gesti. Upptaka á #5: Pops - Maus, byrjar svo um kl.
19 og varir í mesta lagi til kl. 21. Hljómar þetta
ekki bara nokkuð vel sem ævintýraleg afþreying fyrir
þig á rigningarlegum fimmtudegi?
---
Ég fer svo beint upp á Rás 2 eftir upptökuna
á PPPP til að gera ALÆTUNA
í beinni. Ég leik krassandi stuðlög að mestu
en gestur minn verður Hildur söngkona í Rúnk. Hún
er fyrsta kvendýrið sem velur óskalög hjá
mér (þessi þáttur er #50) og ég hnegi
höfuðið í skömm og vana að Jafnréttisráð
kæri mig ekki. En ég meina, er það mitt vandamál
að stelpur nenni ekki að rokka og rafa? (nema einhver frík).
---
Mér vöknaði um augun og varð meyr þegar mér
barst þetta rafskeyti í gær:
Sæll Gunnar,
við á Baggalúti
óskum ykkur Bjarnveigu innilega til hamingju með brúðkaupið
og óskum ykkur velfarnaðar um alla framtíð.
Dreyminn unni doktor Gunni
dís frá Ísafirði
það að hún vildann
- og hreinlega þyldann
þykir mér mikils virði
Lifið heil,
Enter.
07:40
01.10.02 (er það ekki annars?)
Hef ákveðið að gefast upp fyrir aðstæðum.
Ég bind vonir mínar við það sem mér
var sagt að það taki 1 dag að vinna upp hvert tímabelti
sem maður tapaði. Bind altso vonir við að ég verði
orðinn ok á miðvikudaginn 9. október. Ég þori
ekki að tjá mig mikið að sinni af því ég
er hræddur að það yrði algjör steypa, því
fyrir utan flugþreytuna er ég í maníukasti og
það er geðveikt að gera og þar að auki er ég
orðinn strompreykingamaður (meira um það síðar).
Lufsan er slöpp líka og rugluð, en aðeins skárri.
Varð aðeins fúl þegar ég truflaði einbeytinguna
hjá henni og fór að hlægja upp úr eins manns
hljóði á koddanum áðan. Þá hafði
ég verið að sjá fyrir mér meðlimi Ham
í Hopp og popp-hluta Popppunkts.
---
Ég hlýt að geta svarað nokkrum innanbleikum skeytum
þótt tæpur sé. Þúsund þakkir
til allra sem eru með hamingjuóskir og jákvætt
pepp á popppunktinn. Ég verð nú bara meyr eins
og grenjuskjóða á Óskarskvöldi þegar
ég hugsa um ykkur. En jæja:
Sæli sagði: Velkominn heim Gunnar. Þú hlýtur
nú að hafa farið töluvert út að borða
í ferðinni. Hvernig væri nú að bæta nokkrum
amrískum veitingastöðum við gagnrýnina?
Ég svara: Jú, það kemur.
---
Óli í Köben spyr: Verdur einhverntimann poppspurningathattur
thar sem venjulegir ludar eins og eg fa ad taka thatt? (Er ekki ad bøggast,
bara ad spyrja kurteisislega).
Ég: Svarið við þessu er of flókið til
að ég meiki það núna, en beisiklí gengur
það út á kross-óver-pótensjal og
útfærsluatriði og slíkt. Það kemur að
þér Óli, æm sjör.
---
Símon: Er möguleiki að þú getir bætt
við link á heimasíðuna þína tileinkaða
þættinum þínum PPPP. Þá getur þú
birt spurninarnar sem voru ekki spurðar og svo framvegis. Hvernig valdir
þú liðin? Getur þú birt hvað lið
eiga eftir að mætast?
---
Ég: Línkur kemur. Poppp-síðan kemur. Lið/bönd
voru valin með hugsanlega popplega getu í huga og stundum frægð.
Það eru 16 lið sem verða í þessu og við
reynum að hafa fjölbreytni í hópnum. Ég get
ekki sagt þér hvaða lið þetta eru því
við erum einfaldlega ekki búnir að negla það.
Ég get þó sagt þér þetta:
5 okt: Ham - Írafár
12 okt: Maus - Pops
---
Shregg: Ég styð þig með Conan málið,
hvernig væri að setja undirskriftasöfnun á vefnum
þínum af stað?
