VAR EITTHVAÐ AÐ
GERAST?
15.07.02
WD-40 er dót sem virkar. Hvernig
væri að fljúga áburðarflugvélum yfir
miðausturlönd, dæla WD-40 yfir Arabana og Gyðingana
og sjá hvað gerist?
---
Að fara útí videóleigu er píning á
við að fara í klamedíutest. Maður stendur fyrir
framan rekka fulla af hörmulegu sorpi og finnur gáfnavísitöluna
flýta sér niður á mongólítastigið.
Ætlaði að vangefnast til að sjá Rock Star, en
hún var auðvitað ekki inni svo ég tók Insterstate
84. Hvílík
mistök!
---
Afhverju er kominn vetur um mitt sumar? Skiptir ekki máli =
Las Vegas/Hawaii eftir 6 og 1/2 viku... 08:01
14.07.02
Sá hina glæsilegu "gáfuðu tvíbura" Ármann
og Sverrir koma út úr
Pennanum í gær. Sá ekki betur en þeir væru
alveg eins klæddir (í grænum vattúlpum) og við
þá krúttlegu sýn saknaði ég þess
að eiga ekki tvíbura sjálfur til að nördast
með um bæinn.
---
Var annars að fara að hitta strákana í Mínus
til að gera við þá viðtal fyrir Smekkleysu-vefinn.
Krummi var of eftir sig til að mæta en hinir komu nema bassaleikarinn
(sem er að hætta og fara í HÍ en það
má víst ekki tala um það). Það er alltaf
saman sagan í rokkinu, alltaf gefast einhverjir upp og snúa
sér að einhverju öðru "viturlegra". Strákarnir
voru annars hinir hressustu og eru ekki einu sinni byrjaðir að
reykja eftir allt rokkið. Fussuðu og veifuðu frá sér
eins og kerlingar þegar ég dirfðist að totta hommalegan
Café Creme fyrir framan þá.
---
Um kvöldið át ég a.m.k. 1 kg af humri í
góðra vina hópi í Austur-Þýskalandi,
en humarinn hafði Sleggjan veitt. Var það mál manna
að annað eins gómsæti hefði ekki rekið í
maga lengi. Síðan kom eftirréttur frá Kris og
Br og féllust þá gestum hendur í vímuunaði
matarins. Var fólk að lokum leyst út með gjöfum
og hreppti ég plötuna "Lög fyrir þig" með Jóni
Rafni (útg. 1989 SÓS1). Hlakkar mig til að hlusta á
hana, sérstaklega lagið "Veikur".
---
Litla ljót, litla systir Lufsunnar, hefur af því
þungar áhyggjur að fólk misskilji þetta "Lufsu"
nafn og haldi að ég sé í sífellu að
vanvirða mína yndislegu verðandi brúði. Þetta
er alrangt enda hefur orðið verið í notkun löngu
áður en Rottveilerhundar
fóru að nota það í frekar neikvæðri
merkingu. Þó kemur til greina að breyta yfir í
"Skufsuna", sé "Lufsan" ekki nú þegar búin að
ná of mikilli fótfestu. 11:40
13.07.02
Sleggjan spyr um klám í Gestabók en ég
vil nú ekki ata saur þessari fínu síðu (les:
Lufsan verður brjáluð). Þegar Mikki
setti nokkra sakleysislega línka á eitthvað viðtal
á Strikinu varð allt vitlaust og hann sakaður samstundis
um barnaklám og annan viðbjóð því eitthvað
af þessum línkum innihélt myndir af ógæfkonum
með tíkarspena. En þar sem Sleggjan er nýr alnetsnotandi
og veit ekki neitt er ekki úr vegi að greiða honum götu
að hressandi fríum klámmyndum. Ég tek þá
sénsinn en munið að þið sáuð þetta
ekki hér: Húninn er klassískur
/ Misgott stöff, einum of mikið af gömlu fólki og
ungum dýrum fyrir minn smekk, er á hinum hollenska Erotic
Live / Allskyns sori er á Worldsex.
Annars er bara að leita og þér mundið finna. Staðir
eins og t.d. Núlleinn og Tilveran
bjóða upp á valinkunna línka og það
er auðvitað allt seigfljótandi í þessu rugli.
18:20
---
Vakinn kl. 06:45 af Einari einhverjum á Hvolsvelli, sem telur
sig fyrsta pönkara Íslands, ef ekki í heimi. Ágæt
vakning alveg meðal topp 5 fyllibytta sem hafa vakið mig. Hann
lofaði að koma í Alætuna í haust með pönkplöturnar
sínar og spila gullaldarpönk í tvo tíma. Það
verður fokking brill.
---
Fór á BESTA veitingarhús landsins í gærkvöldi
fyrsti "10" dómurinn
er fallinn.
---
Ég veit ekki alveg hvar ég stend í umhverfismálum.
Til dæmis í sambandi við þessi bílstæði
undir tjörninni. Nú er tjörnin drullupollur með mávum
og nokkrum skítugum gæsum, en fuglafræðingarnir
eru strax byrjaðir að væla um "umhverfisslys" og "einstakt
lífríki". Gætu þessir fuglar ekki drullað
sér upp á Rauðavatn eða eitthvað? Eru þeir
svona vitlausir að þeir kunna ekki að flytjast búferlum
og munu bara svelta í hel ef þeir sjá skurðgröfu?
Nú eru þeir allra hörðustu í náttúruverndinni
að tala um að hætta að veiða fisk og mér er
því spurn hvenær við fáum svona fréttir:
Stútungskarli bannað að skipta um gólfefni
Hörð andstaða skordýrafræðingaskors
Háskólans hefur hindrað Jón Pálsson, stútungskarl,
í að skipta um gólfefni á eldhúsi sínu
í íbúð á Þórsgötu. "Fólk
verður að gera sér grein fyrir að undir fjölunum
var einstakt silfurskottu-lífríki sem hefði riðlast
það mikið að dýrin hefðu liðið fyrir",
sagði Njáll Proppé, skordýrafræðingur.
Jón vildi ekki tjá sig um málið.
En svo á hinn bóginn veit ég náttúrlega
að maður og dýr og náttúran öll þarf
að svínga í góðum fíling til að
þetta fari ekki allt fjandans til eins og það er nú
reyndar á hraðri leið með að gera, svo kannski þurfa
náttúrufræðingarnir að vera nógu geðveikir
til að koma þó allavega nokkrum raunhæfum kröfum
í gegn?
---
Gestir alltaf í stuði. Jú, Valdimar, þinn listi
var óneitanlega "hreinni" Ladda-listi, en ég veit ekki alveg
með snilld Halla. Allskyns rokkmynjar ber á góma en ég
á nákvæmlega ekkert slíkt svo ég muni.
Kontaktur við frægt fólk: Í mínu tilfelli
ber hæst þegar ég brenndi gat á kjól Söruh
í St. Etienne á tónleikum á Púlsinum
og var í kjölfarið borinn út af fílefldum
dyravörðum og þegar ég kom með kókflösku
svo Bubbi M gæti drepið í vindlingi í Kópavogsbíói
apríl 1980. Annað gott: Drakk úr sömu kaffivél
og Elvis Costello 1997. Sá Nick Cave á flóamarkaði
í Notting Hill 1999. Andaði sama lofti og Flea og söngvarinn
úr Red Hot Chilli Pepper baksviðs á Bjarkartónleikum
í París 1996. Það kom mér mjög á
óvart hversu dvergvaxnir þeir voru. Sá Sinnead O'Connor
tala við Einar Örn í London 1988. Fékk eiginhandaráritun
hjá Kurt Vonnegut í Rvk snemma á 9. áratugnum
og las aldrei bók eftir hann aftur af því hann var
svo þurrkuntulegur. Það er því oftast leiðinlegt
og neikvætt að hitta goðin sín, nema í tilfelli
Guðbergs Bergssonar, að sjálfssögðu.
---
Ég og Heiða fórum í spjall til Stjána
stuð í gær. Hann sagði okkur að hitta sig í
Popptv herberginu en þar voru fyrir öðlingspilturinn Jói
og einhver Auðunn sem var með í vör. Ég hélt
alltaf þegar Gnarr og Grjóni voru að tala um popptv-bjánana
og að þeir væru með í vör að það
væri bara grín, en svo var gaurinn aksjöllí með
í vör og það skyldist ekki orð af því
sem hann var að segja. Þarna var líka "pabbi popptivi"
(hér vitna ég í heimasíðu
popptivi), Bússi, sem viðstaddir vildu meina að væri
tvífari minn. Hér er Bússi:
Skollóttur og með sama skegg en ég veit ekki; hann
er nú eiginlega líkari Dodda í Trabant
en mér.
Jæja Stjáni og kærastan Soffía tóku
viðtalið og Jói tók upp. Þetta var mjög
gott viðtal hjá Stjána enda þar á ferð
einn af topp 10 sjónvarps/útvarpsmönnum Íslandssögunnar.
Hann beytir mjög frjórri viðtalstækni, t.d. ættu
þeir sem horfa á þetta að taka eftir því
að Stjáni ber eina spurninguna upp tveimur áttundum hærra
(ss skrækari) en hinar og fæst við það góður
broddur. Soffía hélt á mæknum og spurði
smá og fékk annað slagið hláturskast til að
mýkja upp viðmælendur. Ég get ekki beðið
með að sjá þetta en viðtalið verður sýnt
á Popp TV á mánudaginn milli 22 og 23. 08:45
12.07.02
Varð afvelta eftir heimsókn í Nammilandið í
Hagkaupum og mun nú aldrei borða bland í poka á
ný. ALDREI!!! Þessi skán í klósettinu
er til merkis um það. Sá videó (sjá "Menningarafurðið")
---
Við strákarnir í Dr. Gunna og vinahljómsveit
okkar Rúnk erum að spá í að halda magnaða
"innihátíð" um Verslunarmannahelgina og er helst horft
til Vítalín í því sambandi. "Innipúkinn
2002". Ætli við förum ekki og tökum upp lag á
safnplötu í næstu viku. Ætli það ekki.
---
Nú fara fastagestir hamförum í að gera lista
yfir mistök í plötukaupum og finna sig knúna til
að ráðast á aldrað fólk á grafarbakkanum
sem slegið hefur í gegn á V-löndum. Búónes
Vistas hef ég aldrei hlustað á og hef engan áhuga
á að gera. Ég á hins vegar hrúgur af rusli
sem ég hlusta aldrei á og ber þar í augnablikinu
hæst:
Hörður Torfason vælir hundleiðinleg
lög við Laxness-texta
D.u.s.t spila lög sem eru eins og það
allra leiðinlegasta á Radíó X
Tíbrá - Yfir turninum
Rimlarokk
Alfa Beta - Velkominn í gleðskapinn
Lúlli vill að ég deili stórkostlegum hugmyndum
mínum um breikþrú sjónvarpsþátt
en það geri ég auðvitað ekki nema Lúlli
sé sjónvarpsstjóri og bjóði mér
á HHolt. Það er ekki nóg ef Lúlli sé
annar feitu bræðranna, en þeir hafa verið að stofna
útvarps- eða sjónvarpsstöð síðan
ég man eftir mér. Hvað er með þessa bræður
enívei? Annað slagið kemur vælgrein eftir þá
í Mbl þar sem þeir væla yfir að þurfa
að borga Stef-gjöld eins og aðrir og svo eru þeir með
signal og gera ekkert nema spila sömu fimm ömurlegu 80s myndböndin
frá helvíti. Taka bara pláss frá öðrum
aðeins skárri "sjónvarpsstöðvum". Bíddu
bíddu bíddu... þarf virkilega sjö sjónvarpsstöðvar
fyrir svona míkrósamfélag? Þeim bræðrum
gengi eflaust betur með aðra viðskiptahugmynd.
