Klárara fólk

Tímarnir eru svo sannarlega breyttir og það til batnaðar. Annar hver maður rúllar nú um í hvílíkum vellistingum að það slagar hátt upp í Loðvík 16. Og ef einhver er með múður þá má auðveldlega svissa ,,hva, geta þau ekki bara étið kökur” út fyrir ,,voðaleg forpokuð öfundsýki er þetta, má fólkið ekki eyða sínum eigin peningum eins og því sýnist?”

Ég hafði bilt mér andvaka í rúminu um stund, veltandi því fyrir mér hvernig stæði eiginlega á þessari hrikalegu velferð. Ég var alveg að gefast upp að hugsa um þetta, og eiginlega búinn að ákveða að þetta væri bara eitt af því mörgu sem er fyrir ofan minn takmarkaða skilning, þegar ég loksins fattaði allt. Niðurstaða mín er að fólk er einfaldlega orðið mörgum sinnum klárara en það var fyrir nokkrum áratugum.

Hvernig er annars hægt að útskýra það að stjórnarformaður skipafyrirtækis sé orðinn eins og Jóakim aðalönd? Ég man ekki betur en einu sinni hafi öll skipafyrirtæki – Ríkisskip, Hafskip of hvað þetta hét – endalaust verið á hvínandi kúpunni. Mennirnir sem þar stjórnuðu voru greinilega algjörir vitleysingar miðað við þennan klára og ríka sem bauð í partíið.

(Ég verð annars að þakka ríku körlunum fyrir þá tillitssemi að bjóða eingöngu upp á notaða erlenda skemmtikrafta sem hafa þegar spilað á Íslandi. Það væri dálítið fúlt ef næsti milljónamæringur tæki inn eitthvað af viti sem maður vildi sjá, t.d. The Who eða Billy Joel. Drullufúlt ef maður þyrfti að norpa fyrir utan eins og litli karlinn með eldspýturnar en gæti ekki verið inni eins og hver annar Hómer í veislu hjá Mr. Burns.)

Það sama hefur gerst í bankabransanum. Þar hafa miklu klárari menn tekið við. Ég man ekki betur en bankar hafi yfirleitt verið reknir með tapi fyrir nokkrum áratugum. Þetta var endalaust basl og svo fór allt á hausinn fyrir rest. Hvað voru Sverrir Hermannsson og þessir karlar eiginlega alltaf að gera? Vissu þeir það nokkuð sjálfir?

Eðlilega komast klárir menn upp með meira. Sverrir greyið mátti ekki fara í skitinn veiðitúr án þess að þjóðfélagið færi á límingunum. Ef hann hefði birst einn daginn á einkaþotu eins og Björgólfur Þór er aldrei að vita nema þrælslund Íslendinga hefði gefið sig og það hefði komið til blóðugra átaka á götum úti.

Svo höfum við líka miklu betri Bubba Morthens. Vitleysingurinn sem trallaði um bág kjör verkafólks hefur verið skipt út fyrir klárara módel sem alltaf er fyrstur mættur með gítarinn í ríkukallapartíin. Húrra fyrir nýjum, klárari og betri tímum!