Ég: Ég var einmitt búinn að hugsa það
sama og er meira að segja búinn að hanna bannerinn í
huganum. Átakið mun heita VIÐ VILJUM CONAN. Getur eitthvað
tölvuséníið bent
mér á tæknilega lausn á svona lista?
---
Dúllarinn: Afhverju ert þú ekki meðal kynþokkafyllstu
manna á Íslandi samkvæmt vikunni? Þetta er fólk
sem veit ekki að fegurðin kemur að innan!!! ++++RASSGAT++++
P.s. skyrturnar eru snilld sem þú ert í í
pppp...
Ég: Ég veit. Hvað þarf maður að tönglast
á þessu oft: Fólk er fífl. Takk: 15 þættir
= 15 skyrtur.
---
Jæja, best að fá sér meiri Marlboro. Kannski
að hita kaffi líka? Djöfull hlakka ég til 9. október.
04:15
30.09.02
Brjálað að gera mar. Maður þarf að borga
Visa-reikningana, jú nó.
---
ALÆTAN
fer aftur í loftið á fimmtudaginn. Ennþá
á Rás 2. Ennþá kl. 22:10.
---
Afhverju er enginn að tala um nýja Sánd blaðið?
Mér finnst það algjörlega frábært og
það er magnað að þetta eru mest einhverjir undir-20.
krakkar sem gera þetta (+ einstaka gamall hundur). Ég votta
hér með að þetta nýja tölublað (Sigur
Rós framan á) er það langbesta sem gerst hefur
í tónlistartímaritaútgáfu á Íslandi.
Ég var marga tíma að renna yfir það allt og
það var hægt að lesa alveg helling. Blessað Undirtónar
er eins og ofvaxinn sjónvarpsvísir við hliðina á
þessum svakalega pakka. 20:15
29.09.02
Jæja mér tókst bara að sofa í 3 tíma
þrátt fyrir að gleypa svefntöflu. Ég er að
verða einhver Drakúla hérna. Alveg fínt svosem,
enda er svefninn leiðinlegasti hluti sólarhringsins. Ég
var að spá í hvort einhver lesandi ætti ekki eintak
af spólunni Snarl 3 sem ég gaf út fyrir 11 árum.
Ég var nebbla sá sýruhaus að glopra út
úr lúkunum öllum eintökunum mínum og á
ekkert sjálfur. Mér langar ekkert sérstaklega til
að heyra þetta aftur, en ef einhver nennti að segja mér
hvaða hljómsveitir voru þarna yrði ég voða
voða glaður. Kannski bara skann af umslaginu? Meilið mitt er
hér.
---
Sá Elling á vidjó í gær (aftur) og
stend alveg við 9.5 sem ég gaf henni. Hló jafn mikið
og fékk kökk. Leið reyndar ekki eins og Móðir
Teresa þegar myndin var búin. Svo fannst mér hún
miklu styttri en í bíó. Ég er búinn
að fatta að ef myndir fá yfir 9 hjá mér þá
þýðir það að ég er til í að
sjá þær aftur. Yfirleitt finnst mér nú
tímasóun að glápa oft á sama dótið.
En ég er t.d. búinn að sjá Ghost World aftur og
fílaði alveg jafn vel.
---
Við Lufsan fórum slatta á bíó úti,
á splúnkunýjar myndir (svo sem sama dótið
og hér - það er af sem áður var, takk Árni
Sam!), og ég er búinn að eyða nokkrum orðum á
þær á gagnrýnissíðunni.
Þægilegt að sjá myndir án hlés. Annars
var úrvalið heldur slappt þar sem við vorum, en mér
skilst að september sé dauður mánuður í
þessu þarna úti, sumarsmellirnir búnir og verið
að bíða eftir jólageðveiki. Á þessum
tíma koma því oft út einhverjar súperglataðar
myndir eins og t.d. Stealing Harvard, ný mynd með Tom Green,
sem mér finnst fáviti.
