Aðdráttarafl Íslands

Ég skal vera jákvæði gæinn í dag. Ekki veitir af.

Alveg er það nú magnað hvað Ísland er stórkostlegt land. Það er ekki glæta að ég skammist mín fyrir að vera héðan þó nokkrir apar hafi fengið of lengi að henda skít úr búrunum sínum. Ég er búinn að þvælast dálítið um undanfarnar vikur og velta fyrir mér í hverju aðdráttaraflið felst.

Í fyrsta lagi er það auðvitað landið sjálft, landslagið. Að dorma í lyngbrekku við fuglasöng og stórfenglegt útsýni, eins og til dæmis í Þórsmörk, einum alfallegasta bletti heimsins, er engu líkt. Sú upplifun verður aldrei metið til jafn ómerkilegs fyrirbæris og fjár. Andstæðurnar og fjölbreytnin hér finnst eiginlega hvergi annars staðar á hnettinum.

Við búum í konfektkassa og sitjum ofan á matarkistu. Hér er allt vaðandi í frábæru hráefni sem mætti nýta miklu betur. Afhverju er til dæmis engin fiskbúð á Akureyri? Í hvaða smábúð sem er á Spáni er betra kjöt- og fiskborð en í búðum hér. Hvar eru búðirnar sem selja vörur beint frá bændum?

Hvergi fær maður betri ís en á Íslandi. Heimagerðan ís beint af beljunni má nú fá á þremur bæjum á landinu, á Erpsstöðum við Búðardal og á Brunnhóli við Hornafjörð. Lengst er Holtasels-ísinn í Eyjafirði kominn í vöruþróuninni. Það líður varla sá dagur að ég hugsi ekki slefandi um bláberjaskyrísinn sem ég fékk þar.

Á Íslandi eru bestu sundlaugar í heimi. Sú nýjasta er á Álftanesi og er enn ein snilldarlaugin á landinu. Hvað þarf meira en að komast í sund og borða ís? Og liggja í konfektkassanáttúru þess á milli?

Veðrið já. Ég gleymdi því. Í vondu veðri kemur fjórða aðdráttaraflið sterkt inn: Skrítið fólk. Sem betur fer er fullt af skrítnu fólki á Íslandi til að brjóta upp gráa meðalmennskuna. „Venjulegt“ fólk fer langar leiðir til að upplifa „öðruvísi“ fólk. Við Arnarfjörð lokkar Selárdalur með sína gengnu furðufugla, Gísla og Samúel. Á Bíldudal er frábært tónlistarsafn meistara Jóns Kr. Á Patreksfirði eru eldhugar að drífa upp hið frábæra Sjóræningjasafn. Í Eyjafirði er smámunasafn Sverris Hermannssonar og Safnasafnið með sínum ótal afbrigðum af sérvisku.

Þetta mun rífa okkur upp af þynnkunni. Það getur ekki klikkað.