Ofurlaunin mín

Ég er frábær. Um þessa staðreynd er víðtæk sátt í samfélaginu. Að minnsta kosti heima hjá mér. Að minnsta kosti kannski þegar mér hefur tekist að loka klósettsetunni nokkra daga í röð.

Því þykir ganga sturlun næst að ég sé ekki spígsporandi um bæinn á ofurlaunum eins og aðrir frábærir menn. Ég skil bara ekkert í því af hverju ég er ekki með, tja... segjum eins og 10-20 millur á mánuði. Það er nú ekki eins og það sé einhver ofrausn miðað við frábærleika minn, allavega ef ég ber sjálfan mig saman við þá, sem samkvæmt blöðum og tímaritum ? þótt ég trúi því nú varla ? eru í raun með þetta 10-20 millur á mánuði.

Geir Haarde heldur kannski að ég liggi andvaka í svitakófi á nóttunni og öfundist út í ofurlaun frábærra. Þetta er ekki alveg svo slæmt, en ég segi stundum við Lufsuna að ég bara nái því ekki afhverju ég er á mínum lúsarlaunum en eitthvað lið út um allan bæ á geðveikum ofurlaunum. Hún tekur ekki þátt í öfund minni, enda skráð í Sjálfstæðisflokkinn, og segir að það sé fyrirtækjunum alveg í sjálfsvald sett að borga þessu fólki þessi sjúklegu laun. Þá fellur mér kjaftstopp allur ketill í eld. Ég minnist þess bara þegar ég var að vinna í Landsbankanum. Þá voru Sverrir og þessir karlar á kannski milljón á mánuði og maður sá svo sem í gegnum fingur sér með það. Nú er launamunurinn orðinn svo mikill að mig langar helst til að æla af skilningsleysi og skelfingu. Hvað vit er í þessu? Sérstaklega þegar laun á leikskólum, elliheimilum og svo framvegis eru höfð til hliðsjónar.

Ég meina: Sjáið nú bara þetta frábæra fólk! Til að nudda salti í sárin er þetta flest miklu yngra en ég, einhverjir smjörgreiddir gleraugnaglámar í jakkafötum. Ég skil ekki hvernig er hægt að fúnkera í þessu þjóðfélagi á launum sem eru eins og að fá þrefaldan pott í lottóinu mánaðarlega. Aumingja fólkið hlýtur að vera við það að missa vitið. Ég væri allavega kominn á tæpasta vað með alla þessa peninga flæðandi út um allt. Hvernig kemur maður þessu eiginlega í lóg? Það eru takmörk fyrir því hvað maður nennir oft í sólarlandaferð til Tahiti eða getur komið mörgum tvöföldum ísskápum með klakavél inn í eldhús. Þegar tekið er með í reikninginn hversu óendanlega leiðinleg ofurlaunadjobbin líta út fyrir að vera fer nú líka mesti glansinn af þessu.

Mín niðurstaða er því þessi: hirðiði bara ofurlaunin ykkar, ó þið frábæra fólk. En ef ykkur vantar einhvern tímann einhvern til að leysa ykkur af, þó ekki væri nema í mánuð ? jafnvel viku ? þá er ég til.