---
Sjónvarpið var líka að byrja með vetrardagskrána
- fyrstu þættirnir af nýjum (og gömlum) þáttarröðum
voru að detta inn. Svo voru bara stanslausar endursýningar -
húkkaðist t.d. algjörlega á Everybody loves Raymond,
sem er frábær þáttur. Það er frábært
að hann sé á undan PPPP á laugardagskvöldum
á Skjá eittnum. Sá fyrsta þátt nýrrar
seasonar af Frasier, alltaf ágætt. Sá einhverja nýja
þætti líka. Allt hálfgert drasl. Sá líka
David Letterman, Leno og Conan. Ég skil nú ekki alveg hvaða
dálæti margir hafa á Letterman. Jú jú
voða meinlaust og nett svona, en ekkert spes verð ég að
segja. Leno er náttúrlega fáviti og þessi endalaust
flissandi freðni gítarnegri er nú þokkalega takmarkaður.
En það má svo sem glápa á hökuna í
harðindum.
---
Nei, kóngur spjallþáttana er að sjálfssögðu
CONAN O'BRIAN! Lang fyndnastur og mest spontant. Lang besti húmorinn
í gangi, flottasta stúdíóhljómsveitina
og kúlustu böndin eru hjá honum. Snilld eins og móðgunarhundurinn
Triumph og önnur innslög tryggja að Conan er 100% val hugsandi
fólksins og snillinga. Ég nefndi við Árna Þór,
eða vin minn AÞ eins og ég kýs að kalla'nn,
að hann ætti nú að drífa Conan aftur á
skjáinn í staðinn fyrir þessi Leno leiðindi.
Árni útskýrði að enginn vildi auglýsa
hjá Conan og að Leno væri vinsælasta efni S1 og
svona (sama sama, fólk er fífl), en persónulega fyndist
honum Conan frábær. Þá hefði ég átt
að spyrja - En Árni; hvað segirðu um að setja Conan
bara í loftið á eftir Leno? - en klikkaði auðvitað
á að spyrja að því. Það hljóta
að fara að koma einhver S1-fyllirí og þá verð
ég bara að ráðist í málið og króa
AÞ af inn á klósetti með Conan-ræðuna
tilbúna. Er þaggi? 08:30
---
Ferðalagið er alveg búið að fokka upp svefnvenjum
mínu. Þotuþreyta. Klukkan er 10 tímum á
eftir á Havaíí og ég hef lítið sofið
síðustu dagana. Sit því hér og hlusta á
Næturvakt Rásar 2. Heiða næturvörður er
í Frakklandi svo því er einhver sófi á
vakt sem kann ekkert á tækin og spilar leiðinleg lög.
Best ég setji bara winampinn á shuffle í staðinn.
---
Ah, þetta var betra - lenti á lagi með hinum ægigóða
Bobby Conn.
---
Enn einn fullnaðarsigur í PPPP. Hélt þetta
yrði meira spennandi enda búinn að semja spurningar sem
ég vissi að Stebbi Hilmars ætti góðan séns
í (valmöguleikarnir James Brown og Motown), en svo mætti
bara aðalsálarhirðirinn ekki. Millar rúlluðu
þessu upp og nú eru því 3 mjög sterk lið
kominn áfram. Við vorum komin með vandaða stigatöflu
(ekki handskrifaða) og svo voru glös á borðum (ekki
flöskur). Ég ætla rétt að vona að hinir
örðu gagnrýnendur á
innanpíku hafi tekið eftir þessu. Ham - Írafár
næst. Ég veit að Ham mæta með sterkt lið
en veit lítið um popplega getu Írafársins. Þetta
kemur bara í ljós.
---
Ég eyddi út innanpíkubleiku gestabókarinnslagi
frá einhverjum "Jeffa" af því hann var með eintóm
homma og rass og kúkaleiðindi í garð Felixar Bergssonar
og Hemma Gunn. Þetta er mín gestabók og ég áskil
mér rétt til að henda út bjánum. Það
er ágætur klósettveggur í Kaffivagninum í
Granda sem subbur geta tjáð sig á. Mér er drullusama
þótt einhverjum þyki ég hér einum of "pc".
Djöfullinn hafiði, ég er að verða 37 ára
og má alveg vera smá pc.