Já Denni það má reyna tálg í
skúr en hvað kæmi út úr því?
Kofi Annan? (slappur)
Randall magnari hmm? Eitthvað rámar mig í það,
rámar í að hafa dregið eitthvað flikki með
mér heim. Ef einhver lesandi á Gibson SG gítarinn
sem ég átti 1981 má hann endilega hafa samband.
---
Árni Sam gerði það að verkum að nýjar
myndir komu á réttum tíma, en ekki 3 árum of
seint. Það ber að þakka. Nú fæ ég
misvísandi email frá hinum ágæta Filmundi. Fyrst
frá einhverjum Guðmundi sem segir að Filmundur sé
búinn að vera og það sé allt helvítinu
honum Sam að kenna. Svo daginn eftir fæ ég email frá
einhverjum Christof og Þorvaldi, en nú allt í blóma
og framtíð Filmundar björt enda Sam og kó miklir
áhugamenn um listrænar og "öðruvísi" kvikmyndir.
Verður maður ekki bara að vona að þeir síðartöldu
hafi rétt fyrir sér, en þessar bréfasendingar
bera vissulega með sér að eitthvað fiskugt sé
á seyði í innstu koppum Filmundar (eins og einhverjum
sé ekki sama um það). 08:05
11.07.02
Gengum Lufsan og ég inn í Reykjadal í gær
með það markmið að tálga afkvæmi í
heita læknum. Fórum snemma af stað til að það
yrði fámennt. Auðvitað gekk það ekki eftir
og allt fullt af göngugörpum. Til að ferðin yrði
þægilegri fór ég að ímynda mér
að annað fólk væri dýr og það var
svo sem ekki erfitt því þetta pakk á fjöllum
(allt útlendingar) þekkti ekki þá gullnu reglu
að heilsa ókunnugum úti í náttúrunni.
Strunsaði bara framhjá með fýlusvip í okkar
gullfallegu túndru. Haldiði ekki að á bakka heita
pottsins hafi svo legið 10 manna unglingahópur í sólbaði
og því runnu allar áætlanir um tálgun
útí sandinn. Þetta voru svona vandræðaunglingar
frá útlöndum sem hafa verið dregnir hingað til
að reyna að gera þá að aðeins skárri
einstaklingum. Ef þetta hefðu verið rollur hefði áætlun
okkar Lufsunnar eflaust gengið eftir en við vorum of siðsöm
til að ganga til verka fyrir framan unglingagerið. Það
er því erfiðara en margur heldur að ímynda
sér að annað fólk sé skynlausar skepnur. Jæja
svo var líka alltof heitt vatnið í þessum læk
enívei. Ég held líka að áformið um
að tálga afkvæmi undir pálmatré á
Hawaii sé mun betri kostur. Vonandi verður það sonur
= Pálmi Gunnarsson.
---
Gestir láta ljós sitt skína í þeirri
innanpíkubleiku og fá illkvittnislega útrás
í að dissa sjónvarpsþætti sem ýmsir
sakleysingar hafa lagt sál sína í að skapa. Ljótt
er til þessa að vita og gestir ættu þá að
drullast til að búa til almennilegan þátt fyrst
þeir eru svona frábærir. Sjálfur hefi ég
á takteinum frábæran þátt en Árni
S1 er of mikil gunga til að kýla á það. Í
staðinn gefur hann hálfvitum séns út í
hið óendanlega með hörmulegum afleiðingum eins
og komið hefur fram. Það er rétt hjá "hmm"
að þetta er varla gestabók lengur heldur svona "vettvangur
sniðugra skoðanaskipta" (les: "lónlí lúserar
láta ljós sitt skína") og er alls ekkert nema gott
um
það að segja. Misheyrn í dægurlaga textum er
nýjasta yrkisefni skriffinna og er það vel. Ég
man ekkert úr eigin ranni en Lufsan hélt alltaf að "Popplag
í G-dúr" væri "Moglar í G-dúr" og beið
spennt eftir að fullorðnast til að fá botn í
málið. Björn Jörundur sagði mér svo einu
sinni að þegar hann var púki (takið eftir hversu máltilfinning
mín er orðin menguð af ísfirsku vinum mínum,
en eins og allir ættu að vita notar fólk orðið
"púki" yfir "krakki" á Vestfjörðum) spáði
hann mikið í texta lagsins "Heim í Búðardal",
sérstaklega sótti línan "verður þar margt
í..." á hann. Hélt BJF að "martí" væri
svipað fyrirbæri og "partí" nema bara enn meiriháttar.
Bjössi er enn að leita að þessu "martí" síðast
þegar spurðist til hans.
---
Valdimar Örn (Flygendring?) spáir svo í bestu lögum
Ladda og birtir lista yfir topp 5. Þessum lista er ég algerlega
ósammála og birti því minn eigin hér:
5 bestu Ladda-lögin:
1. Austurstræti (stórkostlega
klassískt lag)
2. Ég var alinn upp á Patreksfirði
(frábær útgáfa af hinu unaðslega Bee-Gees-lagi
"Massachusetts")
3. Ég vil fá meira pönk
(etv fyrsta pönklag á Íslandi vilji menn kalla þetta
pönk, þ.e.a.s.)
4. Sandalar (klassískur Laddi í
rosalegum poppham)
5. Tóti tölvukarl (hér
takast á tveir af betri karakterum Ladda, Eiríkur Fjalar
og Skrámur og er útkoman unaðsl.)
Tribjút-plötur eru næsti bær við kóver-plötur.
Hér hafa Megas, Með allt á hreinu og Villi Vill fengið
slíkar plötur í hausinn og nú er tribjút
á Hallbjörn í framleiðslu. Ég verð meira
að segja með og tek Hundinn Húgó (uppáhalds
Hallbjarnar-lagið mitt, sérstaklega hin hómóerótíska/sadómasíska
lína: "Hann er vinur á fjórum fótum"). Ég
held að gott Ladda-tribjút hljóti að vera næst
á dagskrá, með spikfeitum uppl.bæklingi, myndagnótt
o.s.frv. Fálkaorðan ætti svo að koma þar á
eftir. 09:35
10.07.02
Sigurjón greyið er orðinn hálf utanveltu í
sínum eigin þætti eftir að megafríkið
Barði kom þar inn á gafl. Þó Barði sé
í raun einfaldur karakter (fýlupoki sem gengur fyrir þeirri
einföldu en vissulega hárréttu lífsspeki að
"ekkert skipti máli"), þá er hann eins og lagkaka sem
leynir á sér. Maður á semsé í mesta
basli við að finna "flöt á honum". Auðveldast væri
náttúrlega að afskrifa fríkið sem leiðinlegan
vitleysing, en ef maður gerði það væri maður
í raun sjálfur orðinn leiðinlegur vitleysingur, og
ekki vill maður það. Það er nebblega ekkert auðvelt
að vera eins og Barði og það þarf ekkert annað
en ákveðna tegund af snilligáfu til að vera í
útvarpi og nöldra stanslaust og tuða út um rassgatið
á sér og niðurlægja gesti þangað til
þeir eru orðnir skjálfandi reiðir og eiga í
mesta basli við að hafa hemil á sér. Með Barða
er Sigurjón og kó orðið eins og búktalarasjó,
enda minnir rausið úr Barða helst á þrugl sem
vellur út úr búktalaradúkku. Sigurjón
hefur fundið sinn Konna (þarf reyndar að byrja að tala
meira í gegnum hann) og það er engin leið að hætta
að hlusta enda hefur þátturinn aldrei verið betri!
---
En að gestabókinni:
Azubi nefnir fimm kóverplötur sem ég hef aldrei
heyrt. Spurning um að spá í þeim, þó
kóver sé nú reyndar fremur þreytt fyrirbæri.
Gífurleg umræða fer nú fram um leiðinlega
sjónvarpsþætti og fær dagskrágerð S1
á baukinn. Jú, "Íslendingar" hlýtur að
vera á topp 5, enda afspyrnu slappt þó Fjalar sé
ágætur. Göngugarpurinn Helgi
Briem sem þolir ekki að að sjá ýturvaxna
karlmenn í spandex (oh oh ekki hætta) nefnir til sögunar
leiðindin "Spútnik" sem hann verður að útskýra
betur hvað er því enginn veit hvað þetta "Spútnik"
er. Djúpa laugin og Hausverkur, ja, sú Djúpa getur
nú stundum verið skemmtileg á svona aumingjahrolls-legan
hátt, eins og t.d. þátturinn sem Heiða sá
um síðast. Það var nú meira fríksjóið
og meistari Varði ekki beint á heimavelli. Henni Heiðu vantar
pening og farðu því og gefðinni 10 í einkun
á www.s1.is svo hún geti séð
um Djúpu allan næsta vetur (æ æ hvílík
tilhusun!) En, allir þættir sem Gunnar Helgason og ekki síður
Bjarni Haukur hafa séð um í gegnum tíðina
hljóta að skoðast sem vænlegir kandidatar á
topp 10 rusl-listana. Rúv helvítin já. Æ. Alveg
eins gott að loka í júlí eins og að vera með
þetta endurtekna rusl.
Bubbi: Holtavörðuheiði? Þú meinar Öxnadalsheiði.
Það kom enginn, ég varð úti.
---
Stjáni stuð hringdi og vill fá mig og Heiðu í
viðtal í innslagi sem hann sér um á Popptíví.
Hann sagðist samt vita að Unun væri hætt. Stjáni
stuð er alger meistari og það er auðvitað toppurinn
að komast í viðtal hjá honum.
---
Ég var að segja einhverjum frá viðtalinu sem
Ali G tók við Elton John en var aldrei birt. Í minningu
Ali G sem var einu sinni frábær (en missti það í
draslmyndinni) er ekki úr vegi að líta á þetta,
þó þú sért að öllum líkindum
búinn að því nú þegar. 08:15
09.07.02
Viðhorfskönnun nr.2 er lokið. Í þetta skipti
var spurt: "Þegar Davíð Oddsson birtist á skjánum
langar mig til að..." og var þátttaka þokkaleg,
106 kvikyndi. Þeim sem langaði mest að hrækja á
skjáinn voru 19% og ættu að láta líta
á munnvatnskirtlana í sér. 18% vildu hringja
í Klepp, en ekki kom í ljós hvort þeir vildi
láta sækja sjálfa sig eða Dabbið, ekki kom
heldur í ljós hvað þessi 13% sem vildu hringja
í SÁÁ vildu gera. 12% vildu skrifa harðort
mótmælabréf í Mbl, nákvæmlega sama
hlutfall og vildi helst faðma skjáinn þegar karltuskan
birtist. Enn á ný er meiriháttar að sjá
hversu mjög afbrigðilegheitin grassera meðal lesenda því
10%
langaði helst að fróa sér þegar hin kynæsandi
ásjóna krulludýrsins blasir við.
