Hálfvitar

Þegar allt kemur til alls og kornið hefur verið skilið frá hisminu blasir við einföld skýring á flest öllum vandræðum heimsins: Það er of mikið til af hálfvitum.

Þessari staðreynd er þó alltof sjaldan haldið á lofti og allskyns vitleysa borin á borð í staðinn, oftast margtuggin pólitískt rétt froða sem gerir engum gott og dreifir bara athyglinni frá því sem blasir við öllu almennilegu fólki: Það er of mikið til af hálfvitum.

Því var ákaflega þakklátt og hressandi þegar fulli hálfvitinn sem stökk inn á fótboltaleikinn í Danmörku og sló til dómarans með þeim afleiðingum að Svíum var dæmdur sigurinn var kallaður í blöðunum nákvæmlega það sem hann er: Hálfviti. Reyndar var hann bara kallaður hálfviti í dönsku blöðunum, og kannski bara þeim gulustu, og ef fullur hálfviti hefði stokkið inn á Laugardalsvöll með sömu afleiðingum er líklegast að hann hefði ekki verið kallaður hálfviti í íslenskum fjölmiðlum, heldur drukkinn einstaklingur, ógæfumaður, eða í besta falli vitleysingur.

Venjulegir hálfvitar verða sínu hættulegri séu þeir fullir og fullir hálfvitar eru á bakvið allar ofbeldisfréttir sem fylla fjölmiðla eftir helgar. Ef fréttir væru sagðar á mannamáli án froðuslykjunnar væru fyrirsagnirnar svona: ,,Fullir hálfvitar lömdu mann til óbóta á Laugarvegi”, ,,Fullur hálfviti hætti lífi og limum fólks með ofsaakstri” eða ,,Fullir hálfvitar eyðilögðu 80 bíla fyrir framan sjúkrahús að gamni sínu”. Lítið virðist ganga að slá á hálfvitaskap fullra íslenskra hálfvita, enda er þeim hleypt jafnóðum út og þeir hafa sofið úr sér. Ég leyfi mér því að benda Birni og Stefáni á leið til að hamla gegn hálfvitaskapnum: Gapastokkum á Arnarhóli. Líklega kæmi þó allt fyrir ekki og það myndi fljótlega þykja töff að fara í gapastokkinn, á sama hátt að það eru viðurkennd töffheit í hópum hálfvita að haga sér eins og hálfviti. Hálfvitar í gapastokkum yrði brátt vinsælasta efnið á netinu næst á eftir fullum stelpuhálfvitum í sleik.

En hálfvitar þurfa alls ekki að vera fullir til að láta til sín taka í ruglinu. Allsstaðar þar sem mannskæð átök ríkja eru hálfvitar að verki stútfullir af ýmiskonar hálfvitaskap: trúarhita, græðgi, fordómum og rugli. Hálfvitaskapurinn virðist hafa fest sig í sessi og mun bara aukast eftir því sem við færumst nær endalokum tegundarinnar. Nema svo ótrúlega vilji til að fólk hætti bara þessum hálfvitaskap.