Bréf til Jóla

Kæri Jóli. Takk fyrir aldeilis frábær jól! Þú hefur aldrei verið jafn duglegur að koma með dót. Jólasnjórinn birtist alveg á passlegum tíma og það var eiginlega ekkert sem skyggði á jólagleðina nema kannski fréttin af verkamönnunum hjá Jarðvélum sem fengu ekki kaupið sitt. Ég trúi samt ekki öðru en það mál hafi fengið farsælan endi, til dæmis þann að jólaandinn hafi gripið verktakann og hann gengið frá sínum málum.

Þetta var voða klassískt hjá okkur fjölskyldunni. Eftir ofgnótt matar tók við svakalegt pakkamaraþon. Fjögurra ára sonur minn var upptjúnaður yfir þessu og búinn að sniglast í kringum tréð allan daginn. Loks þegar hann fékk grænt ljós reif hann og tætti pappírinn af pökkunum og kallaði jafnóðum: Hvað á ég meira? Þegar risastór dótahrúga var komin á gólfið tók við minn hlutur: að ná dótinu úr kössunum. Ég verð nú að skamma þig og bræður þína fyrir að pakka þessu svona svakalega vel inn. Hvert leikfangasnitti er reyrt niður í hnausþykka pappakassa með vírum og skrúfum og fyrir jafn klaufskan karl og mig getur verið verulegt vesen að frelsa dótið. Þegar það tókst loks tók annar hausverkur við; að koma dótinu heim og saman því í undantekningatilfellum kemur dót tilbúið úr kössunum. Playmo og Lego eru hátíð miðað við Transformers-karlana, sem verulegt verkvit þarf til að setja saman og breyta úr karli í bíl. Þar sem ég sat ráðþrota haldandi á ósamstæðum bitum og sonurinn suðandi, hugsaði ég: Er þessi ofgnótt kannski ekki alveg hinn rétti andi jólanna?

Ég hélt áfram að hugsa þetta þegar ég veltist um í rúminu með hausverk og vélindabakflæði út af öllu reykta kjötinu og maltinu og appelsíninu. Ætti ég kannski að stinga upp á einhverju róttæku fyrir næstu jól, til dæmis að fara að dæmi Jóns Ásgeirs og Ingibjargar og þiggja engar gjafir heldur láta fólk leggja inn á góðgerðarreikning. Fjölskyldan gæti svo verið í uppvaskinu hjá Hjálpræðishernum.

Kæri Jóli. Auðvitað var ég búinn að gleyma þessari vitleysu daginn eftir þegar ég vaknaði laus við hausverkinn og drengurinn farinn að leika sér við samsett dótið sitt. Alveg er ég svo viss um að þú búir til ennþá, ennþá meira dót fyrir næstu jól.