7% vildu
afturámóti skrá sig í Sjálfsstæðisflokkinn
en 5% sjá enga aðra leið en að skera sig á
púls.
---
Þetta er þá komið á hreint með Dabba
og Óla og ég er persónulega búinn að fá
hundleið á svona leiðinlegum könnunum um tvo vandræðalegustu
menn landsins. Nýjasta
könnunin er því komin upp og hún er sko almennileg!
Nú fá lesendur að tjá sig um djönkfúdd
og tel ég miklar líkur á að nú æsist
leikar eftir lognmolluna í kringum stjórnmálaleiðindin.
Tékk
itt.
---
Fann sjálfan mig í þessum shopology-þætti
í gærkvöldi. Ég er algert kaupæðisdýr.
Lufsan var að vinna meðan á þættinum stóð
en þegar hún kom heim dró ég hana inn í
eldhús til að sýn'enni "skápadraugana" okkar,
þ.e.a.s. matardrasl í eldhúsinu sem við munum aldrei
nota. Hún sagði að ég ætti að hætta
að fá maníu í hvert skipti sem ég sé
heimildamynd frá BBC og þá vissi ég upp á
mig sökina og hrökklaðist úr eldhúsinu.
---
Meistari Óli er með sannfærandi lista yfir leiðinlegustu
sjónvarpsþætti mannkynssögunnar í Innanpíkubleiku-gestabókinini
en gleymir þó draslþættinum með Villa og Rósu.
Hvað var aftur þetta Sílikon? Því er gjörsamlega
stolið úr mér. Mig minnir nú að Ó með
Takafúse og Markúsi hafi verið ókei, en þessi
Markús var það fríkaður að auðvelt
var að hafa uppi eineltistilburði í nágrenni við
hann. Eitt það fyndnasta sem ég hef heyrt var hrekkur
sem strákarnir í Stilluppsteypu ætluðu að gera
honum (þeir þoldu hann ekki). Einhver vinur þeirra var
að vinna í legsteinagerð og þeir ætluðu
að fá vininn til að gera legstein með öllum upplýsingum
um Markús þar sem kæmi fram að hann myndi deyja
einhvern ákveðinn dag. Svo var planið að stilla legsteininum
upp við útidyrahurðina hjá Markúsi þennan
sama "dánardag" hans og láta grey strákinn alveg fríka
út. Aldrei verð af þessu en hugmyndin var góð!
07:35
08.07.02
Hitti Ara Eldon í gær og ræddum framkvæmd
á Bless heildarplötu. Ætti að koma út með
haustinu. Ekkert kombakk fyrirhugað. Keypti fjórar vínil-plötur
hjá Gvendi Dúllara í Kolaportinu: Íslensk kjötsúpa
/ Cheap Trick Live at Budokan / Shocking Blue Pop Giants / The Motors.
Djöfull eru allir með sama viníl-draslið í þessum
kössum í Kolaportinu. Alltaf sama helv ógeðið
sem allir eru með. Ég kenni óheftum innfluttningi Steinars
Berg á 9. áratugnum um ásamt umframframleiðslu
í plötupressuninni Alfa. Keypti í bókabúð
nýjasta Mojo sem er nú bara eitthvert magnaðasta tbl.
sem um getur. David Bowie er gestaritstjóri og þarna er fullt
af dóti sem hefur lengi verið uppáhalds hjá mér:
Legendary Stardust Cowboy, Os Mutantes, Lovin' Spoonfuls, Lee Hazlewood,
Flaming Lips...
---
Ekki eins gott og Audiogalaxy en WinMX
forritið er samt orðið nokkuð öflugt. Er að sækja
nýjustu Wilco plötuna as we spík. Vertu með í
mjólkurferð.
---
Aðsókn að gestabók hefur hrapað eftir að
hún varð innanpíkubleik og því spurning
um að svissa yfir í eitthvað dannaðra. Gestir veigra
sér náttla við kíkja á svona heilagan blett.
Örfáir þorðu þó: Elvis2:
Til hamingju. Já, það var gaman að Jonna Spens, en
djöfull er nýja platan hans mikið rusl. Ég sá
samt nokkuð gott myndband við lagið hans frábæra
"2kindsa love" inn á Matador
síðunni. Óskar: Leonard Cohen lepur lók en þessi
Valur er allt annar Valur en Valur "Skiptilykill". Ágæt plata
hjá honum engu að síður.
---
Annars mæli ég alveg sérstaklega með kattamyndbandi
sem hægt er að nálgast inn á Huga. Ég kann
ekki almennilega að línka á þetta, en þú
ferð hingað og finnur
svo "Fyndnar klippur" hægra megin og svo "Hí á þig...ég
er ungur en ekki þú!" (Þetta gæti reyndar verið
komið í "Sjá meira") Ég sver'ða; ég
hef horft á þetta u.þ.b. þúsund sinnum
en fer alltaf jafn mikið að skellihlæja þegar stóri
kötturinn ræðst á þann litla.
---
Upplagt er að fara í sumarferð í Heiðmörk
og grilla á almenningsvæði. Grillið meira að segja
á svæðinu. Gott er einnig að grilla banana með
súkkulaði. Og lýkur þá grillhorninu í
dag. 07:20
07.07.02
Keypti þennan disk í Skífunni í gær:
og fær hann mína hæstu einkunn fyrir þá
sem fíla "utangarðs"-popp (aka "Hamfara-popp"), en í
þeirri deild eru fyrir t.d. snillingsplötur eins og "Hamfarir"
Gunnars Jökuls og nánast óteljandi plötur Sigríðar
Níelsdóttur. Það er áþreyfanlegt að
Gissur Björn Eiríksson gengur ekki alveg heill til skógar
og því sniðug en e.t.v. ómeðvituð ákvörðun
að sýna hann með trjám á umslagi meistaraverksins.
Ég veit annars lítið um Gissur fletti honum þó
upp í símaskránni og skv. henni býr hann í
Hátúni 10 (öryrkjablokk). Lögin eru aðeins
átta og allir textarnir samdir árið 1975 (í maí
og júní) og má það nánast teljast
einstakt afrek að þetta komi út núna, 27 árum
síðar. Tónlistin er skemmtarafroða í anda
"Hamfara", textarnir steypa á ensku, en það er einstök
söngrödd Gissurarar sem er kirsuberið á þessa
einstöku köku.
Ég veit það er stranglega bannað en hér
er smá hljóðdæmi af þessari plötu, sem
þú rýkur vitanlega strax út í búð
að kaupa: Gissur
- The Earth is one of Trillion Stars (brot).mp3. "The Beginning"...
Já vonandi er þetta bara byrjunin hjá Gissuri!
Þeir sem vilja kynna sér erlent utangarðspopp ættu
að drífa sig strax hingað.
10:00
06.07.02
Gott gigg í
gær. Nú er maður allur orðinn uppespaður í
rokkgeðveiki og hljómsveitin þarf að taka annað
gigg sem fyrst og bæta við góðri hrúgu af óskalögum
(þitt er valið). Nánar auglýst síðar.
---
Enn á ný vil ég benda lesendum á Doktor
Kosmos og Bob Hund sem eru drullugóðir
sænskir listamenn og mun betri að mínu mati en þessi
mjög svo ófrumlega "Gautaborgarbylgja".
---
En þá að gestabókinni, sem svoleiðis hrúgast
inn á að 2/3 væri nóg.
Nei nei Biggi, ég er ekkert
að verða geðveikur, Herbalæfið er bara að virka
svona vel.
Hamborgararugl. Jú jú, þessi Vitabarsbúrger
er svo sem alveg slafr-hæfur en ég nenni ekki að þurfa
að klofa yfir illalyktandi dagdrykkjumenn með skæting til
að fá mér að éta. Jú jú, jæja...
Fékk mér annars pítzur frá Dominos í
gær eftir giggið og neyðist til að gefa þeim betri
dóma bráðlega.
Hrebbna, takk. Ja, ég
hata nú kannski ekki Frædeis, en jú, þetta er
svona hálfgert skítadæmi.
Maja. Innanpíku
bleikt? Bíddu... afhverju fékk ég þennan lit
eins og ekkert væri sjálfssagðara? Jæja, innanpíkubleikt
skal það þá vera. Innanpíkubleika gestabókin.
Gestabók vandlátra.
Fjóla. Ég sá engan með bleika húfu,
en allir voru í stöði engu að síður.
Kristján. Takk, en ég verð nú alltaf hálf
vandræðalegur yfir svona hóli. Gaman aððí
engu að síður.
Elwar - já, erþaggi?!
Jæja, Laugurinn reddar þessu áður en þetta
verður of vandræðalegt með smá neikvæðni
á léttum nótum. Já, þetta er toppvibbi
þetta auglýsingalag en samt ókei að fá þreföld
mánaðarlaun Hampiðjuverkamanns fyrir svona drasl, erþaggi?
King Diamond, semsé Neil Diamond? Ég veit ekki um það,
hef aldrei heyrt í þeim herjólfi. Já, ég
vona að Esso hringi (enda Esso besta bensínstöðin.
Nei, í alvöru). Ég gæti þetta alveg: "Jæja
krakkar. Ég er svona miðlungs duglegur sukkari en 1995 sniffaði
ég amfetamíni og varð bandvitlaus og endaði með
að drepa á vindli í skallanum á Davíð
Þór. Hann var alveg brjálaður og ætlaði
að safna liði og berja mig, en ég hló bara af öllu
saman og drakk meira romm í kók. Þið viljið
ekki að þetta gerist fyrir ykkur, er það nokkuð?"
---
Týpískt. Komið gott veður aftur... Ísland
er: Fokkings óstabílt rokrassgat. 12:20
05.07.02
Góðan dag. Góðan VIÐEYJAR
dag. Í dag. Í kvöld. Dr. Gunni kl. 21:00. Kommon, þetta
er alveg nógu gott veður. 07:16
04.07.02
Jæja, þá er Rúnk-gengið búið
að róta draslinu út í Viðey og allt að
verða til reiðu fyrir Viðey2002. Rúnkið týmdi
reyndar ekki að kaupa helíum til að setja á blöðrur
enda kostaði lágmarksskammtur 13.000 kall og kommon, þetta
er nú enginn Galtalækur og bara fjórir í "gæslu".
Fékk annars fyrirspurn frá Elvis sem vildi vita hvort Pop
Kings verði með í för og svarið er "að sjálfssögðu".
Veðrið... ja, það kemur í ljós. Steini
"Sleggja" er mættur af sjónum og verður í Viðey
og eins gott, því hann er löggiltur rótari Dr.
Gunna ásamt SSSka, sem er í Aðalvík þessa
dagana með leðursvuntu að þjóna sextugum bræðrum.