---
Þegar ég var úti komst ég stundum á
internetið en þurfti að borga slatta fyrir notkun á
einhverjum netkaffihúsum eða sjálfssölum. Maður
þurfti því að vera snöggur að finna eitthvað
um hvernig stemmingin væri á Íslandi og hvort eitthvað
væri að ske. Eftirminnileg fannst mér "frétt" á
mbl.is um 3 rollur sem hefðu týnst á Hellisheiði
(ef ég man þetta rétt) - þá klökknaði
ég og flautaði "Íslandi er land þitt" titrandi
röddu. Annars var auðvitað ekkert í fréttum
og alveg sama hvað ég skrollaði upp og niður á
visir.is og strik.is þá fangaði ekkert áhuga minn.
Helst að Baggalútur gæfi manni stemminguna í þjóðfélaginu,
og svo eru þeir þar að auki alltaf jafn helvíti
fyndnir. Saknaði þess að geta ekki lesið samantekt á
því hvað Sigurjón Kjartansson og kó hafði
verið að tala um þá vikuna. 01:50
---
28.09.02
Æ það er helv fínt að vera kominn heim.
Verð að játa að 4 vikur í að vera túristi/ger'ekki
neitt var farið að taka á taugarnar. 2 vikur hefði verið
massafín ferð, 3 vikur fín ferð, 4 vikur fín
ferð en einum of mikið af "ekki neinu".
---
Las Vegas er auðvitað geðveik
borg og möst að fara þangað allavega 1 sinni. Við
sirka 4 km langa breiðgötu standa haugarnir af það sem
þeir kalla hotel-casinos. Í hverju svona ferlíki er
yfirleitt boðið upp á það sama. Þetta eru
hótel á einhverjum billjón hæðum og taka
flest svona 2-4 þús manns í herbergi. Neðst er
casinóið - endalaust rými fyrir spilavíti. Í
allar áttir teygir það sig og allsstaðar er fólk
á öllum aldri að láta féflétta sig
undir yfirskyni skemmtunar. Spilakassar í þúsundavís
í hverjum sal + einhver rúllettu og pókerborð
og "crabs" og ég veit ekki hvað þetta rugl heitir. Í
hverju hóteli er svo stórir tónleikasalir þar
sem listamenn hússins spreyta sig kvöldlega og heilu mollin
+ nokkrir veitingastaðir, mynjagripasjoppur, matvörusjoppur og
jú neim itt.
---
Það fer allt eftir því hversu stórfenglegt
hvert hótel er hvað í boði er fyrir utan spiladraslið.
Sum eru með tívolí og rússibana önnur með
kannski vatnagarð og hákarlabúr og eitthvað. Mörg
þessara nýjustu eru með sitt eigið "þema", þar
sem allt draslið er "í anda" einhvers. "Paris" er eins og nafnið
segir í frönskum anda. Þar hafa þeir endurbyggt
Effelturninn og Sigurbogann í raunstærðum og þessi
"meistaraverk" Frakka standa hálf fíflaleg fyrir utan. Ameríkanar
líta mjög upp til evrópskrar sögu og bæta
upp eigið sögu- og menningarleysi með því að
ausa peningum og byggja bara gamla draslið frá Evrópu
í garðinum hjá sér. Við hliðina á
Paris var Venetian (ekki Vietnam), en þar voru Feneyjar komnar eins
og þær leggja sig mínus vatnarotturnar. Caesars Palace
er í fornrómvörskum anda, Luxor í fornegýpskum,
Sahara í arabískum o.s.frv o.s.frv. Þegar þessi
ferlíkishús hætta að bera sig og eru orðin
úrelt eru þau einfaldlega sprengd upp í heilu lagi
og nýtt ennþá æðislegra byggt í staðinn
þegar búið er að jarðýta draslinu burtu.
Þetta gengur auðvitað allt út á að toppa
síðustu geðveiki og næsta geðveiki á víst
að vera eins og Versalir með plássi fyrir 10.000 manns eða
eitthvað í herbergi. Við vorum mest hissa á að
þarna væri ekki hótelið Eskimo þar sem herbergin
væru eins og snjóhús og ekkert nema Grænlendingar
á vaktinni.
---
Satt best að segja sáum við ekki Grænlending í
4 vikur. Og kannski það sem er ennþá furðulegra,
þá hittum við enga Íslendinga í 4 vikur.
Ég held það hafi verið hressandi upplifun.
