Ferð Atla og Hörpu til Halkiðiki í maí og júní 2016

Atli kom til Aþenu 22. maí, var þar á ráðstefnu í tvo daga og fór þaðan í rútu til Þessaloniki með viðkomu í Volos. Harpa flaug til Þessaloniki 25. maí. Þaðan fórum við saman til Sarti á Siþoniuskaga þann 26. maí og dvöldum þar í tvær vikur. Á þeim tveim vikum skruppum við í siglingu til Aþos og í bíltúr til Stageiru hinnar fornu þar sem Aristóteles ólst upp. Síðustu fimm dagana dvöldum við í þorpinu Agia Triaða rétt hjá Þessaloniki. Við flugum heim gegnum Berlín 14. júní.


1. Á Akropolishæð í Aþenu.

2. Við þinghúsið í Aþenu. Áletrunin fyrir ofan dátann er tilvitnun í fræga ræðu Periklesar og minnir á að grundin öll sé gröf hinna bestu manna.

3. Með kollega við kennaradeild háskólans í Volos.

4. Þorpið Sarti á austanverðum Siþoniu-skaga.

5. Harpa við gamalt hús í Sarti. Gömlu húsin í þeim bæ voru mörg byggð fyrir tæpri öld af flóttamönnum frá Litlu-Asíu. Þeir urðu um helmingur íbúa í Makedóníu þegar grískumælandi íbúar Anatólíu voru hrakktir að heiman eftir katastrófuna í Smyrnu.

6. Harpa í Sarti.

7. Harpa í Sarti.

8 . Harpa í Sarti.

9. Veitingahús í Sarti.

10. Veitingahús í Sarti.

11. Fjallið helga á Aþos-skaga blasir við frá Sarti.

12. Fjallið helga.

13. Fjallið helga.

14. Í siglingu að Fjallinu helga á Aþos-skaga.

15. Klaustur á Aþos-skaga.

16. Dæmigert landslag á Siþoniu-skaga.


17. Dæmigert landslag á Siþoniu-skaga.


18. Appelsínuströndin skammt norðan við Sarti á Siþoniu-skaga

19. Appelsínuströndin skammt norðan við Sarti á Siþoniu-skaga

20. Inngangur í rústir Stageiru hinnar fornu. Aristóteles fæddist í borginni Stageiru í Makedóníu fyrir réttum 2400 árum. Rústir þessarar fornu borgar eru á nesi rétt hjá þorpi sem heitir Olympiaða. Sumt af þessum rústum er frá tímum Aristótelesar en sumt frá seinni öldum. Þær eru á afgirtu svæði sem er opið almenningi á daginn. Þorp sem nú er í byggð og heitir líka Stageira er nokkrum kílómetrum sunnar. Til aðgreiningar er gamla borgin kölluð Stageira hin forna.

21. Rústir Stageiru hinnar fornu.

22. Rústir Stageiru hinnar fornu.

23. Í Stageiru hinni fornu. Ef til vill sést þarna sundalaug Aristótelesar?

24. Kaffihús í Vúrvúrú á Siþoniu-skaga. (Í Makedóníu hefur enginn maður heyrt að neitt sé athugavert við lausagöngu hunda fremur en annarra húsdýra. Þeir þvælast um allt rétt eins og bæjarhundar í Biskupstungum gerðu þegar ég var krakki.)

25. Kaffihús í Vúrvúrú á Siþoniu-skaga. (Í Makedóníu hefur enginn maður heyrt að neitt sé athugavert við lausagöngu hunda fremur en annarra húsdýra. Þeir þvælast um allt rétt eins og bæjarhundar í Biskupstungum gerðu þegar ég var krakki.)

26. Í Agai Triaða. Á minnismerkinu stendur: „Ikonomio gamla land, í Agia Triaða búa börn þín núna“ (en líkt og Sarti byggðist þetta þorp flóttamönnum frá Tyrklandi á þriðja áratug síðustu aldar).

27. Agia Triaða.

28. Bæjarhundar í Agia Triaða nýta skugga af sólhlífunum á ströndinni. Borgin í baksýn er Þessaloniki.

29. Bryggja í Agai Triaða. Textinn á veifunni segir „Ekki einn sopi af Amita, Fanta, Avra eða Coca Cola fyrr en verksmiðjan fer aftur í gang“ og hann er undirritaður „Verkfallsmenn“.

30. Við Agia Triaða.

31. Við Agia Triaða.

32. Harpa í sjónum við Agia Triaða. Á ströndinni fyrir handan er borgin Þessaloniki.

33. Við Agia Triaða.

34. Á Aristótelesartorginu í Þessaloniki.
Ah. 19. júní 2016