---
Gífurleg umferðarteppa ríkir á gestabókinni,
sem nú gengur undir nafninu "Bleika síðan". Ég
veit ekki hvaða hvað þetta er með þennan bleika
lit - ég var aldrei beðinn um að skilgreina hvaða lit
ég vildi hafa, þetta kom bara svona. Og svo eretta líka
helv töff. Eða þannig. Sjáum nú til hvaða
geðveikisóra liðið er með:
Bleiki liturinn já...
Allskonar listar. Gaman að því. Bloggtopp 5 listi
frá meistara vekur
mikla gremju hjá svokallaðri elítu og er það
skiljanlegt með öllu.
Óli og Óskar rífast við keisarans skegg um
tónlist sem er álíka uppbyggilegt og að hlaupa
allsber í kringum húsið sitt og álíka skemmtilegt.
Elín lífsorka. Hvað með mega-Kanínu 2002
í
Viðey? Pæling.
Gobbitígobb spyr hvort Kalli gamli sé kominn á
Addidas Universal strigaskó og ég tel 76% líkur á
því. Sjálfur er ég á slíkum skóm
(eða allavega á Addidas) og er gamall kall svo kannski var hann
að meina það.
Konni? Verður þú ekki bara í Árbæjarsafninu.
Baldur dáinn og svona.
---
Eyddi deginum í nýju nammideildinni í Hagkaup
í Kringlunni. Mæli með því. Það
eru allavega engir djúpsteikt krabbameinsæxli og kjúklingahausar
í boði. En bíddu... hét þetta ekki Nýkaup?
Reynið að ákveða ykkur þarna. Í tilefni
af þessari byltingu hjá nafnadeild ?kaupa hef ég sett
inn mp3 af því
þegar mér tókst næstum að selja á
mér rassgatið. Þetta var fyrir jólin 1997, ári
eftir að Bubbi seldi á sér annað eistað og söng
að Hagkaup væri góð. Nú vildi auglýsingastofa
Hagkaupa fá eitthvað álíka "fríkað"
og hringdi í mig, enda var ég aldrei eins frægur með
prumpulagið #1. Ég henti einhverju inn fyrir þá
og svo gekk þetta fram og til baka vikum saman en loksins komst lokamynd
á mitt framlag (slípað auglýsingakjaftæði).
Þeir hjá auglýsingastofunni voru þó enn
tvístígandi og settu lagið í Gallup-könnun
í búðunum. Niðurstaða þeirra könnunar
var ekki nógu "jákvæð" kerlingum yfir 30. þótti
lagið ömurlegt og söngurinn ömurlegur, en lagið
kom vel út hjá körlum á aldrinum 12-35. Hagkaup
gugnaði því á þessu og hættu við
allt, ég slapp við að opinbera melluskapinn,
en það besta við allt var að ég fékk samt
borgað fyrir þetta helmingi minna en ég átti
að fá reyndar, en það var alveg nóg enda fullt
af peningum í þessu auglýsingakjaftæði. Mér
finnst því sjálfssagt að þeir hjá
Hagkaupum fái ókeypis auglýsingu núna, fyrst
gamla nafnið er komið aftur.
Gjössovel.
22:15
Rosa
grein á Pitchforkmedia um dánlódaða músikk
og RIAA og það allt. Maður verður allan daginn að
lesa þetta, en það er örugglega alveg þess virði.
Þetta helst allt í hendur það að öll
"vinsæl" tónlist hljómar því sem næst
eins, það að "frjálsar" útvarpsstöðvar
spila sama lagið (með mismunandi flytjendum) allan daginn, og að
audiogalaxy hefur nú verið lokað. En byltingin verður
ekki stöðvuð. Kjúklingabitatónlistin mun deyja.
Almenn skynsemi mun sigra. Fólk er kannski fífl, en ekki
alveg svona mikil fífl, fjandinn hafiða. 13:15
---
Óskar sendi innlegg í baráttuna gegn kjúklingaógeðinu
og er óhætt að segja að sterk bylgjuhreyfing hafi
myndast í maganum þegar ÞETTA
ÓGEÐ blasti við.
Jæja, nú er bara að setja upp línk
til gestabókarinnar á aðalsíðuna, svo ég
þurfi ekki að leita að línknum í texta!
Efst til hægri
P.S. Flaming Lips eru snilld sem ávallt, ekkert
smáræði hvað þeir voru 239586234 sinnum betri
en Suede í Höllinni á Airwaves 2000!!!
Sammála, enda eru Sveit gone daddy gone. 09:58
---
Fjalldrapi er planta af birkiætt. Fjall Dr Api gæti hugsanlega
verið alteregó á súperegó. Pæling.
---
Stórkostlegt er til þess að vita að ekkert nema
snillingar séu að skoða þetta raus. Gestabókin
kemur svona líka geggjaðslega út og þar veltast
ekkert nema meistarar um í eigin órum. Er ekki við hæfi
að svara fólkinu:
Ömmi vill Elvis. Jú jú, þetta er svo sem ágætur
Elvis en kannski ekki alveg jafn ferskur (ungur) og Emmi N.
Lúlli komst í feitt á útsölu en spyr
um lagaval hjá Magga Eir. Karlinn er að vinna í Rín
ef þú vilt spyrjannaðessu.
Óskar pælir í hollingu eins og hjá Kat,
en vonandi verð ég aldrei svo mikill meganörd að ég
fatti hvernig á að setja upp svona holl.
Denni = nei, Grímur
er ennþá á bassanum og ekki á útleið.
Já, Corona þá.
Betunni hefur verið svarað
á hennar síðu. Bleikur er litur karlmanna. Þetta
vita allir.
Fjóla þolir heldur ekki Frædeis og er það
vel.
Bateman leggst á bæn. Fjórar maríuhænur
og Hustler Vol.XX tbl. 16 bls 11-13, sonur sæll.
Rúnk stunda heilbrigða
sjálfsfróun en ég er einmitt að rúnka mér
yfir röffmixinu þeirra as we spík. Þrumudót!
Jonni er líka kominn
með topplista. Átt þú (þú lesandi)
topplista? Þú
hefur orðið!
Erlunni finnst Popæs viðbjóður, en ég sagði
það nú aldrei. Ég er reyndar að spá
í að hætta að éta kjúklingabita eftir
gubbuna þarna hjá SSSka. Ekki skánaði viðhorf
mitt til þessara niðurskornu-og-velt-upp-úr-fitu fyrrverandi
lifandi hæna-sem-hafa-hýrst-í-þröngu-búri-og-úrkynjast
viðbjóðs þegar Freyr sagði mér sögu
í gærkvöldi. Var hjá honum að kynna GOÐ
og það var stuð. Sagan hans var semsé þannig
að kona í útlöndum fór í mál.
Hún var nebblega á KFC eða Popæs eða eitthvað
og beit í eitthvað á kjúklingabitanum og þá
sprakk það upp í henni. Hún hélt að
þetta væri fita en þetta reyndist vera KRABBAMEINSÆXLI
og þá fór hún í mál. Þetta
er auðvitað flökkusaga, en samt svo ógeðsleg að
ég held ég stræki á kjúklingabita framvegis.
Eða kannski ekki. Við skulum sjá hvað ég er sterkur
gagnvart freistingum hænudjöfulsins.
Að lokum var'ða Sparkómatik sem spyr um tjúningu
en þar er ég í tómum kofanum.
---
FORSALA á VIÐEY2002 stendur nú í FULLUM blóma
í 12tónum og Hljómalind.
Miðinn kostar 1000 kall og er miðamagn takmarkað enda komast
ekki allir í heimi inn í Viðeyjarstofu þar sem
giggið mun ske. Ef veðrið verður spastískur unaður
mun giggið undir BERU lofti haldið. Lokaæfing hjá
dr.gunna fór fram í gær og ef við verðum í
jafn góðu stuði og þá munu okkur engin bönd
halda. Hef gert hernaðarplan um að ná maximum stuðstaðli
á morgun enda allt lagt undir. MIG hlakkar allavegana til. 09:20
03.07.02
Hef meganördast til að setja upp gestabók.
Sit sveittur með kvíðahnút og bíð eftir
að einhverjir djöflar komi og verði með leiðindi.
Jæja þá tek ég þetta bara úr sambandi
aftur.
---
Travis? Ja, svona sæmilegt popp eitthvað. Frekar mikið
Sting fyrir minn smekk samt. Ætl'ekki. Framtak? Já já.
Einu sinni var ég nú samt í kapphlaupi við þessa
skosku vælukjóa. Það var þegar ég var
í meikinu með Unun og Andy einhver sem átti Gó-bít
ætlaði að gera samning. Svo daginn áður (við
samt auðvitað búin að aulast með þetta í
öll íslensku blöðin) selur þessi Andy Gó-bít
og stofnar nýtt plötufyrirtæki Indípendíantí.
Hann ætlaði annað hvort að "sæna" Unun eða
Travis (sem voru bara óþekktir Skotaræflar þá)
og tók þennan Fran framyfir Heiðu. En svo er maður
í Viðey en þeir bara í þessari kúkalegu
Laugardalshöll. He he. (nei nei ekkert sár).
---
Það er annars af Heiðu að frétta að hún
verður stjórnandi í Djúpulauginni á morgun
og þið kjósið hana náttúrlega á
netinu... 17:20
---
Hefí fréttir. Árni í steininn. Hraunið
eða Kvía? Björgúlfur með veskið á
loftið. Hei Björgúlfur! Ef þú vilt kaupa ráðandi
hlut í mér getum við kannski sest niður á
Holtinu. Nei í alvöru; hvað gengur þessum gaur til?
Og hvernig nennir hann þessu? Er hann hræddur um að enginn
muni eftir sér þegar hann deyr eða eitthvað? 12:30
---
Hvorki ég né verðandi brúður mín
mundum hvað Osama Bin Laden hét í gær. Því
var alveg stolið úr okkur. Það eina sem mér
datt í hug var Omar Shariff eða Halim Al. Svona er maður
skemmdur. Ósóminn þarf að fara að gera einhvern
óskunda svo maður muni hvað hann heitir. Mikill spenningur
hvort hann og þetta mussugengi hans takist að gera eitthvað
á morgun, 4. júlí. Textavarpið sagði um daginn
að þeir félagar ætluðu að láta til
skarar skríða í Las Vegas og það væri
svo sem alveg eftir þeim að eyðileggja giftinguna fyrir manni.
---
Jonni stuð kom í
te í gær og kom með þá góðu hugmynd
að maður þyrfti að fara að koma með topp-lista
yfir góðar plötur útgefnar á þessu
herrans ári. Hér eru því listar og plöturnar
í engri sérstakri röð. Það verður
gaman að sjá hvað af þessu tollir inni um áramótin...
INNLENDIS:
Rímnamín
Stjörnukisi - Góðar stundir (þessir kemur ekki
út fyrr en 10 júlí en Bogi hent'enni í mig
í gær)
Múm - Loksins erum við engin
Kippi Kanínus - H U G G U N
Rými - Unity, for the first time
ERLENDIS:
The Streets - Original Pirate Material
Antipop Consortium - Arrythmia
Doktor Kosmos - Reportage!