---
Til að gestir eyði nú sem mest í þessa
hálfvitalegu spilakassa er allt opið 24/7 allt árið
og það er alltaf sama birtan inn á stöðunum enda
skiptir ekki máli hvort það sé dagur eða nótt
þegar maður er að "græða". Það eru engar
klukkur á veggjum og allsstaðar má reykja úr sér
lifur og lúngu. Búsið er eðlilega hræódýrt
(fólk missir alla dómgreind auðvitað fullt) og maður
þarf rétt að taka pásu frá því
að ýta á spilatakkann og klikkja fingri þá
er kerling í sokkabuxum mætt með glasið. Við vorum
fyrst á Imperial Palace, fínt greni í léttum
asískum stíl. Í spilasalnum var spiluð svona "Gullið-mússik"
nonstopp og blandaðist saman við ólgandi dininn úr
æpandi spilakössunum. Við lögðum ekki í
að tapa öllu á einhverju borði en tókum smávægilegar
tarnir við videó-pókerinn (alveg sömu kassar og
eru hérna). Það var vonlaust að vinna eitthvað
í þessum one-armed bandits, en við náðum það
langt í þessu video-pókerdrasli að enda í
14$ "gróða" eitt kvöldið, og í $25 annað.
Annars misstum við snemma áhugann á að húka
við skjáina (fannst bara að við yrðum að vera
með fyrst við vorum nú mætt í þessa geðveiki),
en það var hálf sorglegt að sjá gamla liðið
í hjólastólunum hangandi sljótt með klinkfötur
við kassa.
---
Aðalmálið var auðvitað giftingin góða.
Eiginkona mín, aka Lufsan, kom með sérhannaðan kjólinn
með sér frá Íslandi, en ég fór í
Western-búðirnar í LV og valdi mér undurkúl
satínsvört jakkaföt með apaskinnsbryddingum og eðalgóða
kántrískyrtu, rauða með nótnamunstri. Ég
fór nú bara með spons-skóna úr Popppunkti
með mér út því ég týmdi ekki
að eyða í enn aðra spariskó, hvað þá
að ég vildi fá mér kúrekastígvél,
enda sá ég mig ekki í anda, hálkufælnasta
mann landsins, ganga mikið í slíkum sleipustígvélum.
---
Það voru auðvitað kapellur inni á öllum
þessum hótelum, en við vildum spes kapellu undir athöfnina
og fyrir valinu eftir nokkurn samanburð og eftirlitsferðir varð
sú frægasta, A
little white chapel. Við mættum þarna borgaralega klædd
og keyptum pakka. Biðum svo nokkrum dögum síðar eftir
limmunni, uppáklædd, með hringana í vasanum og
til í tuskið. Gaur sótti okkur á limmu og meðan
við sátum aftur í á þessum hamingjudegi
þurfti gaurinn auðvitað að röfla heil ósköp
um sjálfan sig, að hann hafi nú verið in the navy
og ég veit ekki hvað og hvað, eins og maður nennti að
hlusta á ævisögu einhvers bílstjóra á
sjálfan brúðkaupsdaginn. Við fórum svo á
færibandið, fyrst að láta mynda okkur af hressum blökkumanni
(20$ tips). 12 uppstilltar myndir fylgdu með í pakkanum og hér
er ein komin á netið. Næstu hittum við loksins pastorinn
sem ætlaði að pússa okkur saman. Lentum á Rev.
Robert L. Stone (50$ tips), sextugum karli með flöskubotnagleraugu.
Sögðum að við vildum giftingu án alls bulls um
Guð, Jesú og þá félaga, og kallinn dæsti
og samþykkti með semingi.
---
Svo settann videóspóluna í tækið (videó
af athöfninni innifalin í díl) og kveikti á brúðarmarsinum.
Þá gengum við í áttina til hans og svo var
athafnast með "rípít after mí: Æ Gönner"
o.s.frv. Kallgreyið reyndar alveg að fríka út á
að bera fram "Bjarnveig", en þetta endaði allt vel og eftir
5 mín voru hringarnir settir upp og við gift! Þá
var lagið "Æsandi fögur" með Hljómum (lagið
"okkar") sett á fóninn og það var verulega heimilislegt
að heyra í Rúnari Júl þarna. Séra
slökkti reyndar full snemma á laginu enda hringdi gemsinn hans.
