Lýðræðisleg leiðindi

Fátt er leiðinlegra en kosningafundir sem fjölmiðlar finna sig nú knúna til að bjóða upp á. Því ríður á að passa sig að opna ekki fyrir útvarp eða sjónvarp næsta mánuðinn því alls staðar er hætta á að þaulæft froðusnakk fólks sem æst er í að ná sér í þægilega innivinnu næstu fjögur árin skelli á með offorsi. Leiðindi eru ekki eftirsóknarverð þótt séu lýðræðisleg.

Þarna sitja þeir í settinu, frambjóðendurnir. Sumir þrútnir og iðandi, aðrir glottandi og tilbúnir með það sem finnst leiftrandi lúmskar athugasemdir. Svo er talið í og tuðið hefst. Munnar frambjóðenda fara á krúskontról og moka út vaðli sem aldrei kemur á óvart. Frumleg hugsun virðist bönnuð og einlægni illa séð. Aldrei fæst svar við því sem er spurt um, bara loðið röfl um eitthvað allt annað. Umsjónarmenn standa í ströngu við að segja frambjóðendum að halda kjafti á kurteislegan hátt þegar frammígjammið fer úr böndunum. Frambjóðendur setja fram sannfærandi tölur sem eru dregnar sannfærandi í efa. Einn segir eitt, annar segir annað, nei nei og jú víst, sumir urra, aðrir setja upp hundshaus. Fúllyndir frambjóðendur reyna sitt besta til að líta vel út en springa oftast á limminu svo skín í ólundina. Eina leiðin til að hafa örlítið gaman af þessu er að ímynda sér að allir séu allsberir.

Auðvitað lofa allir unaðslegri framtíð í besta landi í heimi. Sokkafólkið í stofum landsins á í mestu erfiðleikum með að ákveða sig því allir virðast svo góðir: ætla að leysa brýnustu vandamálin fljótlega eftir kosningar og auðvitað redda vandamálum öryrkja og öldraðra eins og síðast – og þarsíðast.

Maður hefur svo sem ekki yfir miklu að kvarta í landi þar sem helsta tilvistarspurningin er hvort maður eigi að fá sér karamellu- eða súkkulaðisósu á ísinn sinn. Og þó: fákeppni, okur og vinnuálag eru mál sem mætti ræða. Þau sitja á hakanum í tuðbylgjunni. Flest önnur mál eru talin merkilegri en það hvort við eigum bara áfram að þurfa að vinna mest allra til að hafa efni á dýrasta mat og dýrustu lánum í heimi.

Þegar allt kemur til alls geta kjósendur verið vissir um aðeins eitt, sama hver vinnur kosningarnar: Komin í þægilega innidjobbið verður þeirra allra fyrsta verk að hækka kaupið sitt.