The Flaming Lips - Yoshimi Battles the Pink Robots
Capitol K - Island Row
Daedelus - Invention
Eminem - The Eminem Show
Cornershop - Handcream for a Generation
For Stars - We are all Beautiful People
Walkmen - Everyone Who Pretended to Like Me Is Gone 12:05
---
Lærði lexíu um lífið í gær.
Hjólaði í Kópavog til að fá mér
Popeyes-kjúkling og líta á SSSka. Nennti varla að
hjóla og fannst það mikið mál. Hlakkaði
hins vegar til að gæða mér á kjúkling.
Át skammt nr1 (2 bitar + meðlæti) heima hjá SSSka
yfir fréttum og varð bumbult af öllu saman. Það
er sérlega varasamt að éta yfir sjónvarpsfréttum
því þessi kvikyndi hjá sjónvarpsstöðvunum
gera ekki annað en að sýna manni lík eða eitthvað
ógeð. Ef það eru ekki milljón dauðir fiskar,
eða rotnandi búfénaður í gámum, þá
erða dautt og rotnandi fólk í útlöndum. Þeir
eru m.a.s. hættir að segja "við vörum við myndunum"
svo maður geti flúið inn í eldhús. Jæja,
auðvitað var ekkert nema viðbjóður í heimsfréttum
og þar sem ég sat og hakkaði í mig dauðann
og fitugan kjúklinginn fór ég að hugsa um hversu
ógeðslegt dýr þessi úrkynjaði eldiskjúklingur
er og hljóp fyrr en varði fram á sett og gubbgusan stóð
úr mér. Djöfuls rugl og ætli ég reyni ekki
að forðast kjúkling í nokkurn tíma. Viku eða
svo. Það var hins vegar ekkert nema gleði og ánægja
sem fólst í að hjóla á milli bæjarhluta
og ég læðri þá lexíu að það
sem manni kvíðir er þakklátast þegar það
er búið, en það sem manni hlakkar til vill oft snúast
upp í ælu, sérstaklega ef fituhæna frá
Popeyes er með í spilinu.
---
Verð með plötukynningu á GOÐá
Rás 2 hjá Frey í kvöld kl. 22:10 - 00:00. Eflaust
alveg svaðalegt.
---
Nú hafa tvær dúndurbúllur á Borgarnesi
verið teknar fyrir í Veitingarhúsadeild,
ásamt plebbastað í Smáralind. 08:02
02.07.02
Hinn æsispennandi netmiðill Kistan hefur birt viðtal
við mig. Þar kemur reyndar fram að hljómsveitin
muni spila á Listarúnki á Akureyri þann 13.
júlí en það af því verður að
öllum líkindum EKKI þar sem samningar náðust
ekki við Listanefndina fyrir norðan. Við (hljómsveitin
DR.GUNNI) spilum þó auðvitað í Viðey á
föstudaginn og æfum nú stíft fyrir það
g(r)ill. Við verðum alveg rosalegir! Eins og áður hefur
komið fram verða Rúnk
aðal á þessu giggi, en við verðum þarna
plús Rassi Prump, DJ Talnapúki og Phil
Stadium, sem er einsmanns-hljómsveit (en ekki DJ Fill Stadium)
eins og ég hélt einu sinni. Mér sýnist ætla
að verða fínt veður svo þetta verður þrumuskuð!
Vóóóó!
---
Mér ætlar ekki að takast að horfa á myndina
Spy Game. Sofnaði yfir henni á sunnudagskvöldið og
sofnaði aftur yfir henni í gærkvöldi. Held samt að
Lufsunni hafi tekist að klára þetta ruglrusl. Robert Redford
eitthvað 200 ára og eitthvað verið að berja Brad
Pitt í kínversku fangelsi. Fullkomlega óáhugavert
og nú skulda ég Bónusvideó 500 kall. 08:15
01.07.02
Pavoritti elskar fíla
ofsalega fyndið!
---
Fann góða síðu
um snillinginn James Ellroy.
---
Er að trappa mig niður eftir útilegu á Þverá,
Snæfellsnesi. Tveggja kvölda drykkja tekur á en við
vorum um 15-20 manns í tjaldborg innan um illvíga nautgripi.
Helstu umtalsefni voru hægðir, örabar, fólk frá
Ísafirði og samlífi.
Hápunkturinn var án efa þegar Elín leikfimikennari
tók sig til ásamt Lufsunni að hlaupa út á
tún, týna af sér fötin og taka til við að
stunda "Kanínuna", sem eins og allir vita er ævaforn leikfimi
upprunin í austurlöndum sem var fundin upp þarna í
útlegunni. Sífellt bættist í hóp iðkenda
og áður en yfir lauk stóðu 15 manns á túninu
á nærbuxunum og iðkuðu hina göfugu list. Í
gær var svo horft á Bra vinna Ger 2-0 eins og ég var
nú reyndar búinn að segja ykkur hérna einhvers
staðar fyrir neðan.
---
Nú er lokið fyrstu könnun þessarar síðu
en í henni voru lesendur spurðir um afstöðu sinnar
til Ólafs Ragnars. Spurt var: Hvað viltu gera þegar
Ólafur Ragnar birtist í sjónvarpinu? og tóku
119 þátt. Hinir uppþemdu voru í meirihluta því
42%
sögðust helst langa til að kasta upp þegar engilbjört
og pírð ásjóna Ólafs loðir við
skjáinn. Í öðru sæti voru hinir afskiptalausu
33% fundu enga þörf í
sér þegar kóngurinn birtist og sögðust langa
til að gera "ekkert sérstakt". 13%
af lesendum síðunnar eru óbjargandi öfuguggar því
16 manns langaði helst að fróa sér þegar sameiningartáknið
birtist. Er hræðilegt til þess að vita að svona
margir gangi um göturnar án hjálpar hins opinbera. Aðeins
13 manns, eða 10%, fundu í
sér hina sjálfssögðu hvöt að syngja þjóðsönginn
þegar Ólafur sést í kassanum. Nú þegar
úrslit liggja fyrir þykir mér augljóst að
Ólafur nýtur ekki trausts lesenda minna og ætti því
að segja af sér hið fyrsta. Ég er viss um að
hin vælandi Dorritt á einhvern kofa utan um hann í
útlöndum. Ef ekki, hvernig væri þá að
bjóða manni í mat, þarna rassstælta snobbbeygla?
---
Nú hefur ný
könnun hafist og nú er spurt um afstöðu lesenda
til sjúklingsins Davíðs Oddssonar.
---
Upplitaða fólkið í GK er ekki ennþá
búið að senda mér bol með skjaldamerkinu. Hvílíkir
lúserar! 07:45
28.06.02
Einu sinni sat ég með Stefáni Karli leikara á
kaffihúsi. Heyrði ekki betur en þetta væri fínn
náungi og niðrá jörðinni. Heyrði svo í
honum í útvarpsþættinum sínum og hélt
ég myndi æla úr mér bæði lungun. Var
kominn með einhverja ömurlega rödd og hló uppgerðarhlátri
að öllu. Með honum var Edda Björgvins og það
þoldi útvarpstækið mitt ekki og beinlínis
bráðnaði. Meikaði ekki svona mikla sjálfhverfu
í einu. Það er ljótt að segja það,
en ef Stefán Karl hefur látið svona í skóla
skilur maður mæta vel afhverju hann var lagður í einelti.
Meira að segja gæðablóði eins og mér var
farið að langa til að dýfa honum oní klósett
eftir 2 mínútur af þessum hræðilega hræðilega
þætti. 13:05
---
Bassaleikari The Who fékk slag og dó í Las Vegas
í fyrradag aðeins tveim dögum áður en Hú-arar
áttu að byrja ameríkutúr. John Entwistle var alltaf
mjög stöðugur á sviði og sýndi lítil
svipbrigði eða takta, en hann skilaði sínu óaðfinnanlega
og gekk undir gælunafninu "Uxinn". Ef Pete Townsend væri ekki
svona steiktur mynd'ann hringja strax í Rúnna Júl
og fá hann beint til Vegas og halda áfram með túrinn.
Það er ömurlegt til þess að vita ef Who ganga
framhjá Rúnari því Rolling Stones hafa þegar
lítilsvirt besta bassaleikara í heimi með því
að fá hann ekki í bandið. En hlustið endilega
á The Who í dag til heiðurs föllnum meistara.
---
Freyr í Geirfuglum/Miðnesi er með poppsögulegan
þátt á Rás 2 á miðvikudögum
og vill fá mig í þáttinn 3. júlí
nk. Þar ætlum við að ræða plötuna GOÐ
með S.H.Draumi, en plötuna getur þú dánlódað
ókeypis hér.
Þá hefur Jón Ólafsson
viðrað þá hugmynd að fá mig í sjónvarpsþáttinn
sinn, en það verður tekin upp gomma af slíkum spjall
og poppþáttum á næstunni. Maður er því
bara á uppleið í lífinu og ekki er það
verra.
---
Ekkert fréttablað í dag heldur. Maður vorkennir
snillingnum Gunnari Smára að þurfa endalaust að standa
í þessu streði. Af hverju geta ekki aðstæður
verið þannig að hann fái að halda úti því
blaði sem hann vill án þess að einhverjir kauðar
með bindi klúðri öllu? Hann hefur alltof oft verið
með einhverja slísí glæpamenn á bakvið
sig, unga hrokafulla aumingja á kókaínhæi, m.a.
man ég eftir einum hálfvita sem lifði eftir mottóinu
"Greiddur reikningur = glatað fé". Já já, ha ha,
voða kúl þið getið vonandi hlegið að
þessu þegar þið svolgrið í ykkur volgum
1944-rétti í kjallaraíbúð ofarlega á
Hverfisgötu. Ekkert er eins ömurlegt og svona pakk.
Fréttablaðið var reyndar hundleiðinlegt og engin
söknuður í því en ég vona að BLAÐIÐ
hans Gunnars Smára líti dagsins ljós einhvern tímann
og lifi lengur en þangað til fjármálastjórinn
fer í steininn. Það vantar eitthvað almennilegt við
hliðina á Mbldv og Gunnar Smári er alveg maðurinn
í djobbið. 07:30
27.06.02
Ég hélt að hinn stórkostlegi safndiskur RÍMNAMÍN
ætti að vera tölvuvarinn, en svo bara rúllar þetta
eins og ekkert sé í tölvunni minni. Léleg læsing
eða á ég svona lúmska tölvu? Þetta
er megafínn rappsafndiskur enda rappsumarið í fúllsvíng.
