Næsta góðæri

Æi, hættu nú þessu væli! Næsta góðæri verður enn unaðslegra en það síðasta, sannaðu bara til. Og það kemur áður en þú veist af!

Í næsta góðæri verða einkaþotur eitthvað svo 2007. Þá dugar ekkert nema ein Stealth á mann, sumir fá sér kjarnorkukafbáta. Wagyu-steik verður öreigamatur, sneið af nýslátruðum pandabirni verður lágmarkskrafa þeirra nýríku.

Starfsloksamningar þeirra æðislegustu verða ekki mældir í hundruðum milljóna króna heldur í hundruðum milljónum evra. Þegar halda skal partí verður ekki boðið upp á lítilfjörlegt lið eins og Elton John og Duran Duran; tónleikar með Rolling Stones og Bítlunum (þeim dánu verður skipt út fyrir afkvæmi sín) verða hinn nýi staðall.

knúinn áfram af stórkarlalegum afrekssögum af hinum æðislegustu og almennri bjartsýni á áframhaldandi unaðstíð mun almenningur ekki láta sitt eftir liggja í gleðinni. Góði hirðirinn fyllist af pönnukökusjónvörpum og pallbílum, einkabíósalir og vörubílar verða málið. Í umferðinni göslast millistjórnendur áfram á vörubílunum sínum, alltaf með pallinn galtóman. Auðvitað þarf enginn á vörubíl að halda, ekki frekar en pallbíl, en það verður bara svo hagstætt að fá sér vörubíl að það verður rugl að sleppa því. Það verður nefnilega aftur "offramboð á peningum" eins og hér var fyrir nokkrum árum þegar "endurfjármögnun" var lausnarorðið.

Eingöngu lúðar og sveitafólk klikkar á að fá sér fjórðu kynslóð farsíma (nú verður hægt að velja um mismunandi lykt af orminum í Snake) og enn frábærari verslunarmiðstöðvar rísa. Ber þar bókstaflega hæst Esjuhöll ofan á Esjunni, sem slær öllu öðru út í mikilfengleika. Á hverju kvöldi verður kveikt á Ólafs Ragnarsfossi í miðri höllinni sem spýtist mislitur upp í loftið íbúum góðærislandsins til upplyfingar. Ólafur Elíasson hannar vitaskuld fossinn.

Þetta eru auðvitað bara getgátur og ekkert víst að þetta rætist, nema að hluta. Aðeins eitt er alveg öruggt. Laun í umönnunargeiranum verða áfram þau lægstu með áframhaldandi óánægju og skertri þjónustu. Það skiptir nefnilega engu máli hvort það sé samdráttur eða þensla, góð- eða hallæri, aldrei er "rétti tíminn" til að gera það sem blasir við öllu almennilegu fólki: að jafna kjörin.