Það hefði verið ennþá "hátíðlegra"
ef kallinn hefði fengið símtalið í miðri
athöfn.
---
Sá málglaði úr the navy (30$ tips þrátt
fyrir allt rövlið) keyrði okkur næst á besta
sushi-stað Vegas þar sem við átum í fyrsta
skipti sem hjón. Svo taxi á nýja hótelið
sem við vorum komin á, svítan á "New York New
York" (jú jú, þema þess er NY) og þar var
hjónbandið fullkomnað í jacuzzíinu.
---
Þannig var nú það. Daginn eftir, eftir viku
í geðveikustu borg heims, hófst svo honímúnið
á Hawaii. Meira um það þegar ég hef tíma.
Maður þarf að byggja sig upp í blogginu eftir svona
langt hlé.
---
Það á annars að taka upp popppunkt (aka PPPP)
nr 3 kl. 17 í dag (laugardag). Ef þú vilt vera út
í sal geturðu bara mætt svona 16:30. Örugglega fínn
þáttur: Sálin á móti Milljónamæringunum.
Páll Óskar Milli er búinn að æfa sig vikum
saman og ætti að verða rosalegur. Hann stefnir alla vega
að sigri í keppninni. Ég spái að þetta
verði mest spennandi þátturinn til þessa.
---
Ég þakka annars hlý orð um PPPP í gestabókinni
innanpíku. Mér sýnist flestir glaðir með
þáttinn "í þjóðfélaginu" og
sjálfum finnst mér hann frábær, þótt
hann verði eflaust endalaust að slípast til. Felix er dúndurgóður
í þessu og hefur skrifað pistil
um reynslu sína. Ég doldið eins og fífl ennþá,
skána kannski. Ég var alveg viss um að Stuðmenn myndu
valta yfir ÍSFötum, en bæði voru ÍSFötum
miklu betri en ég átti von á og SMenn slappari. Að
Motorhead séu Sex Pistols, Ha, Jakob? - kommon. Maður var nú
svosem 90% viss um að Ný Dönsk myndu vinna XXXR en ég
hefði nú kannski getað verið með meira rapp fyrir
hundana, en það hefði þá á móti
verið ósanngjarnt gagnvart nýdönskum. Fáránlegt
klúður hjá mér þarna með síðustu
spurningu þáttarins - það var bara meinloka í
mér sem lét mig alveg gleyma "Syngjanda sveittum" plötunni.
Fokk it. ND löngu búnir að vinna hvort eð er. En það
verða eflaust einhver svona klikk í framtíðinni þar
sem ég kem upp um poppfávisku mína - maður er
náttúrlega endalaust að fletta í gögnum þegar
maður er að semja þetta - það er ekki eins og ég
"viti" þetta allt.
---
Hilmar Már, greinilega aðal Marley-fræðingur klakans,
spyr um rétt svar við hver lék undir í laginu
Punky Raggae Party og kemur með mjög djúpt svar sjálfur.
Mitt svar var nú bara "Aswad", enda sögðu mínar
kokkabækur ekki annað. Maður ætti kannski að hætta
að nota matreiðslubækur í þessu.
---
Já já auðvitað mætti þetta "lúkka"
eitthvað meira hipp og kúl eða eitthvað, en mér
finnst þetta kósí. Tússadæmið jú
jú - auðvitað ekki mjög pró - en eruði að
segja að ég skrifi illa?
---
Auðvitað eru ekki allar spurningarnar alveg geðveikt góðar.
Þessi með Woodstock 94 var já já alveg út
úr kú, ég er alveg maður í að játa
það. Maður er samt alltaf að verða færari í
þessu og ég held að spurningapakkinn í kvöld
sé sá þéttasti til þessa.
---
Jón B stingur upp á að opna veðbanka og auðvitað
ætti að gera það þegar 8-lið standa eftir.
Það verður eflaust eitthvað dæmi sett í
gang á netinu og svo ættu vinnustaðir bara að leggja
í bjórkassapúkk.
---
Annars brjálað að gera og batteríin alveg að
springa. Og gott að vera kominn heim aftur. 08:05
VAR
EITTHVAÐ AÐ GERAST sumarið 2002?