Einhverjir vilja meina að þetta séu allt einhver Rottvæler-vannabí,
en svo er aldeilis ekki; það er bara einhver tilviljun að
þetta ryðjist allt upp núna. Enginn var Bubba Morthens-vannabí
í pönkinu þó Bubbi hafi verið ísbrjóturinn
sem litlu bátarnir sigldu á eftir. Uppáhaldslögin
mín á RÍMNAMÍNI til þessu eru "Drykkja"
með meistara Bent og 7berg og svo "Púsl" þar sem Sesar
A fær stórsnillinginn Skapta Ólafs til að syngja
með sér. Það er akkúrat engin sanngirni í
lífinu ef þetta verður ekki metsöludiskur. 13:59
---
Ég er nú alveg að steypa yfirum varðandi VIÐEY2002
- því diskótekarinn Phil Stadium er ekki hinn eini
sanni KJG heldur einhver Kristinn Blöndal sem talar eingöngu
útlensku og sendi mér tölvupóst þar að
lútandi. Þar hafiði það: Phil Stadium er EKKI
Unsound, en örugglega geggjað góður engu að síður.
---
Grími finnst ég
svo leiðinlegur og hastur við sig eftir að ég hætti
á Herbalæfinu og sterka kaffinu að ég hef ákveðið
að hefja inntöku á hinni göróttu blöndu
á ný. Ef til vill færist því líf
í tuskur bloggsins bráðum. Eitrunin verður þó
undir ströngu eftirliti.
---
Fantalemonhjúkkan
er fundin og mun hella þig fulla/n á Viðey2002. 09:00
26.06.02
Ef ég skil hann rétt, þá er Hr.
Múzak að biðja mig og fleira "nafntogað" fólk
um að vera virkari í báráttunni gegn einræðisherranum
Dabba kúk. Hef samt löglega afsökun og hefði eflaust
bundið gamlan trefil um kjaftinn á mér og staðið
fyrir framan O-ið ef ég hefði ekki verið á Ísafirði.
Vitni geta svarið að ég var einmitt múlbundinn þar
með leðurgrímu til stuðnings við kínverska
Kung Fu hópinn. Nú styttist hinsvegar í að þjóðin
hafi tækifæri til að ryðja gamla trölla úr
vegi og velji annað, þ.e.a.s. ef einhver almennileg/ur verður
í boði (hvað með nýja bæjarstjórann
í Hafnarfirði? Mér lýst mun betur á að
hann taki við af Össuri en að Ingibjörg fari að svissa
um gír).
Svo að Múzakki hætti að finnast ég liðleskja
í heilagri báráttu gegn hinu illa þá
hef ég útbúið drög að auglýsingu
sem S-listinn má eigna sér og nota í næstu kosningum:
Náttúrlega má finna mun fleiri orð til að
berja á hinum tæpgeðja sjúklingi með, en þetta
verður að duga því ég mundi ekki fleira í
augnablikinu (eins og þetta sé ekki nóg svosem). Svona
"öfug" taktík gæti virkað, kannski. Æ ég
veit það ekki. Verða ekki allir bara búnir að
gleyma öllu eftir ár, Dabbi segir nokkra brandara og fíflin
merkja við D á ný? 10:50
---
Strákur
er að hlæja að mér fyrir að hafa misskilið
og haldið að diskótekarinn Phil Stadium héti Fill
Stadium. Auðvitað er "Fill Stadium" miklu betra nafn, þ.e.a.s.
sá sem fyllir íþróttaleikvanga. "Phil Stadium"
er bara eitthvað of venjulegt grín. Annars er Phil enginn annar
en meistarinn KGB sem einnig kallar sig Unsound.
09:21
25.06.02
Hönnunardeild Rúnksins
hefur skilað af sér fyrir Viðeyjarhátíðina
og er útkoman hreinlega sláandi guðdómleg. Hér
má sjá plaggat og t-bol hátíðarinnar:
Betan og Toggi
Popp standa að heimasíðu
tileinkaðri Viðey 2002, en allt útlit er fyrir að
góður slatti af bloggandi grillpinnum mæti í sveittum
sjúss á skerið. Eitthvað hef ég misskilið
skilaboð um að fyrir þúsarann fengist partur af dauðu
dýri til að skella á kolin, en aftur á móti
hafa nú öðlingarnir hjá Carlsberg komið til
móts við mótshaldara með sverum spons. "Blogg-bollan"
mun einnig í bígerð en hún samanstendur af spíra
og fantalemon að mér skilst. Sérstök hjúkka
með blæðandi magasár sem sérsvið hefur
því verið ráðin á vakt þetta kvöld.
---
Nú hef ég læst Herbalæf dollurnar inn í
skáp og látið Lufsuna fela lykilinn enda var hin banvæna
blanda herbalæfs, kaffis og 3tíma svefns á sólarhring
á góðri leið með að koma mér æpandi
í gröfina. Manían sem ég var í um helgina
samhliða hinni lífshættulegu blöndu hafði þó
góð áhrif á blogggetu (já, alltaf falleg
þessi 3ja-g-ja orð), eins og sjá má á málæðinu
hér að neðan. Nú er ég hins vegar orðinn
aðeins rólegri og má því búast við
örlítið minna bloggi.
---
Í blaðið Núkynslóð frá 1968
skrifuðu Sigurður Guðmundsson og Þórarinn Eldjárn
grein um orð þar sem sami stafur kemur fyrir þrisvar í
röð. Þeir kölluðu fyrirbærið "Radddálka".
Hér eru nokkur sýnishorn með skýringum (birt með
alls engu leyfi höfunda):
Dogggjarn - gjarn á að rísa upp við dogg
Lakkklár - slunginn við að lakka
Prógrammmæltur - líkt máli farinn og höfundar
kvikmyndaprógramma
Vafffúll - leiður á að heita nafni sem byrjar
á vaffi
og að lokum:
Rasssár smekkkarl - smekkvíst gamalmenni
---
22:59
24.06.02
Viðeyjarhátíðin mikla gengur nú undir
gælunafninu Blogggrill (gaman þegar koma þrír
eins stafir í röð) og er aldeilis gaman að því.
Offisíelt nafn verður þó líklegast VIÐEY
2002.
Katrín er með könnun
þar sem nördarnir sem lesa bloggið hennar eru í óða
önn að bera af sér nördismann. Undirbúningur
fyrir glensið er í fullum gangi og rétt að minna
á heimasíðu
Rúnkara,
sem standa í raun á bakvið þessa dúndurgóðu
hugmynd. Ég ligg þó mitt á vogarskálar
plöggsins og heimsæki Sigurjón og kó í
fyrramálið. Verð þar um kl. níu. 14:27
23.06.02
Hef nördast til að búa til stórfenglega Nú var Lufsan farin í bælið enda að vinna
morguninn eftir, en ég var til í meira tusk og var svo stálheppinn
að rekast á Erp Eyvindarson fyrir utan Nasa. Það hefur
lengi staðið til að taka gott fyllirí með honum
og nú var komið að því. Blazrokki var með
einhverjum Árna, dreng sem hefur að sögn verið Íslandsmeistari
í samkvæmisdönsum 21. sinni. Sá var umvafinn ofbrúnum
glæsipíum en Erpur fékk meira svona ljótari
gellur á sig og stráka sem höfðu sitthvað "sniðugt"
að segja við hann í drykkjurússinu. Nokkrar enn ljótari
píur og enn meiri lúserar þekktu mig og fóru
að syngja Prumpulagið og vildu ólm taka í spaðann
á mér. Við fræga fólkið hröktumst
úr bögginu inn á Píanóbar, sem var í
andaslitrunum. Þar hitti ég mann sem ég mun velsæmis
vegna kalla "Hörð" eftirleiðis. Sá var hress og splæsti
ólmur. Nokkrir fullir lúserar gáfu sig á tal
við okkur en þetta var svo sem ekkert æðislegt því
rappstjarnan var öll á iði og vör um sig eins og rolla
í vegarkanti og á stanslausum þönum við að
hösla eina gapandi gelgju utan um besefann á sér, eða
svo. Við náðum ekkert að spjalla en reifuðum þó
hugmynd að samstarfi í framtíðinni - eitt stuðlag
eða svo. Nú vildi "Hörður" draga mig frá unglingunum
og inn á Maxims við hliðina og við stungum því
graða rapparann og dansarann af (en sá hafði rétt
áður gefið mér glæsilega Puma rapparahúfu
til að hylja skallann á mér með).
Á Maxims var stuðið hverfandi. Ein frekar ljót
stóð við barinn og "Hörður" varð nú
allur á hjólum og vildi eflaust spæna í þind.
Sá ég hann ekki meira þar með, en gaur, á
að giska 55 ára, bankaði í mig og spurði hvort
ég sé ekki fermingarbróðir sinn - Bústaðarkirkja
'64? Nei nei, Kópavogskirkja ´65, sagði ég, en
þetta var fínn gaur og við settumst við hlið sviðsins
og hófum samræður. Ég mun velsæmis vegna
kalla hann "Ármann B".
Nú gafst færi á að virða innanstokksmuni
þessarar lánlausu búllu fyrir sér. Spikfeitir
dyraverðir í sjúskuðu úniformi héngu
við dyrnar. Á barnum voru tvö í fýlu. Þekktur
maður úr fyrirtækjalífinu - sem ég mun velsæmis
vegna kalla "Gumma í Plexus" - sat við hlið skollótts
manns sem ég hef einhvern tímann talað við. Gaur
sem ég hélt fyrst að væri þarna síðhærði
gaurinn úr Ísl. draumurinn sat með öðrum gaur.
Báðir þögðu. Sviðið var tómt.
Þegar léttklæddur starfsmaður gekk tignarleg framhjá
á 27" pinnahælum færðist vinur fake íslenska-draums-gaursins
allur í aukana og fálmaði óstyrkur í g-strenginn
hjá starfsmanni. Jú vonna kom dánsters for príveit
dans? og hann gat ekki hamið sig og þau hurfu niður.
Ég veit það ekki. Ég veit ekki hver er raunverulega
fórnarlambið hér. Stelpurnar eru algerlega á heimavelli
og með þetta allt í hendi sér. Jú jú,
niðurdrepandi djobb, en ef ég gæti unnið við að
stríplast fyrir einhverjar lúsera kerlingar ásamt
öðrum kúl körlum á g-streng væri ég
til í tuskið - svo skilst manni að Geiri borgi vel.
Karlarnir - plagaðir af samviskubiti og óslökkvandi
greddu sem hefur af miskunarleysi sínu dregið þá
í þessa höll greddunnar - skömmuðust sín
allir til fjandans fyrir að vera þarna en reyndu að breiða
yfir það með óstyrku gríni. Sköllótti
vinur "Gumma í Plexus" - örugglega fínn strákur
sem vinnur líklega á auglýsingastofu, en "hefur ekki
útlitið með sér" - lét loks undan greddunni
og var teymdur niður í svarthol præveidansins af beibi
með sílikon til helvítis. Hann jarmaði einhverju
á mig á leiðinni framhjá mér eins og ég
bæri ábyrgð á þessu. Skömmu síðar
var "Gummi í Plexus" orðinn stjarfur og læddist niður
líka.
Ég og "Ármann" vorum hins vegar sallarólegir og
reyktum vindla. Hann sagði mér allt um sitt líf en nú
birtist kona á sviðinu í rauðu melludressi og byrjaði
skak. Nú varpaði "Ármann" sprengjunni: "Þetta er
konan mín. Við höfum verið saman í sextán
ár." Djöfuls lýgi hélt ég, en hann gaf
sig ekki. Ég er kannski fáviti en ég trúð'onum.
