Fréttamat

Líf dýra eru misdýrmæt. Í fínu lagi er að slátra rottum og mávum miskunnarlaust, en allt yrði vitlaust ef eitrað væri fyrir veluppöldum kettlingum eða verðlaunahundar skotnir á færi. Hestur sem finnst soltinn í bás kallar á sterk viðbrögð samfélagsins en hrekkjusvíni sem tekst að murka lífið úr villtum minki við tjörnina er hampað sem hetju. Við troðum okkur út af gómsætu kjöti án þess að pæla í því að einu sinni var það hrínandi, baulandi og jarmandi, en fáum tárin í augun þegar Lassie fótbrotnar í bíó. Svona er tvískinnungurinn algjör og ekkert í því að gera nema gerast grænmetisæta og góðmenni – en hver nennir því?

Að sama skapi virðast mannslíf misdýrmæt. Að minnsta kosti sé miðað við fréttirnar í sjónvarpinu, en þær eiga sem kunnugt er að sýna okkur lífið eins og það er. Á hverjum degi eru spengdir upp svo og svo margir Írakar. Þetta er síendurtekin frétt og búin að dynja á okkur lengi. Nýjustu fréttir um fallna hörfa lengra og lengra inn í fréttatímana, enda allir komnir með hundleið á þessu. Á mánudaginn skaut brjálaður maður 32 í amerískum háskóla. Þetta kallaði á vandaðan og nákvæman fréttaflutning og auðvitað var þetta fyrsta frétt. Þetta var náttúrlega óvæntari og ferskari dauðafrétt en þessar endalausu frá Írak.

Í apríl hafa nú þegar um 700 íraskir borgarar verið drepnir. Það er svipað og ein Bolungarvík. Á sunnudaginn voru til dæmis 35 Írakar drepnir og mörgum sinnum fleiri særðust. Á einum stað hafði verið komið fyrir sprengjum í tveimur bílum og sprakk seinni sprengjan þegar björgunarmenn voru að hlúa að þeim sem lentu í fyrra sprengingunni. Þessi daglegi skammtur af viðbjóði var tíunda frétt sjöfrétta Rúv, langt á eftir frétt af gömlu eggjabúi í Vestmannaeyjum sem eyðilagðist í eldsvoða. Látnu Írakarnir þóttu ekki nógu merkilegir til að vera með í upptalningunni í lok fréttatímans. Þar var hins vegar sú stórfrétt höfð með að Hong Kong búar hafa fengið tvær pöndur að gjöf frá dýragarði í Peking.

Kannski er þetta skiljanlegt fréttamat. Gömul eggjabú brenna náttúrlega ekki á hverjum degi í Vestmanneyjum og pöndurnar eru auðvitað í útrýmingarhættu – bara 3000 stykki eftir. Það eru hinsvegar enn til rúmlega 26 milljón Írakar, þótt þeim fari fækkandi.