Ég var því ekki beint æstur í að stara
á rakaða fíkjuna með eigandann við hliðina
á mér. Þegar hinn svokallaði erótíski
dans var á enda og konan týndi saman leppana við klapp
mannsins síns, nokkra örvæntingafullra lúsera
sem sátu í horni og mín, sagði "Ármann
B": "Hún hatar þetta."
Eftir þetta var lítið að gera annað en að
kveðja þetta virðulega samkvæmi. Á leiðinni
heim hitti ég Magga Legó, sem leit stórfurðulega
út, en sagði mér að nýja GusgGus platan kæmi
ág/sept. Hann tók mynd af mér á milli einhverra
smápía sem hann var með og svo kvöddumst við.
Djöfull er ég heppinn en margir óheppnir hugsaði
ég þegar ég lagðist angandi af næturlífi
við hliðina á sofandi Lufsunni minni.
---
Safnarabúð Valda er besta safnarabúðin í
bænum (Táfýli á Ingólfsstræti er
illþefjandi hrappur, en Mr. Bean í Safnarabúðinni
er góður líka, þó hann sé aðallega
klámkarl). Ég var bún'að leita lengi að plötunni
Sell Out með The Who og fann loks hjá Valda í gær.
Þetta er alger snilld þessi plata. Þeir á sýru
og í góðu stuði og á algerum suðupunkti.
---
Djöfull fíla ég þennan gaur:
Ég kalla hann Tanna vin minn, þó hann heiti reyndar
Ronaldin-HO! Útlit piltsins er stórfenglegt (tennurnar og
spennan í hárinu gera útslagið) og svo var sprengfyndið
að sjá frumleg viðbrögð hans þegar dómarafíflið
rak hann út af. Venjulega eru þessir fótboltagaurar
alveg brjálaðir en Tanni var bara eins og brosandi fífl
með tennurnar sínar og spöngina. Meistari! Og fyrir þá
sem nenna ekki að bíða: Bra vinna Ger í úrslitaleiknum,
2-0.
21.06.02
Blogg-geðveikin heldur áfram. Grímur
bassadjöfull er kominn með málæði í puttana
og ljóstrar upp innanhúsleyndarmálum af hljómsveitinni
Dr. Gunni. Þá er Helga
Vala konan hans líka komin á fullt. Kötturinn í
númer 9 segist vera á leiðinni með síðu
og trén í garðinum eru komin á treeblog.com. Hvar
endar þetta?
---
Ég var fullfljótur að drulla yfir bloggheiminn og
hef uppskorið eftir því. Þess vegna dreg ég
allt til baka og segi að allir þeir sem blogga séu snillingar
og öðlingar sem ég elska og virði út af lífinu.
Fyrir utan stelpurnar þrjár að neðan (þá
meina ég hér að neðan í blogginu, ekki að
þær séu eitthvað betri að neðan en aðrir
- úbbs, Sverrir Aulasker farðu úr mér!) má
auðvitað týna til sérstaka meistara sem eru vitanlega
Nonni
í Nýdönsk, Siggi
mótmælandi, Lubbi,
Jonni
og lófæheimdellingurinn.
Allir hinir eru auðvitað frábærir líka og má
nálgast á Naggi eða
Klani.
---
Taktu frá föstudagskvöldið 5 júlí.
Já-há því þá verður þrumustuðball
og skrall og pulsur og kjaftæði í Viðey! Hinir eldhressu
krakkar í RÚNK standa að þessu svakalega geimi
og hafa boðið hljómsveitinni DR. GUNNI að spila með
og auðvitað sagði hljómsveitin já! Fyrsta giggið
mitt í helvíti langan tíma verður því
semsé í VIÐEY FÖSTUDAGSKVÖLDIÐ 5 JÚLÍ!
Á efnisskránni verða ný lög og svo eitthvað
gamalt stuð ef áhorfendur bjóða í svoleiðis.
Auk Rúnk og Dr. Gunna verða á eyjunni plötusnúðarnir
Fill Stadium og Dj Talnapúki og kántríboltinn Rassi
Prump mun syngja sitt kántrí. Ein hljómsveit mun líklegast
bætast við. Það verður selt eitthvað smá
inn á dæmið - þúsund kall topps, skilst mér,
og fá gestir auk ljúfra tóna; siglingu (báðar
leiðir), grillmat og bjór. Er þetta æði eða
er þetta hvítblæði? Æði, maður! Nú
er eins gott að Trausti veðurfræðingur verði hress
þann 5. júlí!!!
---
Álpaðist til að sjá nokkrar mínútur
af hinum hörmulega Íslandsþætti Villa í
Naglbítum og þessarar Rósu ömurlegu. Þau
tvö eitthvað alveg klúless og óspontant og vonlaus
að borða egg. Kommon! Hvaða hálfvita datt í hug
að fjármagna þetta drasl með mínum peningum?
(Það er jú skylduáskrift). Villi er fínn
náungi og 200.000 er toppband og hann var ágætur í
hinum þættinum en Rósa greyið er alveg glötuð
þó hún sé eflaust frábær á
einhverju öðru sviði - léttbláum leðurklámmyndum
kannski?
En það má nú gefa Rúv prik fyrir að
sýna nýjustu AbFab seríuna. Frábært stöff.
Eftir hina úldnu Smack the Pony þætti gæti maður
haldið að breskar kerlingar gætu ekki verið fyndnar en
svo er nú aldeilis ekki. AbFab (Tildurrófurnar) eru frábærar.
Og þessi ástralski framhaldsþáttur um ungt fólk
á uppleið er alveg ágætur líka - Síkret
læf of ös. Ég játa að ég horfi stundum
á það bull, en í gær var mér öllum
lokið og fattaði að þetta er bara Leiðarljós
unga fólksins. Já og hvað með það? Ég
horfi líka eftir viku.
---
Ég var í heita pottinum í Vesturbæjarlauginni
og þá kom Sigurður Skúlason sem lék ökukennarann
í Gemsum. Hann spurði mig hvort ég hefði fengið
einhver viðbrögð á frammistöðu mína
í Cherrios-auglýsingunni? Ha, hváði ég
og kom af fjöllum. Ég hafði nebblilega ekki leikið
í neinni auglýsingu fyrir Chíríos. Siggi hélt
ég væri að djóka með sig og staðhæfði
að ég hefði leikið í þessari auglýsingu.
Ég þvertók fyrir það. Nú var kallinn
orðinn brjálaður og þetta var orðið eins og
sjúkrabílasenan í Gemsum svo ég forðaði
mér áður en allt yrði vitlaust en Siggi gaf mér
fokkmerki og sagði að ég væri lygari og fáviti.
Þetta var orðið eins og sena úr Hitchcock-mynd svo
ég fór heim í þungum þönkum og skrifaði
Árna Zúra email, þar sem hann er eini maðurinn
sem ég veit að er í þessum augl-bransa:
> Mér var sagt að ég léki mann sem gleymir
að fara í sundskýlu í Cherrios
> auglýsingu. Ég
> kannast ekkert við þetta. Var ég etv í blakkáti
eða voru mér gefin eiturlyf? Kannski einhver tvífari?
Veistu eitthvað um þetta?
Zá Zúri var með á nótunum og svaraði:
já sæll. ég kannast sko vel við það
enda gerði ég hana. en ég get fullvissað
þig um það að það varst ekki þú.
hann er jú reyndar mjög líkur þér. þó
ekki
eins mikill töffari.
Púff vá! Sem betur fer. Og augl er meira að segja
til á netinu, hér.
Tékk it. Það sést ekki mikið framan í
gaurinn en vaxtarlega séð er þessi huldumaður líkur
mér - eða eins og ég var fyrir 1 ári áður
en ég fór að massa mig upp (je, ræt).
---
Gott hjá Brössum að taka þessa ensku bjána
í görnina. Taglhnítingurinn í rusli og Bekkham
grenjandi. Gott mál!
20.06.02
Madonna er fremur óþolandi en "Beautiful
Stranger" er frábært lag.
---
Cuntney Love (eins og Sverrir Fávitasker
myndi eflaust segja) er þó enn verri. Malibu er þó
gott lag. Það ætti að þræða þessa
belju upp á tein og steikja yfir hægum eldi í beinni
á MTV og svo ætti að dæla Nirvana-bútleggum
á markaðinn. Helvítis gráðuga tík.
---
Talandi um græðgi: Hinn fullkomni heimur
músikáhugamannsins er búinn að vera - í
bili að minnsta kosti. Fyrst drap "maðurinn" (e. "The Man") Napster,
en þá kom bara hið frábæra Audiogalaxy og
maður var í sælu ókeypis tónlistar í
nokkur misseri. Ekki það að ég hafi ekki keypt meira
af diskum en vanalega á því tímabili - jú,
þetta var sem blóm í eggi, maður var alltaf að
uppgötva eitthvað nýtt og kaupandi dót. Þetta
gráðuga hyski sem hefur nú lokað fyrir Audiogalaxy
skildi ekki að þetta var útvarp vorra tíma. Að
Audiogalaxy sé dautt eru verstu fréttir sumarsins.
---
En er einhver nýr möguleiki í
stöðunni? Enginn nærri því eins góður,
því miður. Hef prófað Limewire sem tottar gölt.
Byggir á þessu glataða Gnutella-systemi sem er handónýtt
og allt fyllist af upppoppandi auglýsingum. Hef prófað
WinMX sem er sæmilegt en þar eru endalausar biðraðir
eftir öllu og úrvalið sláandi lélegt eftir
gleðina hjá Audiogalaxy. Hef reynt að prófa Edonkey2000
en ekki einu sinni náð sambandi við þjóninn.
Hef líka reynt að prófa Blubster en næ ekki heldur
sambandi. Hvílík leiðindi! Ef lesendur vita um eitthvað
almennilegt mega þeir láta mig vita.
---
Bassaleikari Dr. Gunna, Hr.
Grímur Atlason, skrifar í mbl
í dag og er alveg óður og vill að Davíð
Oddsson segi af sér. Hei - meðan fífilin kjósa
þetta yfir sig hvað er svo sem hægt að gera? Er þetta
ekki lýðræðið? Annars er ég of lífsglaður
(les: áhugalaus) til að nenna að velta mér upp úr
Davíð Oddssyni. Tek bara undir það sem öldruð
móðir mín segir. Hún vorkennir aumingja manninum
að eiga ekki séns á erfingjum. Leiðinlegt að
karlgarmurinn taki það vandræðaástand út
á okkur.
---
Sumir eru allir út á við og
hugsa um umbúðir allan daginn. Eins og t.d. tískuplebbinn
Oddur Þórisson sem lítur út eins og ofsoðin
SS-pulsa. Hann og Arnar Gauti (sem Mikki
Tott gerði frægan á einni nótt í æsilegu
Fókus-viðtali) og Ari Magg ljósmyndari eru gengi og svo
kemur Árni Vigfússon hjá Skjá 1 sterkur inn
í gengið. Þetta gæti næstum verið rottu-pakk
(e. rat pack) Íslands, ef þeir væru aðeins meira
kúl og ekki alveg svona vitlausir (án þess að ég
viti svo sem mikið um það og þess vegna gætu
þeir allir verið meðlimir í Mensa on ðe sæd).
Þegar Árni Vigúss var bara Hellisbúi og ekki
Skjár 1 villtist ég einu sinni í eftirpartí
heima hjá honum þegar hann bjó á Grettisgötu.
Blessaður drengurinn var ekkert nema almennilegheitin og vildi allt
fyrir mig (eins og aðra gesti) gera. Þetta var nú ekkert
villt - á svæðinu bara nokkrar ofbrúnar stelpuskjátur,
nokkrir jakkafataplebbar og svo leit Eyþór Arnalds inn með
remúlaði á bindinu. Ég tók eftir því
að Árni átti risastórt sjónvarp og svo
var hann með nokkrar artífartí s/h ljósmyndir
af snobbuðum Íslendingum (vinur minn Thor og eitthvað svoleiðis
ofmetið pakk) upp á vegg sem Ari hafði tekið og Oddur
eflaust "stíliserað". Ég þurfti auðvitað
að þusa eitthvað um hvað þetta væri lummó
hjá honum en Árni brosti bara skilningsríkur og leiddi
rausið eðlilega hjá sér. Svo stal fylgiskona mín
rauðvínsflösku úr myndarlegum rekka Árna
(ég vissi það ekki og skammaði hana, enda aumingjalegt
að stela) og við hurfum á braut enda eftirpartíið
varla til staðar lengur.
---
Eftir þetta hef ég heilsað Árna
á förnum vegi. Ég hef hins vegar ekkert gert til að
verðskulda það að fá að heilsa Oddi og Ara
og er það miður. Ég hef þó oft séð
þá á förnum vegi og verð alltaf jafn "fashion
concious" þegar ég mæti þeim. Fer að hugsa
- æ, sjitt, hvað ætli Oddi finnist um larfana sem ég
er í núna - honum finnst ég örugglega algjör
fáviti og hallærislegasti maður í heimi. Þá
herði ég mig upp og hugsa: Æ hann getur bara étið
skít helvítis tískuhomminn.
Ég er náttúrlega alltaf
eins og fábjáni til fara enda of lífsglaður (les:
átvagl) til að passa í einhver kúl föt. Dressman
er mín búð of choice og nú held ég að
Oddur sé farinn að æla af örvæntingu, ef hann
er að lesa þetta. Einu sinni var ég með manni í
hljómsveit sem sagði að ég mætti skjót'ann
ef ég sæi hann fara inn í Dressman og jú jú,
auðvitað er þetta hallærið uppmálað.
En flíspeysurnar maður, ú la la la.
---
Fyndnar annars þessar auglýsingar
frá Dressman. Alltaf þessir sömu þrír hnakkar
sem spóka sig í Dressman-tuskunum í sló mó
og gellurnar alveg óðar. Einu sinni var það tekið
fram í þessum auglýsingum að fötin væru
annaðhvort Battistútí eða Makkgordon en nú
eru þeir hættir því - hafa líklega fattað
að öllum var skítsama.
Það er verst að hér eru
engar almennilegar Gap eða Old Navy búðir. Í ferðum
mínum í erlend moll hef ég lært að þar
fást bestu fötin. Leiðinlegt að þetta hörmulega
morðmál um árið verði til þess að þessi
gæðamerki verði alltaf tengd viðbjóði í
hugum Íslendinga.
---
Ég mun aldrei fara inn í verslunina
GK en hef tekið eftir því að þeir eru með
boli með íslenska skjaldarmerkinu. Þetta er nokkuð
flott verð ég að segja, eða a.m.k. þar til ég
sé Gunnar Óla eða einhvern álíka mel í
svona bol. Þið þarna í GK megið gjarnan senda
mér svona bol (sé hann til í XL). Ég er skránni.
Ég segi bara eins og vinkona mín Dóra Einars sagði
við mig þegar ég var 20 ára bakksteids í
Casablanca. "Þú átt að gefa mér eintak (af
fyrstu plötu S/H Draums). Það er betri kynning en auglýsing
á Rás 2."
18.06.02
Þá er komið skítaveður
á ný og því löglegt að hanga inni og
"blogga". Nú eru allir í bænum farnir að halda
úti dagbók á netinu og ég verð að játa
að þetta er allt frekar leiðinlegt þvaður um ekki
rassgat. Erða Sigurjón og kó sem eru ábyrgir fyrir
þessu þvaðri öllu? Nú bíða allir
spenntir og tilbúnir á lyklaborðinu því
hér er Topp 10 í best of netþvaðri (engin sérstök
röð).
Heimasíða
Helgu
Katrín
Beta
Æi, mundi bara eftir 3 sem ég nennti
að mæla með - og allt stelpur. Ef ykkur finnst þær
leiðinlegar getiði þá að minnsta kosti skoðað
myndirnar af þeim. Og föndrað við ykkur ef þið
eruð þannig þenkjandi.
---
Djöfuls smáland er þetta sem
maður býr í. Ef það vantar gesti í Kastljós
er alltaf talað við þá sömu. Ég trúi
varla að þetta sé að gerast - Baldur stjórnmálafræðingur
og eiginmaður Felixar Bergssonar mættur enn og aftur (er hann
til á lager hjá Rúv?), annar gáfaði tvíburinn
(sem má nú eiga það að hann gaf Eru ekki allir
í stuði góða dóma) og svo Ásgeir Friðgeirsson,
sem er út um allt þessa dagana - þykist meira að
segja hafa vit á fótbolta. Ég bjó nú
við hliðina á Ásgeiri í u.þ.b. 20 ár
og þá var hann engin sérstök mannvitsbrekka. Hann
er svona 6 árum eldri en ég og tók mig einu sinni
hálstaki og hélt mér á lofti þar til
ég var næstum dauður. Eftir þá meðferð
hef ég haft sérstakt auga með Ásgeiri og forðast
hann. Nú er hann alls staðar og þykir ægilega snjall
- svona er að vera ritsjóri hjá einhverjum fretvef sem
er búinn að vera stanslaust á hausnum í 2 ár.
---
Allt á hausnum þessa dagana. Edda,
DV, allir þessir vefir og svo Fréttablaðið sem gerir
ekki annað en að segja frá öðrum sem eru á
leið á hausinn en eru svo á hvínandi rassgatinu
sjálfir og borga ekki útburðarfólki. Ég
hef tekið eftir að blaðburðabörnin eru byrjuð
að vera með uppsteit því út um allan bæ
má sjá stafla af óútbornu Fréttablaði
sem krakkarnir hafa strækað á að dreifa. Afhverju
segja þeir ekki fréttir á því hjá
Fréttablaðinu?
---
Annað með Rasskastljós sem ég
hef tekið eftir. Ef þeim vantar einhver "hressan" í föstudagsþátt
draga þeir Thor Vilhjálmsson inn og hrúga í
sófann og látann þusa eitthvað sem enginn skilur.
Hvað er svona "hresst" við elliærann hundleiðinlegan
hálfvita sem getur ekki rassgat? Ég næ þessu
ekki.
---
Skrýtið þetta nýja Stuðmannalag,
ekki gott, en ekki beint ömurlegt. Hvenær ætli það
verði komið í auglýsingu?
---
Senegal verða heimsmeistarar. Eða Kórea.
Eða Brasilía. Ég nenni ekki að einhverjir aðrir
vinni.
---
Jonni
kom
með 2 cdr diska frá Eddu. Rímnamín-rappsafndiskurinn
sem Sesar A hefur verið að týna saman á og fyrsta
offisíal plata meistara Kippa Kanínus. Það mætti
segja mér að þetta verði á fóninum næstu
daga.
---
Hljómsveitin Dr. Gunni spilar sitt fyrsta
gigg Á AKUREYRI 13. JÚLÍ!
Sætaferðir verða etv í boði
úr Rvk. Nú hefur bandið æft átta sinnum
og er orðið nokkuð þétt. Ég hef ákveðið
að bíða fram á næsta vor (2003) til þess
að gefa sólóplötuna út. Það koma
þó líklega 1-2 lög á safnplötum áður.
07.06.02
Keypti mér fyrstu Hljómaplötuna
í dag á disk. Lengi hefur mig langað að vita hvað
þetta öfuga-bull væri í byrjun plötunar (byrjunin
á laginu "Heyrðu mig góða") og nú hefur mér
tekist með nútímatækni (Sound Forge) að leysa
gátuna.
Hér
er hinn öfugi bútur orðinn réttur og sannleikanum
samkvæmur.
---
Fyndið að sjá Arafat leiða
Dóra Ásgríms út um allt eins og þær
séu litlar stelpur í mömmuleik. Sætt. Svona er
nú Homo Sapiens inn við beinið þrátt fyrir
öll mannalæti - lítil vesæl og hrædd smástelpa.
Óþarfi samt að fara að væla út af þessari
miskunnarlausu staðreynd og byrja að trúa á einhverja
yfirnáttúrulega veru.
---
Dee Dee Ramones er dáinn, grey kallinn.
Fannst á miðvikudaginn í íbúð sinni
úr því sem lítur út fyrir að vera
heróín óverdós. Fyrir þá sem ekki
vita var Dídí í Ramones á gullaldarárunum
og samdi megnið af snilldinni. Fíkill. Skál í
botn í heróínsprautu fyrir Dee Dee og vonandi færðu
stóra heróínsprautu í rassinn í pönkvalhalla.
---
Fótbolti og svona. Hef verið á
Glaumbar að horfa á þetta rugl, stundum einn með barþjóninum
(sem hellir upp á fyrir mig ilmandi góðum svaladrykk).
Stundum slæðast nokkrir karlar inn og æpa móðir
og rallhálfir og þykjast hafa voðalegt vit á þessu
og nöldra yfir meintu getuleysi leikmanna. Gætu þó
ekki sjálfir gengið þvert yfir völlinn án
þess að leka niður með blóðtappa. Fullt hús
í dag þegar England vann slappar Argentínur. Ægileg
svitafýla í lofti og hormónaflóð. Öskur
og gól og mikið fagnað. Held að flestir hafa haldið
með Beckham og félögum. Jú jú það
er gaman að þessu rugli. Þarna endurspeglast tilgangsleysi
lífsins glæsilega. Ég held að Brian Eno hafi sagt
að án fótbolta væru uppreisnir meðal hvítra
karla mun algengari en þær eru í dag. Hvað hefði
þetta fólk ef það hefði ekki fótbolta?
Lítið. Þá yrði það órólegt
og færu að spyrja sig nagandi spurninga um samfélagið
o.s.frv. Eins gott að það gerist ekki. Áfram Írland!
03.06.02
Discovery með Daft Punk er góð
plata. Alveg upp á 9.5. Úti er sól og svaka stuð.
Hvað er ég að hanga inni að skrifa bull? Og hvað
ert þú að hanga inni og lesa þetta!? Rokk!
VAR
EITTHVAÐ AÐ GERAST í apríl og maí 2002?